Vísir - 29.04.1969, Blaðsíða 4
//
GEIMFERÐIM ARIÐ 2001
44
Nokkrar sekúndur kvikmyndarinnar kostuðu 7 millj kr
Fá danskir
nasistaprestar
að starfa
aftur?
Sjö eða átta danskir prestar
bíða nú spenntir dómsniðurstööu
í máli Johannesar Martin Jensen,
sem vill verða fullgildur klerkur
að nýju. Þessir prestar misstu
stöðu sína vegna samstarfs við
nasista. Landsrétturinn hefur stað
fest, að Jensen geti fengið stöðu
sína, en kirkjumálaráðuneytið kær
ir til æðra dóms.
Prestar þessir eru nokkuð
komnir til ára sinna, en hafa þó
futlan hug á endurheimt æru, og
sumir sækjast eftir brauði. Kirkju
málaráöuneytið veitti Jóhannesi
Jensen árið 1965 leyfi til að verða
aðstoðarprestur í Sogni á Noröur-
Jótlandi. Síðan sótti Jensen um
betra embætti á Læsö. Hann seg
ir nú, að það sé augljóslega um
að kenna fortíð hans sem nasista,
að honum var hafnað, og ráðu-
neytið hefur ekki borið á móti
því.
Johannes Jensen var ekki starf
andi prestur í Danmörku, þegar
stríðinu lauk. Hann var blaðamað
ur í Þýzkalandi.
Sóknarböm klerksins í Sogni
fylla kirkju hans hvern dag til að
styrkja hann í baráttunni, og nú
fara fermingar í hönd.
Málið varðar fleiri klerka í Dan
mörku, en sem kunnugt er fóru
þarlendir hörðum höndum um
nasistavini, þegar stríðinu lauk.
Hvernig verður heimurinn eftir
32 ár? I kvikmyndinni „Geim-
'feröin árið 2001“ gefur Stanley
Kubrick í skyn, að mannsandinn
kunni að skreppa saman, þegar sá
heimur stækkar, er maðurinn
skynjar. Andlegt ryk innan um
tröllslegar vélar. Kubrick lét gera
risavél eina fyrir myndina, og
sést hún í nokkrar sekúndur á
tjaldinu. Hún kostaði um sjö
milljónir íslenzkra króna.
Kvikmyndin hefst á þvi, aö ap-
ar rölta um, bognir og skakkir.
Allt í einu eru þeir gripnir ótta.
Furöusteinn birtist í lofti, x)g
sálmasöngur bergmálar. Þetta '*yr
irbæri á að lýsa mætti trúarinn-
ar, sem á svipstundu flytur apana
þúsund ár fram í tímann. Einn
þeirra þrífur bein og vegur það
í hendi sér. Hann kastar beininu,
og það breytist i geimskip.
Skrifaö á 2400 klukkustundum.
Stanley Kubrick og Arthur C.
Clarke voru 2400 klukkusíundir
að skrifa verkið. Þetta er saga
um geimferðir og vanmátt mann
skepnunnar.
Söguhetjan, geimfarinn, þeytist
um geiminn og fær tölvu eina
sem förunaut og leiðsögumann.
Tölvan virðist einna helzt „gam-
aldags“, svo frumlegt er allt í
þessari kvikmynd. Að því kemur,
að tölvan veröur að „deyja.“ Á
banastundinni syngur hún um
,,Daisy“, hægar og hægar, unz
röddin fjarar út.
Geimfarinn deyr lfka f k)k
myndarinnar. Síðast sést á tjald
inu röntgenmynd af hauskúpu
hans, sem breyttst í fóstur með
stórum augum. Þannig lýkur þess
ari mynd með nýjum ráðgátum,
sem Kubrick ætlast til, að áhorf-
endur velti fyrir sér, þegar þeir
koma heim í rúmið.
Kvikmyndina átti aö sýna í
Kaupmannahöfn nú um helgina.
Minnkar mannsandinn, þegar meðvitaður alheimur stækkar?
Frantlcíðendur:
Vcfarinn Iif.
Últíma Iif.
Alafoss
Tejapi hf.
Hagkvcem og góð [ijthiusta
Ennfrémur nælontepjti og
önnur erlend teppi í
úrvali
Johannes Jensen
Mðl hans bíður dóms.
maisH
.Siiðurlamlsbraut 10
Sími 83Ö70
'/,o ÞAÐ ER LEIÐIN
Vanti yður gólfteppi þá er „AXMINSTER" svarið. Til 22. apríl bjóðum við yður að eign
ast teppi á íbúðina með aðeins 1/10 útborgun og kr. 1.500.00 mánaðargreiðslum
AXMINSTER
Grensásvegi 8
ANNAÐ EKKI
Sími 30676
ssiimmiT
*£*
•Þ *
*spa
' Spáin gildir fyrir miðvikudaginn
30. apríl.
Hrúturinn 21. marz til 20. apríl.
Skemmtilegur dagur að því er
virðist. Gagnstæða kynið kemur
talsvert viö sögu, og rómantík-
in virðist skammt undan hjá
yngri kynslóðinni. Farðu vel
með peninga þína er á líður
daginn.
Nautið, 21. april til 21. maí.
Þetta getur orðið einkar
skemmtilegur dagur, ef þú setur
ekki smámuni um of fyrir þig.
Fjölskylda þín skilur þó ef til
vill ekki afstöðu þína til hlítar í
einhverju vandamáli.
rvíburarnir, 22. mai til 21. júni.
Farðu gætilega í öllum ákvörð-
unum, sér í lagi hvað snertir
álit þitt á þeim mönnum, sem
þú umgengst. Taktu ekki um of
mark á yfirborðinu og ytra
gervi, sízt þegar á líður daginn.
Krabbinn, 22. júní til 23. júli.
Eitthvað getur komið þér mjög
þægilega á óvart í dag. Þú mátt,
að því er virðist, eiga von á
góðum gesti, eða þú færð góðar
fréttir af einhverjum kunningj-
um þínum í fjarlægð.
Ljónið, 24. iúli ti) 23. ágúst.
Gefðu gætur að gagnstæða kyn-
inu í dag, taktu blíömælum vel,
en treystu því hins vegar ekki,
að .mikið mark sé á þeim tak-
andi — og sízt er frá líður. —
Stilltu í hóf öllum kostnaði.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.
Fjölhæfni þín virðist á einhvem
hátt koma sér vel fyrir þig í
dag. Yfirleitt virðist allt munu
verða tiltölulega rólegt í kring
um þig, að minnsta kosti á yfir-
borðinu.
Vogin, 24. sept til 23. okt.
Veröi leitað ráða hjá þér, skaltu
ekki ganga að því sem gefnu,
að sá hinn sami veiti þér að
öllu leyti hlutlausar upplýsing-
ar. Hagaðu svo afstöðu þinni og
svörum í samræmi við það.
Drekinn, 24. okt til 22. nóv.
Hafir þú það hugfast í dag, að
oft má satt kyrrt liggja, eru
líkur til að þú komist hjá tals-
verðum óþægindum. Óstundvísi
og brigðmælgi geta sett heldur
leiðan svip á afstöðu annarra.
Bogmaðurinn, 23. nóv til 21. des
Góður dagur yfirleitt, ef þú gæt-
ir þess að leggja ekki of hart að
þér. Hvíldu þig eða skrepptu í
Istutt ferðalag í kvöld en
skemmtu þér í hófi.
Steingeitin, 22. des. til 20. jan.
Dagurinn virðist vel fallinn til
styttri ferðalaga, hvíldar og um-
hugsunar, en vafasamur hvað
snertir þátttöku í samkvæmum
eða öðrum mannfagnaði. Faröu
gætilega með peninga.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.
Einhverjum áfanga virðist lokið
í dag. Ellegar þú kemst að ein-
hverri niðurstöðu, sem alllengi
hefur vafizt fyrir þér. Kvöldið
getur orðið mjög skemmtilegt í
fámenni, heima og heiman.
Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz.
Það lítur út fyrir að þetta geti
orðið einkar skemmtilegur dag-
ur, nema fyrir þá, sem tilneydd-
ir eru að taka þátt í einhverju
samkvæmi þegar kvöldar, og
valda mun vonbrigðum.
WUaMMHUMIMU'.i, /XUMUx.'