Vísir - 29.04.1969, Blaðsíða 5
5
V í SI R . Þriöjudagur 29. apríl 1969.
Verður bað-
og hvíldar-
herbergið
almennings-
eign árið
1980?
rJ'ækniframfarirnar gera þaö að
verkum, aö hiö daglega líf
mannsins beinist meir og meir
að því aö gera lifið þægilegt. Þvi
er haldiö fram aö eftir nokkur
ár þurfi mannesícjurnar aöeins
aö vinna í nokkrar klukkustund
ir á dag. Aðra vinnu sjái sjálf-
virkar vélar og vélmenni um. —
Þess vegna veröi manneskjan
aö finna upp verkefni til að fylla
líf sitt meö og stytta sér stund
ir. Og þar sem maneskjan þráir
alltaf meiri og meiri þægindi
veröi aö gera íbúðarhúsnæöið til
breytingaríkt í samræmi við
tímann.
Þessu halda sérfræöingar
tækniháskólans i þýzku borg-
inni Hannover fram og vilja
hjálpa til viö aö þessar fram-
farir í húsnæöi komist í fram-
kvæmd. Þess vegna bjuggu þeir
til „stofubaöið“ sem er í einu
baöherbergi og hvildarherbergi
meö möguleikum til ýmissar
tómstundaiðju.
Þetta sérstæöa baóherbergi er
aö mestu úr efninu plexigler og i
ýmsum litum. Þvi er skipt niöur
í deildir til ýmissa nota. Ein
deildin er ætluö til snyrtingar,
önnur fyrir aö horfa á sjónvarp,
enn önnur til aö lesa í, og aörar
fyrir þaö aö rabba saman og
hvila sig. Öllum deildunum er
raöaö niður í kringum stórt,
hringlaga baöker, sem er sett
niður i gólfiö. En yfir því er
sturta, sem kemur niður úr loft
SNÆF ^LAST*
PLASTLAGÐAR spónaplötur, 12-16 og 14) mm
*
PLASTLAGT hardtex.
X-
HARÐPLAST í ýmsum litum
SNÆPLAST er ÍSLENZK framleiðsla
VEUUM ÍSLENZKT- Spónn hf.
ÍSLENZKAN IÐNAÐ f Skeifan 13, Sími 35780
Vélabókhald — Reíknlngsslcil
BÓKHALD OG UMSÝSLA H/F
ÁSGEIR BJARNASON
Laugavegi 178 • Box 1355 . Símar 84455 og 11599
UPPGRÖFTUR
ÁMOKSTUR
HÍFINGAR
Plexiglersturtan kemur niður úr spegilklæddu lofti.
Kranar
Skurö-
eröfur
jrafvéLar
Vélaleigan
Simi 18459.
Gröirim húsgrunna
Önnumst jarðwegs-
skrpti i hús-
gninnum og vega-
stæðum o. 9. jarð-
vmnu.
VELALEKiAN
Sími 18459
inu, sem er gert úr speglum.
Rétt viö dyrnar er rafeindatafla,
einnig viö bekkina, sem eru í
baðherberginu og í seilingar-
færi frá baðkerinu. Meö þessari
rafeindatöflu getur maöur opn-
aö fyrir vatnið og sturtuna, látiö
Ijós leika um herbergið eöa
töfraö fram þokulýsingu, meö
henni er lika hægt aö stjóma
loft- og vatnshita, setja þurrk-
ara meö heitu lofti í gang, ná
sambandi og tala í simann og
innanhússímakerfiö.
Þurr og rök svæöi herbergis-
ins eru vel aðskilin meö upphitun
og loftræstingu. Eftir baóiö er
hægt aö horfa á sjónvarpiö, fá
sér drykk úr barskápnum eöa
láta fara vel utn sig í Ieshorninu.
Þessi samruni baöherbergis
og hvíldarherbergis er áætlaöur
almenningseign áriö 1980. Þó er
hægt aö búa þaö til nú. En þaö
kostar ekki neina smámuni og
hver veit hvaö verður þaö nýj-
asta þegar kómiö er aö árinu
1980?
\ Við sjáum hér nokkur af þægindum bað- og hvíldarherbergisins