Vísir - 29.04.1969, Qupperneq 16
VISIR
Þriðjudagur 29. anrfl 1969.
Munið^ \J ■, / Múlakuffi
I nýju 55" y Sínti
I; grillið < > 37737
INNRÉTTINGAR
SIDUMÚLA 14 - SIMI 35646
Gerir alla ánægða
ÆSKA OG
! ELLIUNDIR
SAMA
□ Félagsheimili eldra
| fólksins hefur starfsemi
sína .í Tónabæ á morgun.
Þá verður „opið hús“ og
þannig verður það fyrst
um s nn einu sinni í viku
| — á miðvikudögum.
Fyrstu þrjá miðvikudagana
verður fjölbreytt dagskrá fyrir
eldra fólkið. Starfsemin verður
þá kynnt og samtímis leitazt við
að kanna áhugamál þátttakend-
anna, svo að þeir, sem hafa sam-
eiginleg áhugamál, geti síðar
ÞAKI
skipt sér í hópa etfir áhugamál-
um t. d. bridge, saumaskap,
föndri eða leshringum fyrir þá
er hafa áhuga á að auka þekk-
ingu sina. Starfsemi hópanna
hefst eftir því sem tekst aö út-
vega leiðbeinendur.
Dagblöð, tímarit, spil og skák-
borð munu liggja frammi til af-
nota fyrir gesti. Allar veitingar
verða gegn mjög vægu gjaldi t.
d. er kaffi og brauð dagsins á
kr. 25. Þarna mun einnig verða
veitt upplýsingaþjónusta um
hin ýmsu velferðarmál eldri
borgara.
Blaðið hafði samband við
Geirþrúöi Bernhöft ellimála-
fulltrúa, sem skýröi frá því að
Þannig er umhorfs í Tónabæ unga fólksins. Á morgun tekur gamla fólkið völdin á staðnum yfir daginn.
kynningarbréf hefði verið sent
eldra fólki, fyrir skömmu um
starfsemina fyrirhuguðu, sem er
ætluð öllum ellilífeyrisþegum.
Tónabær verður opnaður á
morgun kl. 2 e.h. en dagskráin
hefst kl. 2.30. Þá flytur borgar-
stjóri Geir Hallgrímsson ávarp,
kvartett ungra stúlkna úr Tón-
listarskólanum flytur nokkur
Iög, prófessor Sigurður Nordal
talar, kaffihlé og þá fer fram
skoðanakönnun. Lárus Ingólfs-
son leikari syngur gamanvísur
við undirleik Magnúsar Péturs-
sonar.
Næstu miðvikudaga verður
dagskráin með sama sniði en
fyrirlesarar aðrir, þeir Tómas
Guðmundsson og Guðmundur
Hagalín.
Allur aðgangur að Tónabæ er
ókeypis og sömuleiðis miðarnir,
sem eru afhentir fyrir þrjá
fyrstu miðvikudagana, daglega
að Fríkirkjuvegi 11, milli kl.
2—8.
’om
Gengið á vatni?
• Það er engu líkara en að Andri Heiðberg, kafari, flugmaður og
þúsundþjalasmiður, gangi þarna á vatninu, en svo er þó ekki.
Myndavélin „festi“ hann einmitt í þann mund, sem hann var að
sökkva í Reykjavíkurhöfn til að ná dræsunum úr skrúfu þýzka
skuttogarans Husum, sem Vikingur bjargaði úr ísnum við Græn-
land. Hjálparmaður Andra er bróðir hans, Jósef, og nota þeir af-
líðandi skutinn til að athafna sig.
/ þýzku fangelsi /
nærfellt tvo mánuði
grösum og yfirheyrslur um ávisanafals
Framsal á næstu
# í dimmri dýflissu í Frank-
furt í Þýzkalandi kúrir ung-
ur íslendingur, en hans bíður aö
verða framseldur íslenzkum
dómsyfirvöldum.
Interpol — þýzka deildin —
handtók manninn í Frankfurt í byrj
un marz að beiðni íslenzku lög-
reglunnar, sem leikur mikill hugur
á að ná tali af manninum vegna
fjögurra falsaðra ávísana að upp-
hæö 272 þúsundir íslenzkra króna.
Manninum tókst að komast úr
landi með peningana á elleftu
stundu, eða í sama mund og lög-
reglan var komin á hæla honum.
Voru spor hans rakin til Luxem
burgar, en síðan hafði Interpol
uppi á honum í Frankfurt.
Gjffldeyrissjódurinn
stendur í stað
# Gjaldeyrissjóðurinn okkar hef-
ur ekkert vaxið í marzmánuði.
Var staðan jákvæð um 443,1 milij-
ón hinn 1. apríl, en hafði verið
440,1 millj. í marzbyrjun. í árs-
byrjun voru 302,2 millj. í þessum
„sjóði“. Gjaldeyrisstaðan batnaði
um 800 milljónir fyrstu fjóra mán-
uði eftir gengislækkunina. Var nei-
kvæð um 376 millj. 1. nóvember
1968, reiknað á núverandi gengi.
# Engin teljandi ný lán höfðu á-
hrif á stöðuna í marz. „Löng
lán“, til eins árs eða lengri tíma,
auka „sjóðinn“ en skemmri lán
ekki. Þannig hefur gjaldeyrislánið
frá í haust (660 millj.) ekki bein á-
hrif á stöðuna. Hins vegar mun til
dæmis þýzka lánið (550 millj) verða
til að bæta hana.
Framsal útlendinga í Þýzkalandi
tekur venjulega drjúgan tíma —
fjórar til sex vikur — og nú er
liðinn hálfur annar mánuður, síðan
yfirvöld hér sendu framsalsbeiðni
Dómsmálaráðherra mun hafa á-
kveðið að víkja frá störfum „þeim,
er meginályrgð hefur haft á fjár-
stjóm“ embættis . húsameistara.
Kemur það fram i athugasemdum,
sem fjármálaráðherra hefur sent i
blöðunum. Fjármálaráðherra segir, I
að uppræting allrar fjármálaspill- I
ingar f ríkiskerfinu sé þjóðfélags- I
nauðsyn. Fyigzt verði með því, að
úrskurðum ríkisendurskoðunar í
slíkum málum verði framfylgt í
viðkomandi ráðuneytum.
Það skuli vera meginstefna, ef
upp komist um alvarlegt fjármála-
legt misferli ríkisstarfsmanna, að
þeir víki frá störfum og endur-
greiði fé, sem þeir hafa ranglega
til sín tekið.
Embætti húsameistara ríkisins
hafi farið út fyrir verksvið sitt.
Ríkisendurskoðunin hafi í samráði
við ráðherra ákveðið að láta fara
fram allsherjar athugun á fjárreið-
um þessa embættis um nokkurra
ára skeið.
Embætti húsameistara var ný-
lega gagnrýnt á Alþingi fyrir
til þýzkra yfirvalda og á meðan '
hafa verið könnuð ýmis lögfræði i
leg formsatriði. En nú er búizt við'
því að maðurinn verði framseldur,
mjög bráðlega.
„stjórnleysi í fjármálum", eins og
fréttir hafa hermt. Ríkisendurskoð-
unin og yfirskoðunarmenn ríkis-
reikninga höfðu gert verulegar at-
hugasemdir viö launagreiðslur til ■
tveggja starfsmanna,
Síldin flækást í net-
unum ixfi á FBéa
SÍLD hefur naumast verið nefnd
á nafn í verstöðvunum hér syðra
í háa herrans tíð. Skipverjum á
netabátnum Keili frá Akranesi
brá því heldur betur, þegar þeir
drógu netin sín nú um helgina.
Stórar og feitar síldar höfðu
flækt sig í möskvunum og náðust
ein 40 stykki um borð. Venjulega
smýgur sildin i gegnum möskvana
og er mjög óvenjulegt að svo marg-
ar síidar flækist í neturrr. — Er
trúlegt að allstór torfa hafi farið
þarna um.
Þykir mönnum þetta gefa fyrir-
10. síöa.
„Hinum ábyrga
vikið úr staríi
segir fjármálaráðherra um húsameistaraembættið