Vísir - 21.05.1969, Side 9

Vísir - 21.05.1969, Side 9
VÍSIR . Miðvikudagur 91. maí 1969. 9 Féll í gær, hækkaði í dag, en hvað á morgun? um Evrópumarkaðinn. Vegna aukins framboðs á freðfiski með tilkomu frystitogaraflota Breta og V.-Þjóðverja, og nú síðast Spánverja, og Frakka, hafa sölumöguleika takmarkazt mjög þar, enda verölag þar lágt á freðfiskafurðum. ■ Svíþjóðarmarkaður, Ítalíumarkaður, Nígeríumarkaður, Am- eríkumarkaður, Rússlandsmarkaður, markaðurinn í dag ... markaðurinn á morgun. Eins og margra arma kolkrabba, sem teygir arma sína um öll lönd veraldar, skynja menn þetta ferlíki, sem á skrifstof- um, inni í þingsölum, á kaffihúsum og alls staðar — þar sem tveir menn taka tal saman — ber á góma og er þá nefnt markaður. jy/JTenn hrista höfuöiö og setja upp áhyggjusvip um leið og sagt er að markaðurinn sé fallandi, en verða um leið hress- ari í bragði, þegar sagt er, að horfur fari batnandi á markað- inum. Þar til fyrir þrem árum eða svo, leiddi þó þorri manna allt tal um markað og markaðshorf- ur hjá sér. Þeir einir, sem stóðu í beinni snertingu við útflutn- ing afurðanna, Iétu þessi mál til sín taka. En þegar tekjur ís- lendinga af vöruútflutningj rýrn uðu um 40% á tiltölulega skömmum tíma vegna veröfalls á erlendum mörkuðum, fundu sendillinn og vélritunarmærin, jafnt og útflytjandinn sjálfur. þvala arma kolkrabbans toga lffsafkomu þeirra niður á við. Síðan les hver sála með á- fergju allar frétt'r af aflabrögð- um fiskimanna í Perú — það hefur áhrif á mjölveröið — hvalveiðum Norömanna f Suð- urhöfum, — það hefur áhrif á lýsisverðið — og svo fram- vegis. Þar sem fleiri er orðið ljóst en áður var, aö það er ekki nóg aö moka aflanum á land og safna háum stæðum af fiski í vöruskemmur, hefdur þarf líka að koma honum f verð, þá eru þeir fleiri, sem leiða nú hugann að því, að lokinni feng- k sælli vertíð hverjar horfur eru á sæmilegri sölu afurðanna á erlendu mörkuöunum. Bjartsýni í frystum fiski Ef litið er til markaða fyrir frystar fiskafuröir, verður mönn- um efst í huga markaður fyrir fryst fiskflök, því hraðfrysti- iðnaðurinn beinir framleiðslu sinni aðallega að frystum fisk- flökum, hedfrystum fiski, fryst- um humar og rækju, síld, hrogn- um og fiskúrgangi. Þar af eru frystu fiskflökin langsamlega stærsti afurðaflokkurinn. sem sjá má af árinu 1968, en þá námu útflutningsverðmæti frystra fiskfiaka 1390 milljónum króna, en heildarútflutnings- verðmæti allra frystra sjávar- afurða nárau þá 1767 milljónum króna. Þróunin í sölu frystra fisk- flaka undanfarin ár hefur verið sú, að útflutn’ugurinn stefnir svo til eingöngu til Bandaríkj- anna og Sovétrikjanna. 1968 var hlutur Bandaríkjanna 78%, en hlutur Sovétríkjanna var 19%, ef miðað er við verömæti. Fyrr- um voru markaðssvæðin þessi tvö og svo það þriðja — Evr- ópa. Eins og horfir bendir flest til þess að útflutningurinn muni beinast f jafnríkum mæli og ef til vill enn meiri inri á Banda- ríkjamarkaðinn, komi ekkert ó- vænt fyrir. Eins og t. d. að Kanadamenn spilltu verðlaginu á markaðinum með óeðlilega miklu framboðj (dumping) eða öðrum aðgerðum. Sölumögule'karnir á Banda- ríkjamarkaðinum eru með þrenns konar hætti: 1. Sala frvstra fiskflaka í neyt- endaumbúöum í gegnum smá- sölukerfiö. Hún hefur yfirleitt veriö jöfn ár frá ári og með tiltölulega lit- illi stígandi, og ekki horfur á því að ööruvfsi verði f ár 2. Sala fiskblokka í eigin fisk- iðnaðarverksmiðjum íslendinga þar vestra og ti! annarra fram- leiðenda. Eftirspurn og sala í tilreidda fiskrétti úr fiskblokk- um hefur aukizt gffurlega á síðustu árum. Framleiðsla svo- nefpdra fiskstauta og fisk- skammta jókst frá 1958 til árs- loka 1968 úr ca. 98 milljón púndum (verömæti ,42 millj. dollara) í 271 milljón punda (verðmæti 109 millj. dollara) á öllum markaðinum. 3. Nýir og auknir sölumögu- leikar vegna tilkomu svonefndra „Fish and Chips“-veitingastaða, en áætlað er, að þeim fjölgi um 1000 á þessu ári, sem hlýtur að skapa mjög aukna fiskþörf. Standist þessj áætlun Banda- ríkjamanna um fjölgun þessara veitingastaða, má gera ráð fyrir að árleg fiskþörf þeirra aukist úr ' nokkrum þúsundum tonna í 30 til 40 þúsund tonn. Á Sovétmarkaðinum hefur verið jöfn og stöðug eftirspum og sala í nokkrum fisktegund- um eins og t.d. karfa- og ufsa- flökum, sem minni eftirspurn er eftir á öðrum mörkuðum, nema þá í Tékkóslóvakíu, sem einnig hefur keypt nokkuð af ufsaflök- um af Islendingum. Þar er ekki ástæða til að vænta neinna breytinga, Þessar horfur á markaöinum hafa vakið menn til töluverðrar bjartsýni um betri tíma og vitað er til þess, að íslenzkir freð- fiskframleiðendur hafa lagt mjög mikla áherzlu á framle;ðslu svonefndra neytendaumbúða með sérstöku tilliti til markaðs- möguleikanna i Bandaríkjunum og svo Sovétrfkjunum. H;ns vegar gegnir öðru máli Mjöl og lýsi óstöðugt Horfur á markaði mjöls og lýsis eru hins vegar miklu ó- stöðugri og fáir, sem treysta sér til þess að spá nokkru um framtíöina þar. I dag er mjög gott verð á síldar. og fiskimjöli, um 72 sterlingspund fyr;r tonnið af síldarmjöIinu.Þar skiptirmáli, að vertíðin brást Norðmönnum alveg, og sömuleiðis hefur held- ur dregið úr framleiðslunni í Danmörku. Perúmenn hafa einnig framleitt m;nna magn en venja er til um þetta leyti. Lýsið er hins vegar í lægra veröi, þótt það hafi ögn lyfzt upp á síð- kastið. Það selst nú á 48 til 50 sterlingspund tonnið. í augna- á blik:nu eru því horfur góðar fyrir þessar afuröir, en á ör- hj stuttum tíma getur það breytzt. S Aflahrota í Perú í eina viku eða a svo getur kolfellt verðlagið á svipstundu. Saltsíld í óvissu Um síldina getur enginn mað- ur sagt fyrir, hvað gerist. Sá duttlungafiskur virðist engum skynsamlegum lögmálum fylgja, en fiskifræöingar telja veiðihorf- ur svipaðar og í fyrra. Mun meiri áherzla verður lögð á sölt- un síldar um borð í veiðiskip- unum í sumar en áður, og talið er, að um 50 til 80 skip muni salta um borð. Fróðum mönnum þykir ekki ólíklegt, að þannig verði sjösaltaðar um 150.000 tunnur. ef svipað veiðist og 1 fyrra, en þá voru saltaðar um borð f skipunum um 66.500 tunnur. Norömenn ráðgera einnig aukna söltun um borð í sínum skipum og vonast til þess að salta um 200 þúsund til 250 þúsund tunnur þannig. Taliö er, að markaður saltaðr- ar Íslandssíldar utan Sovétríkj- anna, geti tekið við 400 til 500 þúsund tunnum árlega, en það mark sem íslendingar, Norð- menn, Færeyingar og F;nnar hafa sett sér í söltuninni í sum- ar, fyllir um það bil þá tölu. Takist þeirn það (sem ekki er bein1ín;s líklegt). geta íslending- ar lent í örðugleikurn með að selja síld. sem söltuð verður í landi f haust, ef ekki er tryggð sala meö fyrirfram samningum. Samningaumleitanir við helztu síldarkaupendur okkar hafa staðið yfir að undanfömu og senn vænta menn þess, að niður- stöður af þe:m liggi fyrir. SfflMHBMaBCMJ T«1TIII lllWl' —lHHIHII fSENIIIR iBBBíi' □ Frímerki fyrir auð- kýfinga og póst- ^tjómina. Ákveðiö hefur verið að gefa út frímerki vegna 25 ára afmæl- is lýðveldis á íslandi. Tvö merki verða gefin út. Annað að verð- gildi 25 króna og hitt 100 króna merki. Hver ber ábyrgðina á þessari vitleysu? Fyrir nokkrum árum var útgefið 25 króna merki sem fæstir íslendingar hafa aug- um litið. Hvers vegna? Jú, vegna þess, að flest þessara merkja eru farin til auökýfinga erlendis og afgangurinn f höndum póst- stjórharinnar. Slík merki eru einungis notuö á póstkröfur og lenda síöan hjá póststjórninni. Mér finnst að auðvitað eigi að gefa út frímerki vegna væntan- legrar hátíðar,' en þau eiga að minna fólk á þessi merku tíma- mót, en ekki að prýða söfn er- lendra auðkýfinga. Frímerkjasafnari. □ Kveikja þeir of fljótt á ljósunum? Ökumaður er ég, reykvískur að uppruna og tek fyllsta til- lit til annarra vegfarenda f um- ferðinni, að mínum dómi. Fyrir nokkru fór ég f ökuferð. Ók ég þá vestur Reykjanesbraut í átt að Miklatorgi. Þegar ég var kom inn á móts við bækistöövar slökkviliðsins, sá ég, að skyndi- lega bvrjuöu umferðarljós þar að blikka. Ég stöðvaði bifreið mína umsvifalaust og lagði henni út við vegarbrúnina. En það hefði ég betur Iátið ógert. Næstu bifreiðir sem komu á eftir mér héldu áfram og óku fram hjá og virtu aö vettugi blikk umferðarljósa slökkviliðsins. — Sumir ökumennimir voru meira að segja svo dónalegir, að brosa til mín, þar sem ég sat í bifreið minni og framfylgdi settum regl um. Ég beið áfram þarna einn og yfirgefinn og beið eftir því að slökkviliðsvagnarnir birtust. Fimm mínútur liðu unz þeir létu sjá sig. Og nú kvarta ég. Of langur tími líöur frá því, að slökkviliðiö kveikir á Ijósunum og þangað tíl það ekur brott. Umferðarljósin eru vitlaust sett upp. E. t. v. hafa einhverjir öku mannanna ekki tekiö eftir því, að þeim bar skylda til að stöðva. Þetta þarf að bæta. Því fyrr, því bétra. Gætinn ökumaður. □ Hvað lengi mega þeir vera á utanbæjar- númerum? Það er alkunna, að ökumenn bifreiða með utanbæjarnúmer- um greiöa lægri iðgjöld en öku- menn á höfuöborgarsvæðinu. Hvers vegna? Úti á landi er minni áhætta en í bílamergðinni í henni Reykjavík. En gleymist ekki veigamikill hlutur í sam- bandi við utanbæjarbílana. Það hafði víst engan órað fyrir því, að bílar merktir utanbæjarnúm- erum eru á fjórum hjólum eins og flestir þeirra sem aka um götur höfuðbd'rgarinnar. Það þýö ir, aö þaö er möguleiki á þvi, að hægt sé að aka þeim bílum úr sveitinni á höfuðborgarsvæð- iö. Og hver hefur verið reynslan af slíkum ,,heimsóknum“. Ég get ekki nefnt n'einar tölur um aukningu slysa hlutfallslega, en þær eru örugglega ekki skemmti legar. Það hefur lengi verið not- að um þá ökumenn, sem for- kostulega hafa ekið Þetta er nú 3 meiri „sveitamaðurinn“. Og þar 1 við hefur setiö. Er ekki orðiö timabært fyrir tryggingafélögin að endurskoöa afstöðu sína gagnvart þessum „sveitamönn- um“. Svo er annað mál. Einstaka ökumenn, sem búa í Reýkjavík, aka þar um á þílum merktum utanþæjarnúmerum og hafa gert það í nokkur ár. Geta allir skipt um númer? Það er hæglega hægt aö sanna þetta og eins gott að reglum sé framfvlgt. Reykvískur ökumaður. □ Af hverju heyrast lögin aldrei? Það hefur vakið furðu mína og reyndar miklu fleiri, að löigin úr „Fiðlaranum" heyrast aldrei í útvarpi og sjónvarpi. Eru þaö deilur tveggja eða þriggja manna sem koma í veg fyrir að þjóöin geti notið þessara ágætu laga? Ef svo er vil ég benda á, að mér fyndist eðlilegt, að þjóðin fengi einhverju um að ráða í lagavali í sjónvarpi og útvarpi, en ekki metnaðargirnd nokkurra manna. Annars væri mjög æskilegt, ef mögulegt yrði að setja lögin inn á hljómplötu, þannig að fólk geti geymt minningar enn betur um þennan frábæra söngleik um ókomin ár. M. T. □ Látum íþróttahreyf* inguna standa á eigin fótum. Alltaf er verið að staglast á því, hvaö íþróttahreyfingin líöi mikinn fjárskort. Er ekki hægt að ráöa bót á þessu? Ég vil taka undir með þeim ágætismanni, Albért Guömundssyni það sem hann sagði á fundi með borgar- stjóra og íþróttaunnendum fyrir skömmu. Þar sagði hann, að íþróttahreyfingin ætti ekki að sækja peninga í vasa ríkis og bæjar. íþróttahreyfingin ætti og gæti hæglega staðið á eigin fótum. Albert hefur margoft sýnt og sannað, að hann veit hvað hann syngur. Tökum undir með honum og hjálpumst að því að gera íþróttahreyfinguna sjálfbjarga og öfluga. Hann vill t.d. láta íþróttahreyfinguna reka íþróttamannvirkin, en ekki borg ina. Því ekki það? Kristín S. □ Enginn minnist á siðfræði. Undanfariö hefur mikið verið rætt og ritað um skólamál. Talað er um að auka félagsfræði- kennslu og margt annaö. Enginn hefur ennþá minnzt á þörfina fyrir siðfræöikennslu. Ég held að þörf sé fyrir anga af þeirri grein inn f sem flesta skóla. Og reyndar inn á mörg heimili. Ég er þeirrar trúar, að ef vandamál unglinganna eru alltaf að aukast, þá eigi heimilin þar stóran hlut að máli. Kennum ekki unglingun um um allt. Hjáipumst öll aö því aö bæta þjóðfélagið okkar. Kona í austurbænum. □ Frábær rithöfundur. Ég er einn hinna mörgu, sem alltaf les föstudagsgreinar Þor- steins Thorarensen í Vísi. S.l. föstudag ritar hann grein um Laxness, og man ég ekki eftir að hafa lesið jafngóða grein í dag- blaði. Greinin er frábær að öllu leyti og mjög óvenjuleg. Þor- steinn sýnir með greininni enn nýja hlið á sér og sýnir að fáir eru jafningjar hans á ritvellin- um. Ég vlj nota tækifærið og 1 óska honum tll hamingju með I enn einn sigurinn. 1 Magnús O. I

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.