Vísir - 07.06.1969, Blaðsíða 8
8
V í S I R . Laugardagur 7. júni 1969.
VISIR
Dtgeíandi ReyKjaprent h.t.
Framkvœmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulitrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðaístrætí 8. SSmi 11660
Ritstjórn: Laugaveg) 178. Simi 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 145.00 4 mánuði innanlands
I lausasöíu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiöja Vísis — Edda hi.
Hugarfarsbreyting ?
Qleðiefni var að sjá það í forustugrein Tímans í fyrra-
dag, að æskilegt væri að fyrirtæki gætu eignazt „veru-
lega sjóði“, svo að þau þyrftu ekki að stríða við
rekstrarfjárskort og sæta óhagstæðum lánakjörum á
rekstrarfé. Þessu hefur Sjálfstæðisflokkurinn alltaf
haldið fram, en sú skoðun hefur löngum átt litlu fylgi
að fagna hjá núverandi stjórnarandstöðu flokkum,
þegar fyrirtæki einstaklinga áttu í hlut. Segja má, að
það hafi lengi verið eitt af stefnumálum Framsóknar-
flokksins að ganga milli bols og höfuðs á einkarekstri
a.m.k. þeim, sem pólitískir andstæðingar stjórnuðu.
Og allir vita hvern hug kommúnistar hafa borið til
einkaframtaksins og hvaða orð þeir hafa valið þeim
mönnum sem reyna að reka fyrirtæki sín með ein-
hverjum hagnaði.
Þessi langvinni áróður hefur haft sín áhrif. Og eins
og Tíminn segir eru margir, „sem telja það líka óheil-
brigt, ef fyrirtæki hafa sæmilega afkomu“. Og það er
sannarlega kominn tími til, að úr þessari átt komi
hvatning um að launþegar og atvinnurekendur íhugi
í sátt og samlyndi hvernig tryggja megi fyrirtækjun-
um heilbrigðan rekstrargrundvöll. Af slíku samstarfi
mætti áreiðanlega vænta góðs árangurs, og því mætti
koma til leiðar, ef pólitísk ófriðaröfl gætu setið á sér
og látið málið afskiptalaust.
Einkaframtakið hefur verið á undanhaldi hér
á íslandi síðari árin. Flest stærstu atvinnutækin eru í
eigu ríkisins, sveitarfélaga og samvinnufélaga. Það er
ef til vill vegna þess sem Tíminn er að komast á þá
skoðun, að fyrirtækin þurfi að eignast sjóði. Sam-
vinnufélögin hafa fundið fyrir því eins og aðrir at-
vinnurekendur, að rekstrarfjárskorturinn kemur sér
illa. En það er alrangt hjá Tímanum, að núverandi
stjórnvöld sjái enga leið til að efla atvinnureksturinn,
en þá, að halda kaupgjaldinu sem lægstu.
Stefna viðreisnarstjórnarinnar hefur frá upphafi
verið sú, að reyna að tryggja atvinnutaékjunum ör-
uggan rekstrargrundvöll. En hún hefur mætt þar svo
harðsnúinni andstöðu stjórnarandstæðinga, að sá ár-
angur hefur ekki náðst, sem að var stefnt. Til þess
þurfti að stöðva verðbólguna. Víxlhækkanir kaup-
gjalds og verðlags máttu ,ekki halda áfram. Kaup-
hækkanir umfram það, sem aukning framleiðslunnar
leyfir, eru engar kjarabætur. Tíminn vitnar í Ford
gamla og segir að hann hafi stefnt að því að greiða
starfsfólk’ sínu sem hæst laun. Það má rétt vera, en
hann braut aldrei þetta lögmál.
Hefðu stjómarandstæðingar viljað leggja viðreisn-
arstefnunni lið, eða a.m.k. lofað stjórninni að fram-
kvæma hana í friði, í stað þess að reka gegn henni
beina skemmdarstarfsemi, hefði mátt komast hjá
sumum þeim efnahagserfiðleikum, sem nú er við áð
stríða. Samstaða, en ekki sundrung, er. það sem mest ')
ríðurá. ' ' i & ; (.
Forsetafundurinn
á Midway-ey
hefst á morgun
• Sl. þriðjudag lagði Richard
M. Nixon Bandaríkjaforseti
af stað áleiðis til Midway-eyjar
á Kyrrahafi en þar hefst á
morgun fundur hans og Nguyen
van Thieu forseta Suður-Viet-
nam.
Fyrir burtförina frá Washing-
ton hélt forsetinn fund með
stjóm sinni og öryggisnefnd
Bandaríkjanna, en i henni eiga
sætj helztu ráðunautar forset-
ans, utanríkisráöherra, land-
varnaráöherra og fleiri ráðherr-
ar, æöstu menn landhers, flug-
Nixon.
hers og flota. Á þessum fundi
Nixons og trúnaöarmanna hans'
var lögð fram skýrsla Williams
P. Rogers utanríkisráðherra um
18 daga ferð, er hann nýlega
fór. en hann fór ailt til Saigon
í Suöur-Vietnam og ræddi við
van Thieu forseta. Vakti það
mikla athygli, er Rogers utan-
rikisráöherra sagði i gær á fundi
með fréttamönnum aö Nixon
og van Thieu gætu fallizt á þátt-
töku kommúnista í samsteypu-
stjórn aö loknum frjálsum, lýð-
ræðislegum kosningum við eft-
irlit.
Ekki er þörf að fjölyröa um
hversu ástatt er á friðarráð-
stefnunni í París, þegar forset-
arnir byrja viðræður sínar. Þar
örlar ekki á samkomulagi, þótt
alltaf sé verið að láta f það skina,
að eitthvað miði á leynilegum
fundum, en iöulega er gefið í
skyn, að á ráðstefnunni sé ekki
veruiegs árangurs að vænta,
fyrr en einhver skriður fari að
komast á málin i viöræöum aö
tjaldabaki.
Vitað er, að ágreiningur hef-
ur veriö um viss atriðp milli
Bandaríkjanna og Suður-Viet-
nam, m. a. varðandi myndun
nýrrar ríkisstjómar í Suður-
Vietnam, einkum aöild þjóðfrels
ishreyfingarmanna að slíkri
stjórn o. fl., og vitað er, að á-
tök eru um sitt af hverju og
samkomulagið ekki sem bezt
milli bandarísku herstjórnarinn-
ar og stjórnar Suður-Vietnam,
og hefir nýlega heyrzt aö
Bandaríkin hafi ekki afgreitt
300 milljöna dojlara aðstoð við
Suður-Vietnam, til þess að
knýja stjómina^ til að vera
samkomulagsliprari. Yfirlýsing
Rogers kom því óvænt.
Samkomulag millj S.V. og
Bandaríkjanna verður vitanlega
aö vera fyrir hendi til þess að
tpögulegt sé, aö Bandarikin geti
beitt sér í samkomulagsumleit-
unum við Norður-Vietnam.
Ef spurt væri um hver væri
afstaöa Suður-Vietnamstjórnar
til krafanna um þátttöku í sam-
steypustjórn er bezt að vitna
i það seinasta sem um þetta
hefir borizt frá henni sjálfri.
Skv. frétt frá Saigon í vikunni
flutti van Thieu forseti ávarp
til þjóðarinnar í útvarp og sjón-
varp og lýéti yfir, að
„samsteypustjóm í S.-Viet-
nam kæmi ekki til greina“,
og hafnaði hann samtímis ó-
sanngjömum kröfum þjóð-
frelsishreyfingamnar (NLF-
National Liberation Front).
Þegar forsetinn flutti þessa
ræðu var hann nýkominn heim
úr heimsóknum í Seoul, höfuð-
borg Suður-Kóreu, og frá Tai-
wan (Formósu). í ferðum þess-
um ræddi hann við forseta
Suður-Kóreu Park Chung og
forseta kínverskra þjóöemis-
sinna á Formósu, Chiang Kai-
shek marskálk.
Kvaö van Thieu þá hafa lýst
yfir stuðning; við stefnu Suöur-
Vietnam-stjórnar, og þeir væm
mótfallnir einhliða brottflutn-
ingi bandarísks herliðs frá Suð-
ur-Vietnam, frestun á fram-
kvæmd stjómarskrárinnar og
þingrofl.
Hann kvað þá einhuga í stuðn-
ingi við Suður-Vietnam að
leita ábyrgöar, sem að gagni
kæmi, til varnar Suðaustur-
Asíu gegn kommúnismanum.
Van Thieu nefndi ekki hern-
aðarlegt samstarf, en hann kvað
um einingu að ræöa um land-
búnaðar-, efnahags- og tæknileg
mál.
Van Thieu ræddi ekki sér-
staklega fund þann, sem nú
stendur fyrir dyrum á Midway-
ey. Hann kvaöst mundu reyna
að fá loforö um, -að bandarískt
herlið yrði ekki flutt burt, nema
Norður-Vietnam geröi samtímis
hliðstæðar ráöstafanir til brott-
flutnings á sínu liði, en Banda-
ríkjastjórn mun vílja flytja
heim 100.000—150.000 banda-
ríska hermenn á þessu ári.
Eins og sjá má af því, sem
hér hefir veriö tekið fram, virð-
ist það að minnsta kosti vafa-
mál, aö náöst hafi „pottþétt"
samkomulag um samsteypu-
stjórn f S.V., sem „kommúnist-
ar“ (þjóðfrelsishreyfingin) fái
sæti í.
Rogers.
LESENDUR
M HAFA
ORÐIÐ
□ Stórir bílar byrgja
útsýnið.
Ég er nú bara ósköp venju-
legur miðaldra kvenmaður og
hef eins og flestir tvö augu!
Þau hef ég reynt að nýta mér til
hins ýtrasta, og þarf ég ekki að
kvarta yfir ófögru umhverfi hér
f henni blessaðri Reykjavík. Ég
bý við fremur fáfama götu, Ás-
vallagötu og hvorki er hún breið
né stór. En nú hefur ánægjan
skyndilega minnkaö við það aö
búa við þessa götu. Stórir bílar
hafa aukið komur sínar til okk-
ar og er þeim jafnvel lagt þar
svo sólarhringum skiptir. Eru
þe.tta fiskbílar, tankbílar og
mikiö af alls kyns vörubílum.
Veit ég þess dæmi, að menn sem
búsettir eru við aðra götu, leggi
bílum sfnum við götuna, því auð
vitað vilja þeir ekki sjá þá nærri
heimilum sínum. Þessir bflar
skemma svo fyrir okkur þaö
litla útsýni, sem við höfum, auk
þess sem þeir hafa vakið upp
alveg óþolandi hávaða. Við íbú-
amir verðum aö reyna aö hrópa
á hjálp. (
L. s. V.
□ Sendið trúnaðar-
lækna heim til
þeirra.
Þessa dagana er mikíð rætt
um atvinnuleysi. Ósjálfrátt vakn
ar sú spuming hjá mörgum,
hvort menn sem fulla atvinnu
.hafa, ræki störf sín samvizku-
samlega. Ég hef nokkra hug-
mynd um þetta hjá þeirri
stofnun, sem ég vinn hjá. Starfs
liðið er mikið og allir þiggjum
við laun hjá rfkinu. Veikinda-
frí eru nokkur, enda er varla mik
iö við þvf að gera. En það sem
kom mér tij að leggja orð í belg
er það hve inargir menn hjá þess
ari stofnun misnota sér veikinda
fríin. Nokkrir eru þeir, sem bein
Ifnis hverfa í 2—3 vikur vegna
óreglu og tilkynna að þeir liggi
„fársjúkir" heima. Ég vildi
koma því á framfæri, hvort ekki
væri unnt aö senda trúnaðar-
lækna heim til þeirra, sem „veik
ir“ liggja. Einn þeirra manna,
sem ég vinn með, „lá þungt hald
inn“ heima hjá sér í tvær vikur
fyrir skömmu, að þvf er sagt var
og á meðan var annarri hæðinni
slegið upp f einbýlishúsi sem
hann er að reisa. Þar starfaði
hann sem verkstjóri fyrir heil-
um vinnuflokki og þáöi full laun
hjá ríkinu! Betra eftirlit.
G.P.Ð.Á.
□ Hver er þróunin?
Alltaf eru einhverjir að reyna
að verja unglingana f orðum og
gjörðum. Heimilunum er kennt
um hvernig ástandiö er og ungl-
ingarnir sýknaöir með öllu. Þetta
gengur ekki lengur. Unglingam-
ir fá heilt hús á góöum stað í
borginni til að skemmta sér. —
Áhugi enginn. Unglingamir fá
stórkostlegan útivistarstað í Salt
vík. Énginn áhugi. Þeir vilja að-
eins gera það, sem þeim er ó-
heimilt. Lftið dæmi. Þingvellir
um hvítasunnuna. Lengra og
lengra niður færist áfengislöng-
unin og er það spá mín, að inn;
an fárra á,ra vilji nýfædd böm fá
áfengi á pelann, ef ekkl verður
gripið til einhverra ráöstafana.
Ábyrgðartilfinning unglinga í
dag er engin, eða hefur e.t.v.
aldrei verið.
Spakur.
a