Vísir - 14.08.1969, Blaðsíða 16

Vísir - 14.08.1969, Blaðsíða 16
Fimmtudagup 14. ágúst 1969. AUGLÝ5INGAR AÐALSTRÆTI 8 SÍAAAR 1-16-ÚO 1-56-10 og 1-50-99 BOLHOLTI 6 SlMI 82143 «89; ONNUMST ALLA SMÆRRI PRENTUN fUÓT OG oóo W . ÞJÓNUSTA SVANS-PRENT SKEIFAN 3 - SiMAR 82605 OG 81754 TRMwfflNG TTtlIF. LAUGAVcOI 178 SÍMI 21120 Einhver mun brjéta á sér ökklann í hrmmiim ykkar — segir rithöfundurinn Bagley um næstu ævintýrabók sina, sem á ab gerast á Islandi □ Desmond Bagley, kunnur brezkur rithöf- undur, og kona hans eru stödd hér á landi og hafa verið hér á ferðalagi um mánaðarskeið, meðan hann hefur viðað sér upplýsingum og efni i næstu bók sína, sem mun gerast að einhverju leyti hér. □ „Já, mér fannst upp lagt að fara til þessa hluta hnattarins að þessu sinni, því að í fyrra fór ég til Suður- skautslandsins og er með eina bók í smíðum um það,“ sagði Bagley, þegar biaðamaður Vísis hitti hann aö máli í gær- kvöldi á Hótel Garði, um leið og þau hjónin komu úr 9 daga ferðalagi um Vestur- og Norðurland. Nokkrar bóka Bagleys hafa komið út á íslenzku, Fjallavirk- ið, Gullkjölurinn, Fellibylur og Skriðan, en bækur hans hafa verið þýddar á 15 tungumál. „Þær hafa selzt hér í 2500 eintökum og það þykir mér al- veg stórkostlegt, því að seldi ég jafnmikið, prósentvís, í Banda- ríkjunum, mundi það samsvara 2,5 milljóna upplagi", segir Bagl ey og bæði hjónin létu í ljós undrun sína yfir því, hve mikil bókaþjóð Islendingar væru. „Ég hefði ekki trúað því, ef ég hefðí ekki séð það, hve marg- ar bókabúðir eru hérna“ ,sagði frúin. „Svo eru bækur komnar út á íslenz’.zu kannski 8 mánuðum eftir að þær hafa verið gefnar út á ensku, en í öðrum löndum líða jafnan tvö, þrjú ár.“ „Nei. Ég hef ekkert ákveðiö um efni næstu bókar minnar, annað en hún á að gerast á ís- Iandi,“ sagði Bagley aðspuröur, en bætti síðan við með kímni- glampa í augum: „Nema einn hlutur er alveg vís og þaö er, að einhver mun áreiöanlega brjóta á sér ökkla á göngu eftir einhverju hrauninu ykkar. Úff, þvílíkar vegleysur!” „Þér veljið yður einkennileg sögusvið fyrir bækur yðar, Kúrd istan, Suður-Afríku, Suður- skautslandið — hvað vakti at- hygli yðar á íslandi, sem bókar- efni?“ i1 , „Einkennileg sögusvið segir þú! Það er einfaldlega vegna • þess að maður lendir ekki í æv- intýrum í t. d. London. ÞáTru það bara óþægindi. En lendi maður í ævintýrum í ReykjaVík, þá er það ævintýri. En ísland. Það er langt síðan mér kom ísland í hug,‘‘ segir Bagley. „Það eru ein fjögur ár, eöa lengri tími síðan hann minntist fyrst á það við mig,“ skaut frú- in inipfr 'r „Ég kom hér sem farþegi á fiskiskipi 1946 og hef aldrei get að gleymt Reykjavík síðan, þótt ég staldraði aðeins V/2 dag,“ sagði Bagley. „Annars vel ég mér sögusviö, eftir því hvort fólk veit Htið eða mikið um land ið, og eiginlega það eina, sem fólk í Englandi heyrir um Is- land, eru þessar sektir, sem brezkir landhelgisbriótar hljóta. Já, og svo þaö, að þegar þið viljið færa út landhelgina, þá skjótið þiö upp nýrri eldfjalla- eyju fjær og fjær landinu," bætti hann við brosleitur. Hann á greinilega bágt með að halda sér lengi alvarlegum í einu. „Annars hefur okkur hjónun- um líkað svo vel hérna, að við erum staðráðin í því að koma hingað aftur — kannski með bíl- hýsi — og gefa okkur betri tíma til þess að skoða land og þjóö,“ sagði Bagley, sem fer núna um miðjan mánuðinn. Bagley og kona hans, sem er framkvæmdastj óri hans, hafa ferðazt um landið að undanförnu í ævintýra- og hugmyndaleit I næstu bók. Ferðamennirnir sendir úf í móa ) Það er í sjálfu sér allt í lagi, þó að Gullfossskálanum hafi verið lokaö, en það er afleitt, að salernunum á staðnum var lokað um leið, sagði einn ferða- skrifstofumaður í viðtali við Vísi í tilefni þess, að erlendir ferðamenn eru nú sendir í hóp- um út í móa við Gullfoss, ef >eir þurfa á því að halda. Gullfossskálanum var lokað fyr irvaralaust um síðustu helgi, hler ar settir fyrir glugga og hurðir, en eigandi mun ekki hafa talið hag- kvæmt að halda rekstrinum áfram í sumar. Ferðaskrifstofurnar, sem senda í sameiningu ferðamenn nær daglega til Gullfoss og Geysis eru nú að reyna að fá salernin aftur opnuð, en þær telja salernin ekki í einka- eign eiganda Gullfossskálans, þar sem opinber styrkur hafi fengizt til að reisa þau. /y Utboi á breiðum grunni — segir formabur Framkvæmdanefndar, Eyjólfur K. Sigurjónsson !// ■ „Við leggjum meginkapp á það, að allir þeir, sem að byggingariðnaði vinna, standi jafnt að vígi við tilboð í þær framkvæmdir, sem við höfum forgöngu um,“ sagði Eyjólfur K. Sigurjónsson, formaður Fram- kvæmdanefndar, í viðtali við Vfsi. Fjórir aðalverktakar hafa þegar verið valdir við næsta á- fanga Breiðholtsframkvæmd- anna, byggingu 180 íbúða, en þann 23. ágúst nk. verða tilboð opnuð I ýmsar smærri einingar. Aðalvertakarnir fjórir eru tveir hópar byggingameistara og tvö byggingafélög, Almenna bygginga félagið og Breiðholt hf. „Við bjóðúm út á svo breiðum grunni, sem mögulegt er, og kapp kostum að hafa áfangana ekki of stóra, þannig að ekki sé neinum ofviða, hvorki byggingameisturum né öðrum“, sagði Eyjólfur. „Við viljum ekki, að neinn hafi það á til finningunni, að harni sé að ósekju útilokaöur, heldur viljum við njóta reynslu og hæfni sem flestra. Við væntum hagstæöra tilboða í all- ar greinar framkvæmdanna, en þegar er Ijóst, að margir eru um hituna. Gangi vel með þennan á- fanga, mun verða haldið áfram á sömu braut og frekari framkvæmd um skipt í hæfilega smáar eining- ar." Kaup hækkar um 350 kr. í sept. Ferðamenn koma nú að Gullfossskálanum lokuðum og salernunum með. • Kaup launþega inun almennt hækka um 350 krönur fyrir septem bermánuð næstkomandi samkvæmt samningum A!'\vðusambandsins og 1 Bandalags st".rfsmanna ríkis og j bæja við vinnuveitendur frá í sum | ar. Gildir þetta kaup hærra en | 8.800 krónur í grunnlaun á mánuði. I Samkvæmt samkomulaginu skyldi verðlagsuppbót reiknuð 1. ágúst og koma til hækkunar kaups fyrir september. Vísitala fram- færslukostnaðar hefur hæKKaö um 5,5 stig frá maibyrjun. Mest er hækkunin á matvörum, snyrtivör- um og snyrtingu og heilsuvernd, um 10 stig á hverjum lið, sem er 7 — 8% hækkun f>-á maíbyrjun.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.