Vísir - 18.09.1969, Síða 2

Vísir - 18.09.1969, Síða 2
2 V i S IR . Fimmtudagur 18. september 1969. Fjórir góðir á æfingunni í gær- kvöldi í Laugardalshöllinni: Frá vinstri eru þeir Birgir Bjöms- son, Einar Sigurðsson, Hjalti Einarsson og Ragnar Jónsson. SKEIFAN KJÖRGAB-DI 580-16975 Æfingar i Laugardalshöllinni hófust hjá landsliðinu i gærkvöldi „ÞaB er álit allra sérfræðinga að okkar riðill og riðill Svía, Norðmanna, A-Þjóðverja og Rússa í HM í handknattleik séu mest spennandi,“ sagði Axel Einarsson, formaður HSÍ, í við- tali í gærkvöldi, en þá hófust landsliðsæfingar í Laugardals- höllinni í betur lýstu húsi en verið hefur undanfarna vetur. Innan skamms munu stóiar væntanlegir fyrir áhorfendur og fer hagur þeirra því að vænkast og auðvitað gera íþrótta- leiðtogarnir sér jafnframt vonir um stöðugri aðsókn. Bréf til ihróttasiðunnar: Fjárdráttur og fjárhættu- spil í /hróttafélagi J 1« SKEIFU SKRIFSTQFUHUSGOGH ** Axel kvað landsliðsstarfið í vetur með mesta móti og hæfist það óvenju snemma, 18. og 19. október verður leikið í Laugar- dal gegn Norðmönnum, þ.e. eftir réttan mánuð, svo ekki veitir af að hefja undirbúning fyrir al- vöru. Þessir leikir eru undirbún- ingsleikir fyrir HM fyrir bæði liðin. Mánuði síöar, þ.e. 15. og 16. nóvember verður leikið viö Aust- urríki. Fyrri leikurinn er liður í imdankeppni HM, sá síðari aukaleikur. Þann 4. desember loikur landsliðið síðan í Osló við Norðmenn og 7. og 8. í Aust- urríki í V*ín og Graz. Fyrri leik- urinn er síðari leikur liðanna í HM. Axel kvað HSÍ standa í samn- ingum við Kanadamenn og Bandaríkjamanna um að lið þeirra, hvort þeirra það verður, komi hér við og leiki landsleik, áður en liðið heldur til HM í Frakklandi. Einnig er verið að semja viö Japani, en ekki víst hvað úr því verður. HM í Frakk- landi fer fram á tímabilinu 26. febrúar til 8. marz. Gangi frumraunin gegn Aust- urríkismönnum vel, þá lendir Island í riðli með Dönum, sigur- vegurum leikja Pólverja og Marokkó og sigurvegara leikja Ungverja og Búlgara. Líklega verða það fyrrnefndu liðin. Tveir efstu liðin halda áfram í keppninni um sætin frá 1—8, en sérkeppni verður milli lið- anna sem ienda í 3. sæti um sætin frá 9—12. Þess má geta hér að Danir og Pólverja höfum við unnið í landsleikjum í handknattleik, en Ungverjar hafa tvívegis stöðvaö Island með hraða sínum á HM. Pólverjar leggja mikla áherzu á handknattleikinn um þessar mundir, unnu t.d. Svía 17:15 og gerðu jafntefli við Dani í Baltica Cup í Svíþjóð. Landslið okkar hefur æft vel í sumar, notfært sér æfingabúð- ir og æfingamiðstöð, hraö- keppnir hafa farið fram mán- aðarlega. Mætingar duttu niður um mitt sumar, en hafa batnað mjög undanfarið. Þrekmælingar hafa sýnt mjög ánægjulega framför frá fyrri ár- um og voru þeir Jón Erlends- son og Hilmar Bjömsson, lands- þjálfari, ákaflega ánægðir með það. Axel Einarsson kvað knatt- spyrnuna ekki lengur vandamál handknattleiksmanna, — og öfugt. Nú orðið gerðu menn það upp viö sig, hvora íþróttina þeir ætluðu að stunda. Hvort tveggja kæmi vart til mála lengur. Um önnur verkefni sagði Axel aö UL færi til Finnlands í byrjun apríl 1970 og léki á unglingamóti Norðurlanda, sem færi síðan fram í Reykjavík 1971. Kvenfókið tekur þátt í Norðurlandamóti í Noregi innan húss næsta haust. Og ekki má gleyma dómurunum. Tveir dóm- arar fara til Noregs og Dan- merkur og dæma 2 kvenna- landsleiki Noregs og Svíþjóöar og leik „undir 23ja ára“ milli Dana og Svía. Þetta verður í nóvember. Þá er möguleiki á að íslenzkur dómari dæmi í HM eða í Evrópubikarleikjum. íslandsmótið hefst óvenju- snemma, en þátttökutilkynning- ar eru enn að berast. Axel Ein- arsson kvaö þó ljóst að í ár yröi algjör metþátttaka í mót- inu Þann 2. nóvember hefst 1. deild og stendur til að leika á sunnudögum og miðvikudögum. Mikið hagræöi er aö því að hafa tvo fasta leikdaga, enda miða félögin viö það og hafa æfinga- tíma sína á öðrum dögum. Axel kvaðst að lokum mjög ánægður með lækkunina á hall- arleigunni, sem hann kvað hafa verið erfiða í framkvæmd þar til nú, er Reykjavíkurborg og ÍBR eiga húsið ein. Einkum kvað hann lækkunina góöa varðandi leiki yngri flokkanna, sem ekki gætu staðið undir sér. ð Hér í Reykjavík starfar fé- lag nokkurt, sem telur sig vera „íþróttafélag“. Félagi þessu er þannig háttað, að í það gengur mestmegnis ungt fólk, sem ný- komið er til landsnis, aðallega frá Norðurlöndum. Félagið held- ur fundi vikulega, auk skemmt- anahalds. Það gefur auga leið, að þau áhrif, sem fólkið verður fyrir í félaginu, eiga verulegan þátt í að móta viðhorf og skoð- anir þessara aðkomugesta (og þar með Norðurlandaþjóðanna) á landi og þjóð. I lögum félagsins er og á- kvæði um það, að félagiö skuli stuðla aö því að kynna ísland, ís- lendinga og íslenzka menningu fyr- ir ungum Norðurlandabúum, sem til landsins koma. Við skulum at- huga hvað „menningu" hinir ungu Norðurlandabúar læra nú í félagi þessu: Á undanförnum árum hafa ýmsir félagsmenn dregið sér fé úr sjóðum þess, a.m.k í sjö tilvikum, og hefur oftast verið um tugþús- undir króna að ræða. Endurskoð- endur félagsins hafa afhjúpað flesta þessa fjárdrætti og féð hefur endurheimzt í félagssjóðina. Vegna geysilegs persónuáróðurs gegn endurskoðendunum, innan félags- ins, með ósönnum ásökunum á þá, af hálfu nokkurra félagsmanna, sem mynda eins konar „kjama“ innan félagsins, hafa endurskoð- endurnir hlotiö að launum óþökk og óvináttu flestra félagsmanna. Á nýafstöðnum aðalfundi í félag- inu var því hvorugur endurskoð- andinn endurkosinn, þótt báðir Uoct á cpr til onHurkiörs Of? viti menn: Sá maður, sem þrisvar hafði dregiö sér fé úr sjóðum fé- lagsins, og hafði borið ósannar sak- ir á endurskoðendurna, var í stað- inn kjörinn endurskoðandi! Félag þetta greiöir hvorki tekju- skatt, eignaskatt né útsvör, þótt það velti hundruðum þúsunda ár- lega, en félagið fær nokkrar þús- undir króna í styrki frá opinberum aðilum hérlendis. Félagiö heldur fundi vikulega. Á fundunum hefur undanfarin ár kveðið langmest að fjárhættuspili, en minna aö annarri starfsemi, sem segja má að hafi nánast engin veriö. Hvað finnst þér nú, lesandi góð- ur? Er þetta starfsemi, sem styrkja ber meö opinberu fé? Er háttalagið í þessu félagi í samræmi viö þá mynd sem við íslendingar teljum rétta, og viljum að útlendingar fái af landi og þjóð? Ég vil að lokum skora á hina nýju stjórn féagsins, að hún sjál sóma sinn í því að stuðla að betri starfsemi félagsins, þannig að heiðarlegt fólk geti á ný lagt þang- að leiö sína. Ég veit um marga, sem áður fyrr voru í félaginu, en segjast ekki vilja koma þangað Iengur, vegna þeirrar óheillaþróun- ar sem komizt hefur í félagið und- anfarin ár. Endurskoðun reikninga félagsins ætti, úr því sem nú er komið, helzt að vera í höndum op- inberra aðila, eða aðila sem standa algerlega utan við félagið, og vissu- lega ekki eins og nú er, f höndum manns, sem hefur dregið sér tug- þúsundir úr sjóðum þess, og hefur einnig gert ítrekaðar tilraunir til að breiða yfir fjárdrátt annarra fé- lagsmanna. GLÆSILEG MJÖG VÖNDUÐ SKRIFBORÐ MEÐ TVEIMUR SKÁP- UM OG BAKPLÖTU A MILLI. FÁANLEG ÚR EIK OG TEKKI. PLÖTUSTÆRÐIR: BREIDD 80 OG 90 CM. LENGD 160, 180, OG 200 CM. EINNIG EINKAR ÞÆGILEG VÉLRITUNARBORÐ PLÖTUSTÆRÐ: 63,8X127,5 CM. SKOÐIÐ HÚSGÖGNIN 1 RÚMGÓÐUM SALARKYNNUM. r c.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.