Vísir


Vísir - 18.09.1969, Qupperneq 4

Vísir - 18.09.1969, Qupperneq 4
Fjölskyldufyrirtækið La Cosa Nostra, er líklega stærsti við- skiptaaðili veraldar. Cosa Nostra er álíka stórt og General Motors, Ford Motor Co., Chrysler, RCA, IBM, Ameríska símafélagið, Gen- eral Electric og Standard Oil öll samanlögð, hvaö árlega pen- ingaveltu áhrærir. Árleg velta þessa risahrings hefur verið áætl- uð 4.560 milljarðar króna, en þar af eru um 840 milljarðar kr. álit- inn vera hreinn hagnaður. , Þessi mynd birtist í stórblaðinu, TIME, og á að sýna, hvemig armar kolkrabbans (La Cosa Nostra) teygja sig yfir USA. Aihvítir hringir sýna svæði, þar sem glæpahringurinn er öfl ugur, hvítir hringir með dökkri miðju sýna staði, þar sem ítök glæpafélagsins em ekki eins sterk. Stjörnurnar fyrir framan sum mannanöfnin við einstök borgarheiti sýna 9 stærstu glæpa- foringjana. (Marcallo í New Orlean, DeLucia í Chicago, Zerilli í Detroit o. s. frv.) Tölurnar fjölda „trúnaðarmanna“, sem hver foringi hefur. COSA NOSTRA fær glæpi til að borga sig Joe Valachi, sem talaði af sér. Ef í staöinn fyrir oröið La Cosa Nostra væri notað orðiö Mafia, mundu flestir vera með á nótun- um um hvað talað væri. Mafia var lykilorð, sem allir skildu, og hafði víðtæka merkingu í hug- um fólks, þar til tilviljunin leiddi yfirvöldin á sporið á peningunum, sem skipulögð glæpastarfsemi gaf I aðra hönd. Menn vissu, að eitthvað var til, sem kallaðist Mafia og táknaði glæpahring, og alls konar þjóð- sögur gengu um á milli manna um þetta fyrirbæri, en það var Cosa Nostra-maðurinn, Joe Valachi, sem opnaði dyrnar að leyndar- dóminum og svipti hulunni áf. Hann var sá fyrsti, sem talaði af sér. Nú vita menn allt um Cosa Nostra. Hvernig hringurinn er skipulagður, hverjir eru leiðtog- ar hans (sem flestir ganga lausir), og hvernig þeir vinna. Joe Valachi var leigumoröingi á snærum Cosa Nostra og talið er, að hann hafi 33 morð á samvizk- unni, en upp um hann komst og nú hefur hann setið í fangelsi í 7 ár tæp og langur tími mun líða, áður en hann sleppur út. Ekkert tryggingarfélag er þó lík- legt til þess að vilja selja honum líftryggingu, þvi álitið er, að Cosa Nostra sitji um líf hans og muni koma honum fyrir kattarnef, strax og hann losnar úr fangels- inu — og hefna þannig fyrir laus mælgi hans. Vegna upplýsinga, sem Joe Valachi gaf í yfirheyrslunum, vita menn núna, að Cosa Nostra fær stærstan hluta tekna sinna í fjár- hættuspili og veðmálum: Ame- rísk knattspyrna, baseball, hnefa- leikar o.s.frv. eru talin færa glæpafélaginu um það bil 450 milljarða króna árstekjur. Næst stærsti bitinn í kökunni er okur- lánastarfsemin. Þar er veltan minni, en hagnaðurinn meiri. Út- lánavextir eru venjulegast um 20%, eða eins og það heitir á máli Cosa Nostra-manna: „Sex fyrir fimm.“ Það ku vera dregið af þvi, að fyrir hverja fimm doll ara, sem okurkarlinn lánar á mánudegi, fær hann sex dollara á laugardegi. Lengst af höfðu menn neit- aö aö trúa því, að viðskiptaheim- ur Bandaríkjanna væri eins gegn sýrður af ítökum Cosa Nostra, og vitnisburöur Joe Valachi bar með sér. Menn þykjast nú vita með vissu um meir en 5000 stór fyrirtæki, sem að meira eða minna leyti eru á snærum Cosa Nostra, en þetta eru allt fyrir- tæki, sem stunda út á við heiðar- leg viðskipti. Venjulegast hafa Cosa Nostra-menn náð meirihluta í þessum fyrirtækjum .nieð því: að lána í rekstur þeirra, meðan upp- haflegir eigendur voru í augna- bliks fjárhagskröggum — gegn auðvitað 20% vöxtum og með veði f fyrirtaékjunum. Síðan hafa eigendurnir lent í greiðsluerfiðleik um og þurfti þá ekki að leikslok- um að spyrja. Innan raða þessara fyrirtækja eru ýmis verktaka- firmu, miðlaraskrifstofur og skemmtikraftafyrirtæki. Enn ein tekjulind Cosa Nostra eru stéttarfélögin. Samkvæmt upp lýsingum Joe Valachi verkar það kerfi á ýmsan máta, en allt gefur það af sér mikinn hagnað. Fyrir- tækjum og verksmiðjum er boðin trygging gegn skemmdarstarf- semi á framleiðslunni og er það Vænn skattur — venjulegast á- kveðin prósenta af framleiðslunni. Stundum er það nefskattur af meðlimum stéttarfélagsins. Stund um fjárþvinganir með hótunum um verkföll á óheppilegum tím- um o.s.frv. Illræmdasta tekjulindin er sjálf sagt eiturlyfjasalan, en hún ku þó ekki vera sú tekjudrýgsta. Ár- ' legar tekjur af henni hafa verið áætlaðar í hlut Cosa Nostra ca. 510 milljónir króna af 42,5 millj- arða króna veltu. Nútíma skipulagning Cosa Nostra vita menn að er uppbyggð af Charley Lucky Luciano, en því kpm hann í kring 1931, eftir að hánn hafði látiö ryðja úr vegi fyr-' ir sér Salvatore Maranzano og 40 öörúm glæpaforingjum. Kjafni glæpahringsins saman stendur af milli 3000 og 5000 ein- staklingum, sem dreiföir eru um Bandaríkin. Þeir skipta sér í 24 „fjöIsKyldur", sem hver um sig hefúr sinn yfirmann og einhverja stjórn, eöa framkvæmdaráö. Þess ar „fjölskyldur" skipta landinu á milli sín í svæði, en hafa enga allsh'erjar stjórn eöa einvald. Alls konar óþægindi bíða þess, sem ekki virðir gert samkomulag — og oftast nær dauöinn. lEsíálalaíáláBlslEÍIsíatslálalsíaíalalaíais SIALHÚSGÖGN QI E1 m húðuð með hinu sterka og rsi áferðarfallega RILSAN pA (NYLON II) Framleiðandj: STÁLIÐN HF., Akureyrl isr Söluumboð: ÓÐINSTORG HF. Skólavörðustíg 16, Reykjavík 151 Spáin gildir fyrir föstudaginn 19. sept. Hrúturinn, 21. marz—20. apríl. Dagurinn byrjar ef til vill dálít ið erfiölega, en sennilegt er að vel rætist úr öllu. Ef til vill veld ur einhver þér nákominn áhyggj um, eða veikindi innan fjöl- skyldunnar Nautið, 21. apríl—21. maí. Einhver kunningi, sem þú hefur ■ ékki heyrt eða séð lengi, kemur fram á sjónarsviðið að því er viröist, og á mjög skemmtilegan hátt. í heild mun dagurinn veröa þér góöur og notadrjúgur. '"víburarnír, 22. maí—21. júnl. Það rætist betur úr ýmsu í sam bandi við peningamálin, en þú þorir að vona. Þetta kemur eink um fram 1 bættri aðstöðu til að auka tekjurnar á næstunni svo um munar. Krabbin.., 22. júni — 23. júlí. Ekki er ósennilegt, að eitthvað í sambandi viö starf þitt, eða það, sem gerist á vinnustað, valdi þér talsverðum áhyggjum, en sennilega áttu sök á því sjálf ur að vissu leyti. Ljónið, 24. júlí — 23. ágúst. Einhver vinur þinn eða kunn- ingi kemur þér allþægilega á óvart. Þú hefur í ýmsu að snú- ast, og nokkur hætta virðist á að þú hafir helzt til Aörg járn í eldinum eins og er. Meyjan, 2^ ágúst — 23. sept. Það er ekki ólíklegt að þú fáir einhverjar skemmtilegar fréttir í dag, sennilega af vinum þínum í fjarleégö, en það gætiiíka stað ið að vissu leyti í sambandi viö atvinnu þína. Vogin, 24. sept. — 23. okt. í dag skaltu nota hvert tæki- færi, sem þér býðst til að bæta aðstöðu þína í peningamálunum. Gættu þess samt að gera ekki neina samninga, nema þú haf- ir fullvissað þig um að þeir séu í hag. Drekinn, 24. okt. — 23. nóv. Leggðu ekki um of eyrun við lausafregnum eða sögusögnum, sem snerta vini eða kunningja þína aö einhverju leyti. Varastu allar fljótfærnislegar ályktanir af framkomu annarra. Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des. Þaö er ekki ólíklegt að eitthvert vandamál segi til sín í dag, og ættirðu að fara hægt og rólega að öllu í sambandi við það, og kynna þér allar aðstæöur gaum gæfilega. Steingeitin, 22. des. — 20. jan. Það lítur út fyrir, að þú komist í snertingu við eitthvert fólk í dag, sem þér er vissara að treysta ekki um of. Yfirlertt er margt nokkurri óvissu háð í dag. Vatnsberinn, 21. ian. — l?. febr. Það lítur helzt út fyrir að þér heppnist ýmislegt það í dag, sem þú hefur glímt við með litl um árangri að undanförnu. Pen ingamálin þurfa þó gagngerrar athugunar viö. Fiskarnii, 20. febr. — . marz. Það lítur út fyrir að eitthvaö það gerist í dag, sem hefur nokkur áhrif á afkomu þína, sér í lagi ef þú hefur lagt í eitthvert fyrirtæki eða aðra slíka fjár- festingu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.