Vísir - 18.09.1969, Page 13
V1 S IR . Fimmtudagur 18. september 1969.
73
OPIN LEIÐ
Einber íyrirlitning á AI-
þýðuflokknum varð þess vald
andl að kommúnistar upp-
nefndu hann og kölluðu
„pínulitla flokkinn“. Þetta
var á dýrðardögum íslenzka
kommúnistaflokksins, þegar
hann var næst minnstur.
Ctærilæti kommúnista útilok-
aði möguleikann á að flokk-
ur þeirra yrði brátt fáliðaðri en
hinn hataði Alþýðuflokkur. í
kosningunum 1967 hlaut hið ný-
vígða Alþýðubandalag aðeins
13,6% greiddra atkvæða og naut
þess þá að ekki var tii annar rót
tækur vinstri flokkur í landinu.
Síðan hefur margt það gerzt,
sem hefur í för með sér að
kommúnistaflokkurinn minnkar
og minnkar.
■ Vonlaus barátta.
Hann smáminnkar. Einn og
einn á degi hverjum gefast upp
þeir kjósendur hans frá 1967,
sem róttækir mega kallast án
þess að vera kommúnistar. —
Þetta fólk kaus Alþýðubandalag
ið í þeirri trú að unnt mundi
reynast eftir kosningar að gera
úr því þann róttæka flokk
vinstri manna, sem marga haföi
dreymt um, árum saman, lausan
við ýmsa galla Alþýðuflokks-
ins og iausan við Moskvustimpil
kommúnista. Hér var mestmegn
is um ungt fólk að ræða. Sumt
af því gerðist virkir þátttak-
endur í baráttunni gegn „litlu
ljótu klíkunni“, eins og gömlu
ráðamennirnir í Sósíalistaflokkn
um eru nefndir. Aðrir kusu að
bíða álengdar og sjá fram-
vindu mála, en reiðubúnir til
að styðja þá virkustu, ef í odda
skærist.
Unga fólkið lagði áherziu á
sérstöðu sína með því að berj-
ast fyrir kosningu sinna manna
i stjórnir alþýðubandalagsfélaga,
hefja útgáfu nýs málgagns og
með ýmsum öðrum hætti var
það undirstrikað hvað þessi hóp
ur vildi helzt. Árangurinn var
alls ekki sá sem margir höfðu
vænzt. Kommúnistar héidu á-
fram um stjórnartaumana,
þeir eru andlit bandalagsins,
þeir halda málefnalegri endur-
skoðun í vissum farvegi og það
sem verra er að dómi unga fólks
ins: Þeir hafa aftur ogaftur
mis'st frumkvæði, sem AÍþýðú-
bandalagið heföi getað tekið, á
vettvangi stjórnmálabaráttunn-
ar t.d. í menntamálum.
Gi Málefnaskortur.
Um málefnalega aðstöðu Al-
þýðubandalagsins er það að
segja í stuttu máli, að hún tak-
markast nú verulega af því sem
kommúnistar þora að segja um
stefnumál sín. Launþegahreyf-
ingin er orðin þreytt á þeirri teg
und baráttu, sem að nafninu til
er háð fyrir umbótum á kjörum
þeirra, en miðast fyrst og síðast
við að raska efnahagskerfinu.
Utanríkisstefna kommúnista hef
ur beöið algjört skipbrot. —
Kommúnistaflokkur Sovétríkj-
anna hefur ekki reynzt brjóst-
vörn smáríkja eða sjálfsákvörö-
unarréttar einstaklinga og þjóða.
Hin svokallaða þjóðemisbarátta
kommúnista, sem var ekkert
annað en barátta fyrir því að
halda opnum möguleikum til
aukinna áhrifa Sovétrikjanna á
íslandi, hefur reynzt þjóðhættu-
leg, svo að ekki verður um
deilt. Það er komið á daginn,
sem flestir vissu, nema vinstri
menn, að kommúnistar meintu
ekkert ,með þjóðernishjali sínu,
fremur en umbótaáróðrinum í
innanlandsmálum, — annað en
að gera íslenzkt land að hluta
af yfirráðasvæði heimskommún-
ismans, með öllum þeim hroða-
legu afleiðingum, sem það hefði
haft í för með sér, ef þaö heföi
tekizt.
■ Margfaldir mögu-
leikar.
Kommúnistar vita ekki fylli-
lega hvað getur komiö í stað
þeirrar baráttu, sem nú hefur
runnið skeiö sitt á enda, nema
svo ólíklegá vilji til að áhrif
þeirra aukist aftur. Hið unga
fólk í Alþýðubandalaginu fær
ekki að taka forystuna. Virkasti
hópurinn heldur áfram aö berj
ast og hyggst berjast til þraut-
ar. En hinir, sem biðu álengdar
týnast á braut.
Þeir vita ekki hvert halda skal
og mundi enginn lá þeim það,
sem lftur yfir sundraðar hjarðir
vinstri manna, Eitt fæ ég þó
tæpast skilið. Hvers vegna leita
þeir róttækir vinstri menn sem
eru eða hafa verið áhangendur
Alþýðubandalagsins og vilja
skapa heilbrigðan róttækan
vinstri flokk ekki yfir til sam-
taka frjálslyndra, eða jafnaöar
manna, eins og Hannibalistar
kalla sig. Helzta skýringin virð
ist vera sú að þetta fólk líti á
hin nýju samtök sem fjölskyldu
fyrirtæki Hannibals Valdimars-
sonar. En það er deginum ljós-
ara, að samtök frjálslyndra, eöa
jafnaðarmanna, eða hvað þau
kalla sig, verða ekki fjölskyldu-
fyrirtæki eins eða neins, á sömu
stundu og þeir sem vilja vera
köllun sinni trúir, ákveöa að
láta drauminn rætast með því
að gera samtökin að vettvangi
sínum. Samtök Hannibalista eru
ennþá í mótun og möguleikarn-
ir til að hafa áhrif á stefnu
þeirra samtaka eru margfalt
meiri en innan Alþýöubandalags
ins.
ÞJÓNUSTA
Takið eftir. Sauma rúmfatnað fyrir
300 kr á rúmið. Geri við skyrtur
buxur o.fl. Er við til kl. 2 á daginn,
Blönduhlið 1 viðbygging.
önnumst viðgerðir og sprautun
á reiðhjólum, hjálparmótorhjólum,
barnavögnum o.fl. Sækjum, send-
um. Leiknir sf. Melgerði 29, sími
35512.
Ef stormurinn hvín um glugga
og gættir,
gallar þessir fást oftast bættir',
ef kunnáttumanns þið kjósið að
leita,
kært verður honum aðstoð að veita.
Uppl. í síma 84153 kl. 19—21.
Húseigendur. Tek að mér alls kon
ar smíði og tréverk. Hurðaísetning
ar, þiljur, sólbekki, innréttingar og
fleira. Sími 32074.
Tek að mér að slípa ,og lakka
parket-gólf, gömul og ný. Einnig
kork. Sími 36825.
Innrömmun, Hjallavegi 1.
Baðemalering. Sprauta baðker
þvottavélar, ísskápa og alls konar
heimilistæki í öllum litum svo það
verði sem nýtt. Uppl. í sima 19154
eftir kl. 4.
Verzlunin Björk Álfhólsvegi 57
Kópavogi. Íslenzlíl keramik og tl
tii gjafa. Opiö alla daga til kl. 22
Siini 40439.
Hraunhellur — hellulögn. Otveg-
um fyrsta flokks hraunhellur, hlöö-
um h mkanta, helluleggjwn. —
Steypum bílaplön, standsetjum löð-
ir og girðum. Framkvæmiö fyrir
veturinn það borgar sig. Sími 15928
eftir kl. 8.
Húsaþjónustan sf. Málningar-
vinna úti og inni, lagfærum ým-
islegt s. s. pípul. gólfdúka,. flísa-
lögn, mósaik, brotnar rúður o. fl.
þéttum steinsteypt þök. Gerum
föst og bindandi tilboð ef óskaö er.
Símar~ 40258 og 83327.
HREINGERNINGAR
Hreingemingar. Við sjáum um
hreingerninguna fyrir yður. Hringið
í tíma i síma 19017. Hólmbræður.
Hreingerningar — Gluggaþvottur
Fagmaðui i hverju starfi. Þórður
og Geir. Sími 35797 og 51875.
Hreinger-ingar. Gerum hreinar
íbúöir, stigaganga, sali og stofnan-
ir. Höfum 'breiður á teppi og hús-
gögn. Tökum einnig „reingerningar
utan borgarinnar. Kvöldvinna á
sa gjaldi. Gerum f«st tilboð ef
óskað er. t>orsteinn, sími 26097.
Nýjung í teppahreinsun. — Við
þurrhre' ;um pólfteppi. — Reynsla
fyrir þvi að teppin hlaupa ekki
eða lita frá ^ér. Erum einnig með
okkar vinsælu véla- og handhrein-
gr.ningar. Erna og Þorsteinn, sími
20888.
ÞRIF. — Hreingerningar, vél-
hreingemingar og gólfteppahreins-
un .Vanir menn og vönduö vinna.
ÞRIF. Simar' 82635 og 33049 -
Haukur-.og Bjami.
Þurrhreinsum gólfteppi og hús-
gögn, fullkdmnar vélar. Gólfteppa
viðgeröir og breytingar, gólfteppa-
lagnir. FEGRUN hf. Sími 35851 og
i Axminster. Sími 30676.
Vélhreingeming Gólfteppa og
húsgagnahreinsun Vanir og vand-
virkir menn. Ódýr og örugg þjón-
usta. Þvegillinn. Sími 42181.
Hugleiðingar um
skattamál.
Ákvörðun saksóknara um að
höfða mál gegn þremur aðilum
úr forstöðuliði Sementsverk-
smiðju ríkisins vekur mikla at-
hygli almennings og mikið um-
tal. Ekki svo að skilja, að fólk
undrist það að skattsvik hafi
átt sér stað, heldur hitt, að fólk
undrast að éinmitt þarna skyldi
höggvið á hnútinn, og án þess
að nokkuð annað mál fylgi í kjöl
farið. Frekar er nefnilega álitið,
að tilviliun hafi ráðið, hvar bor-
ið var niður, hvað það snertir
að koma upp um skattsvik, held
ur en að um einsdæmi hafi ver-
ið að ræða. Sú „íþrótt“ að tí-
unda skakkt tekjur hefur nefni
lega verið nánar þjóðarlöstur
frekar en að hægt sé að benda
á þrjár manneskjur og úthrópa
þær sem einstæðar glæpamann-
eskjur umfram annað fólk sem
vinnur í þágu hins opinbera eða
annarra fyrirtækja.
Hitt er umhugsunarvert hvað
kemur slfku máli af stað. Er það
einhliða hið pottþétta yfirlit rík
isins með rekstri fyrirtækia hins
opinbera, og hefur þá hliðstæð
rannsókn farið fram hjá öðrum
hliðstæðum fyrirtækjum? Er það
vegna deilna eða stjórnmálaskoö
ana, að slíku máli er þyrlað
af stað? Er það kannski einung-
is til að valda aðhaldi í fram-
tíöinni, að höggvið er á hnútinn
i einu ríkisfyrirtæki?
Þannig má lengi spyrja, þvi
enginn hefur trú á, aö hér sé
um einsdæmi að ræða. —
Að minnsta kosti hefur
ekkert það komið fram sem
sannar almenningi, að skattsvik
séu ekki framin innan fjölda op-
inberra fyrirtækja. Til dæmis
olli hert skattaeftirlit því, að
fjöldi fyrirtækja varð uppvís að
því að skila ekki söluskatti.
Gallinn var bara sá, að aðaílega
urðu smærri fyriríæki fyrir barð
inu á skyndilega hertu eftirliti,
en hitt vannst þó, að almennt
hert eftirlit öíli skelfingu meðal
þeirra sem höfðu rekstur og
sölu á þjónustu undir höndum,
svo nálega engir áræða nú að
skila ekki til ríkisins, sem því
ber.
Aðalatriði skattamálanna
hljóta að verða þau, ekki endi-
lega að koma lögum yfir örfáa
af þeim hópi sem brotlegir
kunna að vera, heldur hitt að
bæta almennt slæmt ástand.
Þess verður að gæta, hvers kon-
ar hugarfar hefur ríkt gagnvart
því að tiunda rítt til rfkis og
bæja. Almenningsálitið hefur
ekki fordæmt skattsvik og í þvi
liggur hundurinn grafinn. Það er
því hið almenna hugarfar og
andrúmsloft gagnvart því að
gefa rétt upp til skatts og borga
það sem lög mæla fyrir, sem
breyta þarf.
Skattamál þetta sem nú hefur
verið kunngert, vekur því ekki
litla athygli, því stór hluti þjóð-
arinnar hefur einhvern tíma átt
hlutdeild í því að hafa látið ein-
hvern hluta tekna sinna liggja
milli hluta við skattauppgjör, án
þess að hafa af því samvizkubit
eða andvökunætur. Hvernig sem
umræddu mái er varið, og þó
talið sé, að mörg hinna ýmsu
ríkisfyrirtækja hafi ekki á sfðast
Iiðnum árum til dæmis gefið upp
eftirvinnu starfsmanna sinna til
skatts, þá er ekki aðalatriðið
að þeir „draugar“ séu upp vakt
ir, heldur hitt að hugarfarið
breytist til hins betra, svo að
skattsvik teljist til tíðinda f
framtíðinni, en ekki sjálfsagður
hlutur, sem þvi miður þótti áð-
ur fyrr. Meira að segja var það
svo áður fyrr, að þá settu hæfir
starfsmenn það iðulega sem skil
yröi fyrir ráðningu, að svo og
svo mikill hluti tekna þeirra yrði
ekki talinn fram til skattaálagn-
ingar í árslok. Þegar mikill hörg
ull var á starfsliði til ýmissa
starfa, urðu atvinnurekendur og
þá auðvitað forstöðumenn ým-
issa stofnana að taka þátt í þeim
skollaleik til að fá starfskrafta,
sem þá vanhagaði um.
Þrándur í Götu.
f
5333
FR AM . ;
skorar einu sinni enn
t v ö o g n ú 11
FRAM sýnir bezta varnar-
leikinn. Bensínsíurnar
frá FRAM verja blöndung-
inn sliti og stíflu.
Ryð, óL.dinindi og smá-
agnir ná ékki samspili.
FRAM er með allt liðiö i
vöm.
FRAM bensinsían tryggir
sigur gegn bensín-
stíflum og óhreinindum
FRAM á leikinn.
Sverrir Þóroddsson
& Co.
rryggvagötu 10.
“eykjavfk, sími 23290.