Vísir - 14.11.1969, Side 1
VISIR
*nir •Mtfimiipi *«<nr
59. árg. — Föstudagur 14. nóvember 1969. —;J553._tbL
Coil — hefur leikið 76 lands-
ieiki fyrir Austurríki.
B úrslit heims-
meistarakeppni?
Á morgun leika Islendingar
hinn þýðingarmikla landsleik f
í handknattleik við Austurríkis-
menn. Hvort landið kemst í loka-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar í marz? Á íþróttasíðunni er
rætt við austurríska leikmenn,
en þeir komu til íslands sl. nótt.
Sjá bls. 2.
Reyna mútur til
að fú sögulokin
„Það verður ábyggilega grátur
og gnístran tanna, þegar úrslitin
verða loks kunn,“ sagði Jón Þór-
arinsson, dagskrárstjóri Sjón-
varpsins, í morgun er blaðið
hafði enn einu sinni samband
við hann út af flóttamanninum
marghrjáða honum Kimble, sem
er alitaf á leiðinni til íslands til
að heyja sín lokaátök, sem
verða í tveimur útsendingum, 9.
og 16. desember n.k.“ Það er
mikill spenningur í fólki, sagði
Jón ennfremur, og margoft hef-
ur verið reynt að múta starfs-
fólki sjónvarpsins, til að segja
fyrir um sögulokin, en vert er
að taka það fram, að það auð-
vitað þýðir ekk; neitt, hér vinn-
ur aðeins strangheiðarlegt
fólk,“ sagði Jón.
Á bls. 9 er fólk spurt,
hver sé morðinginn.
Fimmburar fæddir
efffir hormóna-
meðferð
Hormónameðferð varö til þess
að 33ja ára konu og 35 ára eig
inmanni hennar fæddust fimm
burar [ morgun, allt dætur.
Þær komu í þennan heim níu
vikum fyrir tímann, en virtust
vera líkamlega vel gerðar. Keis
araskurð þurfti, og sextán
læknar og hjúkrunarkonur
hjálpuöu til.
Næstu 48 stundirnar munu
skera úr um, hvort börnin lifa,
en þau eru í súrefnistjöldum.
Faðirinn, John Hanson, sem
er verkfræðingur, var hinn
hreyknasti, en móðirin var í
morgun enn í svefni og vissi
ekki hvað gerzt haföi.
Þau höfðu lengi verið ugg-
andi um að þeim yrði ekki
barna auðið.
Fimmburarnir fæddust á
sjúkrahúsi í London.
Áframhald-
andi frost
Veðurstofan spáir áframhaldandi
frosti á landinu, en í morgun var
víðast hvar stillt og bjart veður á
landinu, þó él á stöku stað á Vest-
urlandi.
Klukkan níu, í morgun var 18
stiga frost á Grímsstöðum, 16 stig
á Þingvöllum, 15 stig á Þórodds-
stöðum, 14 stig í Borgarfirði, Skaga-
firði, á Akureyri, Egilsstöðum og
Mýrum í Álftaveri. Níu stiga frost
var í Reykjavík og komst frostið
upp í 11 stig í nótt.
13500 nýjar íbúðir í
Reykjavík fyrir 1983
— Dregur úr fólksfj'ólgun í Stór-Reykjavlk
■ Nauðsynlegt verður að
byggja 13500 íbúðir á
höfuðstaðarsvæðinu fram til
1983, eða um 900 íbúðir að
meðaltali á ári, samkvæmt
áætlun hagfræðideildar Rvík-
urborgar. Þetta er svæðið frá
Hafnarfirði til Mosfellssveit-
ar að báðum meðtöldum og
öðrum nágrannasveitarfélög-
um, stundum kallað- „Stór
Reykjavík“.
Dregið hefur úr fólksfjölgun-
inni á þessu svæði síðustu ár.
Hún var 2,5% að meðaltali á
ári á árabilinu 1960 til 1968,
en aðeins 2% síðustu þrjú ár
tímabilsins. Samkvæmt þvf er
talið rétt að endurskoða áætlun-
artölu aðalskipulags Reykjavík
ur frá 1963, en samkvæmt aðal
skipulagi þyrfti að byggja 18000
íbúðir fram til 1983, eða 1200
að meðaltali á ári.
Aöalskipulagiö gerði ráð fyrir
2,3% árlegri fólksfjölgun, og
yröi mannfjöldi á höfuðborgar-
svæðinu 151 þúsund árið 1983.
í ársbyrjun 1969 var fólksfjöld-
inn hins vegar 108 þúsund, og
gerir áætlun hagfræöideildar-
innar ráö fyrir að mannfjöldinn
verði 135 þúsund árið 1983. Þá
er að vísu ekki tekiö tillit til
flutningsáhrifa, og verður að
reisa fleiri íbúðir, ef um veru
lega aöflutninga er að ræða á
svæðið.
Áætlun hagfræðideildarinnar
miðar við, að íbúðir verði byggð
ar fyrir viðbótarfjölgunina og
byggt fyrir niðurri'fi og úreld-
ingu, auk þess, að íbúum á
hverja fbúð að meðaltali fækki.
Nú eru 3,8 manns á hverja íbúö,
en gert er ráð fyrir, að þeim
fækki f 3,4 á íbúð, þaö er aö
færra fólk verði á hverja íbúð
aö meðaltali eftir þessar íbúða-
byggingar en áður var.
50 þús. hlutur eftír nóttínu
Veiddu fyrir VA milljón á nokkrum klukku-
stundum — Fyrsta aflahrotan undan Jókli
í NÓTT kom langþráð
aflahrota út af Jökli í norð-
anverðum Kolluálnum. Þar
fengu allmörg skip góðan
afla, allt upp í 115 tonn, en
verðmæti þess afla er
hvorki meira né minna en
IV2 milljón samkvæmt nýja
verðinu. Þannig getur há-
setahluturinn farið upp í
50 þúsund yfir nóttina, ef
síldin fer öll í salt.
Síldarsaltendur borga nýja síld-
arverðið strax, þótt það eigi ekki
að gilda fyrr en þann 16. Og reynt
er aö salta megnið af síldinni. Bú-
izt er við söltun fram á nótt í sum-
um verstöðvum í dag. Bátarnir
koma naumast að landi fyrr en
síðdegis.
Á Akranesi verður heldur betur
líf í tuskunum, þegar líður á dag-
inn, en þangaö koma að f jögur skip,
þar á meðal Höfrungur með yfir
100 tonn.
Skipin voru mörg enn með næt-
urnar úti klukkan níu í morgun og
ekki endanlega vitaö um afla
þeirra.
Auk Höfrungs var vitaö um Akra
nesbátana Óskar Magnússon meö
Klámið hvarf úr
búðarhillunum!
\
Rannsókn lögreglunnar langt á veg komin
0 Rannsókn lögreglunnar á
sölu eins bókakaupmannsins á
klámritum og klámmyndabækl-
ingum er ekki enn að fullu lok-
ið, en mun þó vera langt komin.
• Erfiðasti þáttur málsins mun
þó vera eftir — nefnilega að
meta, hvað af söluvarningnum,
sem hald var lagt á, muni vera
klám og hvað ekki, en væntan-
lega verður málið sent saksókn-
ara til frekari ákvörðunar.
Frétt Vísis um rannsókn lögregl
unnar á klámritaverzlun og grein
sem birtist nokkru áður í blaöinu
um klámritaflóðið, sem að undan-
förnu hefur flætt yfir landið, vakti
að vonum mikla athygli, en varð
um leið Bóksalafélagi íslands til-
efni til þess að senda blaöinu yf-
irlýsingu þar sem athygli er vakin
á ummælum blaðsins um „að klám
ritum sé feimnislaust stillt upp í
hillur bókaverzlana hér í borg.“
„Getsakir þessar eru vægast
sagt mjög ærumeiðandi fyrir alla
sem við bóksölu fást og því óhjá-
kvæmilegt að upplýsa, að umrædd
bókaverzlun (sem varð tilefni lpg-
j reglurannsóknarinnar) hefur ekki
söluréttindi frá Bóksala'félagi Is-
lands, og er því ekki meðlimur í
Félagi ísl. bókaverzlana", segir í
yfirlýsingunni, en hvergi er borið
þar á móti þvf, að klámrit hafi
veriö á boðstólum í verzlunum —
aðeins lýst yfir að umrædd bóka-
verzlun... o. s. frv.
Því miður var ekki um neinar
getsakir að ræöa, því að það var
að tilvísan lesenda blaðsins, sem
blaðamaður var sendur af örk-
inni í heimsókn til fjögurra
bókaverzlana í borginni og blöstu
við honum í hillum þeirra bækur
og rit, sem engum hefði getaö
blandazt hugur um að flokkuðust
undir klám, auk fjölda annarra sem
jöðruðu við það.
Svo undarlega brá við, eftir
þessi skrif Vísis, þegar sami blaöa
maður leit inn í sömu fjórar verzl
anir í gærdag, að þessi söluvarn-
ingur var horfinn úr hillunum og
sást hvergi í verzlunum! En ekki
fékk blaöamaðurinn .npplýst hvort
hann hefði selzt upp, eða verið
fjarlægður.
50 tonn, Sólfari var með 30 tonn
og kast á síðunni og Sigurfari var
ekki búinn að þurrka úr nótinni.
Geirfug), Grindavík, var aflamestur
í nótt með 115 tonn. Helga frá
Reykjavík var komin með 40—50
tonn klukkan níu í morgun og var
auk þess að háfa nýtt kast. Ásgeir
var meö 50 tonn. Amfiröingur með
20 tonn og var með kast á síðunni.
Hamravík haföi fengiö sæmilegt
kast í morgun og ef til vill fleiri.
Þrir bátar komu með slatta úr
Breiðamerkurdýpi, Ingiber Ólafs-
son, Keflvíkingur og Þórkatla II.
Grindavík. Var það stór og falleg
síld, en veiði hefur lítil verið þar
eystra að undanförnu.
Reynt verður að salta þaö sem
unnt er af þeirri síld sem á land
berst og hjálpar það mikið, aö síld-
in er alveg fersk, þegar hún kem-
ur í tunnumar ekkert velkt og vel
geymd f frostinu.
Fisksalinn hjá Sæbjörgu á Grandagarði skagar ekki hátt upp
í lúðuna, enda er hún hvorki meira né minna en 2,60 m á lengd.
500punda lúða
— Skipt milli sj'ó fiskbúba í Reykjavík
• Lúðuferlíki, sem Hópsnesið frá Grindavík fékk í trollið og
kom með til Grindavíkur í morgun verður deilt á sjö fiskbúðir
í Reykjavík. Samkvæmt því verði, sem verið hefur á lúðu mun
hún leggja sig á 7500 krónur, en. hún var 500 pund á þyngd og
2,60 á lengd og er það einhver allra stærsta lúða, sem hér
hefur veiðzt.
Það var fiskbúðin Sæbjörg á Grandagarði, sem fékk þetta fer-
líki og í morgun var byrjað að hluta lúðuna niður í sjö fisk-
búðir Sæbjargar víðs vegar um borgina. Líklega éndist hún
æðimörgum fjölskyldum til máltíðar í dag.