Vísir - 14.11.1969, Side 2

Vísir - 14.11.1969, Side 2
„Þið vinnið kannski á morgun, en við förum í lokakeppnina — sagði fararstjóri austurrisku handknatfleiksrpannanna, sem komu til Islands sl. nótt ■ Flugvél Loftleiða, sem var að koma frá Luxemburg, renndi sér hægt og virðulega niður á flugbrautina á Keflavíkurflugvelli um klukkan tvö sl. nótt og innanborðs voru hinir „óþekktu“ handknattleiksmenn frá Austurríki, sem Ieika á Iaugardag við íslenzka Iandsliðið um réttinn til að taka þátt í úrslitakeppni heimsmeistarakeppn innar í Frakklandi í marz. Innan skamms birtust þeir í flugstöðvarbyggingunni og þeim var kalt, þegar þeir komu í frostið á Islandi, því átta klst. áður höfðu þeir lagt upp frá Vínarborg I sumar veðri, tíu stiga hita og sólskini. Vetur er ekki enn genginn í garð í Austurríki, og er slíkt fátítt á þessum árstíma. En þrátt fyrir kuldann og erfitt ferðalag, þar sem miililent var f Frankfurt og Luxemburg, voru piltamir kátir og gáskafullir, þeg- ar Axel Einarsson, formaður Handknattleikssambands Islands, og Þorleifur Einarsson, jarðfræð- ingur, buðu þá velkomna til Islands, lands, sem þelr hafa ekki gist áður og að eigin sögn vita lítið um, en þó enn minna um íslenzka handkn attleiksmenn. Það er því jafnt á komið með okkur sem þá hvað handknattleiknum viðkemur. Þeir eru ókunn stærð fyrir okkur og við fyrir þá, enda fyrsti landsleikurinn milli þjóðanna. Sögu og austurrísku leikmennirnir voru fegnir að feröin var á enda. Þetta var orðinn langur dagur hjá þeim. Nú var um að gera, að skella sér sem fyrst í bólið — ekki var til setunnar boðið, því æfa átti í Laug- ardalshöllinni að morgni. Austurrísku leikmennimir munu leika hér tvo landsleiki. Hinn fyrri veröur á morgun og er liður í únd- ankeppni HM — en hinn síðari veröur á sunnudag. Forsala á að- göngumiðum er í Bókabúð Lárusar Blöndal, en eftir hádegi á morgun i Laugardalshöllinni og frá kl. 10 á sunnudagsmorgni. Landsleikurinn á morgun hefst kl. 3.30 en á undan honum veröur forleikur milli ungl- ingalandsliðsins og 2. deildarliðs Gróttu. Sá leikur hefst kl. 14.30. Á sunnudag verður einnig forleikur milli unglingalandsliðsins og 2. deildarliðs Keflavíkur. Sá leikur hefst kl. 14 en landsleikurinn kl. 15. Dómarar verða norskir Knut Nielsen, sem dæmdi m.a. hinn 'fræga leik milli íslands og Svíþjóð- ar í Bratislava, og Ragnar Pettersen, sem var dómari í leiknum viö Dani í vor. Þeir hafa einnig báðir dæmt leiki hér heima. Lúðrasveit Reykja- víkur mun leika báða dagana í Laugardalshöllinni. — hsím. En eitt er þó hægt að fræða ís- lenzka handknattleiksmenn strax um. Það verða engir risar, sem þeir mæta í landsleiknum á laugardag, einhverjum þýðingarmesta lands- leik, sem hér hefur verið háður. í honum veröa ef til vill ráðin úrslit um farseðlana á HM 1 Frakklandi. Blaðamaður Vísis er ekki hár í loftinu, sex fet en hann var þó hærri en flestir austurrísku leik- mennirnir — en einn var þó höfð- inu hærri en aðrir eða 1.94 m. — nokkurs konar Einar Magn- ússon þeirra Austurríkismanna. Hæöarmunur verður því frekar ís- lenzka liðinu í hag, sem er eins- dæmi sé miðað viö síðustu lands- leiki okkar. En hvað um það, þá eru menn oft knáir þótt þeir séu smáir, og aðalfararstjóri Austurríkismanna Edward Mara sagðj okkur, að liðið hefði æft mjög vel síðustu mánuð- ina og í tvö ár hefðu sáralitlar breytingar verið gerðar á liðinu. „Að vísu“, bætti hann við, „kom- ust tveir leikmenn sem hafa verið fastir í liðinu undanfarið ekki í þessa íslandsför en ég held, að það hafi ekki mikil áhrif fyrir liðið. Við höfum leikið fjóra landsleikj und- anfarið — alla í Austurríki. Tveir voru við Sviss og við töpuðum báð- um, öðrum með eins marks mun, en hinum með tveggja marka mun. Hins vegar unnum við svo Hollend- inga tvívegis — en þessar þjóðir eru ekki nein stórveldi á hand- knattleikssviðinu." — Hefur Austurríki oft tekið þátt í heimsmeistarakeppninni? „Já, við höfum oftast verið með og einu sinni komizt í aðalkeppn- ina. Það var í Austur-Þýzkalandi 1958. Hins vegar höfum við lent á mótj mjög sterkum þjóð- um í undankeppninni undanfarið eins og t.d. Júgóslövum og Ung- verjum og þessar þjóðir eru of sterkar fyrir okkur.“ — Og hvað um leikina nú? „Ég sá nokkra leiki íslands i tveimur síðustu heimsmeistaramót- unum, og hreifst a'f leikni fslenzku leikmannanna. Ég veit. að þið eruð með nýtt lið núna og um styrkleika þess veit ég ekkert, en ég geri mér þó vonir um, að okkur takist vel upp í leikjunum og tryggjum okkur sæti í úrslitakeppnina í Frakklandi. Þetta verða jafnir leikir. Þið vinn- ið kannski á morgun, en við vinnum þá bara enn stærra f Austurriki," sagði Mara að lokum og brosti. Flestir austurrísku leikmennirnir hafa tekið þátt f fjölmörgum lands- leikjum og einn þeirra Goil hefur hvorki meira né minna en leikið 76 leiki, sem sýnir vel, að Austurrfk- ismenn eru engir nýgræðingar á handknattleikssviðinu. Goil er frek- ar lágvaxinn og grannur og félagar hans segja hann mjög leikinn með knöttinn. „Ég hef einu sinni séð íslenzka handknattleiksmenn f leik,“ sagði Goil, þegar blaðamaður Vísis ræddi við hann. „Það var f Bratislava, þegar íslenzka liðið vann Svíþjóð 12 — 10 — og mér fannst fslenzka liðið mjög gott. Ef það er eins gott núna, þá verður þetta erfitt fyrir okkur, en enginn þeirra, sem lék í Bratislava er með núna. Er þaö?“ Og við urðum að játa, aö aðeins fyrirliðinn Ingólfur Óskarsson væri eftir af hinu fræga liði, sem sigraöi Svíana á HM, en tapaði svo illa fyrir Ungverjum f næsta leik á eftir — og missti þar með af strætis- vagninum. Manfred Domer er annar tveggja stúdenta liðsins, 22ja ára, og hef- ur leikið 14 landsleiki. Við ræddum saman á leiðinni til Reykjavíkur. Domer er frá Vín eins og flestir leikmenn liðsins. „Við höfum reynt að afla okkur upplýsinga um fslenzka liðið,“ sagði hann, „og við höfum frétt um úr- slitin við Honved og Norðmenn. Okkur hefur verið sagt, að íslenzku leikmennimir séu mjög leiknir og ég er ekki bjartsýnn á úrslitin. Ég held, að Island komist f lokakeppn- ina í Frakklandi — en ég býst þó frekar við, að við sigrum í leiknum í Vín. Við höfum æft mjög vel — og landsleikimir við Sviss voru að mínu áliti góðir, þótt svo við töp- uöum. Við lékum lakar gegn Hol- lendingum, þótt það nægði til sig- urs“. Domer vildi lítið ræða um ein- staka leikmenn liðsins — en sagöi allt f einu: „Ég hef séð knattspymu- manninn ykkar, sem leikur f Aust- urriki — hann Gunnarsson (Her- mann). Hann leikur með Eisenstadt, sem er um 50 km. fyrir sunnan Vín. Mér fannst hann ekkert sér- stakur — enda hefur hann átt við meiðsli að striða — en mér finnst hann miklu betri f handbolta". Langferöabíllinn ók nú að Hótel Austurrísku landsliðsmennimir stíga úr flugvélinni á Keflavíkur- flugvelii sl. nótt. Ljósmynd Ástþór. l/WWWWVWWWVWWWWWWWWWWWWVN/WVNi Trésmiðjan Víðir hf. auglýsir: Nú er tækifærið að gera góð kaup. — Höfum aldrei haft meira úrval af húsgögnum en nú. Svo sem: Borð- stofuhúsgögn, nýjar gerðir, svefnherbergissett, sófa- sett, svefnbekki og margt fleira. Gjörið svo vel og lítið inn til okkar og gerið góð kaup. Greiðsluskilmál- ar hafa aldrei verið betri. Notið þetta einstæða tæki- færi. Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt. VERZLIÐ í VIÐI! yWWWWWXAA/WWWWVW/WWWWWVWWWW' TRÉSMIÐJAN VÍÐIR HF., LAUGAVEGI 166. SÍMAR: 22222 — 22229. Athugið - Athugið -Kú bu-Kúbu Hin margeftirspurðu Kuba sjónvörp árg. 1970 komin. 3 ára ábyrgð, óbreytt verð til áramóta. Greiðsluskil- málar mjög hagstæðir. Hvergi beteri þjónusta. KUBA — UMBOÐIÐ TRÉSMIÐJAN VÍÐIR HF., LAUGAVEGI 166. SÍMAR: 22222 — 22229.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.