Vísir - 14.11.1969, Síða 5
vw
SAFETY
VAI’rC
THROTILE
VW VI
mo
l*UMP
WORKING-*
11 UID
RlSLpVOIR
CONOC NSf R
•mmiimiu.mmjnjj.uijj.uui
IGNITER
FULL PUMP
BURNER
MÍÚMégJwili . «. ..
med gleraugumfrá iWii
OA fítvi] IíIRCC ™
Austurstrætl 20, slmi 14566,
?tS IR . Föstudagur M. nóvember 1969.
PERSTORP
HARÐPLAST
REYKJAVÍK
Fyrsta listræna bókin, sem
Reykvíkingar eignast um
borg sína. Bók, sem Reyk-
víkingar munu gefa vinum
'sínum hvar sem er — inn-
anlands og utan.
SMIÐ3UBUÐIN
VIÐ HÁTEIGSVEG - SÍMI 21222
HOFNAR
Hollenzkir Vindlar
ER SÆNSK
GÆÐAVARA
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
í MIKLU QG
FALLEGU LITAVALI
» MJÖG HAGSTÆTT
VERÐ
Omengad
Tóbak yzt sem
innst.
w.v,
,VAWAV.V.VW
VAPÖR
GfNLRATOR
f UIC RESLRVOIR
LXHAUST
VAPOR
RllURN
Gufnhreyfillinn — skýringarteikning.
Gufuhreyflar í bíla
stað bensínhreyfla?
— Bens'mhreyfillinn úr sögunni á næstu áratugum
WILLTAM P. Lear heitir snjall
uppfinningamaður ogmikill iðju-
höldur vestur í Bandaríkjunum.
Hann framleiöir meðal annars
flugvélar, Lear-þotuna, sem nýt-
ur mikils álits vestra og víðar,
Lear-bílaútvörp og Lear-sjálf-
stýritæki í flugvélar, og byggist
öll sú framleiðsla fyrst og fremst
á endurbótum hans eöa uppfinn
ingum. En nú er hann reiðubú-
inn tS stærri átaka; sumsé ger-
byltingar á allri bilaframleiðslu,
ekki einungis í Bandaríkjunum
heldur og hvarvetna þar, sem
þau farartæki eru framleidd.
Ekki er það þó bygging eöa
lögun bílanna sjálfra, sem hann
hyggst breyta. Hann hyggst aft-
ur á móti ganga af bensínhreyfl-
inum dauðum með gufuhreyfli,
sem hann hefur sjálfur smíðað
og hafið framleiðslu á. Loft-
mengunin er orðin alvarlegt
vandamál í Bandaríkjunum, eins
og reyndar í öllum háþróuöum
löndum, og er talið að um 60%
þeirrar mengunar í Bandaríkjun
um stafi frá bensínhreyflum,
sumir teija þá hlutdeild þeirra
reyndar meiri, eöa ailt að 90%
sums staöar Það er fyrst og
fremst þessi staðreynd, sem ýtt
hefur undir marga hugvitsmenn
að finna upp gufuvélar, sem
komið geti í stað bensínhreyfl-
anna í bíla og önnur farartæki
— þess má raunar geta, að gufu-
knúnir bilar voru framleiddir
vestur í Bandaríkjunum fyrir
fjórum til fimm áratugum, en
biöu þá, að því er taliö var,
endanlegan ósigur fyrir bensín-
hreyfiunum. Nú er svo aö sjá,
að Lear hafi fengiö þar nokkurt
forskot, og aö gufutúrbínuhreyf-
ifl hans gæt; jafnvel reynzt ben
sínhreyflfnum hættulegur keppi-
nautur þótt mengun andrúms-
loftsins af völdum bensínhreyf-
ilsins kæmi ekki til.
Næsta skrefið, sem Lear er nú
um það bil að taka, er að kaupa
5—10,000 hreyfillausa bíla af
ýmsum gerðum og setja í þá
þennan gufuhreyfil sinn, og seg-
ist hann þegar hafa kaupendur
að 50,000 slíkum bílum. Hann
stendur og öörum uppfinninga-
mönnum betur að vígi að þvi
leyti til, að hann ræður yfir auö
fjár t.ii að koma þessari uppfinn-
ingu sinni á markaðinn. Hann
Fólksvagn með gufuhreyfil í skottinu.
gerir ráð fyrir að setja fyrstu
gufuknúnu bílana á markað á
næsta ári, og að hann geti fram-
leitt um 1000 hreyfla á dag,
undir árslokin. Spáir hann því
að bensínhreyflarnir verði yfir
leitt úr sögunni að svo sem 20
árum liðnum.
Forsvarsmenn gufuhreyfilsins
telja kosti hans fram yfir
bensínhreyfilinn bæði marga
og mikla — gufuhreyfillinn
geri til dæmis blöndung, ræsi-
kerfi, kælikerfi og rafkveikju-
kerfi óþarft; ekkj þurfi neina út-
blásturspípu eða annan búnað til
að draga úr loftmengun og eng-
an drifbúnaö Þá sé og unnt að
nota alls konar eldsneyti til aö
kynda undir „katlinum", semuer
í rauninni gormlaga pípa, en sjálf
aflvélin geti bæði verið strokka-
vél eða túrbínuvél. Þegar gufan
hefur farið gegnum aflvélina, er
hún leidd inn í pipukerfi, þar
sem hún þéttist aftur í vatn til
endurnotkunar. Lear kveöst
sjálfur hafa fundið upp frostlög,
sem ekki eyðist úr vatninu þeg-
ar það breytist í gufu.
Verkfræðingur nokkur, Wali-
ace Minto, hefur einnig fundið
upp eins konar gufuhreyfil,
nema hvað hann notar gasteg-
und, Freon 11, i staö vatns.
Þessi gastegund, sem nú er mik-
ið notuð i lofthreinsunartæki og
kælikerfi ísskápa, hefur þann
kost aö hún þolir mikið frost,
og framleiðir orku við lægra
hitastig en vatnsgufa. Minto
segir að gufuhreyflar tveir, sem
hann hefur smíðað, hafi þegar
verið í fullum gangi í eitt þús-
und klst. sem jafngildir 60,000
mílna akstri og hafi ekkert slit
komið fram á vélarhlutum að
heitið geti. Samgöngumálaráðu-
neyti Bandaríkjanna hefur veitt
samgöngumálastjórninni í Dallas
í Texas 300,000 dollara styrk til
að setja Mínto-gufuhreyfia f tvo
almenningsvagna til reynslu og
á sá reynslutími að hefjast á
hausti komanda. Lear hefur aft-
ur á móti látið stjórn samgöngu-
mála í Kalifornfu í té nokkra af
gufuhreyfium sínum til reynslu
í farartækjum á þjöðvegum þar
í fylki.
Þá hefur opinher stofnun vest-
ur þar, Loftmengunar-varnaráð-
ið, mætti kannski kalla hana,
fyrir skömmu gert samninga við
Ford og annað mikið fyrirtæki,
Thermo-Electron Corp. um smíði
á 100 hestafla gufuhreyfli, sem
geti knúð sex manna bíl allt að
75 mílur á klst.
Og hvað sem öðru líður, þá
telja sérfróöir menn að þess
muni mjög skammt að bfða aö
gufukpúnir bílar komi fram á
sjönarsviðið í sýningarsölum
' bílaframleiðenda ....
'.■.■.•.YW.V.VW.VW.V.’.V.WW.V.V.V.VV.V,