Vísir - 20.12.1969, Síða 3

Vísir - 20.12.1969, Síða 3
3 f líTR . Langardagur 20. desember 1969. cTWenningarmál Stefán Edelstein skrifar um tónlist: V erðlaunatónlist ■p'yrirsögnin á viö Sinfóníu nr. 3 eftir finnska tónskáldið Kokkonen, sem hlaut tón- skáldaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þessa tónsmíð 1968. Verk þetta myndaöi upphaf síðustu tónleika Sinfóníuhljómsveitar Islands árið 1969 og var hér vel valið! Sinfónían eftir Kokkqnen er áhrifamikið og um leið einkar áheyrilegt verk. Hún er „finnsk“ í eðli sínu, andlega tengd finnskri hefð og víöáttu náttúru þessa lands. Kokkonen tekst að fylla út í ramma sinfónískrar hefðar, þó þetta verk sé ekki sinfónía í ströngum skilningi. Sonfónía Kokkonens leitar beint á hlustandann. Hún orkaöi á mig sem vel heppnuð syntesa hefðar og samtíma, heilsteypt og í raun og veru óflókin tónsmíð, sem þrátt fyrir ákveöinn „modern- isma“ í hljómameðferö virðist tengd síðasta brúarstöpli hinnar stóru sinfónísku hefðar — Gustav Mahler. Hálfvolgt klapp skammdegis- þreyttra tónleikagesta í hálf- tómu húsi voru óglæsilegur vott- ur um skilning og móttöku á þessari merkistónsmíö. Hér hefði verið full ástæða til að hrópa bravó fyrir tónsmíðinni og ágæt- um flutningi hennar af hálfu Sinfóníuhljómsveitar Islands. Annað verk á efnisskránni var Konsert fyrir 2 píanó og hljómsveit eftir Mendelssohn. Einleikarar voru Ursula og Ketill Ingólfsson. Þetta er fjarska leið- inlegt, tilbreytingalaust og lang- dregið verk og gefur engan veginn rétta mynd af höfundi ftölsku og skozku sinfóníanna. Einhliða tónstigar í samstígum þríundum sexundum og tíund- um minntu óþægilega á fingra- æfingar Czemy’s, fyrir utan það að hér voru þeir klæddir hljómsveitarbúningi og litaöir yfirborðskennd tækifærisverks- ins. Það er engum greiði gerður meö flutningi þessa tónverks, (sem var vakið upp af dauða- svefni 1959 eftir 134 ára væran blund), sízt af öllu einleikurun- unum, en þeir leystu hlutverk sitt ágætlega af hendi þótt stundum vantaði eilítið upp á glæsileika og skýrleika tóna- raðanna sífellu. Einnig virðist það Iftt skiljan- legt af forráðamönnum Sinfón- íuhljómsveitar íslands, að láta íslenzka leikmenn (þótt ágætir séu) leika píanóeinleik með hljómsveitinni, meðan íslenzkir atvinnupíanóleikarar komast ekkj að. En samkvæmt tónleika- skrá 1969/70 er aðeins reiknað með þvf, að einn íslenzkur at- vinnupíanóleikari leiki meö hljómsveitinni. Þriðja verkið á efnisskránni var Sinfónía nr. 5 eftir Tsjai- kovský. Var flutningur sinfónf- unnar með bezta móti, og má segja, að þrátt fyrir nokkra fegurðarbletti og einstaka mis- ræmi milli strengja og blásara, þá hafi þetta volduga minnis- merki ástríðu og taugaspennu komizt vel til skila. Viö kveðjum Alfred Walter með gamla árinu og þökkum á- gætt starf. Samtímis kveðjum við gamla árið og vonum, að hið nýja bjóði upp á nýjar hugmyndir, en láti sér ekki nægja að endurtaka hinar gömlu. Því hér gildir við- vörunin: hið gamla, sé það verk- efnaval, skipulagsform eða upp- bygging tónleikanna almennt séð, er ekki endilega sígilt og gott, þótt gamalt sé. Við þörfn- umst breytinga, og það róttækra. Blaðburðarfólk Dagblaðið Vísir óskar að ráða fólk til blað- burðar í eftirtalin hverfi: Hvassaleiti og Suðurlandsbraut Dogblaðið VÍSIR YMISLEGT Vaskur, tvíbreiður svefnsófi og barnakojur til sölu. Uppl. í sfma 25337. Bilaviðskipti. Volkswagen ’58 til sölu, Uppl. i síma 34045. Nýtízku loðhúfur, treflar, púðar, tízkupils o. fl. Sími 23134 allan daginn. GÆÐI í GÓLFTEPPI VARIA HÚSGÖGN LISTAVERK SÓLVEIGAR EGGERZ GOLFTEPPAGERÐIN HF. Suðurlandsbr. 32. Sími 84570. Heilsuvernd Námskeið f tauga- og vöðva- slökun, öndunar og léttum þjálf unar-æfingum, fyrir konur og karla, hefjast mánudaginn 5. janúar. Sími 12240. Vignir Andrésson. ■ Þannig leit út á Austurvelli i fyrradag. Norska jólatréð trjónar þar upp í náttmyrkrið, lýsir upp nágrenni sitt vegfarendum til ánægju og gleði í svartasta skammdegi ársins. Baka til sést til Alþingishússins, þar sem unnið var að þvi að afgreiða stór mál. Jólatónleikar í Hallgrímskirkju Kör Hallgrfmskirkju efnir til jólatónleika þar í kirkjunni annað kvöld kl. 21. Á efnisskrá eru 2 jóla- kantötur, önnur eftir danska organ- leikarann Soren Sorensen, en hin eftir bandarfska konu, Jane La Rowe. Einsöngvarar með kórnum verða: Guðrún Tómasdóttir, Mar- grét Eggertsdóttir, Hjálmar Kjart- ansson og 2 kórfélagar, Maríus Sölvason og Baldur Pálmason. Við orgelið verður Haukur Guölaugsson sem leikur einnig verk eftir Bach. Söngstjórf er Páll Halldórsson. Einnig koma fram báðir prestar safnaðarins. Aðgangur er ókeypis. ---------------— t--------------------------- Móðir okkar, INGIBJÖRG ÁSMUNDSDÓTTIR, Grettisgötu 58, lézt á Landspítalanum 12. þ. m. Jarðarförin hefur þegar farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. F. h. aðstandenda, Hjördís Guðmundsdóttir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.