Vísir - 20.12.1969, Blaðsíða 4
/
Elnn lék hann á og yfirbugaöi
500. hippía, sem lagt höfðu undir
sig 100 herbergja höll í miðri
I.ondon og háltfn. henni í heila
Viku.
Lögreglumaöur frá Scotland
Sigraði einn 500 mótherja
Náði höll úr hersátri hippia
Yard reyndist hippíunum of
slunginn, þegar þeir höfðu staðið
ti sér allar tilraunir fjölmennra
lögregluhópa til þess að hrifsa
höllina úr höndum þeim og reka
þá lít,
Höll þessi er í næsta nágrenni
við Hilton-hótel og Buckingham-
höll, en hippíarnir hernámu hana
í hippíaóeirðum í London á dög-
unum.
Eftir viku hersátur og margar
árangurslausar tilraunir og á-
hlaup gekk lögreglumaðurinn
einsamall að aðaldyrunum og
beiddist inngöngu, en þóttist vera
læknir, sem sinna vildi særðum
hippíum — en vitað var um
nokkra illa á sig komna innan
dyra.
Um leið og hippíarnir höfðu lát
ið vindubrúna síga niður til þess
að hleypa manninum inn, kastaði
hann sér á hana, en þyngsli hans
nægðu til þess að tefja fyrir
þeim, sem vindunni stjörnuðu.
40 lögregluþjónar, sem legið
höfðu í leyni, hlupu síðan tii aö-
stoðar félaga sínum og að nokkr-
um mínútum liðnum, var höllin
komin á vald lögreglunnar.
Áhorfendur úti á götunni urðu
víssir um orustulokin, þegar lög-
regluþjónn birtist uppi á hallar-
tuminum veifandi kylfu sigri
hrósandi.
150 hippíar voru færðir í varð-
hald fyrir eiturlyfjaneyzlu, of-
beldi og mótþróa gegn lögregl-
unni og inrtorot. Nokkrir voru
fluttir aftur á hæli afbrotaungl-
inga, sem þeir höfðu flúið úr.
Forvígismaður hippíanna, 22ja
ára gamall sonur virts læknis í
London, John Moffat að narni,
skýrði eftir á svo frá, að her-
nám hallarinnar hefði farið fram
í mótmælaskyni við húsnæðis-
skortinn. Lét hann i veðri vaka,
að hippíar myndu gera meira að
því að hernema híbýli, sem stæöu
auð.
Suma hippíana varð að draga með valdi á brott úr höllinni, sem þeir höfðu á valdi sínu í heila
viku, þrátt fyrir öflug áhlaup fjölda lögregiuiiða.
EMALERING
POTTAR í tízkulitum með renndum stálbotni. — Verð frá kr. 165.
Einnig fjölbreytt úrval af öðrum emaleruðum búsáhöldum.
Handofnir hördúkar og servíettur. — Verð frá kr. 495.
VERZLUNIN LAUGAVEGI 42 • SÍMI 26435
Krefst 42. milljóna
vegna heitrofa
Hin 21 árs gamla fyrirsæta frá
Árósum, Eva Haraldsted, sem
þakti forsíöur brezku stórblaö-
anna, þegar kunngjörð var trú-
lofun hennar og knattspymuhetj-
unnar, George Best, hefur nú
höfðað skaðabótamál á hendur
fyrrverandi unnusta sínum fyrir
rofnar tryggöir og hjúskaparlof-
orð.
Enski iögfræðingurinn hennar
hefur lagt fram kröfu á hendur
George Best, sem hljóðar upp á
£20.000, en Best, þótt ungur sé,
er auöugur orðinn af laununum
i atvinnukhattsþýrnunni. ..
Það var stúlkunni reiðafslag,
þegar Best fleygði henni á dyr i
miðjum nóvembermánuði, en hún
hafði elt hann til Englands og
brennt flestar brýr að baki sér,
sagt upp samningum um fyrir-
setur og fleira.
„Milli okkar getur aldrei orðié
neitt“, sagði George Best við
blaðamenn og staðfesti síðan fyr
ir fréttamennina, að Eva hefði
stefnt honum fyrir rétt. Ekki gat
hann upplýst, hvers vegna hún
heföi ákveðið aö fara í mál,
né heldur vildi lögfræðingur henn
ar skýra frá því.
„Það er bezt fyrir hana aö fara
núna heim,‘‘ sagði Best í lok
viðtals við eitt blaðið.
Eva Haraldsted segist ekki
vera ráðin £ því ennþá, hvort hún
snýr heim til Danmerkur, þar
sem henni hafa boðizt aftur tæki-
færi til þess að sýna, eða hvort
hún heldur kyrru fyrir í Englandi,
en þar hefur hún sótt um atvinnu
leyfi, en ekki fengið ennþá sem
komið er.
George Best og Eva Haraldsted, sem á sínum tíma sagði, að hún
færi ekki til Englands til þess að krækja í neitt af peningum
Bests, heldur vegna ástar sinnar á honum.
n
ANflTEK
úr Velour, sem breytist úr venjulegri skyrtu t
rúllukraga-skyrtu með þvi að renna lásnum upp.
Lltlr rauðar m/bláum lás, bláar m/rauðum lás,
gul-drapp m/brúnum lás. Stærðir 2 . 4 . 6.8.
FALLEG * HANDHÆG ★ ÞÆGILEG
VtrzLUfllVn ðlftom0riI-s833B6
VENJUL KRAGI