Vísir - 20.12.1969, Side 7

Vísir - 20.12.1969, Side 7
7 yfVFR . Laugardagur 20. desember 1969. cTVÍenningarmál jM'eö hinni myndarlegu útgáfu Aimenna bókafélagsins á skáWverkum hans er GuÖmund- nr Kamban loks aíkominn heim ta felands. Það var mál til kom- ið: nær sextíu ár eru liðin síðan hann hélt aö heiman, ungur stódent, og litlu skemmra siðan fyrsta leikrit hans, Hadda Padda var leikið í Kaupmanna- böfn og hér heima. Kamban kom fyrst fram í dönsku leik- húsi í kjölfar Jóhanns Sigur- jónssonar, og sjálfur Georg Brandes fylgdi honum úr hlaði. Betri gat heimanfylgdin varla verið. En Guðmundur Kamban setti metnað sinn hærra en verða ísienzkt átthagaskáld í Dan- mörku: hann vildi yrkja um al- þjóöleg efni fyrir alþjóðlegt leik- svið og lesendahóp. Vera má að ein undirrótm að skipbroti hans felist í sjálfum þessum metnaöi. Því að Kamban beið skipbrot erlendis. þess tjóar ekki að dyfj- ast, að þvi leytj tfl að honum tókst aldrei að brjótast til þess alþjóðlega frama sem hann ætl- aði sér. Einstök verk hans hlutn viðurkenningu, vrnsældir og tít- breiðslu um sinn, Vér morðingj- ar, Skálholt, Vítt sé ég land og fagurt, en nafn hans og verk félhi brátt i gleymsku í Dan- mörku, hvað þá annarstaðar, og engar Ifkur til að þau verði vak- in upp að nýju. Þeim mun hryggilegra er það hve torsótt honum reyndist leiðin heim. Fyrstu leikrit hans voru að vísu Ieikin í Iðnó. en tilraun hans til að ryðja sér til rúms i islenzku leikhúsi á þriðja áratug aldarinn- ar tókst ekki; það rúmaði hann ekki. Fyrst með sýningum Leik- felags Reykjavíkur á Skálholti og Marmara og Þjóðleikhússins á Vér morðingjar vann Kamban verulega leiksigra hér heima, og þaö er fyrst með hinni nýju heildarútgáfu að verk hans liggja öll fyrir á íslenzku. Tjegar rætt er um íslenzka rit- höfunda á erlend mál er venjan að leggja mest upp úr frægð þeirra og frama, gildi þeirra, hennar vegna, fyrir nafn Islands og íslenzkar bókmenntir. Sfzt skal úr þvi dregið. En fyrst og fremst er þessi saga, þessar bækur og höfundar, þáttur Is- lenzkra bókmennta og menn- ingarsögu, og væri sannarlega tugarins, Þúsund mílur. Eftir- spilið er einkennilegt. Það upp- lýsir „gátu“ leiksins um ástir Ernests og Normu Mclntyre og einfaldar hann að þvi skapi. En áherzla þess hvílir á ádeilu á dauðarefsingu, efni sem Kamban var hugstætt á Ameríkuárum sínum eins og Marmari og Ragnar Finnsson votta. Sú á- deila kemur þó hinu sálfræði- lega drama Vér morðingjar hreint ekki við. T\ll þessi verk frá og með Marmara, að frátöldum fyrri hluta Ragnars Finnssonar, ger- ast erlendis. En eftir ófarir þær sem Sendiherrann frá Júpíter fór á frumsýningu i Kaupmanna höfn hvarf Guðmundur Kamban um sinn frá leikritagerð og að skáldsögum. Með Þrítugustu kynslóðinni, sem nú birtist í fyrsta sinn á íslenzku, reyndi hann til að lýsa sinni eigin borg- aralegu samtíð í Reykjavík: sag- an kom út haustið 1933, en henni lýkur með Balbó-fluginu þá um vorið. Söguhetjunni í bókinni, Jóni Ben, má vafalaust taka sem fulltrúa þeirrar borgaralegu frjálshyggju sem Kamban að- hylltist sjálfur, manngildishug- veitj leiknum sinn anda — ein* og ótvírætt er um Vér morð- ingjar? TTvaö sem öðru líður um verk Guðmundar Kambans má ætla að Skálholt, bæði sagan og leikurinn með sama nafni, muni lengi endast til að halda nafni hans á lofti. Þrátt fyrir metnað hans að gerast alþjóðlegur höf- undur á alþjóðleg yrkisefni, er hans fremsta verk átthagabund- ið og þjóðlegt, epískt verk, en ekki dramatískt. Ástarsaga Ragnheiðar Brynjólfsdóttur er aðalefni verksins uppistaða fyrri hlutans. En einnig siöari hluti verksins er mikilsháttar skáldskapur þótt honum takist ekki aö sameina sinn sundurleita sögulega efnivið til sambærilegr- ar þeildar við fyrri hlutann. Og saga Ragnheiðar er uppistaöa leiksins í Skálholti sem hér er birtur f upprunalegri óstyttri gerð sinni. Sú gerð leiksins féll á sviði Konunglega leikhússins f Kaupmannahöfn, en hér heima sem leikurinn hefur orðið vin- sæll hefur jafnan verið notuð styttri gerð hans. Þar fyrir má vel vera að einnig lengri gerðin væri verð athugunar að nýju þó Kamban kominn heim vert að utanfararsaga þeirra yrði könnuð og sögð í heilu lagi, áður en hún fyrnist meira en orðið er. En nær skyldu vekjast upp höfundur og útgefandi til að vinna það verk? tuðmundur Kamban var fyrst og siðast leikritaskáld, og leikrit skipa þrjú bindj af sjö í ritsafni hans. Fyrstu leikritin orti hann I nýrómantiskum anda og undir áhrifum Jóhanns Sigurjónss. Ekkj einasta þeim áhrifum: þau voru einnig mótuö af og héldu áfram borgaralegri samtíðarlýsingu sem Einar H. Kvaran hafðj hafið með skáld- sögum sínum og hélt síðar á- fram í leikritum, e.t.v. fyrir á- hrif hinna yngri manna. Hadda Padda og Konungsglíman eru að sönnu öldungis fymd verk í dag, en frá þeim liggur engu að síður þráður til hinna raunsæislegu og sálfræðilegu leikrita Kamb- ans, borgaralegra stofuleikja, á þriðja áratugnum. Kamban komst til manns sem rithöfund- ur i Ameríku, þótt ekki yrði sú ferð honum til fjár né frama, af- rakstur hennar leikritin Marm- ari og Vér morðingjar og skáld- sagan Ragnar Finnsson. Öll snú-' ast þessi verk um sömu manns- mynd eða mannshugsjón, að öllum líkindum íþætta meirj og minni sjálfslýsing höfundarins. Svo mun að mjnnsta kosti um æskulýsingu Ragnars Finnsson- ar sem síðar ferst i grimmum greipum ameriska auðvaldsins. Og ætla má að Robert Belford í Marmara lýsi fullum fetum borg- aralegri manngildishugsjón hins uppkomna höfundar, — en sú hugsjón hafnar í staðlausri predikun í Sendiherranum frá Júpiter, /Tlíklegt er að leikrit Guð- mundar Kambans frá þriðja áratug aldarinnar verði framar lífvænleg i leikhúsinu — nema þá Vér morðingjar. Sá leikur hefur raungilda sálfræði- lega uppistöðu sem líkleg er að vekja áhuga enn um sinn, en það má hins vegar ólíklegt heita um predikun Marmara og Sendi- herrans, siöferðislega bollalegg- ing Öræfastjarna eða Þess vegna skiljum við. í þessari útgáfu er birt „eftirspil" við Vér morðingj-) ar sem aldrei hefur verið prent- að né leikið, og hér birtist enn- fremur áður óþekkt leikrit eftir Kamban frá lokum fjórða ára- Baldvin Tryggvason afhendir Gfsla Jónssyni bróður Kambans, fyrstu eintök ritsafnsins. sjón hans sett niður í raunsæis- legri Reykjavíkursögu. Nú hefur hann full tök á þeirri borgara- legu samtíöarlýsingu sem svo skringileg verður í Konungsglím- unnj eða smásögunni Dúnu Kvarán frá sama skeiði og fyrstu leikrit Kambans. Og sagan er að sínum hætti heimild um samtíð sína ekki síður en höfundinn: óskmynd reykvískrar borgara- stéttar í kreppunni. Eins og mörg önnur verk Guðmundar Kambans fjallar hún um hug- sjónir fremur en veruleikann sjálfan: sögufólk hans er mál- pípur skoðana fremur en lifandi fólk. Kamban hefur varla verið einn um þá skoðun á samtíðinni sem sagan lýsir, andúð í „þjóð- Iegu" fásinni og einangrun og öllum þess ytri táknum, draum- inn um „opið land“ opið fyrir nýjum áhrifum og þekkingu, framtaki og framförum. Þannig lesin kann sagan að reynast fróðleg, bæði markmið hennar takmarkanir, þó hún sé ekki á- hugaverður skáldskapur. Tj'ftir skáldsögur sínar, Skál- holt, Þrítugustu kynslóð- Vítt sé ég land og fagurt, hvarf Guðmundur Kamban á ný að leikritun í lok fjórða áratugar- ins, en þau verk hurfu í skugga stríðsins og fara ekki sögur af þeim á leiksviði. Frá því skeiði er hið nýfundna leikrit hans, Þúsund mílur, sem hann viröist aldrei hafa reynt til að birta. Það hefur vafalaust verið rétt ráðið: þó leikritið kunni að vera fullgert er það ófullnað verk, misheppnað. Frá þessum árum er hins vegar annað leikrit, Grandezza eða Stórlæti, sem birtist nú í fyrsta sinn á íslenzku ásamt gamanleiknum Vöf. Stór- læti er vafalaust meö beztu leik- ritum Kambans, létt og leikandi sviðhæft, — en kemur það ekki of seint fram til að nýtast ís- lenzku leikhúsi? Eins og mörg önnur verk Kambans virðist það háð sinni eigin samtíð, þurfa minnsta kosti við nýskapandi leikstjómar til að nýtast að nýju. Eða er samtíð þess ef til vill orðin nægjanlega fjarlæg okkur til að hennar eigin still nýtist leiknum sem áhrifsbragð, að löng sé og þung í vöfum, aið hún megni betur að miðla epfsk- um þunga og þrótti frásögunnaír. Skáldsögur sínar, Ragnar Flnns- son, Skálholt, og sína stóre rómantísku sögu, Vítt sé ég land og fagurt, samdi Guðmundur Kamban jöfnum höndum á fc- lenzku og dönsku og þær komu jafnharðan út hér heima og heyra þannig frá fyrsta fari tfl í íslenzkum bókmenntum. En al- kominn heim er hann ekki fyrr en reynt hefur verið til Mítar hvað lífvænlegast er í leikritum hans. jpáein orð að lokum um útgáfu ritsafnsins sem er í sjö handhægum bindum í snotra og sterklegu bandi. Pappír er hins vegar blakkur og óálitlegur, lík- ast til af sparnaöarástæðum enda er safnið stórt. ! safninu eru öll skáldverk Guðmundar Kambans smásögur, Ijóðmæli og ljóðaþýðingar á dönsku, auk skáldsagna og leikritanna, en ekki hefur verið hirt um að hafa ritgerðasafn hans Kvalitets- mennesket, með í för. Það er e. t. v. miður farið því að ólíklega verður ritsafn Kambans gefiö út í heilu lagi hér eftir. Efnisskipan virðist dálítið óhöndugleg, t.a.m. er Skálholti sundraö í þrjú bindi, en samtiðarsögur Kambans hafðar á undan þvi og eftir. Tömas Guðmundsson og Lárus Sigurbjömsson hafa annazt um útgáfu ritsafnsins og þýtt þau verk sem ekki voru til fyrir á ís- Ienzku f gerð Kambans sjálfs eða þýðingú annarra, en Krist- ján Albertsson r’itar inngang um höfundinn. Ekki kann ég að finna að þeirra verkum, og þýð- ingarnar virðast í fljótu bragði gerðar af mikilli alúð yið höf- undinn og hans eigin rithátt. Én eftirsjá er að því að ekki skuli gerð fyllri grein fyrir höfundar- ferli Kambans og þö einkum leiksögu hans erlendis. Hvaö sem þessum og þvilikum að- finningum líður er þó mest um hitt vert að nú liggja verk hans loks öll fyrir i íslenzkri gerð, og þaö er þrátt fyrir allt mikið og loflegt framtak, skyldug ræktae^ semi við höfundmn sjálfan og bókmenntimar. KE2T I I

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.