Vísir - 20.12.1969, Síða 16

Vísir - 20.12.1969, Síða 16
visir Laugardagur 20. desember 1969. Jólafréð á 150 krónur - eðo 1120? • Miklar annir hafa verið hjá þeim aðilum, sem selja jólatré, einkum þó fyrri hluta vikunnar, þegar veðrið var skaplegra. Sagði Jón H. Bjömsson í Alaska blað- inu að veðrið hefðj geysileg á- hrif. • Jólatréssala er stunduð á ó- tölulegum fjölda sölustaða um borgina og má fá jólatré frá 150 krónum og upp í 1120 krónur, allt eftir efnum og á- stæðum. Það er blágreni og eðal- greni, sem er svona dýrt, en rauðgrenið, baeði innflutt og inn- lent, er ódýrara. Flestir munu kaupa meðaltré, ca. 150 senti- metra há, sem kosta 230 krónur. Fjárhagsáætlun Kópa- vogs 135 milljónir útsvörin nærri 100 milljónir króna Gefa 150 bækur í verðluun í jólagetraun Fjárhagsáætlun Kópavogskaup- staðar fyrir næsta ár hljóðar upp á )35,5 milljónir króna, en á fundi bæjarstjómar í gær var lagt fram frumrit að áætluninni til fyrri um- ræðu. 1-I.æztu útgjaldaliðir eru: Til félagsmála 35,1 miiljón. Til eignabreytinga, 26,1, þar af 17 milljónir til byggingaframkvæmda. Til gatna- og holræsagerðar 22,3 milljónir. Til fræðslumála og skóla reksturs 18,2 milljónir. Helztu tekjuliðir eru áætlaðir: Útsvör 97,5 milljónir, Jöfnunar- sjóðsframlag 16,5 milljónir. Að- stöðugjöld 7,5 milljónir. Fasteigna gjöld 6,5 milljónir. UMFERÐARMÁLARÁÐ helur efnt til getraunar „í jólaumferð inni“, í samvinnu við lögregl- una, umferðarnefnd Reykjavik- ur, Slysavamafélag íslands og umferðaröryggisneíndir. Get- raunin er prentuð í 30 þús. ein- tökum og er henni dreift til flestra 7—12 ára skólabarna í landinu. Getraunin er þannig uppbyggð, að nokkur orð hafa verið felld niður úr 10 svörum við spumingum um umferðar- mál og eiga bömin aö finna réttu oröin. Getraunin „f jólaumferðinni" hefur áður farið fram tvisvar slnnum í Reykjavík, en nú í fyrsta skipti er börnum utan Reykjavíkur gefinn kostur á þátttöku. 1 Reykjavík eru vinningar 150 bækur, sem lögreglan og um- ferðamefnd Reykjavikur gefa, en utan Reykjavíkur, áletraðir nennar, sem Slysavarnafélag fs- lands gefur, í Reykjavik og nágrenni verö ur dregið á ÞorláRlmessu og munu einkennisklæddir lög- reglumenn aka vinningunum helm til barnanna á aðfanga- dag. Hvít jól a.m. k. við Lögberg ing af rörum í vatnsleiðsluna til svæöisins, en við það voru höfð all nýstárleg vinnubröigð. Kanad ískur suðumeistari frá fyrirtæk- inu, sem framleiðir snjófram- leiðslutækin, hafði suðuvélina alltaf á sama staðnum, en lét draga til leiðsluna eftir því sem hún lengdist. Þannig náöi hann mjög auknum afköstum við raf- suðuna og því fullt útlit, að hann ljúki öllu starfinu um eöa skömmu eftir helgi. Þá var langt komið að gera hús yfir þjöppur, sem blása eiga loftinu upp leiðslumar í brekk- unni, en ekki stóð á neinu, nema nokkrum smáhlutum í tækja- búnaðinn, sem koma átti með flugvélum. Kristinn Benediktsson sagöi í viðtali við Vísi í gær, að allar líkur væru til þess að hann geti opnað svæðiö um jólin, en auk snjóframleiðslunnar veröa tvær lyftur í gangi, sem geta tekið 5000 manns á klukkustund og sömuleiöis verður opin veitinga- sala í sumardvalarheimili Kópa- vogs, sem stendur við brekkuna. Ætlunin oð snjóframleiðslan hefjist þar i næstu viku ■ Eftir hlákuna eru heldur litlir möguleikar til þess að Reykvíkingar fái hvít jól að þessu sinni, að því er Páll Bergþórsson .veðurfræðingur telur. Það er að vísu nokkuö snemmt að spá um slíkt fimm dögum fyrir jól, en sam- kvæmt reynslunni eru heldur meiri líkindi fyrir rauðum jól- um en hvítum í Reykjavík. En þeir, sem telja engin jól nema hvít séu, þurfa þó ekki að láta alveg hugfallast, þvi sennilegast verður hægt að finna hvít jól upp við Lög- berg. Kristinn Benediktsson er nú í óðaönn að undirbúa nýtt skíðasvæði þar, og þar verður ekki beðið eftir snjón- um. Hann verður framleidd- ur, sem einhvern tíma hefði þótt saga til næsta bæjar á Islandi. Um tuttugu manns vinna nú að því hverja nýtilega stund að fullgera svæðið fyrir jól og er nú verið að ljúka við að leggja vatnsleiðslur að brekkunum, þar sem snjórinn verður framleidd- ur. Tvær snjóframleiðsluvélar verða tengdar við vatnsleiðslur og loftleiðslur í næstu viku og veröur snjóframleiðsla þá hafin af fullum krafti. í dag var búið að sjóða saman um rúman helm- Alþjóðleg hafísráð- sfefna í undirbúningi Rannsóknaráð rikisins hefur nú skipað nefnd til að kanna, hvort unnt væri að halda hér alþjóðlega hafísráðstefnu vís- indamanna voriö 1971. Hlynur Sigtryggsson, veðurstofústjóri sem er formaður nefndarinnar, sagði í viðtali við Vísi í morgun að nú væri verið að kanna undir tektir vísindamanna erlendis, en það fer eftir undirtektum þeirra hvort af þessari ráðstefnu verð- ur. Vonazt er til að ýmsir vísinda menn i Ameríku, Rússlandi og V-Evrópu. sem hafa stundaö haf ísrannsóknir viljj koma til þess- arar ráðstefnu, en hún yrði eins konar framhald ráðstefnu ís- lenzkra vísindamanna um haf- ísinn. Áætlað er að ráðstefnan 1971 verði 3—4 dagar. Um dag- inn komu fyrirlestrar og ræður íslenzku ráðstefnunnar út í miklu verki hjá Almenna bóka- félaginu. Bókin er á íslenzku, en síðar verður efnið einnig gef ið út á ensku. HVENÆR ER OPIÐ? ENDA þótt jólaösin hafi sjald- an byrjað fyrr en nú í ár, eiga líklcga samt margir eftir að líta í búðir fyrir hátíðarnar eða um þær og eitthvað þarf jú að borða um áramótin. Blaðið hafði því samband við Sigurö Magnússon formann Kaup- mannasamtaka íslands, og bað hann að gefa blaðalesendum upp- lýsingar um opnunartíma al- mennra verzlana á þessu tímabili. „Þeir tímar, sem ég gef upp, eru þeir, sem kjarasamningarnir ná til. Eigendur sölubúða- telja þá hins vegar ekki ná til sín, þar eð þeir séu eingöngu gerðir til verndar launþeganum og séu þeir því ekki bundnir kjarasamningum, heldur samþykktum borgarstjórnar um opnunartíma sölubúða, en hún er heldur rýmri. Opið verður sem hér segir: Laugardaginn 20. des. kl. 9—10 e.h., Þorláksmessu 23. des. kl. 9 — 24 e.h., aðfangadag jóla kl. 9 — 12, laugardaginn 27. des. kl. 9—12, gamlársdag kl. 9 — 12.“ Hjá Mjólkursamsölunni fengum við upplýsingar um mjólkurbúðirn ar, er verða opnar sem hér segir: Þorláksmessa kl. 8 — 6, aðfangadag ur jóla kl. 8—13, á jóladag er lok að, annan í jólum kl. 10—12 og á gamlársdag kl. 8 — 13. Lokað er á nýársdag. Þarna geta höfuðborgarbúar haldið hvít jól ef allt gengur sam- kvæmt áætlun. í gær var langt komið að sjóða vatnsleiðslumar saman. í baksýn hús yflr Ioftþjöppur, sem leggja tll loftið í snjó- framleiðsluna.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.