Mosfellsblaðið - 01.05.2000, Side 1
Klúbbfélagar ásamt forsetum móðurklúbba, svæðisstjóra Grettissvæðis og fulltrúum umdæmisstjórnar. Fyrir miðju er )ón M. Gunn-
arsson, forseti Mosfells með stofnskjalið. í klúbbnum eru 32 félagar, en síðast var stofnaður karlaklúbbur fyrir tíu árum hér á landi.
Vígsluhátíð Kiwanisklúbbsins Mosfells í Mosfellsbæ
fór fram laugardaginn 8. aprfl s.l. í Hlégarði að viðstöddu
fjölmenni, eða um 150 manns. Fulltrúar frá 18 klúbbum í
umdæminu Island Færeyjar sóttu hátíðina ásamt öðrum
Kiwanismönnum og gestum, en þar á meðal var forseti
bæjarstjómar, Jónas Sigurðsson og frú.
Forseti Mosfells setti hátíðina, Björn Baldvinsson f.v.
umdæmisritari stjórnaði vígslu klúbbsins, en umdæmsis-
stjóri, Guðmundur Pétursson vígði klúbbinn og setti hann
hátíðlega inn í umdæmið ísland Færeyjar, þar sem hann
hefur setu í Grettissvæði ásamt Drangey á Sauðárkróki og
Skildi á Siglufirði. Gylfi Guðjónsson tók síðan við veislu-
stjóm og skemmti fólk sér konunglega fram á nótt við söng
og dans.
F.v. Jón M. Gunnarsson, forseti Mosfells, Guðmundur Pétursson, um-
dæmisstjóri Kiwanissvæðisins ísland Færeyjar og Bjöm Baldvinsson,
fráfarandi ritari umdæmisins.
3. TBL. 3. ÁRG.
MAÍ 2000
Vígsluhátíð
Kiwanisklúbbstns
SjJBAHU
Sérhæfum okkur í viðgerðum á:
BILAMALUN & RETTINGAR
Bæjarflöt 10-112 Reykjavík ■ Sími 567 8686
'f