Mosfellsblaðið - 01.05.2000, Síða 14
\si.ÁKm
I Þ
e
mm
Umsjón Pétur Berg - Þeir sem vilja koma upplýsingum og fréttum í blaðið geta haft samband í síma 8618003
Fótboltin
farinn
að rúlla
Það var frábært veður að Varmá 19.
maí síðastliðinn þegar Afturelding lék
gegn HK í sínum fyrsta leik í 2. deild-
inni í meir en áratug. Lið Afturelding-
ar er að mestu skipað þeim mönnum
sem unnu 3. deildina í fyrra en þó hafa
verið gerðar nokkrar mannabreytingar,
þjálfari liðisins er sá sami og í fyrra
Zoran Micovic.
Leikurinn fór frekar hratt af stað og
áttu bæði lið nokkur góð marktækifæri
til að byrja með en hvorugum tókst að
nýta þau sem skildi. Þegar líða tók á
hálfleikinn náði Afturelding yfirhönd-
inni og komst yfir á 30 mínútu með
marki beint úr aukaspymu, stöngin
inn. Þar var á ferðinni Baldvin J. Hall-
grímsson en hann kont frá Fylki í vet-
ur. HK tókst hins vegar að jafna á 45
mínútu en HK hafði hlotnast víta-
spyma sem Gylfa J. Gylfason mark-
Leikmenn Aftureldingar tilbunir i sla^inn fyrir leikinn við HK
verði Aftureld-
ingar tókst að
verja en boltinn
skoppaði fyrir
fætur HK leik-
manns sem
skoraði síðan. I
seinni hálfleik
var orðið mjög
kalt en leikmenn létu það ekki á sig fá
og var mikil spenna allt þar til
lokaflautan gall. HK komsl í 1 -2 en er
10 mínútur vom eftir af leiknum skor-
aði Jón R. Ottósson jöfnunarmark Aft-
ureldingar og þar við sat 2-2.
Aftureldingu spáð 8. sæti
Þjálfarar liðanna í 2.deildinni spáðu
í spilin fyrir stuttu og samkvæmt mati
þeirra þá mun Þór frá Akureyri vinna
deildina og Selfoss fara upp með þeim.
Eins og við var að búast þá voru okk-
ur ekki spáð mikilli velgengni, þar sem
við erum jú nýliðar en þrátt fyrir það
var Aftureldingu ekki spáð falli heldur
næsta sæti fyrir ofan það, 8.sætinu.
HK var spáð 5. sætinu en þau lið sem
eru talin líklegust til að falla eru KÍB
og Léttir.
Þrátt fyrir þessa spá þá stefna leik-
menn Aflureldingar hærri og má segja
að liðið geti alveg plummað sig vel
meðal 6 efstu í deildinni. Næsti heima-
leikur Aftureldingar verður við Lciki^
mánudaginn 3. júní kl. 20.
Leikmenn sem hafa komið til liðs
við Aftureldingu fyrir þetta leiktíma-
bil:
Baldvin Hallgrímssson úr Fylki
Asgeir Freyr Ásgeirsson úr Fylki
Ásbjörn Jónsson úr IR,
uppalinn í Mosfellsbæ.
Friðrik Þorsteinsson úr Fram
Davíð Hreiðar Stefánsson úr ÍR,
uppalinn í Mosfellsbæ.
Oflugl unglingaslarf
Nú er sumarið komið og boltinn
byrjaður að rúlla. Knattspymudeild
Aftureldingar hefur sjaldan komið eins
sterk undan vetri og hefur unglinga-
starfið verið keyrt áfram af miklum
dugnaði. Mörg dæmi eru til um það
eins og fréttabréf foreldrafélags yngri
flokkanna, Þmmur og eldingar sem
gefið er út af foreldraráði 7,6-og 5
flokks karla en þar er að finna margar
fræðandi og skemmtilegar upplýsingar
um eitt og annað sem tengist fótbotlan-
um. Foreldrafélagið hélt nú ekki alls
fyrir löngu hinn árlega flóamarkað
sem gekk vonum framar að sögn við-
staddra.
Helgina 26-28. maí verður Reebok
mótið í knattspymu haldið á Tungu-
bökkum og að Varmá. Foreldrafélag
yngri flokkanna mun sjá um alla um-
gjörð á mótstað en búist er við allt að
fjögur hundruð keppendum. Mótið
verður haldið í samfloti með úrslitum
Faxaflóamótsins en foreldrafélagið
ákvað að taka það að sér ásamt því að
vera með Reebok mótið þar sem
ó.flokkur drengja er komið í úrslit.
Keppt verður úti og inni en svipað fyr-
irkomulag má ftnna á Shellmótinu í
Eyjum sem er stærsta knattspyrnumót
landsins ár hvert.
Það verða allt að 60 foreldrar sem
munu starfa virkir í kringum mótið en
undirbúningur hófst í haust. Að sögn
Ólafs Matthíassonar sem er í forsvari
fyrir félagið þá hefur áhugi foreldra
aukist gífurlega, í fyrra mættu um 5
foreldrar á fyrsta fundinn en á fundi
sem haldinn var í maí á þessu ári voru
um 60 foreldrar mættir. _Tilgangurinn
er að gera Aftureldingu að stórveldi í
íslenskum fótbolta og því byrjum við á
rótinni, við ætlum svo að fylgja þess-
um drengjum upp alla hina flokk-
anna," sagði Ólafur Matthíasson.
Leikmenn farnir:
Benedikt Bjarnason hættur
Ragnar Egilsson hættur
Lovic Nebojsa í Þrótt Reykjavfk
Sigurður Páll Pálsson hættur.
Æfíngaferð L
til Englands
Vaxandi áhugi golfara á íslandi að
spila í útlöndum er orðin svo mik-
ill hér á landi að ferðaskrifstofur
eiga í hinum stökustu vandræðum
með að anna eftirspum. Það hefur
lengi tíðkast hjá landsliði Islands í
golfi að l'ara í æfingaferð þegar
vorar. í fyrra fóru afreksstúlkur úr
Golfklúbbnum Kili til Florida í æf-
ingaferð en í ár er hún öllu stærri.
Ákveðið var í janúar að fara skyldi
til Englands með afreksfólk úr
klúbbnum, ekki bara stúlkurnar
heldur einnig drengina og karla-
sveitina. Þrotlausar æfingar hafa
staðið yfir í vetur undir leiðsögn
Árna Jónssonar PGA kennara
klúbbsins. Mikill metnaður er nú
innan klúbbsins um að fjölga þar
afrekskylfingum og undir stjóm
Áma er sá möguleiki aukinn til
muna.
Nýttfrábært álegg!!
566-8555
Vevð
Kjúklinga-
skinka
á pizzuna
Óskum eftir starfsfólki
í kvöld- og helgarvinnu.
Upplýsingar í Pizzabæ,
Þverholti 2, Kjarna
© Mosfellsblaðið