Mosfellsblaðið - 01.12.2000, Blaðsíða 8

Mosfellsblaðið - 01.12.2000, Blaðsíða 8
Maður mánaðarins „Ef við viljum áfram sjálfstætt sveitarfélag, verða menn að sýna styrk í að láta ekki ganga á rétt sinn," - segir sveitarstjómarmaðurinn Haukur Níelsson á Helgafelli. Menntun og fjölskylduhagir Haukur Níelsson fæddist í Reykja- vík 13. desember 1921, sonur hjó- nanna Unnar Guðmundsdóttur f. 1881 og Níelsar Guðmundssonar f. 1887, húsasmíðameistara og síðan bónda að Helgafelli í Mosfellssveit, Næstu tvö árin eftir dvölina á Hvanneyri vann Haukur hjá breska setuliðinu, en árið 1943 hóf hann störf hjá dönsku verktakafyrirtæki, sem byggði Vatns- og hitaveitu Reykjavíkur eins og fyrirtækið hét þá. Að þeirri uppbyggingu lokinni, Bændaskólans á Hvanneyri. í sveitarstjórnarkosningum bauð hann fram lista með vinstri mön- num, nema tvö síðustu kjörtíma- bilin B- lista undir merkjum Framsóknarflokks. Umfangsmesta kjörtímabil hans var þegar hann og Tómas Sturlaugsson mynduðu meirihluta með Jóni M. Guðmundssyni og Salóme Þorkelsdóttur, en í minnihluta sat Axel Aspelund. A því kjörtímabili var byggður Gagnfræðaskólinn, heimavistarhús, sem síðar varð smíðahús og nú félagsaðstaða skólafólksins og lögð voru drög að byggingu íþróttahúss. Haukur stóð að breytingum frá grónu bændasamfélagi í það bæjar- félag sem við nú lifúm í. Framtíðarsýn Öll stækkun á Reykjavík hefur verið til norðurs, segir hann. I fyrstu náði Mosfellshreppur að Elliðaám, en 1928 var Artún og Arbær innlimaður í Reykjavík og í stríðsbyrjun var innlimað Grafar- holt, Gufunes, Korpúlfsstaðir, Reynisvatn og Lambhagi. Nú hefúr Reykjavík innlimað Kjalames og Esjuna, Mosfellsbær er að klem- mast inni. Framtíðarsýn Reykjavíkur er að stækka sig til norðurs, það er eina leiðin fyrir þá og gæti valdið því að við töpuðum sjálfstæði okkar sem bæjarfélag, ef við höldum ekki vel á hlutunum. Ef við viljum áfram sjálfstætt sveitar- félag, verða menn að sýna styrk í að láta ekki ganga á rétt sinn, segir Haukur. - Við eigum land að Suðurlandsvegi við Gunnarshólma og höldum við ekki áfram okkar uppbyggingu verðum við gleypt. Fólk þarf að hugsa um hvort við viljum sjálfstæði eða ekki sjálfstæði, sagði þessi aldni sveitarstjómar- maður að lokum. Gylfi Guðjónsson Helgafellsbóndinn er umvafmn hlýju frá þessum fáu kindum hans sem eftir em. Hann dekrar við þær og er hann í miklu uppáhaldi. en Níels byggði núverandi hús að Helgafelli ásamt sonum sínum og var flutt í það 1953, en hann stóð að fleiri byggingum í Mosfellssveit og Reykjavík. Haukur fluttist þriggja ára gamall að Helgafelli með forel- dmm sínum og tveimur systkinum. Hann ólst þar upp, gekk í bar- naskólann að Brúarlandi, stundaði nám við íþróttaskólann í Haukadal veturinn 1938-1939. útskrifaðist búfræðingur frá Bændaskólanum að Hvanneyri 1941. Hann var mjög virkur innan UMFA í sjálfboðavin- nu og öllu starfí, keppti í dreng- jaglímu og var einnig mikill hesta- maður. Árið 1942 kvæntist hann Önnu Sigríði Steingrímsdóttur f. 18. apríl 1919 að Gunnfríðarstöðum í Húnavatnssýslu. Þau eignuðust bömin Níels Unnar og Mörtu, sem bæði em búsett að Helgafelli með fjölskyldum sínum. Anna Sigríður andaðist23. maí 1993. Starfsferill frá árinu 1945 til 1953 starfaði hann sem verkstjóri við Hitaveituna, en það ár hóf hann búskap að Helgafelli móti Jóni bróður sínum. Haukur var með bæði kúa- og fjár- búskap, en dró nokkuð úr skep- nuhaldi þegar hann var skipaður fangavörður við Hegningarhúsið 1971, þar sem hann starfaði til ársins 1987 samhliða búskap. Árið 1990 seldi hann ljárkvóta sinn, en hefúr verið með nokkrar kindur eftir það, sem hann sinnir daglega. Stjórnmál og félagsstörf Haukur Níelsson mun vera kunn- astur fyrir störf sín að sveitar- stjórnarmálum, en hann átti sæti í hreppsnefnd Mosfellshrepps um 20 ára skeið, frá 1966 til 1986. Hann sat einnig í stjórn Kaupfélags Kjalarnesþings frá 1971 til 1994, þar af var hann stjómarformaður í 20 ár. Þá var hann formaður Búnaðarfélags Mosfellshrepps í 25 ár og sat í fyrstu skólanefnd Sveitarstjórn Mosfellshrepps kjörtímabilið 1970 til 1974. F.v. í fremri röð: Hrólfúr Ingólfsson, sveitarstjóri, Salóme Þorkelsdóttir (D), Jón M. Guðmundsson oddviti (D), aftari röð: F.v. Haukur Níelsson varaoddviti (H), Axel Aspelund (J). Tómas Sturlaugsson (H). Munið flugeldasölu Kyndils ! Nýtt hús Björgunarsveitarinnar Kyndils er tilbúið undir tréverk. Síðustu helgi var haldið þar jólahlaðborð fyrir björgunarsveitarmenn. Áramót em framundan og fólk beðið um að fara varlega vegna eldhættunnar. Minnum einnig á flugeldasöluna sem verður á Rykvöllum (gamla M björgunarsveitarhúsið) og við Langatanga. n C3feÖifc(j jóf farsceft fomanbi ar

x

Mosfellsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.