Vísir - 16.05.1970, Page 7
\
VlSIR . Laugardagur 16. maí 1970.
cTMenningarmál
Stefán Edelstein skrifar um tónlist:
YMUR. ÓMUR 0G ÓRAR
jslenzk tónskáld hafa veriö
. atihafnasöm að undanförnu,
á tónleikum S.í. þann 30. apr-
fi var frumfluttur fiðlukonsert
eftir Leif Þórarinsson. í fyrra-
dag var frumflutt verkið ,,Ym-
ur“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Það er óþarfi aö kynna Þorkel,
aliir vita að hann hefur verið
mjög „framleiðinn", bæði
fyrir innlendan markað og —
eftir pöntun — fyrir útlendan
markað.
Ymur er frekar stutt verk —
tekur um 10 mfnútur í flutningi.
Orðabókin þýðir orðið ymur
með „dynuri'. dimmt hljóö,
hljómur, niður, hávaði. skarkali,
stunur.“ Nafnið er frumlegt, en
það er tónsmíðin einnig. Tón
skáldið segir í efnisskránni, að
vissulega þurfi umburðarlyndi
til hlýða á ym annarra, og að
S.í. hafi í tvo áratugi glimt við
að flytja landsmönnum ýmiss
konar ym (við misjafnar undir-
tektir).
Mér finnst tónskáldinu 'hafa
tekizt vel að bæta nýjum ym í
„registur“ S.I. Verk þetta er
e.t.v. ekki öllum aögengilegt við
fyrstu áheyrn (en bvenær er
samtwnatóniist það?) og hefur
líklega eitthvað reynt á umburð
arlyndi sumra hlustenda. Mér
finnst það skýrf mótað í bygg
ingu, mjög vel instrumenterað,
þannig að hvergi tapast aðalat-
riði í of þykkri raddskrá, „stef-
in‘‘ eru greinileg og öll regist
ur hljómsveitarinnar nýtt í þjón
ustu tónlistarinnar, en hvergi til
að fá fram „effekta“. (
„Ymur“ er ekki bara dynur,
hávaði og skarkali, það er fyrst
og fremst hljómur, jafnvel róm
antískur hljómur, en með krapp
um dramatískum hápunktum. —
Flutningur tókst mætavel. þökk
sé samvizkusömum og nærfærn
um vinnubrögðum stjórnandans
og einbeitni hijómsveitarinnar.
I
■jjíanókonsert nr. 1 'eftir
Chopin ^ar næstur á dag-
skrá, prýðilega leikinn af belg-
íska píaiióleikaranum Michel
Block. Tónlist þessi orkar reynd
ar á mig sem svefnmeðal, og
maður g$eti óskað sér þess, að
einleikarinn léki illa ög gerði
vitleysur til þess að koma með
nokkrar hrukkur í þennan full-
komna flauelsvéfnað og halda
manni þar með vakandi. Síendur
teknar runur af minnkuðum
brotnum þríhljómum er ekki
sálufóður nútímans. Hvað Mich-
el Block snertir, er ekkert nema
gott um hann að segja, hann lék
einleikshlutverkið með karlmann
legri festu, skemmtilega laus
við þá yfirrómantísku túlkun,
sem einkennir oft flutning á
verkum Chopins. Tæknin var
tær, útlínur vel mótaðar og tónn
inn hljómmikill. Hljómsveitin
hefði mátt vera hiédrægari.
„ j j rahljómkvióa' ‘ Berlioz var
síðust á efnisskránni. Stjórn
andinn hlýtur að hafa unnið
mikið með hljómsveitinni til að
ná þeim góða árangri sem heyrð
ist hér. Ástríðufull tónlist Berli-
oz er í senn brilliant og erfiö
fyrir alla hljóðfæraleikara, mjúk
ur fiölutónn upphafsins tókst
eins vel og sterkustu hljómar
blásaranna og þyrlurnar í bumb
” unum.
Dynjandi lófatak var verð-
skuldaður þakklætisvottur
handa stjórnandanum Bohdan
Wodiczko og Sinfóníuhljómsveit
fslands, sem aö mínu áliti hef-
ur á 20 árum tekizt að sannfæra
marga um, að „sinfóníugaui"
getur verið jafnskemmtilegt
(eða skemmtilegra jafnvel) en
„bítlagaul" hversdagsins.
Vísir vísar á mðskiptin
Afgreiðsla og aug-
lýsingar VÍSIS
Afgreiðsla og auglýsingadeild Vísis hafa vegna bruna
verið fluttar úr Aðalstræti 8 í Bröttugötu 3B (rniiii Að-
alstrætis og Mjóstrætis).
Dogblaðið VÍSIR
Sínti 1 16 60
FHA JFJLUGFJELJlGIJViJ
Aðalfundur
Flugfélags lslands hf. veröur haldinn miðviku-
daginn 20. mai 1970 í Átthagasal Hótel Sögu og
hefst hann kl. 14.30.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Aögöngu- og atkvæðamiðar fyrir fundinn verða
afhentir hluthöfum á aðalskrifstofu félagsins í
Bændahöllinni.
Reikningar félagsins fyrir árið 1969 m unu liggja
frammi fyrir hluthafa á aðalskrifstofu félagsins.
Stjórn Flugfélags íslands hf.
FLUCFÉLAC ÍSLANDS
MÍGMég hvili .
með gleraugumfm
Austurstræti 20. Sími 14566.
lýii*
Veitingamenn —
ferðaskrifstofur athugið!
Hef til leigu matsölu- og gististað úti á landi, á 600
ferm. hæð, frá 1. júní til 1. okt. 1970.
Er tilbúinn til starfa 1. júní, matsalur fyrir 60—70
manns, gistiaöstaða fyrir 78—80 manns, góð að-
staða í eldhúsi. Leigist með öllum búnáði, hagkvæm
leigukjör. Tilboð sendist auglýsingadeild Vísts fyrir
þriðjudaginn 19, maí n.k. merkt „Undir Jökli“.
Ibúð til leigu
4 herbergja nýtizku íbúö i Hraunbæ trl leiga strax,
ca 100 ferm, — Uppl. í sima 84455.
á skeiðvellinum annan hvífasunnudag klukkan 2 eh.
Hestamannafélagiö FÁKUR