Vísir - 25.05.1970, Side 1

Vísir - 25.05.1970, Side 1
ii4. tBT Þykknar í lofti eftir bjnrta helgi Eftir bjarta or hlýja helgi hefur nú þykknað í lofti og spáir Veður- stofan vætutíð á Suðurlandi. — Fjöldamargir borgarbúar brugðu undir sig betrj fætinum um helg- ina og fóru út úr bænum eða spók- uðu sig í góða veðrinu um götur borgarinnar, enda var veður sér- lega failegt í gær, þó að hitinn færi ekkj yfir 12 stig. Fyrir norðan og austan er kalt en á Vestfjörðum er spáð bjartviðri. — þs. Fyrsta læknamiðstöðin úti á landi tekin i notkun FYRSTA læknamiðstöðin úti á landi var formlega tekin í notkun á laugardag, þegar nýja sjúkrahúsið á Húsavík var vigt. Fjöldi manns var viðstaddur vígsluna, en með- al gesta voru fjármálaráð- herra, alþingismenn kjördæm isins og læknar, sem áður hafa starfað við sjúkrahúsið. Vlgsluathöfnin hófst upp úr há- degi með því að sóknarpresturinn á Húsavík sr. Bjöm H. Jónsson vígði húsið. Þá afihenti formaður sjúkrahússtjórnar Þormóður Jóns- son húsið til almenningsnota, en að því ioknu leiðbeindi yfirlæknir sjúkrahússins Öm Amar boðsgest- um um húsið og lýsti starfsemi þess. Nýja sjúkrahúsið á Húsavík er hið glæsflegasta og búið góðum tækjakosti. Nú eru þar til'búin rúm fyrir 30 sjúklinga á 2. hæð hússins, og er kostnaður ti'l þessa um 40 milljónir króna, þar með talinn búnaður. Þriðja hæð er til- búin undir tréverk og málningu og er gert ráð fyrir, að meö henni fullgerðri verði heildarkostnaður- inn 48 milljónir. Þá verða í húsinu 62 — 65 sjúkrarúm. Sjúkrahúsið á Húsavfk er mesta fjárfesting, sem ráðizt hefur verið í til þessa þar um slóðir. 1 nýja sjúkrahúsinu er lokaður skurðstofugangur. sem talið er einstætt I sjúkrahúsi af þessari , stærð. Þar er skuröborð af full- komnustu gerð, sem má nota við allfilestar skurðaðgerðir. Þá er þar svæfingavél, sem er mjög full- komin. Við hlið skurðstofu er gjörgæzlustofa, sem sjúklingum er ætlað að vakna í eftir aðgerðir. 1 sjúkrahúsinu er rannsóknarstofa þar sem starfar meinatæknir, skipti stofa, röntgendeild og fæðingar- deild m. a. byggingarsaga þess, sagt frá gjöf um, og þeim aðilum, sem stuölaö hafa að byggtngu nýja sjúkrahúss ins þakkað. Meðal þeirra, sem tóku til máls var yfirlæknir sjúkra hýssins Öm Arnar, sem var ráð inn til sjúkrahússins frá Banda- rikjunum, sagði hann m.a., að nýja sjúkrahúsið væri að sínu áliti fylli lega sambærilegt við sams konar stofnanir vestanhafs og mættu Hús víkingar vera stoltir af þessu fram taki sínu. Fjármálaráðherra Magn ús Jónsson sagði m.a. í ræðu sinni að hann teldi að læknamiðstöðvar eins og þessi sem komin væri upp á Húsavfk væm það, sem koma skyldi annars staðar á landinu í framtíðinni. —SB — Heifbrigðismiðstöðin á Húsavík starfar í nánum tengslum við sjúkrahúsið og hefur aðstöðu í byggingunni og er í senn læknamið- stöð og heilsuverndarstöð. Heil- brigðismiðstöðin er rekin í sam- vinnu við ferlivistardeildir sjúkra- hússins. Við stöðina starfa allir læknar í Húsavik. Bygging sjúkrahússins hófst ár ið 1964, sjúkrahúsið teiknaði Sig- valdi Thordarson arkitekt en eftir lát hans tók Geirharður Þorsteins son arkitekt við húsinu. Eftir að sjúrahúsið hafði verið skoðað var safnazt saman í félags heimilinu á Húsavík, sem er í byggingu, til hádegisverðar. Voru margar ræður fluttar við það tæki færi, saga sjúkahússins rakin og Læknar sjúkrahússins á fundi. Frá vinstri: Oddur Bjarnason, Gísli G. Auðunsson, Öm Arnar. Elzti sjúklingurinn, María Vilhjálmsdóttir, flytur í nýja húsið með aðstoö yfirhjúkrunarkonu, Þór- dísar Kristjánsd. (t. v.) og Bjargar Helgad., hjú krunarkonu. Yfirlæknir, Örn Amar, tekur á móti. GLUNDROÐINN“ — var efst á baugi Ungt fólk hefur aldrei sett svip sinn á borgarstjórnarkosningar í jafnríkum mæli og nú. Þetta kom glöggt fram í umræðum um borgar málefni Reykjavikur í sjónvarpinu i gær. 24 fulltrúar 6 lista leiddu saman hesta sfna, og mikill hluti þessa hóps var ungt fólk. Helzta umræðuefnið var hvort það mundi leiða til glundroða í stjóm borgarinnar, ef Sjálfstæðis- flokkurinn missti meiri hluta sinn. Ræðumenn Sjálfstæöisflokksins hðldu því fram, að það mundi leiða af sér glundroða og hrossakaupa- stefnu, og Kristján Gunnarsson (S) sagði, að minnihlutaflokkamir hefðu ekki sýnt Reykvíkingum neitt borgarstjóraefni. „Okkur er ætlaö að kaupa köttinn ísekknum", sagði hann. Ræðumenn minnihlutaflokkanna töldu hins vegar, að glundroöa- kenningin hefði ekki við rök að styðjast, og kváðu reynsluna af samstarfi margra flokka um stjórn kaupstaða úti á landi hafa sýnt það. Birgir Isleifur Gunnarsson (S) benti á, að í borgiimi hefðu verið byggðar 3127 íbúðir á síðustu fjór- um árum, sem gætu hýst alla íbúa Akureyrar. Ólafur B. Thors (S) benti einnig á, að 75% Reykvík- inga búa í eigin húsnæði og 76% allra gatna hefðu verið malbikað- ar. Hann kvað unga fólkið ráða miklu um úrslit kosninganna, 7200 kjósendur gengju nú að kjörborð- í fyrsta sinn. Fulltrúar Alþýðubandalagsins og Sósialistafélagsins ræddu aðallega •kjaramálin og vinnudeilumar. Þeir töldu Framsóknarmenn sýna mik- inn tvískinnung. í orði styddu þeir kröfur verkafólks en SlS, er þeir réðu, neitaði á sama tfma að ganga að kröfunum. Sögðu þeir, að borgarstjóm ætti að hafa for- göngu um, að gengið yrði að kröf um launafólks. Sigurjón Pétursson (Ab) kvað A1 bert Guðmundsson mundu verða sérstakan „heildsalafulltrúa.‘‘ Ræðumenn Alþýðuflokksins töldu brýna nauðsyn, að Alþýðuflokkur- inn yrði við þessar kosningar stærsti flokkurinn í Reykjavfk, að Sjálfstæðisflokknum frátöldum, eins og Alþýðufl. var í þíng- kosningunum 1967. Björgvin Guð mundsson (A) kvaö Alþýðuflokk- inn hafa hindrað í ríkisstjóminnni, að minnkuð yrðu framlög trygging anna, þegar efnahagsáföllin dundu yfir. Sjálfstæðismenn hafa í blöð um neitaö því, að þessi staðhæf- ing sé rétt. Þá taldi Árni Gunn- arsson (A), að unga fólkið hefði miklu betri skilning en hinir eldri á sameiningu vinstri manna, en hin ir eldri foringjar vinstri flokkanna væm of rígskorðaðir i þeim efn- um. Formælendur Frjálslyndra lögðu áherzlu á nauösyn nýs flokks, er bryti af fólkinu hin gömlu bönd flokkavaldsins. Kristján Benediktsson (F) taldi nauðsyn á „vorhreingemingum" eftir 50 ára stjóm Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Ræðumenn voru yfirleitt ákveðn ir en hógværir í málflutningi. í borgarmálum gagnrýndu minni- hlutaflokkarnir meirihlutann helzt fyrir ónóg barnaheimili og skóla Kristján Gunnarsson (S) benti á, að árlega byggði borgin sem svar', aði skólahúsj á stærð við Háskólal Islands. Gengishækkun mundigefa varanlegri kjarabætur" — sögðu forstöðumenn Seðlabanka og Efna- hagsstofnunar VÍSUSTU menn í efnahags- málum skeggræddu kosti og lesti gengishækkunar krón- unnar á fundi á Hótel Loft- Ieiðum á laugardag. Voru dr. Jóhannes Nordal, seðla- bankastjóri, og Bjarni Bragi Jónsson, stjómandi Efnahags -tofnunarinnar, á einu máli um mikla kosti hennar um fram miklar beinar kaup- hækkanir. Jóhannes Nordal sagði þó, að við virtumst nú hafa misst af tæklfærinu 1 þetta sinn. Latm- þegasamtök og vinnuveitendur hefðu tekiö illa hugmyndinni um hækkun gengisins, sem kæmi í stað hluta kauphækkana. Samt væru nú til staðar öll ski'lyrði fyrir hagkvæmri hækk- un gengisins. Batinn I efnahags- málum hefði orðið það mikill, einkum alira síðustu mánuði. Ef hins vegar kæmu til mjög miklar kauphækkanir, mundu fylgja í kjölfarið verðbólga, sem ekki yrði séð fyrir endann á og mundi innan tíðar valda tapi f atvinnurekstri. Þanitíg mundu launþegar missa aftur kjara- bætumar, sem feagjnst váð hækkanir kaups. Ræðumenn viMu. að nú ycði kaup hækkað talsvert en jafn- framt yrði gengið hækkaö. Væri það æskilegra en að stfga aJtt skrefið m'eð beinum kauphækk- unum. Margir aðrir tóku til máls og beindu fyrirspumum til ræðu- manna. Einkum töldu formæl- endur sjávarútvegs, að hart yrði að þeim gengið, ef gengi krón unnar yrði nú hækkað. HH. 4

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.