Vísir - 30.05.1970, Side 2
/
Aluminaut í kafi, en þessi mynd var tekin af honum fyrir nokkru, þegar báturinn var í kvikmyndaleiðangri við Bahamaeyjar.
Vantar þig kafbát til leigu?
Aluminaut kostar „aðeins" $30.000 yfir vikuna
Stjómturninn er aftast á Alum
inaut, og verður stjórnandinn
að fara eftir leiðbeiningum út-
sýnisvarðar, sem situr fremst
í bátnum og getur horft fram
á leiðina í gegnum fjögur kýr-
augu.
Djúpkanninn, Alvin.
öslandi um grunnsævið við
Bahamaeyjar minnir kafbáturinn,
Aluminaut, einna helzt á eitt-
hvert óhugnanlegt sæskrímsli.
Hann má heita langafi þeirra kaf-
báta, sem byggðir liafa verið á
siðustu árum til djúpsjávarrann-
sókna.
Samt e? hann ennþá stærstur
þeirra og getur kafað einna dýpst
af þessum stóru, eða næstum
niður á þriggja mílna dýpi. Það
kostaöi eigendur bátsins, stór-
fyrirtækið Reynolds Metals, um
4 milljónir dollara að láta smíða
hann á sínum tíma.
Báturinn er leigður út til rann-
sóknar- eða björgunarstarfa, og
það er ekkert til fyrirstöðu því,
aö jafnvel þú getir fengið hann
leigðan viku eöa svo, en þaö
kostar ca. $ 30.000 á viku. Fyrir
nokkru var hann leigður kvik-
myndatökufyrirtæki, sem notaði
bátinn við neðansjávarmynda-
töku hjá Bahamaeyjum.
Það var Aluminaut ásamt
djúpkannanum Alvin sem send-
ir voru af stað til að leita aö
vetnissprengjunni, sem týndist
fyrir ströndum Spánar 1966. —
Björgun sprengjunnar tók 62
daga.
Þó er það ekki varidasamasta
björgun, sem Aluminaut hefur
veriö viðriðinn. Sú erfiðasta var,
þegar Aluminaut var sendur til
að ná djúpkannanum, Alvin, upp
af hafsbotni í ágúst s.l. Alvin
sökk 23. okt. 1968 um 120 mílur
suöur aif Cape Cod. Hann slitnaði
úr festum um leið og hann var
látinn síga niöur með hlið móður-
skips síns og var sokkinn, áður
en mínúta var liðin.
Svo týndu menn staðnum
en hafrannsóknarskipið, Mizar,
fann bátinn aftur þrem mánuðum
síðar. Aluminaut var fenginn til
þess að festa taug í bátinn, þar
sem hann lá á 5.050 feta dýpi,
en skip með öflugum vindum dró
Aluminaut er útbúinn þreifiörmum eins og krabbi.
bátinn upp. Það tók rúma viku
og margar árangurslausar til-
raunir að festa dráttartaugina i
Alvin, en haföist þó um síöir.
Aluminaut vegur rúmar 80
lestir og er útbúinn hreyfiörm-
um, sem nota má til margs kon-
ar hluta — tínslu sýnishorna af
hafsbotni o. fl.
ÞRIR
MÖGULEIKAR
HjólbStiflingar
Lúkasverkstæðið
Suðurlandsbraut 10 . Sími 81320
FWT 128'
AnG. 1270
FORD CORTtNA.
ASG.1970
VOLKSWAGEN 1300
ARG.1970
DREGID í DAG
LANDSHAPPDRÆTTI
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
6ÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
HJÓLASTILLINGAR
MOIOflSTILllNCAB UÖSASTILLINGAH
LátiS stilla I tíma.
Fljót og örugg þjónusta.
13-10 0
I