Vísir - 30.05.1970, Page 9
V í SIR . Laugardagur 30. maí 1970,
9
Menntir
Skólahúsnæði hefur á 4 árum aukizt í
Reykjavík um 30% á sama tíma og
nemendum hefur fjölgað um 7%.
Kennsla 6 ára barna hefst strax í haust
í Reykjavík.
Verið er að stofna tilraunaskóla í
Reykjavík á framhaldsskólastigi og er
miðað að því, að allir eigi kost á fjöl-
breyttum námsbrautum allt til 19 ára
aldurs.
Annar aðalsalur myndlistarhússins á
Miklatúni verður tekinn í notkun í
sumar í tilefni Listahátíðari.unar, sem
Reykjavík stendur að.
Umhverfi
og heilsa
Gróðursvæðum, útivistarsvæðum og
skrúðgörðum borgarinnar fjölgar um
sem svarar mörgum hekturum á
hverju sumri og svæði þessi eru smám
saman að tengjast í samfelld belti-
Reykjavík er orðin fræg fyrir glæsileg
íþróttamannvirki og mikinn stuðning
við íþróttastarfið í borginni.
Heilbrigðiseftirlit og varnir gegn
mengun eru sífellt hertar í Reykjavík
og er þó eftirlitið þegar strangara en
víðast erlendis.
f ár er unníð að því að finna lausn á
sameiningu holræsaútrása til að
hindra mengun sjávar.
20 minnisatriði
á kjördegi
© Með framkvæmdum við Gvendar-
brunna og Bullaugu er markvisst
stefnt að því að tryggja Reykvíking-
um áfram tært og ómengað drykkjar-
vatn.
© Með stórframkvæmdum hitaveitunn-
ar hefur frægð Reykjavíkur sem hinn-
ar reyklausu borgar verið tryggð um
langan aldur.
V erkleg
þjónusta
© Hitaveitan sparar hverjum notanda
40% af upphitunarkostnaði.
© I ár lýkur malbikun nær allra íbúðar-
gatna vestan Elliðaáa, nema í Eoss-
vogshverfi, og einnig verður malbik-
að í Árbæ og Breiðholti.
Með tilkomu Sundahafnar og bættri
hafnaraðstöðu- hefur .* myndazfi
3EÍ9T, snVanifi' ,'ib isftéd eteri #7
hafnarrymi í Reykjavik.
Leiðakerfi strætisvagnanna hefur ver-
ið gerbreytt og veitir. það nú mun betri
þjónustu en áður.
Uppbygging Reykjavíkur fer fram
með skipulegum hætti, því að stöðugt
er unnið í samræmi við aðalskipulag-
ið mikla frá 1967.
V elferð og
húsnæði
Allir, sem vilja, geta fyrirvaralítið
fengið byggingarlóð í Reykjavík.
Á fjórum árum hefur verið byggt í
Reykjavík sem svarar einni Akureyri.
Leikskólum, dagheimilum og öðrum
félagslegum stofnunum borgarinnar
fjölgar nú mun örar en nokkru sinni
fyrr, — bæði hvað snertir yngstu
borgarana, aldraða fólkið og hina ó-
lánssömu í lífinu.
Þjónusta borgarinnar við aldraða og
við æskulýðsstarfið í borginni eykst
hröðum skrefum, ekki sízt eftir til-
komu Tónabæjar.
Félagsmálastarf borgarinnar hefur
verið endurskipulagt frá grunni síðan
1967 og eru nýjungarnar framkvæmd-
ar eins ört og tilkoma hæfra sérfræð-
ingaleyfir.