Vísir - 09.07.1970, Síða 1
^A/WNAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/W
Mikil þátttaka í
siglingakeppninni
— sem fór fram i Fossvoginum i gær
H Það var líf og fjör í Foss-
voginum í góða veðrinu í
gær, er þar fór fram hin ár-
lega siglingakeppni siglinga-
klúbbs æskulýðsfélaganna í
Reykjavík og Kópavogi,
Sigluness. Fjöldi áhorfenda
fylgdist með keppninni, auk
þess, sem nokkrir meðlimir
úr siglingaklúbbi Akureyrar
sigldu með keppendunum á
skútu sinni, sem gestir — og
sýndu þeir mikla leikni.
Keppt var í tveim aldursflokk
UIII. 1 „seascout“-róðri 14 at<»
og eldri sigraði Einar Guð-
mundsson úr Kópavogi, en úr-
slit í kajakróðri yngri þátttak-
enda verða ekki kunn fyrr en
eftir úrslitakeppnina, sem fer
fram í Nauthólsvíkinni klukk-
an átta í kvöld. En nauðsyn-
legt var, að láta keppa í und
anrásum í yngri flokkunum, sök
um þess, hve þátttakendafjöldi
var mikill.
Þessi siglingakeppni hins
500 manna siglingaklúbbs er
sem fyrr segir árlegur liöur í
klúbbstarfseminni, en að þessu
sinni fer keppnin fram, sem dag
skrárliður á vegum íþróttahátíð
arinnar. — ÞJM
Nú er um að gera, að allt sé í fullkomnu lagí.
löngu „seascouta“ sína undlr keppnina.
Nokkrir eldri keppendanna búa hina 9 feta
70 útlendingar í hrakning-
um a
Stórhrið pg 70 metra
Þrír fjallabílar með 70
erlenda ferðamenn brutust
af stað klukkan tíu í morg
un frá sæluhúsi Ferðafé-
lagsins við Tungnafells-
jökul í kafsnjó, stórhríð
og tíu metra skyggni.
Mikil snjókoma hefur verið á
skyggni hjá sæluhúsinu við Tungnafellsjökul
fjöllum og heiðum í nótt og í gær.
Á Norðurlandi hefur fennt niður í
miðjar hlíðar.
Ferð sjötíumenninganna var heit
ið niður í Bárðardal, þar sem skóla
húsið neðan við Mýrar hefur verið
kynt upp fyrir þá, því kalt verður
þeim á þessum hrakningum.
Útlitið var mjög dökkt þama
uppi á Sprengisandi í morgun.
Snemma í morgun bárust þessi
skilaboð frá hópnum:
— Stórhríð og tíu metra skyggni
reynum að komast af stað klukkan
tíu. — Það fylgdi með að öllum
liði vel, en þarna eru saman komn
ir ferðalangar af ýmsu þjóðerni,
Englendingar, Frakkar og Þjóðverj
ar og er þetta eflaust einstætt
ferðalag fyrir þá. — Kannski ekki
ónýtt til frásagnar síðar meir að
lenda í stórhríð og hrakningum
uppi á Islandi um hásumar.
Hópurinn lagði af stað 5. júlí og
varð að snúa frá Eldgjá í fyrra-
dag vegna ófærðar, en fór þess í
stað að Heklu. Að sögn Úlfars
Jakobssonar er annar hópur nú á
leið úr Þórsmörk sömu leiö, en
sá hópur mun áreiðanlega bíða
þess að veðrinu sloti.
Hópurinn er þarna í tveimur
rútum og bílstjóri á annarri,
A-396, er Gunnar Jónsson frá Dal-
vík, þjóðkunnur fjallamaður, auk
þess er með í ferðinni eidhúsbíll,
trukkur með spili, sem kemur á-
reiöanlega að góðum notum í ó-
færöinni.
Talsverðum snjó hefur kyngt nið
ur á hálendinu og um allt Norður-
Iand, til dæmis vöknuðu bæði Ak-
ureyringar og Sauðkræklingar við
æöi kuldalega fjallasýn, hvítar
hlíöar. — JH
Austurríki heims-
meisturi í tví-
menningi
Austurríkismenn urðu heims-
meistarar í tvímenningskeppni í
bridge, sem fór fram í Stokk-
hólmi í framhaldi af heimsmeistara-
móti sveita. Austurríkismennimir
Babsch og Manhardt fengu 26.634
stig.
I öðru sæti voru ítalirnir Garr-
ozzo, sem 10 sinnum hefur verið
í heimsmeistaraliði í sveitakeppni,
og Mayer meö 26.630 stig. 3. vom
svo ítalirnir Saulino og Zanasi
með 26.561, 4. Bandaríkjamennirnir
Rubin og Westheimer 25.071 og 5.
Kanadamennirnir Kehela og
Murray með 25.017. — Alls kepptu
158 pör.
í kvennaflokki sigruðu Banda-
ríkjakonurnar Farrell og Johnson
með 11.419 stigum, í 2. sæti voru
Englendingar með 11.332 stig, og
3. Svíar með 11.147 stig. — HH
Laxanet gerð upp-
tæk við Ölfusárósa
Leggja fýrir lax undir jbv/ yfirskini að verið sé
7 Flugvél Fragtflugs er enn með „stríðsmálningu“ eftir Bíafrasíríðið.
Fragtflug hyggur á stöðugar
ferðir utan með ferskfisk
? Flogið verður i stórum stil með fisk til Bretlands og meginlandsins
1 Fragtflug, íslenzka vöru-
4 flutningafyrirtækið, sem
4 stofnað var meðan á Bíafra-
4 stríðinu stóð er nú með það í
4 athugun að hefja stöðugar
4 flugferðir til meginlands Evr-
4 ópu og Bretlands frá Islandi
með ferskfisk fyrir nýstofnað
útflutningsfyrirtæki.
Flugvél félagsins kom til
landsins í gær fullhlaðin vör-
um, rafmagnstækjum fyrir Bræð
urna Ormsson og verður hún
hér meðan verið er að' kanna
með ferskfiskútflutninginn.
Síöan verkefni Fragtflugs }
í Nígeríu fyrir Rauða krossinn ^
lauk hefur félagiö haft ýmis t
minni háttar verkefni í vöru- ,
flutningum erlendis. M. a. flaug *
félagið fyrir Barnahjálp S.Þ. )
milli Genf og I.agos og með \
jarðarber á milli Belgíu og Sví- i
þjóðar. — VJ ’
að veiða sild eða silung
H Veiðiveröirnir í Árnessýslu,
sem gæta vatnasvæða Ölfusár og
Þjórsár, hafa tekið upp allmörg
nei við Ölfusárósa að undanförnu,
þar sem menn hafa reynt að leggja
þau fyrir laxinn, þegar hann geng
ur í ána. Net þessi hafa aðallega
verið Iögð viö Hafnarskeið vestan
við Ölfusárós, og það eru menn
úr Þorlákshöfn, sem hafa stundað
þessa iðju, stundum undir því yfir-
skini að þeir væru að veiða sil-
ung eöa jafnvel síld. Slíkt kemur þó
út á eitt því landeigendur hafa
bannaö alia veiði vestan við ósana.
Einnig hefur borið dálítið á slíkum
netalögnum við Eyrarbaklta, þar
sem net hafa verið lögð við klappir,
austan við ósana, en það svæðj er
friðað.
Að sögn Guðmundar Rafnars
Valtýssonar veiðivarðar á Laugar-
vatni, sem Vfsir ræddi við í morg-
un, hefur fundizt lax í netunum,
þegar þau hafa verið tekin upp, en
netin eru flutt upp á Selfoss til
geymslu hjá sýslumanni. Annars
sagði Guðmundur að lítið bæri á
veiðiþjófnaði á vatnasvæði ánna,
hvergi heföi orðið vart við neinar
meiri háttar tilraunir til slíks. Þar
sem aöallega kæm; til kasta veiði-
varða væri um að ræða misskilning
sem stundum ætti sér stað um
svæðaskiptingu, þegar nýir menn
væru að byrja að veiða, en slíkt
væri jafnan útkljáð f bróðerni. JH