Vísir - 09.07.1970, Blaðsíða 9

Vísir - 09.07.1970, Blaðsíða 9
9 'ÍSIR . Fimmtudagur 9. júlí 1970. Bílar streyma til landsins. Mikið hefur verið að gera við að afgreiða nýja bíla til kaupenda síðustu dagana, eftir verkfallið. Þarna er skip hlaðið Cortína-bílum komið að bryggju. metár / bílainnffutningi? Bifreiðin, þarfasti þjónn lslendinga, er mörgum mann inum óþrjótandi umræðu- efni. Hvernig bíl á að kaupa? Hve lengi getur maður átt gamla bílinn? Er hægt að treysta venju- legum fólksbfl til langra ferðalaga um fósturjörðina? Hvaða umboð veitir bezta þjónustu? Ryðgar bílinn mikið? Þarf hann mikla eða litla umhirðu? Og síðast en ekki sízt: Hvað kostar bíllinn? Skýrslur um endingu. Vegir okkar íslendinga eru ekki upp á marga fiska, og stöð ugt undrunarefni útlendinga sem sem hingað ferðast. Sum um finnst þeir allt að því ófær ir, en til eru þeir sem undrast hve víðtækt vegakerfið er: naumast er til þaö annes aö ekki liggi þangað vegspotti. Reyndar er vegakerfið ekki til- efni þessarar greinar, heldur Verður hitt, að margir bílainnflytjend- ur, eða sölumenn innflutnings- fyrirtækja, hafa til gamans sleg ið því fram, að ekkert land sé sennilega betur fallið til að prófa bifreiðir, en einmitt fs- land. Auðvitað er tækniprófun bif- reiðar mjög svo viöamikið og kostnaöarsamt fyrirtæki, og ekki á færi venjulegra umboðs sala að standa straum af. Hætt er og við, að hugmyndin um reynsluaksturskeppni sem fram færi hérlendis á hverju ári, myndi gjörsamlega falla um sjálfa sig vegna laga um há- markshraða. Bifreiðaumboðin hér hafa flest viðhaldsverk- stæði á sínum snærum, og semja skýrslu yfir bifreið sína: Hvemig hún reynist, hvað þyrfti að endurbæta o. s. frv. Þessar skýrslur eru svo sendar verksmiðjunum og ætlazt til að þær endurbæti galla sem kunna að koma í ljós. Þannig hefur það oft komið fyrir að verksmiðjur, bæði austan tjalds og vestan, hafi breytt bíl sín- um eitthvaö aö óskum íslenzkra innflytjenda. Fólksbílar orðnir 40 þús. Og í árslok 1969 voru fólks- flutningabifreiðir á fslandi sam tals 37.859. Bifreiðir af öðru tagi, þ.e. vörubifreið> og sendi ferðabifreiöir voru hins vegar 5.717. í ár hefur talsvert bætzt við þennan flota. Bílainnflutn- ingur tók mikinn fjörkipp við þær tollalækkanir sem hér komu til framkvæmda í vetur. Visir hafði tal af nokkrum innflytjenda, og voru þeir allir áoægðir með söluna, en bentu líka á það, aö vissulega hefði hún mátt aukast frá því sem var 1969. „Reyndar Þyrfti salan ætíða að vera eins og hún var 1964 — 67, einungis til viðhalds bílakosti landsmanna", benti einn sölumaðurinn á. Núna þyrfti að flytja inn 4000 fólks b'freiðir árlega til að halda í horfinu. Greinilega er langmest sala þessa dagana í Ford Cortina og Moskvitch, en aðrir bílar seljast einnig mikið, svo sem Volkswagen og Skoda. í nýútkomnum Hagtíðindum kemur í ljós aö Volkswagen bifreiðir eru vinsæiastar hér á landi. Þær voru í árslok 1969 4.882 talsins, eða 12,9% bíla landsmanna. Ford kemur svo á eftir, og reyndar mjög nærri Volkswagen með 4.755 bíla, eða 12,6%. í þriðja sæti er svo Moskvitch með 3.029 bíla eða 8,1%. Söluhlutföll einstakra bílategunda hérlendis virðist vera nokkuð svipað frá ári tfl árs, til dæmis hefur Volkswag- en um árabil veriö mest selda bifreið á íslandi, og Ford veriö í öðru sæti. Moskvitch sækir nú mjög á þetta árið a.m.k., enda ódýr miðað við aðrar tegundir í sama stærðarflokki. Vegir í góðu ástandi. Bifreiö er dýrt tæki og er ná- kvæmlega sama hvc mikið fé menn vilja eða geta lagt í bíla kaup, ódýrustu bílarnir á mark aðinum kosta mikið, allt frá kr. 152.000 .Það er því mikið í húfi fyrir bíleigendur að vegir um landið séu þannig að ekki sé hætt við stórskemmdum þó skroppið sé út fyrir bæina eða í aðra landsfjórðunga. Núna er einmitt tími sumarferðaiaga, og mikið álag á vegum. Viö höfð- um samband við skrifstofu vega eftirlits Vegagerðarinnar, og spurðumst fyrir um ástand vega þessa dagana. Þeir vísu menn sögðu að vegir væru I góðu á- standi núna, enda sá árstími að varla sé við öðru að búast, þó rigningar geti auðvitað sópað vesælum vegspottum á burtu í einu vetfangi. Allir aðalvegir, bjóðvegir og héraðsvegir eru nú færir, en hins vegar eru nokkrar Ieiðir, þær sem merkt ar eru með brotinni línu á vega kortum — ekki færar. Þar má nefna Kjalveg, sem ófær er vegna bleytu og verður ekki lagfærður fyrr en eftir helgi. Sömuleiöis er ófært um Sprengi sand. Hvað kostar áð eiga bíl? Vondir vegir hækka auövitað verulega allan reksturskostn- að bifreiðar og minnka ending argetu þeirra. Það er í verka- hring Félags íslenzkra bifreiða eigenda að reikna út reksturs- kostnaö bifreiða, og í síðasta blaði af Ökuþór“ blaði F.Í.B. er birt skrá yfir reksturskostn- að nokkurra bifreiða. Þar sést að það kostar (eða kostaði þeg ar'.blaðið kom út, síðla árs 1969) 100.000.00 kr. að reka Volkswagen 1300. í þessum reksturskostnaði er talið með af skrift, sem er 13>/2% eða 31.657.50 kr. Bensínkostnaður er áætlaður 19.360.00 kr. Kostnað- ur við hjólbarða rúmlega 6000.00 kr. Ábyrgðartrygging og kaskó- trygging samtals um 8.200.00 kr. Skattur 1.316.00 kr. Það hlýtur að vera bifreiða- eigendum mikið tilhlökkunar- efni, ef hægt er að búast við endurbótum á vegakerfinu í framtíðinni, en það er öllum ljóst að þaö kostar ekkert smá vegis að leggja vegi með varan legu slitlagi um ísland. Til dæm is mun kosta 600 kr. að steypa 22 cm þykkt lag á einn fer- metra. Það þýðir 4,5 millj. á hvern km, ef breidd vegarins er 7i/2 metri. 10 cm þykkt malbik kostar 350 kr. á fermetra 2,625 millj. á km, ef breitt vegarins er 71/. metri. 5 cm þykkt lag af olíumöl er hins vegar ódýrara. Það kostar 555 kr. á fermetra, eða 0.330 millj. á km og er þá miðaö við 6 m breiðan veg. Þessar upplýsingar koma fram í „Ökuþór", sem út kom 1969. Þar segir ennfremur að töl ur þessar séu miðaðar við niö urlagningu við eölilegar aðstæð ur í stærri verkum. Olíumöl hlýt ur að vera nokkuð forvitnileg fyrir okkur íslendinga, en hún hefur verið sett á vegi sums staðar hér sunnanlands og gefið góöa raun, til dæmis í Svíirá- hrauni. Þar hefur olíumöl verið á veginum á nokkrum kafla í um 3^2 ár og er enn svo til ð- skemmd. ,,ökuþór“ segir að kosta myndi 150 milljónir að leggja olíumalarveg milli Reykja víkur og Akureyr'ar miðað við að sá vegur væri 6 m breiður. Þá kemur einnig fram f „Öku þór‘‘ að á átta árum, eða frá 1960 til 1967 voru tekjur ís- Ienzka ríkisins af bifreiðum og rekstrarvörum til þeirra 4.536 millj. kr. Framlög til vega áætl að 1.705 millj. og mismunurinn því 2.831 millj. Á þessum átta árum hefur 37,6% af þessum tekjum verið varið til vegamála. Ónógar upplýsingar. Sem fyrr segir kostar ódýrasti billinn 152.000.00 kr. Af þessu háa verði leiðir svo að menn reyna yfirleitt að rasa ekki um ráð fram, er þeir kaupa sér bíl. Margt kemur reyndar til greina við bílakaup, og ekki hentar öllum það sama. Sumir kaupa ætíð þann bílinn sem mest er seldur. Aðrir velja sér einhverja tegund, án þess að velta því fyrir sér hvort aðrir hafi álit á honum. Við spurðumst fyrir um það hjá nokkrum • iJ-bifreiðaumboð- anna t.d. Bifreiðum og landbún aðarvéíum, sem flytjá inn rússn eska bíla og hjá Heklu (Volks- wagen, Landrover) hvort eitt- hvað væri gert til að kynna væntanlegum kaupendum bíl- ana. Yfirleitt er Htið um það að ræða hjá umboðsmönnum hér- lendis annað er auglýsinga- bæklinga á erlendum tungum, þar sem kaupendur eiga að geta fengið upplýsingar um kosti og galla bi'freiðarinnar. Flestum bíl um fylgir við sölu upplýsinga- bæklingur eða bók. Þessi bók á að geta þénað öllum bílaeigend um sem eins konar biblía um innri náttúru bifreiðarinnar. — Hins vegar er næsta lítið um það að umboðin kynni bíla sína rækilega með því að gefa mönn um hagnytar upplýsingar um þá (ekki i auglýsingaformi). — Einstaka umboð láta nægja að gefa mönnum kost á að reynslu- aka bifreiðinni og meta hana þannig. Sölustjóri hjá Sveini Egilssyni sagðist að vísu hafa mikinn á- huga á að bæta nokkuð upplýs ingaþjónustuna, en staðreyndin væri bara sú að þeir hefðu svo mikið að gera við að selja Cort- ínuna að enginn tími hefði gef- izt til að sinna auglýsingum eða upplýsingaþjónustu! Kátir umboðsmenn. Svo sem fyr greinir hér eru bílainnflytjendur kampakátir og bjartsýnir á framtíðina. Kannski er mest sala I bílum fyrri hluta árs og fram eftir sumri, en svo virðist sem fólk hafi meira fé milli handa og þá eykst bfla- sala að sjálfsögðu, eins og önn ur verzlun. Kannski er ekki á- stæða til að halda að þessi fjör mikla bílaverzlun haldist til lengdar ,en ómögulegt er að spá um framtíðina þegar verziun er annars vegar. —-GG Tisœsm: Hvers vegna akið þér eigin bíl? Ólafur Jónsson, ýtustj.: Einfald- lega vegna þess, að þaö er þægi- legra. Það er nefnilega ekki alltaf hægt að nota strætis- vagnana. Jón Gunnarsson, málari: Bæði vegna ánægjunnar og þægind- anna. Svo er notagildi bílsins fyrir mig við vinnu. Hjörleifur Guönason, afgrm.: Ja ég hef nú bara sáralítið hugsað út í þaö — þótt það vera svo sjálfsagt. Það er auðvitað þægi- legra, að vera á ejgin bíl, til aö komast tíl og frá'Vinnustað. Nú og svo ekki síðra, að hafa bíl í sumarfríinu. Magnús Magnússon, járnsmið- ur: Fyrst og fremst vegna vinnu. '1: Svo er bærinn orðinn það víð- áttumikill, aö það er nauðsyn- legt, aö hafa bíl til aö skjótast milli staöa. — Annars gæti maö ur nú líka alveg eins notað hest, . ef út í þaö væri farið. Elsa Kjemp, hjúkrunarkona á Vifilsstöðum: Ég var einmitt að kaupa mér bíl í dag og ástæðan fyrir því er sú, að strætisvagna ferðir eru ekki til Vífilsstaða á þeim tímum, sem mér hentar, svo að mér er bráönauðsynlegt að vera á eigin bíl. Kristján Magnússon, starfsm. hjá Borgarsp.: Bílinn minn nota ég sem atvinnutæki. Ég hugsa, að ég aki honuro að rieðaJtali 90 km á dag á vegum Borgar- spítalans. — ÞJM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.