Vísir - 09.07.1970, Blaðsíða 5

Vísir - 09.07.1970, Blaðsíða 5
Umsión Hallur Símonarson. Eftir landsleikinn í körfuboltanum sýndi frúarflokkur fimleika undir stjórn Hafdísar Amadóttur — og tókst sýningin meö miklum ágætum. Hér að ofan er mynd frá sýningunni, en mikill fjöldi áhorfenda hafði lagt leið sína í íþróttahöllina í gær- kvöldi og fylgdist meö viðburðum kvöldsins. Meðal þeirra var menntamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason og frú. Ágætur lokasprettur íslands tryggði sigur gegn Skotunum — Annar landsleikur verður í kvöld ú Seltjarnurnesi íslenzka landsliðið í körfu- bolta vann sinn 17. sigur í 33 leikjum í gærkvöldi, þeg ar það sigraði Skotland í skemmtilegum og spenn- andi leik í íþróttahöllinni með 85 stigum gegn 73 og það var ekki fyrr, en á loka mínútum leiksins, sem ís- lenzka liðið náði að tryggja þann sigur. Þegar um átta mínútur voru eftir af leiknum höfðu Skotar yfir — en ágætur loka- sprettur setti Skotana úr jafnvægi og voru þó þrír af fjórum stighæstu leik- mönnum íslands þá komn- ir úr leiknum. Leikurinn var jafn mest allan tímann, en þö ieit út fyrir um tíma í fyrri hálfleik, aö skozka lið ið væri að ná yfirtökunum í leikn- um. Allan fyrri hluta hálfleiksins skiptust liðin á að skora — 8 — 8, 14—14 og 16—16 sáust á ljósatöfl- unni — en þá kom slakur kafli hjá ísl. liðinu og Skotarnir kom- ust á örfáum mínútum í 30—23. En strákarnir'tóku sig á—- og mun ufinn jafn,3ðjstw^garn)£^ hálflfigaj um kom hafði íslenzka lióið ’riáö forustu 46—42. Framan af síðari hálfleiknum léku Skotar ágætlega — og það var eins og það hefði slæm áhrif á okkar menn, að Einar BoIIason meiddist á auga — var borinn af leikvelli og fluttur á slysavarð- stofuna, en meiðslin reyndust ekki alvarleg. Skotar komust yfir mest 60—58, en það stóð ekki lengi og á lokamínútunum seig íslenzka lið- ið fram úr — og það þrátt fyrir, að Kolbeinn Pálsson og Jón Sig- urðsson höfðu þá vikið af leikvelli vegna fimm brota, en þeir höfðu báðir átt skínandi leik. En Kristinn Jörundsson og Birgir Jakobsson sýndu ágætan leik og tóku vel upp merki þeirra — og -göður sigur var i hofn. ' -'V’ M ■ "Itsir deikmennns«m hérr<að- frarn an eru nefndir, voru beztu menn ísl. liðsins — ásamt Kristni Stef- ánssyni, sem vék aldrei af leikvelli, og reyndist mjög sterkur í vörn- inni. Stighæstir voru Birgir 22, Kolbeinn 15, Einar 14 og Jón 11. — Hjá Skotum vakti risinn Cam- eron mesta athygli — var hittinn á körfuna, og ógnaði mjög. Hann er 2.07 m á hæð. f kvöld verður annar landsleikur milli landanna. Hefst hann kl. 7 og verður leikið í íþróttahúsinu á Sel- tjarnarnesi. Það ætti einnig að geta orðið skemmtileg viðureign. Islands- glíman í 60. sinn 60. Íslandsglíman ver^- ur háð í Laugardalshöll- j inni í kvöld og hefst kl.; 20.30. AIls eru skráðir; þátttakendur 15 og er| það meiri þátttaka en; verið hefur í íslands-; glímunni síðan 1930, en! þá voru þeir 16. Meðal þátttakendá eru flestir 1 helztu glímumenn landsins og, þar á meðaí glímukappi íslands 1 frá síðustu Íslandsglímu Sveinn ; Guðmundsson, sem þá keppti i fyrir Héraðssamband Snæfells-1 og Hnappadalssýslu, en keppir | nú fyrir Glfmufélagið Ánnann i og er eini keppandinn, sem Ár-1 mann sendir í Íslandsglímuna. | Héraðssamiband S.-iÞmgeyinga' sendir tvo keppendur. þá bræð- uma Ingva Þ. Yngvason og, Björn Yngvason, en hann er i glímukappi Norðlendingafjórð-1 ungs. Héraðssambandið Skarphéð-1 inn sendir 4 þátttakendur. Það' eru þeir Skúli Steinsson og \ bræðurnir Guðmundur, Haf-1 steinn og Sigurður Steindórs- ( synir, en Sigurður er nú glímu-1 Jtappi Sunnlendingafíórðungs. i Héraðssamband íjhæfélls- og J ; Hriap*padals'sýsIu ’ séhdir" Sígur- \ þór Hjörleifsson, en i hann er 1 glímukappj Vestfirðingafjórð-; ungs. J K.R. sendir 4 keppendur, þar 1 á meðal skjaldarhafann frá \ síðustu Skjaldarglímu Ármanns, Sigtrygg Sigurösson, og enn- fremur þá Jón Unndórsson, Óm-; ar Úlfarsson og Bögnvald Ólafs-! son. Frá Ungmennafélaginu Vík-; verja verða þátttakendur þeir; Hjálmur Sigurðsson, Ihgvi Guð-1 mundssoij og Sigurður Jónsson. * Einar Bollason með knöttinn — en hann meiddist síöar í leiknum og var fluttur á slysavaröstofuna. Tekst strákunum betur upp gegn Dönum en iandsliðinu? - Siðari leikur danska landsliðsins i kvöld og mætir liðið þá unglingalandsliði jbv/, sem átti að vinna franska landsliðið Danska landsliðið í knatt- spyrnu leikur síðari leik sinn hér á landi í kvöld og mætir þá unglingalands- liðinu í knattspyrnu — það er leikmönnum 21 árs og yngri. Þegar franska landsliðið var hér á dögun um sigraði það í landsleikn uni við ísland, en lenti í miklum erfiðleikum með unglingalandsliðið, en náði þó jafntefli, sem ekki voru sanngjörn úrslit. Islenzka liðið í kvöld verður al- veg eins skipað og það, sem átti að sigra það franska — þótt furðu- legur vítaspyrnudómur kæmi í veg fyrir þann sigur — og í liðinu er allt leikmenn, sem getið hafa sér góðan orðstír í meistaraflokkum liða sinna. Og nú er spurningin: Tekst liðinu jafn vel upp og gegn franska landsliðinu og sigrar bað daínska á Laugardalsvellinum í kvöld? Strákarnir leika prýðilega knattspvrnu — og eru vel samæfð- ir, en liðið er þannig skipað talið frá markmanni að vinstri útheria- Magnús Guðmundsson, KR, Biörn Árnason KR, Ólafur Sigur- vinsson Vestmannaevium, Jón Alfreðsson. Akranesi, Einar Gunn- arsson Keflavík Marteinn Geirs- son, Fram, Þórir Jónsson, Val, Har- aldur Sturlaugsson, Akranesi, Teitur Þórðarson, Akranesi, Ásgeir Elíasson, Fram og Friðrik Ragn- arsson Keflavík. — Varamenn verða Sigfús Guðmundsson, Vík- ing Gunnar Austfjörð, Akureyri, Ingi Björn Albertsson, Val, og Steinar Jóhannsson, Keflavfk. Af þessari upptalningu sést, að i liðinu er þrír leikmenn, sem léku landsleikínn við Dani, þar af tveir, sem stóðu sig hvað bezt í íslenzka liðinu þeir Einar Gunnarsson og Haraldur Sturlaugsson — og auk bess er þarna markahæsti leik- maðurinn í 1. deildar-keppninni, Friðrik Ragnarsson frá Keflav*k. Það má sannarlega búast við góð- um leik af þessu liði. Danska landsliðið verður endan- lega valiö í dag — en tveir leik- menn, sem léku í iandsleiknum, þeir Jörgen Marcussen og Birger Petersen eru meiddir og geta þvi ekki leikið — en liðið verður val- ið úr þeim 14, sem þá em eftk. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.