Vísir - 19.08.1970, Side 9
SfíSÍR . Miðvikudagur 19. ágúst 1970.
t..................................
9:
’ •
. •
••
!a
* •
s;
< •
; •
„Almenningur í landinu
verSur lítið var við stríðið"
i •
* •
! •
!:
i •
’ •
— segir eini Islendingurinn sem býr i Israel
□ Hann var loftskeytamaður við stuttbylgjustöð-
ina í Gufunesi fram til ársins 1956, réð sig
1958 til starfa á vegum Sameinuðu þjóðanna
og var sendur til landanna fyrir botni Miðjarð-
arhafsins.
□ Síðan hefur hann starfað í öllum löndunum,
sem land eiga að Miðjarðarhafsbotninum, var
svo sendur til Kongó árið 1963 ...
□ kvæntist ísraelskri konu og fluttist til ísrael,
hvar hann hefur búið síðan ,..
□ heitir Björgúlfur Gunnarsson — en það kæmi
manni reyndar aldrei til hugar, ef maður mætti
honum á götu í Reykjavík, — svo suðrænn er
hann í útliti.
>•
•
:•
;•
!s
:•
Björgúlfur Gunnarsson: Vinnur hjá E1 A1 flugfélaginu í Tel
Aviv. Kvæntur ísraelskri konu og hefur búið í Israel síðan
1963 ..-. „og verð þar að líkindum framvegis ...“
Þú eit kannski kominn hing-
aö f friðsældina á fslandi til aö
slappa af frá sprengjugný styrj-
aldarinnar .... verða menn ekki
taugaveiklaðir af aö búa á styrj-
aldarsvæði?
„Styrjaldarsvæöi? Ég verð nú
lítið var við styrjöldina, ég bý i
Tel Aviv og það er langt frá
vígvöllum. Ég býst meira að
segja við að ég og aðrir borg-
arar 1 Tel Aviv hugsi minna um
stríöiö en þið hér á fslandi —
að minnsta kosti ef marka má
af blaðaskrifum hér heima og
af útvarpsfréttum. Það er miklu
minna um stríðið i sjónvarpinu
í ísrael en hér heima, held ég.
Auðvitað er sagt frá helztu at-
burðum og blöðin birta jafnan
nöfn og myndir af föllnum".
Hvemig veröur þá hinn al-
menni borgari var viö stríðið?
„Með þvi að borga hærri
skatta. Þaö. er jú nauðsynlegt
að leggja meiri skatta á fólk
vegna kostnaðar við landvarn-
ir“.
En borgarbragurinn. miðast
hann nokkuð við þetta stríð?
„Nei, nei a.m.k. verð ég ekk-
ert var við það, nema hvað
maður sér alltaf hermenn ein-
kennisklædda á götunum, þeir
eru þá í fríi heima hjá sér en
verða að vera í einkennisbún-
i* ^gnum meðan.-^gegna her-
, skyldunm. Því fer annars víSs
fjarri að maður hafi stríðið eitt-
hvað á sinninu, ferðamenn koma
margir til fsraei — hafa addrei
komið eins margir og síöustu
ár. enda er ekkert sem hamiar
ferðum þeirra um landið. Ferða-
skrifstofur skipuleggja ferðir
út um allt land, emira að segja
inn á hættusvæðin svokölluðu.
En vitanlega eru allar slíkar
ferðir skipulagðar og undir
eftirliti. Sjálfur hef ég lítiö
ferðazt um landið síðan styrj-
öldin brauzt út, nema til Jerú-
salem og Haifa“.
Innflytjendur
streyma
til landsins
Er ennþá straumur innflytj-
enda til ísrael?
„Já, og jókst mikið eftir 6
daga stríðið. Þá tók ungt fólk
alls staðar að úr heiminum að
flytjast til ísrael og sá straumur
heldtir áfram. Þessi innflytjend-
ur eru velfletsir af Gyðingaætt-
um og því vissulega ástæða
fyrir þá að flytja til ísrael.“
Hvað er gert fyrir þessa inn-
flytjendur — fá þeir atvinnu?"
„Já, já, það er skortur á vinnu
afli i landinu, sérstaklega vant-
ar faglært fólk í alls konar
störf. Og þegar fólk flyzt til
landsins, gefst því kostur á áð
fara á eins konar aðlögunar-
skóla. Það eru heilsdagsskólar
eða búðir, þar sem mönnum er
kennt sitthvað nýtilegt um
ísraelskt þjóölíf. Og svo auðvit-
að hebreska"
Fórst þú á slíkan aðlögunar-
skóla?
„Nei, ég þurfti þess ekki
beinlínis með, þar eð ég fékk
atvinnu við flugumsjón hjá E)
A1 flugfélaginu, og í því starfi
talaði ég aðaWega ensku. Ég fór
reyndar á kvöldnámskeiö til að
byrja með, svona til að læra að
lesa og skrifa“.
18—21 árs
herskyldir
Er herskylda víötæk?
„Það eru allir herskyldir, sem
eru á aldrinum 18—21 árs. Jafnt
konur sem karlar, en konur eru
reyndar ekki sendar í fremstu
víglínu, þær gegna oftast ein-
hverjum skrifstofustörfum fyrir
herinn.
Og svo þegar menn hafa lok-
iö herþjónustu, fara menn sjálf-
krafa f svo kallaö varalið. Þeir,
sem eru í þvi, geta átt von á
þvi að vera kallaðir til her-
þjónustu einu sinni á ári, og þá
í einn mánuö í senn.“
Er undarlegt fyrir Islending
að koma til ísrael í fyrsta sinn?
„Sjálfsagt er þaö ... einkum
hvað snertir tung-una og ein-
hverja siði, annars er ég alls
ekki orðinn dómbær á það ég
er orðinn svo samgróinn þjóð-
lífinu þarna. Mér fannst jú mjög
skrýtið aö læra aö skrifa upp
á nýtt, Og aMir stafirnir sneru
öfugt!"
Einhver sérstök þjóðarein-
kennj á Israelsmönnum?
„Fyrst og fremst þau, að
þetta fólk er allt komið sitt úr
hverri áttinm. Israelsmenn eru
einn hrærigrautur þjóðarbrota,
en allir verða að læra hebresku
,.-,.þ«aax . landsins kemur. Hún
éf aðálmáliö.i Þeir Israelsmenn i
sem eru hvítir’ eins og Evrópu-
menn, minna samt um margt
• á Islendinga, enda hefur oft
verið talað um það, hve þessar
þjóðir séu líkar“.
Eini
íslendingurinn
Hvernig eru lífskjörin?
„Svipuö og hér sýnist mér.
Ég held að ég sjálfur fái svipuð
laun og ég myndi fá hér heima
fyrir sömu störf. en ég hef líka
áreiðanlega ekki minna. Vinnu-
tíminn er 42 stundir á viku ....
og núna hef ég flutt mig i aðra
deild og þar reynir á hebresku-
kunnáttuna ..“
Veöurfar?
„Það á vel við mig. Miklir
hitar á sumrin. Ég hugsa að
meðalhitinn sé 30 gráður á
sumrin og svona 18 gráður f
Tel Aviv að vetrinum til. En
uppi í hálendinu inni f landinu
er kaldara aö vetrinum. Það
snjóar jafnvel stöku sinnum
þar t.d. i Jerúsalem"
Er eitthvað af Islendingum i
Israel?
„Nei, ég held ég sá einn. Að
vísu frétti ég af einum fyrir
2—3 mánuðum. En hann mun
halda sig víðsfjarri mínum slóð-
um — einhvers staöar fyrir
sunnan. Hann er við olfuleit.
Jú, og stundum hitti ég fslenzk-
ar stúlkur sem koma til ísrael
og vinna á samyrkiubúum
nokkra mánuöi f senn. Það er
talsvert um að erlendir ungling-
ar geri slfkt Einkum frá hinum
Norðurlöndunum“.
Að lokum: Ertu setztur að
fyrir lífstíö þar suður frá?
„Ætli það ekki. Hef ekki uppi
neinar ráöagerðir um breyting-
ar, en auðvitað veit maður aldrei
hvernig allt vedtist. — GG
fcw
— Hvernig lízt yður á
borgina í dag
(á 184. afmælisdegi hennar)?
Steinbjöm Jónsson, söðlasmið-
ur, Hverageröi: — Mér lfzt vel
á hana og viröist sem fólk kunni i
aö ganga vel um. Einu undan-t
tekningarnar má segja að sé aö;
finna við nýbyggingar — sem*
er kannski ekki nema eölilegt.
mmmmm
Hörður Jóhannesson, málara- ■
meistari: — Það er ekki nema i
allt gott um hana aö segja. Mér .
finnst alveg nógu mikið gert til )
að fegra hana. Þaö er bara leið-
inlegt, hve margir sóðar fyrir- ;
finnast meöal borgarbúa.
Aðalsteinn Ottesen, Morgun-
blaösstarfsm.: — Alltaf jafnvel
Það er ætíð unnið aö það mikl-
um framkvæmdum á vegum
borgaryfirvalda, að vart er
hægt að krefjast þeirra meiri.
Árni Stefánsson, bréfberi: —
—Bseði vei og iila. Þaö er gam-
an að fara um nýju hverfin.
þar sem frágangi hefur öllum
verið lokiö, en hins vegar er
skammarlegt að sjá umgengnina
og viðhald bygginganna viö
Hringbraut og í Grjótahverfinu.
Guðrún Þorsteinsdóttir, húsmóö
ir: — Ég geri mig ánægða með
hana eins og hún er og finnst
alveg nóg gert fvrir hana.
o