Vísir - 31.10.1970, Qupperneq 5
VÍSIR . Laugardagur 31. október 1970.
5
Hvað
er á
j bak við
i hurðina?
• „Strákurinn á myndinni...
Já hvaö er hann að kíkja?“ spurð
• um við Sigurjón Jóhannsson
Jblaðamann, sem í dag opnar
Jljósmyndasýningu að Hverfis-
■ götu 44 (bakhúsi) kl. 16.
• „Hann er nú ekki aö kíkja inn
Já sýninguna hjá mér að vísu, en
• hann er að gægjast inn í garðinn
Jhjá Hegningarhúsinu", sagði Sig
Jurjón okkur um myndina sem er
#meðal 40—50 annarra ljós-
Jmynda, er til sýningar eru hjá
•honum.
J „Ég haf tekið þessar myndir
Jallar á siiðustu 13—14 árum. Allt
• saman myndir tengdar starfi
Jfréttamanns, sem víða kemur
•við“, sagði Sigurjón og fræddi
Jokkur á því að myndirnar væru
Jtil sölu — frá kr. 1500 tii kr.
• 8000 — en aðeins eitt eintak
Jyrði helt af hverri mynd. —
• Sýningin stendur til 8. nóv.,
Jvirka daga frá kl. 17—23, sunnu
Jdag frá kl. 14—22. —GP
Laxárdeilan
til Reykjavíkur
— iðnaðarráðuneytið
boðar deiluaðila á
sinn fund
Mikið pappírsstríð hefur verið
háð í Laxárdeilunni undanfarna
draga f)g hafa bréf hinna ýmsu að-
ila verið á ferðinni þvers og kruss
um landið. í yfirlýsingu s-tjórnar
Féiags landeigenda við Mývatn og
Laxá í fyrradag lýsir hún þeirri skoð
un sinni, að Gljúifurversvirkjun sé
„fjánhagslegt glapræði, yfirtroðsla
og stjórnarskrárbrot“. Þá Iýsa þeir
því yfir, að fullyrðing iðnaðarráð-
nerra, að Gljúfurversvirkjun sé úr
sögunni sé furðuleg, og enn óskilj
anlegri séu þau vinnubrögð ráðu-
neytisins að skipa sáttanefnd í
málinu, en hafna jafnframt þeim
tilmælum að stöðva verkið, sem
deilt er um, á meðan sáttaumleit
anir fari fram.
í frétt frá iðnaðarráðuneytinu í
fyrradag, segir að ráðun. hirði ekki
um að þrátta um þessi mál á op-
inberum vettvangi. Hins vegar geti
ráðuneytið ekki fallizt á, að í ein-
iægum tilraunum tál sátta í mikl-
um velferðarmálum sé fólgin sóun
á aimannafé né tímaeyðsla fyrir
neinn, en stjórn landeigenda lýsir
yfir þeirri skoðun sinni i fyrradag.
1 ðnaðarráðuneytið hefur ákveð ið í
samráði við skipaða sáttamenn,
sýslumennina í Þingeyjarsýslu og
Eyjafjarðarsýslu, að boða deiluað-
ila til fundar í Reykjavn'k í miðj-
um nóvember. —VJ
Fá gefinn bangsa
— frá Kaupmannahöfn
Von er á nýiuni gesti til Sæ-
dýrasafnsins í Hafnarfiröi einhvern
tíma í vetur. Það er nýr bangsi,
sem er væntanlegur, — ekki frá
hinu kalda Grænlandi, eins og ætla
mætti, heldur frá Danmörku.
Jón Gunnarsson forstöðumaöur
Sædýrasafnsins kvað þetta vera
gjöf frá dýragarðinum í Kaup-
mannahöfn, aðeins þyrfti 'að greiðaeiga skylt við sjóinn.
flutningskostnaó og annan þann
kostnað, sem af þessu veróur.
Jón kvað aðsókn aö safninu
góða, og þá einkum um helg'ar, en
þá flykkjast foreldrar meö börn
sín suóur á Hvaleyrarholt til að
sýna þeint það, sem þar er sýnt
í þessu safni, sem dregur nafn af
sædýrum, en þar er reyndar mörg
dvr áð finna, sem fátt eða ekkert
— JBP
'VWWWS/VWVWWWV'
Tókst að forða
sér fró að verða
undir vörustæðu
— en varð jbó undir
bil og fótbrotnaði
Slys varð við Faxaskála Eim \
[skipafélagsins í gærdag um kl.
117.20, þegar stór krani vann við <
»að færa rör úr skipi í höfninni (
? í stæðu við skáiann. Stæðan <
(hrundi, en verkamaður, sem 1
> stóð við hana, fékk forðað sér J
’ undan rörunum — þó úr ösk- <
, unni í eldinn, þvi að hann lenti <
i með fótinn undir vörubfl, sem!
[ ekið var þar rétt hjá í sama <
i mund. Maðurinn fótbrotnaði.
—GPJ
Svartidauðinn
kostar nú 470 kr.
— vin og tóbak hækkar
ÁFENGI og tóbak hækkaöi í
verði um 15% í gær. Fjármála-
ráðherra ákvað þessa hækkun
til þess að auðið yröi að lækka
verð á nauðsynjum. Hefur í því
sambandi verið ákveðið að auka
niðurgreiðslu á neyzlumjólk og
rjóma.
Þannig kostar flaska af íslenzku
brennivíni nú 470 kr. (kostaði áður
410). Pólskt vodka, 3 peiar, kostar
nú 600 kr., en kostaði áður 515 kr.
Algengus'tu gerðir af viskí kosta
núna 695 krónur (áður 600). Flaska
til að mjólk geti lækkað
af Gordons gini kostar núna 660
kr. (áður 570).
Létt vín hækka sem þessu svar-
ar. Sauterne, hvítvín, kostar nú
230 kr. (þriggja pela flaska), kost-
aði áður 220. Franskt rauövín kost-
ar nú 210 kr. (áður 170).
Tóbak hækkar sömuleiðis um
15%. Nú kostar t. d. Camelpakki
55 kr. (áður 47). Viceroy kostar 56
krónur (áöur 50). Píputóbak kostar
núna 46 kr. og t. d. Agio Petitos
smávind'lar (10 stk. pakkar) kosta
92 kr. — GG
JON LOFTSSON h/f hringbraut i2i,sími 10600
SPENNANDI!
TÓMSTUNDAHÖLLIN bætir nú þremur skemmtileg-
um og spennandi kúluspilum við fjölbreyttan tækja-
kost sinn.
□ Lítið við í Tómstundahöllinni strax í dag.
□ Opið til kl. 23.30
Skemmtileg
spilatæki
Tómstundahöllin
mun á næstunni efna til
glæsilegrar
JÓLAKEPPNI bæði í
keiluspili og kúluspili.
í boði verður fjölbreytt úr-
val góöra vinninga.
Mun nánar sagt frá
keppninni síðar
TÓMSTUNDAHOLIJN á horni Laugavegar og
Þægileg
húsakynni
Nóatúns.