Vísir - 14.11.1970, Síða 16

Vísir - 14.11.1970, Síða 16
Verð á kinda- kjöti óbreytt — orðrómur um lækkun kveðinn niður Þrálátur orörómur hefur gengið um bæinn þess efnis, að kindakjöt muni lækka f verði. Hafa kaup- menn kvartað sáran undan þessu, samkvæmt því sem Sveinn Tryggva son framkvæmdastjóri Framleiðslu ráðs landbúnaðarins tjáði blaðinu i gær. Sagði hann að vegna þessa skuli þaö upplýst, að ekki hafi ver ið teknar ákvarðanir um aukningu á niðurgreiðslu kindakjöts og verð á því standi oví óbreytt. —SB Vilja fjölbýlishús fyrír em stæða forehfra þar sem barnaheimili, v'óggustofa og 'ónnur aðstaða sé innan veggja — Félag einstæðra foreldra hefur fjár'óflun • Félag einstæðra mæðra er nú að hefja víðtæka fjáraflastarfsemi. Markmið félagsins er að stuðla að því að komið verði upp tóm- stunda- eða skólaheimilum í hverju borgarhverfi, þar sem börn geti dvalizt á morgn- ana, frá því foreldrar fara í vinnu, þar til þau byrja í skóla og eins á eftirmiðdög- um, frá því skóla lýkur, þar til foreldri kemur heim úr vinnu. Eitt slíkt heimili verð- ur raunar tekið í notkun á næstunni inni við Efstasund og er það á vegum borgar- innar. Jafnframt þessu stefnir félag ið að því að í framtíðinni verði reist fjölbýlishús fyrir einstæða fore'dra, þar sem fótk geti feng ið inni á meðan það er að koma sér betur fyrir að minnsta kosti. í húsinu verði auk fbúðanna, vöggustofa, bamaheimiii og að staða til skrifstofuhalds fyrir fé- lagið. Félagið gefur út jólakort í fjár öflunarskyni — með bamateikn ingum. Munu félagar sjálfir dreifa kortunum, en þau kosta tíu krónur hvert. Myndamót og Prentverk sáu um gerð þessara korta og gáfu alla vinnu við verkið. Félagið mun jafniframt leita eftir styrktarmeðlimum, bæði einstakiingum og félögum tii þess að veita málefnum félags- ins fjárhagslegan stuðning. —JH BSM* 5? Stórt stökk yfir í góðan sal“ — segir formaður IR, en félagið fær aðst'óðu j nýjum ibróttasal i Breiðholti, sem tekinn verður i notkun á þriðjudag ■ Iþróttasalurinn við Breið- holtsskóla verður tekinn í notkun á þriðjudag. t dag verður unnið að því að lakka íþróttasalinn, en tæki til f- þróttaiðkana eru komin upp. Salurinn er af stærstu gerð, sem byggðir eru viS skóla. Fyrir utan nemendur skólans sem fá nú salinn til afnota fær ÍR aðstöðu f salnum á kvöldin. „Þetta verða geysileg við- brigði“, sagði Gunnar Sigurðs- son formaður ÍR i viðtali við blaðið í gær. „Það er stórt stökk að geta verið sameinaðir í einn góðan sal. Það verður meira sam band milli félagsdeilda, en eins og þetta hefur verið hafa deild irnar varla vitað hver um aðra.“ Gunnar sagði ennfremur að virkir félagar í ÍR væru 1400. Hefur ÍR verjð á hrakhólum með húsnæði til fþróttaiðkana og deildir félagsins stundað starf semi sína á mörgum stöðum í borginni. Starfsemin hefur aðal lega farið fram í ÍR núsinu við Túngötu, gömlu Landakotsikirkj unni, eða allt frá 1929, en einn ig hafa deildirnar starfað í Íþróttahöllinni, Réítarhoitsskóla Álftamýrarskóla og Langholts- skóla. Þegar ÍR hefur starfsem ina í nýja íþróttasalnum verður starfseminni hætt i Álftamýrar- skóla og Réttarholtsskóte en heldur áfram í Langholtsskóla og ÍR-húsinu í vetur. Síðar stendur til að rífa ÍR-húsið, þeg- ar Túngatan verður breikkuð og að khþólski söfnuðurinn byggi þar. — SB Rangar fullyrðingar um verðhækkanir í október segja Kaupmannasamt'ókin „Fuliyrðingar í blöðum og um- mæli stjórnmálamanna í útvarpi og sjónvarpi þess efnis, að verzlunar- fyrirtæki hafi hækkað vöruverð sið ustu daga í október, fá ekki stað izt. Samkvæmt upplýsingum verð lagsstjóra, hafa eftirlitsmenn hans ekki oröið varir við, að verzlunar- fyrirtæki hafi hækkaö álagningu sína, og þar með vöruverö með óeðlilegum eða ólöglegum hætti.“ Þeftta segir i fréttati'lkynningu frá Kaupmannasamtökum ísiands og Félagi fsilenzkra stórkaupmanna. — Bent er á, að íslenzk verzlun býr við verðlagseftirlit á flestöllum sin- um vörum. Ekki sé hægt að hækka álagningu á vöru undir verðlags- ákvæðum nema leyfi verðlagsnefnd ar komi til. Kaupmenn muni bera sínar byrðar i sambandi við þessa verðstöðvun ekki síður en aðrar stéttir. Til dæmis haifi verðlags- nefnd hafnaði kröfu um 7% hækk un álagningar, sem borin var fram vegna 4,2% launahækkunar i sept. og hækklana á ýmissi opinberri þjónustu. Þá muni verzlunarfyrir- tæki eins og önnur fyrirtæki koma til með að bera hinn nýja 1,5% launaskattt án þess að fá heimild ti'l að hækka álagningu vegna þessa kostnaðarauka. Fréttatilkynningin er svar við fullyrðingum stjórnarandstæðinga um að vörur hafi verið hækkaðar í verði eftir viðtal við forsætisráð- herra í sjónvarpinu um miðjan október. —HH Fyrst „tákn niðurlæg- ingarinnar“ — nú meðal hinna stóru Yfirlitssýning Gunnlaugs Schevings, sem málað hefur i 47 ár „Gunnlaugur Scheving hóf í nám í málaralist árið 1923 þá 19 ára gamall og hefur síðan algjör- Iega helgað málaralistinni líf sitt. Flestar af elztu myndum hans eru glataðar, annaðhvort málaði hann yfir þær eða bær urðu ónýtar i lé legum húsakynnum. Var bar fá- tækt Gunnlaugs um að kenna. — Listamenn bjuggu þá margir við þröngan kost... Fólk keypti Iítið sem ekkért af Gunnlaugi framan af. Myndir hans og nokkurra ann- arra málara voru sýndar í búðar- glugga í Reykjavík sem „entartete Kunst“, svo að landslýður mætti sjá með eigin augum, hvað íslenzk list væri djúnt sokkin. Þrátt fýrir mikla andúð ráðamanna á list Gunn laugs og ótrúlega erfiðleika gafst hann ekki upp______“ segir í véglegri sýningarskrá sem gefin hefur verið út í tilefni af yfiriitssýningu Lista safns íslands á verkum Gunnlaugs Schevings. Síðan Gunnlaugur kom heijn frá námi 1929 hefur hann haldið fjöld ann allan aif sýningum bæði heima og erlendis, eins og kunnugt er. Mörg listasöfn úti um heim eiga myndir eftir Gunnilaug og eiirnig op inberar byggingar í Reyfkjavfk. „Við ætlum að hafa sýninguna opna í mánuð. Það verður opið hvern dag frá kl. 13.30 tH 22 og á sunnudögum frá 10 á morgnana til 22 — morgunbirtan er svo falleg í sýningarsalnum", sagði Sekna Jónsdóttir, listfræðingur, foristöðu maður Listasafnsins. Sýningin verð ur opnuð almenningi id. 16 á morgun. Aðgangur ökeypis. —GG Gunnlaugur Scheving hefur nú málað í 47 ár, þó að byrjunin hafi ekki verið beysin.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.