Vísir - 16.03.1971, Síða 6
6
• Elzti bær Noregs
1100 ára gamall í ár
Tönsberg er þeikkt úr bókum
Snorra Sturlusonar sem kaup-
staður fyrir Hafursifjarðarorr-
uiS'tu. Einnig er frá því greint
að sonur Haralds hárfagra,
Björn farmaður, hafi rekiö viö-
skipti í Túnsbergi. Litiö er á
hann sem stofnanda Túnsbergs,
eöa Tönsberg, elzta kaupstaðar
Norogs, sem á 1100 ára afmæli
á þessu ári. Mikið verður um
dýrðir i sumar í Tönsberg
tilefni afmælisins ekkj allt
í einni listilegri bendu eins og
á listahátíð, heldur er talsvert
um að vera flesta daga. Töns-
berg er höfuðborg Vestfoldar,
og er miðpunkturinn fyrir menn
ingu og viöskipti 60 þúsund
Norðmanna. Sjálfur bærinn hef-
ur aðeins 11 þúsund íbúa —
Myndin er frá Tönsberg, sem
er reyndar vel þekkt fyrir gest
• Fermir sjö íslenzka
unglinga í Málmey
Séra Hreinn Hjartarson heit-
ir íslenzki presturinn í Kaup-
mannahöfn.' Ekíu þ'jónár hánn"
formlega sem Málmeyjarprest-
ur, en í Málmey eru um 100
fjöls'kyldur og um 500 manns
í al'lt frá íslandi. Hins vegar
hefur séra Hreinn heitið því að
aðstoða eftir þörfum. Meðal ann
ars er nú á döfinni ferming 7
íslenzkra unglinga í vor og mun
séra Hreinn annast fermigu
þeirra oig taka þá til spuminga.
• Svara með annarri
spurningu
Sagt er að íslendingur nokk-
ur ónafngreindur hafi verið að
því spurður nýlega í danska
sjónvarpinu hvort rétt væri að
íslendingar svöruðu aldrei
spumingum öðru vísi en með
annarri spumingu. „Hver segir
það?‘‘ svaraði íslendingurinn af
bragði.
• Barátta á táninga-
blaðamarkaðnum
Hvað sem satt kann að vera
í því aö íslendimgar svari fyrir
sig eins og sagt er í kilausunni
hér á undan, þá er það víst að
margir em þeir landamir, sem
freistað hafa gæfunnar í blaða-
útgáfu ýmiss konar. Nú er t.d.
mikil keppni orðin í útgáfu tán
ingablaða eftir að blaðið Nútíð
kom á markaðinn fyrir helgina.
Rlaðiö er 24 síður, offsetprent-
að og fullt af efni fyrir ungt
fóilk, ,,þó ekki þess eðlis að
unga fólkið þurfi að fela blaðið,
svo fullorðið fólk, foreldrar og
aðrir geti ekki lesiö þaö“, segja
útgefendur. Klám, eiturlyf og
annaö slíkt verður því tótiö
liggja á milli hluta. Ritstjóri
blaðsins er Stefán Halldórsson,
framkvæmdastjóri er Svein-
bjöm Ragnarsson og ljósmynd-
ari Kristinn Benediktsson. Blað-
ið kostar 45 krónur.
* Framleiða fiskkassa
Félag fatlaðra á Akureyri og
mágrenni, Sjálfsbjörg, rekur
plastiðju nyrðra, Bjarg. Er félag
ið nú aö færa út kvíamar(J og
hefur femgið nýjar vélar, sem
geta mótað ýmsa hluti úr
plasti, — en fyrst um sinn a.m.
k. verður lögð áherzla á aö
framleiða fiskkassa úr plasti og
fiskbakka fyrir frystihúsin. —
Eru fskkassamir komnir á
markaðinn og hafa vakið at-
hygli. Sjálfsbjörg rekur endur-
hæfingarstöð á Akureyri Tók
hún til starfa í september sl. og
hefur komiö í góðar þarfir —
Formaður Siálfsbjargar var end
urkjörin Heiðrún Steingrims-
dóttir.
• Endurskoðun
tryggingalöggjafarinnar
Félag einstæðra foreldra og
Kvenréttindafélag íslands halda
sameiginlegan almennan fund í
Tjamarbúð miövikudagskvöldið
. 17. ,marz, kl„ 20.30. I .til.efni af
endurskoðurt tryggirtgalöggjafar
son, ráöuneytisstjóri, tala. —
Einnig verður fjallað um frum
varp það sem fyrir Alþingi ligg
ur mú, um innfaeimtustofnun
sveitarfélaga og hefur Magnús
Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Saimbands íslenzkra sveitarfé-
laga framsögu. Fyrirspumir
veröa leyföar og er ekki að
efa að félagsmenn beggja félag
anna munu hafa margt aö
spyrja um, kannski ekki hvað
sízt um það, sem aö trygginga
málum snýr beinlínis.
• Merkiskona látin
Frú Hólmfríður Pétursson,
ekkja dr. Rögnvalds Pétursson
ar, lézt i Winnipeg 10. marz 91
árs aö aldri. Hún fluttist vestur
um haf ’ með fóreldrum sínum
frá Hraunkoti í Aðaldal 1893
og giftist Rögnvaldi Pétm-ssyni
1898. En hann varð sfðar prest
ur Unitara í Winnipeg, rit-
stjóri Heimis, Heimskringlu og
síðar Tímarits þjóðræknifélags
ins og fyrsti forseti þess, í
stuttu máli sagt einn allra
fremsti leiðtogi íslendinga vest
an hafs, og studdi frú Hólm-
fríður hann jafnan með ráðum
og déð. Dr. Rögnvaldur lézt í
Winnipeg 30. janúar 1940.
Auk drjúgs framlags til ís-
lenzkra menningarmála vestan
hafs gaf frú Hólmfríöur og börn
hennar Landsbókasafni íslands
merka handrita- og bókagjöf ár
ið 1945, sem skýrt er frá í Ár-
bók safnsins það ár.
Síöar — eða um 1960 —
stofnaði frú Hólmfríöur minn-
ingarsjóð Rögnvalds Pétursson
ar við Háskóla íslands, og hafa
þegar margir ríflegir styrkir ver
ið veittir úr honúm til rann-
sökna í íslenzkum fræðum
þeim fræðum, er dr. Rögnvald
ur unni um önnur fræði fram.
• 15 stúdentar fá
sumarvinnu hjá
UNESCO
Menningarmálastofnun Sam-
einuðu þjóðanna, UNESCO,
mun í sumar veita 15 stúdent
um frá aðildarrikjum kost á að
dveljast um tveggja mánaða
skeið í aðalistöðvum stofnunar-
innar í París og taka þátt i
störfum að tilteknum verkefn
um. Starfsvistinni sem miðast
við tímabilið 28. júní til 27.
ágúst, fylgir styrkur, að fjár-
hæð jafnviröi 315 dollara og til
greina kemur í undantekningar-
tilvikum, að ferðakostnaður
verði greiddur að nofckru.
Háskólastúdentar, sem kynnu
að hafa hug á að sækja um
starfsvist hjá UNESCO sam-
kvæmt framansögðu, sfculu
senda umsókn til menntamála-
ráðuneytisins fyrir 22. marz n.
k. á tils'kildu umsóknareyðu-
blaði, sem fæst i ráðuneytinu.
Skrá um starfssvið, sem til
greina koma, er fyrir hendi í
menntamálaráðuneytinu og í
o-fu Háskóla íslands.
V1SIR . Þriðjudagur 16. marz 1971.
Hættum að reykja!
Hvaðanæva berast fregnirum
það, að þessi eða hinn vinnu-
flokkur hafi hætt reykingum.
Hve lengi þessi alda stendur
veit enginn, eflaust mætti
stuðla að því að hún yröi var
nrianleg.iRÍSúIkið hefur sjálft á-
huga á að hætta reykingum, nú
er komiö að blöðum, fjölmiöl-
um og stjórn landsins að
hilaupa undir bagga og létta
byrðina. Læknar og vísinda-
menn hafa lagt sitt lóð á vogar
skálina og opnað augu manna
fyrir skaösemi reykinga. Blöð
og tímarit hafa hagsmuna að
gæta varðandi auglýsingar. Þess
vegna birtast tóbaksauglýsingar
o. fl. með myndum af fóliki
sem lofar ágæti þessarar eöa
hinnar sígarettutegundar, hún
er t. d. i fararbroddi, ekki of
sterk, ekki of létt, gefur bragð
ið rétt. Á sama tíma reyna
foreldrar að vara böm sín við
skaðsemi reykinga, Þessi tog-
streita milli blaða og foreldra
verður að taka enda, hún er
alveg óverjandi, og ætti að
vera búið að banna slókar aug
lýsingar fyrir löngu. Það skipt
ir ekki máli fyrir reykinga-
mann, þótt hann sjái slíkar
auglýsingar. Hann er búinn að
sérhæfa- sig i ákveðinni teg-
und, auglýsingin breytir litlu
fyrir hann, hann reykir sína
tegund. Þeim sem eru hættir,
finnst lítið ti'l þessara auglýs-
iniga koma. Til hverra er tó-
baksframleiðandi að auglýsa?
Þeir gylla fyrir unglingum á-
gæti tóbákstegundar, en það
er ábyrgðarhluti aö bregða þann
ig fæti fyrir æskumanninn sem
er að fara út í lífið, og reyna
að tæla hann til að revkja þær
tegundir. sem þeir hafa á boð-
stólum. Svo segjum við, að
við leggjum al'lt okkar traust
á æsku landsins en áður en' æsk
an er búin að ná fullkominni
fótfestu í Iffinu, hafa þeir, sem
eldri eru, lagt snörur í veginn,
og þeir sömu herrar eru aldeil
is steinhissa. hvemig æskumað
urínn hevðar sér. farinn að
reykja og hað svona ungur. Þess
vegna skulum við byrgja bmnn
inn og banna slíkar augl. í
blööum og öðmm fjölmiðlum.
Það er ef til vill ekki auðvelt að
banna sl'íkar auglýsingar, en al-
menningsálitið á sígarettureyk-
ingum í dag er ákaflega hag-
stætt slí'ku banni. Það er varið
hárri fjámpphæð f það að
merkja sígarettupakka, sem
kemur engum að gagni. Reyk-
ingamaðurinn veit varla hvem
ig sií'garettupakkinn Iítur út,
getur tæplega lýst helztu ein-
kennum hans, jafnvel þótt hann
hafi reykt um árabil. Væri ó-
l'íkt betur varið þeirri upphæð,
sem fer í það að merkja pakk
ana, ef hún færi í að aug-
lýsa skaðsemi sfgarettureyk-
inga. Fengju blöð. tímarit og
aðrir fjölmiðlar ákveðna pen-
ingaupphæð á ári, en f staðinn
yrðu þau aö auglýsa með mynd
um og vel völdurn orðum skaö-
semi reykinga og hætta jafn-
framt að auglýsa ágæti þeirra.
Yrðusvo veitt verðlaun árhvert
fyrir þær auglýsingar, sem
bæru af hverju sinni. Verðlaun
in gætu verið í peningum, bik-
ar eða styttuformi. Þau yröu
að vera eftirsóknarverð til þess
að bl'öð og önnur fjölmiölunar-
tæki fengjust til þess að Ieggja
sig öll fram. Þá kemur einn-
ig til greina aö barna- og ung-
lingas'kólar byggju tiil auglýsing
ar um skaðsemi reykinga. Gæti
þetta verið í keppnisformi milli
bekkja og skóla. Það yrði stolt
kennaranna, að þeirra betekir
jmnu, enda mætti kennarinn að
stoða nemendur eftir föngum. Þá
stæðu saman foreldrar, kennar-
ar, nemendur og fjölmiðlar —
þá yrði ekki langt að bíða að
það þætti ekki fínt að reykja
og jafnvel litið svipuðum aug
um á sígarettureykingar eins og
við lítum nú á munntóbaks-
neyzlu. Vonandi er Vísir ekki
svo háður tóbaksauglýsingum,
aö hann stingi þessu bréfi f
ruislakörfuna. Þötek fyrir birting
una.
Haraldur Magnússon
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15
ÞJÓNUSTA
Sé hringt fyrir kl. 16,
sœkjum viS gegn vœgu
gjaldi, smóauglýsingar
6 tímanum 16—18.
Staðgreiðsla. VÍSIR