Vísir - 14.04.1971, Blaðsíða 4

Vísir - 14.04.1971, Blaðsíða 4
4 VÍSIR . Miðvikudagur 14. apríl 1971, „Gamli mað- urinn" er alls enginn gamlingi... Karl Jóhannsson í KR er alls enginn gamlingi, enda þótt hann sé 37 ára gamail, — þrjátíu og sjö ára — því það er Karl Jó- hannsson, enda þótt hann líti hreint ekki út fyrir það. Kari hef- ur nokkur hundruð leiki aö baki með Ármanni fyrst og síðan KR, auk landsleikja og fjölda úrvals- leikja. Nú er Karl og hinir ungu félag- ar hans aftur í 1. deild, og líklega hafa KR-ingar í hyggju að setjast að þar, — enda peningalykt af deildinni og þar vilja KR-ingar gjarnan vera, og áreiðanlega held- ur Karl áfram leik, enda engin ellimörk að sjá, síður en svo, en Karl er þó elztur leikmanna í 1. deild. Lesendum til leiðbeiningar þá “r „gamli maðurinn", Kan Jó- hannsson lengst til vinstri í fremri röð, en fyrir aftan hann er lands- liðsþjálfarinn Hilmar Björnsson. Aðgöngumiðasalan í Höllinni í ólagi — segir lesandi, sem vill breytingar á miðasölukerfinu fyrir næsta vetur „Það er ýmsu ábótavant i sambandi við leikina í Laug- ardalshöll,“ sagði einn les- enda blaðsins, sem kom á rit- stjórnina og tjáði okkur vand kvæði þeirra, sem fylgjast með handknattleik og fylla höllina hvað eftir annað. — Kvaðst hann vilja benda stjórnendum Hallarinnar á ýmislegt, sem betur mætti fara, ekki sízt þegar mikiö er um að vera og fyrirsjáan- legt að uppselt verði. Hann kvaðst hafa beðiö konu sína að kaupa miða á seinni leik íslands og Danmerkur, kom hún klukkan hálf-fimm á mánu dag niður í Laugardal og beiö þar í biðröð, en aðeins önnur aðgöngumiðasalan var virk fram tii hálfsex. Þá ruddust menn, sem nýlega voru komnir að þeirri miðasölu. Allan tím- ann voru menn að koma að fremstu mönnum í röðinni til að biðja þá að kaupa miða. — „Slíkt finnst mér óhæfa hin piesta og óréttlæti“, sagði mað- urinn, „en á meðan urðu aörir að bíða úti í kuldanum í mikl- um þrengs’um". ,,Nú miðarnir fengust, meö naumindum þó skilst mér“, sagði maðurinn, „og í útvarp- inu 'heyrðum við félagamir að menn voru hvattir til að koma „tímanlega og forðast þrengsli", og þetta gerðum við, komum kl. hálfátta, en þá gerist það að þar eru læstar dyr og þrengsl- in í forstofunni gífurleg. Innan dyra voru verðir Hallarinnar og höfðust ekki að, enda þótt smá börn væru þarna að verða und ir í þrengslunum, sem mögnuð- ust með mínútu hverri. Sjálfur tók ég það að mér ásamt félaga mínum að standa vörð um smá dreng, sem var að klemmast upp við vegg“. Þetta var það sem maðurinn hafði að segja, og reyndar hafa borizt áður óánægjuraddir með ■aðgöngumiðasöluna í Laugardal. Sér hver heilvita maður að eitt hvað verður að takmarka sölu miða á einstakling, og er e. t. v. gert. En Höllin gæti líka sýnt meiri stórhug, og fengið fleiri til að selja miðana i einu. Einn- ig mætti hleypa inn um fleiri en 2 dyr í einu, og fyrr en gert er, þ.e. klukkan 8 en þá munu dyrnar fyrst opnaðar. Margt hef ur breytzt til batnaðar í Laugar dalshöll eftir að Höskuldur Goði Karlsson hefur tekið við rekstr- inum, en margt er enn eftir, sem bæta má. Vitanlega verða mörg vandamálin, þegar svo margt er í húsinu dag eftir dag og álagið á starfsmenn mikið. En áreiðanlega má þó leysa þessi vandamál ti'l hagsbóta fyr ir alla aðila. — JBP Bergsveinn Alfonsson, einn reyndasti knattspyrnumaður Vals, var fyrirliði liðs síns í innanhúss- keppninni um páskana, en Valur varð Islandsmeistari, eins og kunnugt er. Hér er Bergsveinn með verðlaunagripinn, sem hann var að sýna eiginkonu sinni og dóttur, sem koma oft að sjá pabba leika. Slæm endalok skemmtilegs keppnistimabils i handknattleik Endalok glæsilcgs keppnistfma- bils urðu ekki á þann veg, sem flestir hefðu kosiö, — íslenzk 1. deildarlið stóöu víös fjarri dönsku meisturunum að allri getu, — og 3 beztu liðin, FH, Valur og Hauk- ar, töpuöu öll meö 5 marka mun fyrir Dönunum. Valur síðast í gærkvöld með 16:11. Leikurinn í gærkvöldi var líkur hinum tveim fyrri að þvf leyti að Efterslægten hafði allan tímann yfir og virtist aldrej ógnaö svo miklir voru yfirburðir liðsins. Val gekk ill'la að skora í fyrri háifleik. Stáðan var 6:1 þar tií 5 mínútur voru eftir' -af hálfleik; jen ^kot Vals strönduðu þá yfiríeitt ein- hvers staöar ef þau á annaö borð hittu „rammann". í hálfleik var staðan 9:4 fyrir EB. í seinni hálfleik virtust Vals- menn í vígahug, — skoruðu tvö fyrstu mörkin á 3 mínútum, staöan 9:6. En Danir tóku þá upp þráð- inn áður en varði var 5 marka for- skotið-"4{omið, - 42i7,>i"'óg þannig gékk áfram allt til endaloka. Hraða íslenzku liðanna í le'k er mjög ábótavant, sífelldar niður- stungur og vandræðaskapur, sem varla sást til Dananna. Við getum mikið af heimsókn Efterslægtens lært. — ef nokkur áhugi er fyrir hendi. •— JB'P Efterslægten vann firjú beztu liðin með 5 mörkum 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.