Vísir - 22.05.1971, Síða 1
VISIR
61. árg. — Laugardagur 22. maí 1971. — 113. tbl.
Málinu ekki lokið
— segir dr. Þorsteinn Sæmundsson
„Að mínum dómi er málinu lýsingar, sem fram hafa komið
alls ekki Iokið með þessu,“ sagði
dr. Þorsteinn Sæmundsson,
stjörnufræðingur, um þær yfir-
frá formanni framkvæmdan.
Rannsóknaráðs ríkisins og fram-
kvæmdastjóra.
„Gerir ekkert til þðtt það rigni“
„Nei, þetta er ekkí beinl’inis
skólaferðalag. Við ákváðum
bara að skreppa þetta, af því að
við erum búin í prófunum,"
sögðu þessir krakkar úr fimmta
bakk L í Laugarnesskólanum,
þegar blaðamaður Vísis hitti þá
uppi í Mosfellssveit í gær.
„Áttu ekki allir í bekknum
hjól?“
„Nei, og sumir nenntu ekki
með.“
„Ætlið þið langt?“
„Upp að Hafravatni.“
„Verðið þið ekki þreytt á
að hjóla?“
,Nei,“ segja þau og vilja ekki
láta tefja sig.
„Nú er að koma rigning."
„Það styttir þá aftur upp, og
það gerir heldur ekkert til,
þótt það rigni svolítið,“ segja
þau og eru rokin án þess að
kveðja í háifgildingsskólaferða-
lag á hjólunum sínum, og þau
virðast skemmta sér bærilega,
þótt ferðinni sé ekki heitið út
fyrir landsteinana. — ÞB
Þungatakmörkunum aflétt á Norðurlandsvegi:
Bílaflotinn tilbúinn að
flytja björgina norður
— Farið var oð bera á v'óruskorti
Það lá í loftinu í gær að
hækka ætti öxulþunga á
Norðurlandsveginum í
dag, en takmörkunum
var létt af á Snæfellsnesi
í gær. Um leið hófust
miklar annir hjá vöru-
flutningabílstjórum og
flutningastöðvum eftir
þriggja vikna stöðvun.
Bílstjóramir byrjuðu að
hlaða bíla sína og bjugg-
ust til að leggja af stað
um miðnætti. Aðrir
lögðu af stað með létta-
flutning áleiðis til
Reykjavíkur, en vörur
byrjuðu að streyma inn í
vörugeymslur þar og
fvlla þær.
Farið var að bera á vöru-
skorti á ýmsum stöðum vegna
flutningserfiðleika síðustu vikna
og var Akureyri orðin kóklaus
og tindavodkalaus, en aöeins
barst þangað ein sending —
sem var fljót aö hverfa að sögn
heimildarmanns á Akureyri.
Hjá Vegageröinni fengust þær
upplýsingar í gær, að vegir
væru að batna og væri búið að
létta öxulþungat'akmörkunum af
vegum á Suðurlandi. —
Öxulþungi yrði hækkaður upp I
7 tonn á aðalvegum á Norður-
landi í dag. Enn er samt slæmur
vegankalfli í Húnavatnssýslu en
hann verði ekki látinn halda leið
inni lokaðri.
Isleifur Runólfsson fram-
kvæmd'astjóri Vöruflutningamið
stöðvarinnar sagði i viðtali við
Vísi í gær, að tekið heföi verið
á móti vörum frá því um morg
uninn. „Við höfum hér um bil
fullt hús eftir þennan eina dag,
og það hefur verið stanzlauá
keyrsla utan úr bæ og óhemju
mikið að flytja. Ég gizka á að
hér séu t.d. komin um 20—30
tonn, sem eiga að fara til Ak-
ureyrar einnar", ísleifur var ó-
ánægður meö framkvæmdina á
öxulþungatakmörkum Vegagerð
arinnar.
Það er sjálfsagt að hlýða tak-
mörkun og hlífa veginum og það
höfum við gert. en þessi tak-
mörkun á að koma iafnt á al!a.
Við höfum þegar kvartað undan
því, að Norðurleið hefur ver-
ið leyft að fa-ra sfna leið, en
viö vitum til þess að Norður-
leiðarbfl, sem vegur 8 tonn,
hleypti 16 farþegum út á
Blönduósi, auk j>ess sem hann
var með vörur. Þarna hefur öx-
ulþunginn verið 3—4 tonn fyrir
ofan leyfilegan þunga. Og á með
an þeir stöðva okkar fyrirtæki
hafa þeir leyft mjólkurbílum fyr
ir norðan að vera með tonn fyr
ir ofan hámarksþunga. Stöövun
in hefur einnig orðið til þess,
að það hefur fullt af sendiferða
bílum farið að aka leiðina mrlli
Reykjavíkur og Akureyrar meö
þrjú og hálft tonn. Þeir eru
með miklu minni dekk, og að
okkar áliti fara þeir oft á tiö
um eins iiia með vegi og ef
okkar bflar væru með 5 tonn.
Það hefur dunið á mér óánægj
an með það. að úti á landi eru
þeir aö fá sömu sendingarnar
og við höfum ekki getað tekið
á móti“. — SB
AKUREYRINGAR FA HRAÐBRAUT
Útlit er fyrir a& Akureyringar
fái í sumar sína fyrstu hraðbraut.
Sigurður Jóhannsson, vegamála-
stjóri skýrði Vis; frá því í gær,
að Vegagerðin myndi fljótlega bjóöa
út 2ja km iangan spotta sem mun
ná al-k frá Höpfnersbryggju að
flugvelli, en þar sem vegurinn mun
væntanlega liggja, er jarðvcgur
blautur, liggur enda á leirum suð-
ur með firði og býðir af þeim sök
um ekki að ieggja hann varanlegu
slitlagi fyrr en vegurinn liefur sigið
svo sem hónum þóknast. Slitlagið
Sagði dr. Þorsteinn, að þaö væri
iaagar vegur frá því. að greinar-
gerð r’ikisendurskoðunar um reikn-
irtgsskil ráðsins eða atbugasemdir
formanns framkvæmdanefndar
vörpuðu ljósi á atvik máisins. —
En Þorsteinn hafði gert athuga-
semdir við ársreikninga Rannsókna-
ráðs og óskaö endurskoðunar á
þeim og ýmissa nánari skýringa.
Fundur var haldinn í ráðinu
þriðjudaginn s.l. þar sem fjallað
var um reikninga ráðsins fyrir árið
1969, og mun dr. Þorsteinn hafa
gert við þá allmargar athuga-
semdir, sem snerta miklu víðtækari
atriði en fjallað hefur verið um
í blaðaskrifum um fjárreiður ráðs-
ins til þessa.
Einnig mun dr. Þorsteinn hafa
Iagt fram á fundinum tillögur til
úrbóta, en afgreiðslu þeirra til-
lagna mun hafa veriö frestað þar
tii á næsta fundi ráðsins, sem ráð-
gert er, að haldinn verði i júní.
1 greinargerð, sem Halldór Sig-
urðsson hefur sent fyrir hönd ríkis-
endurskoðunar, segir, að margar
af athugasemdum hennar við reikn-
ingsskil ráðsins eigi rætur að
rekja tii þess, að ekki hafi verið
viðhöfð nægjanleg vandvirknj í
færslum. Segir þar, að ríkisendur-
skoðunin hafi úrskurðað endur-
greiðslur úr hendi framfevæmda-
stjóra ráðsins að upphæð nær kr.
23.300.00.
Þá segir enn 'i greinargerðinni, að
ekki hafj verið aflað heimildai
ráðuneytis tii ferðálaga til útlanda
á kostnað rikisins, en um leið er
þess getið, að framkv.stj. hafi gert
grein fyrir hverju einstöku ferða-
lagi, og verði látið við svo búið
standa.
1 athugasemdum, sem feam-
kvæmdastjóri Rannsöknaráðs,
Steingrímur Bermannsson, hefur
létið fyigja þessari greinargeið,
segir hann, að menntamálaráðherra
hafi staðfest á fundi ráðsins, að
samþykki hafi legið fyrir ölium
utanferðum nema einni eða tveim-
ur, en í nokkrum tilvikum hafi
verið munnlegt samþykki.
Aðspurður um, hvað enn væri ó-
upplýst við reikningshald Rann-
sóknaráös, kvaðst dr. Þorsteinn
Sæmundsson í samtali vlð Mm.
Vísis ekki vilja ]áta hafa efíir sér
neitt aö svo stöddu máli. — 6P
kemur því ekki á veginn fyrr en | rein til hvorrar áttar, „að minnsta
i fyrsta lagi að ári. • kostj til að byrja með“, s'agði vega
Verður hraðbraut þessj jafnbreið ! málastjóri.
og hraðbrautir þær sem verið er Undirbúningsrannsóknum á vegar
að leggja um Suðurland og út frá stæðinu er i þann veginn að ljúka
Reykjavík, þ.e. Vesturlandsvegur- og hönnun vegarins. Er þess þvi
iun. sjö og hálfur metri, ein ak uð vænta að vegurinn verði boð-
inn út næstu daga. — GC
Þannig fer fyrir ónýtum bif-
reiðum eins og þessari hér sem
jarðýta var að leika sér að inni
á Ártúnshöfða í gaer. Bílivnn á
samt að gera sitt gagn áfram,
— verður notaður f uppfyllingu.
Ruslið í Reykjavík er áfram um
ræðuefni í blaðinu í dag, en
blaðið hefur fengið fjölda upp-
hringinga og bréfa vegna þessa
máls.
Sjá bls. 9 — Rusl upp fyrir
höfuð.