Vísir - 22.05.1971, Page 7
V1S I R . Laugardagur 22. maí 1971
cTWenningarmál
Samkór Kópavogs á æfingu fyrir tónleika sína um helgina — Garöar Cortes stjórnar.
Gunnar Bjömsson skrifar um tónlist
Ærleg skemmtun
Kópavo
það rikti góöur andi á söng-
skemmtun Samkórs Kópa-
vogs, sem ihaldki var í Kópa-
vogsbiói sl. laugardag. Kórinn
starfsfús og glaður, enda með
góöa samvizku eftir langar og
strangar æfingar i vetur. Eng
inn fer í grafgötur með þaö,
hviiíkt átak það er aö trotnma
sig upp með myndarlega efnis
skrá handa blönduðum kór, þar
sem seinni hlutinn er meira að
segja ópera. Það hlýtur að vera
samdóma álit allra, sem lögðu
leið sína í Kópavog þennan eft
irmiðdag, 'að ágaeta skemmtun
hafi þeir haft af þeirri dagstund.
Raddsetning Jóns Ásgeirsson-
ar á Krummavísum er að þvi
skapi snilldarleg, sem hún er
alkunn orðin. Það er líka mikil
sönggleði í Sprengisandinum
hans Gríms Thomsens. Og
þama var frumflutt lag eftir
söngstjórann, Garðar Cortes,
Til stjörnunnar, við texta Þor-
steins Erlingssonar, hugljúft
lag og áheyrilegt. Krystyna
Cortes annaðist undirleik á
píanó í' sumum lögunum og
gerði það af smekkvísi.
Camkór Kópavogs mundi
hljóma pi-ýðilega víða, ef I
hljómleikasal væri, en- í þessu
húsi geldur hann auðvitað hins
dauða hljómburðar: Það er eng
inn hljómburöur í Kópavogs-
bíóí. Bassamir sýndu víða af
sér nokkurn stirðbusahátt og
áttu stundum dálitið bágt með að
halda áftur af sér. En þrátt
fyrir það, og einnig þött kven
raddimar væru ekki einlægt
sammála um tónhæð upp á milli
metra, þá voru þetta frískleg-
ustu tónleikar með blessunar-
lega sterkum svip af ærlegri
sveitaskemmtun í allra jákvæð-
ustu merkingu þess orðs. Einn
hlutur ápillti samt- verulega
heildarsvipnum ög pað var
píanóið, fjarskalega vanstillt og
hjáróma hljo'SfærT,0 fit“eiiiskis
söma fyrir aðstandendur. Allir
hlutaðeigendur hafa auðvitað
þúsund afsakanir á takteinum
og þær eru sjálfsagt góðar og
gildar allar, dæmi: A) ekki hægt
að fá stillingamann, nema með
árs fyrirvara, b) tilgangslaust
að stemma hljóðfærið, það er
óðara komiö í sama horfið aft
ur, c) tekur því ekki að stemma
hljóðfærið. þegar hugsað er til
fyrirhugaðra flygilskaupa á
næsta ári, d) stemmarinn gerir
það að skilyrði að ganga megi
hann að vinnu Sinni fyrir há-
degi, húsvörðurinn fæst ekki til
að Ijúka upp húsinu fyrr en í
fyrsta lagi upp úr tvö, (þannig
áfram). Hvað sem góðum og
gildum ástæðum líður, snýr þó
eitt og aðeins eitt að áheyrand-
anum í salnum: Hljóðfærið var
ekki hreint. Nema ég veröi sann
færður um annað, vil ég bregða
hlutaðeigendum um hirðuleysi
í þessu efni.
A ð afloknu löngu hléi, flutti
kórinn ásamt einsöngvur-
um óperuna „Réttarhöldin“ eft
ir Gilbert og Suilivan. Hún er
einþáttungur og hið skemmtileg
asta verk. Egill Bjarnason þýddi
textann. Einsöngvarar voru þau
Snæbjörg Snæbjarnardóttir, Há
kon Oddgeirsson, Ruth L. Magn
ússon, Kristinn Hallsson, Erling
ur Hansson og Egill Bjarnaon.
Snæbjörg vakti athygii mína sak
ir snoturs söngs. Kristinn Halls
son er alltaf músíkalskur og
traustur söngvari, haldinn þeim
góða anda tónlistarinnar fram í
.fingurgpma, Hið sama
segja um Ruth L. Magnússon,
sejii Va-r sannkallaður hvalreki
' * á'TjBjMr ísienzks tónlistárlífs, er
hún fluttist hingað til lands.
Mig grunar þó að annir á öðrum
vígstöðvum en einsöngsins hafi
nokkuð truflaó hana um sinn,
söngkona af jafnágætum gæða-
flokki og hún þyrfti að halda í
horfinu af fullum krafti. Þeir,
sem nú eru ótaldir, skiluðu
sínum hlut samvizkusamlega.
Undirieik óperunnar annaöist
kringum tuttugu manna hljóm-
sveit, sem kölluð var saman
eins og hendi veiífað, og sýnir
þaö óneitaniega aðdáunarverð-
an starfsvilja þess fól'ks, sem
er nú þegar upp fyrir höfuð í
músikstarfi margt hvert. Þama
. kynnu margir að telja sig grilla
í gamlan draum hérlendan: Að
koma á fót áhugamannahljóm-
sveit, reiðubúinni til að axla
verkefni eins og þetta. Því mið
ur var ekki því að heilsa að
öllu leyti, því að hér var stærst
ur hluti hljómsveitarinnar hljóð-
færaleikarar úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Ég sé ástæðu til
að nefna í þessum flutningi
Jósef Magnússon, flautuleikara,
og'einkar geöþekkan flautuleik
hans.
j^öpavogur hefur oftar en einu
sinni áður sýnt góðan vi'lja
til listræns starfs. Er skemmst
að minnast Kópavogsvökunnar
í vetur ieið. Ég slæ botninn í
þessa grein með þvi að sam-
fagna Kópavogsbúum yfir fram
taki þeirra í tónlistinni fyrr og
síðar. Þeir eru góðir nágrannar.
RITSTJÓRN
LAUGAVEGI J78
SÍMI MíjSO
□■jrjrj
mrm ■w mm
■ ■ m 1ÉÉ£
ý skákþingi ísiands 1971 skip
uðu Jónas Þorvaldsson,
Gunnar Gunnarsson og Magnús
Sólmundarson 4.—6. sæti í
landsliðsflokki. Þurfti því auka
keppni um 4. sætið, en það
veitir þátttökurétt i landsliðs-
ftokki að ári.
Tefld var tvöföld umferð og
enn voru keppendur jafnir. Jón-
as og Magnús geröu báðar skák-
ir sínar innbyrðis jafntefli, og
töpuðu sinni skákinni hvor
gegn Gunnari.
Fyrir síðustu skákina stóð
Jónas bezt að vígi, þurfti „að-
eins“ jafnteflí með hvitu gegn
Gunnari. Það er hins vegar erf-
itt að vera undir þeirri sál-
fræðilegu pressu að }/> vinning
ur dugi og það kom giögglega
i 'jós hjá Jónasi. Hann tefldi
byrjunina hikandi og eftir
nokkra ónákvæma Ieiki var
frumkvaeðið f höndum svarts.
Hvítt: Jónas Þorvaldsson
Svart: Gunnar Gunnarsson
Reti-byrjun
1. Rf3 d'5 2. c4 c6 3. b3 Bf5
(Hið svokallaða New-Yourk
kerfj. Hugmyndin er að hafa
peðakeöjuna c6-d5-e6 og koma
jafnframt drottningarbiskupn-
um í gagnið.)
4. d3 e6 5. Bt>2 Rf6 6. g3
Bc5
(Óvenjulegur leikur sem rugl
ar hvítan í ríminu, Venjulega
er biskupnum valinn staður á
e-7.)
7. cxd?
(Gefur miðborðið eftir að á-
stæðulausu. Að vísu mátti hvít-
ur ekki leika 7. Bg2, vegna
dxc S. bxc Db6 með liötun á
b2 og f2. Eða 8. dxc DxD 9.
KxD Bxf. En hvítur gat leikið
7, Dc2 ásamt Bg2 og 0-0 við
tækifæri.)
7. . . exd 8. Bg2 o-o 9. oro
He8 10. Rc3 Rbd7 11 h3 Dc7
12. d4?
(Betra var 12. Kh2. Bæði lokar
hínn gerði leikur biskupinn inni
á b2 og eins gefur hann svö)t-
um eftir reitinn e-4.)
12. . . Bd6 13. Hcl
(Hótar 14 Rt>5.)
13. , . a6 14. Rh4 Be4! 15.
Rx'B RxR 16. Rf5 Bf8 17. Dd3
g6 18. Re3 Dd6
(Nú var hótunin 19. Rxd.)
19. BxR?
(HvítUf máttj varla við því
að missa þennan sterka biskup
úr vörninni. Til greina kom 19.
Rdl ásamt Rc3 og reyna þannig
að ná mannakaupum.)
19. . . HxR 20. Hc2
(Að öðrum kosti leikur svart-
ur Bh6 með ðþægilegri leppun.)
20 .. H'aeS 21. Rg2 Dew 22.
Kh2 Bd6
(Ekki 22. . . Hxe? 23. RÍ4.)
23. e3 Df5 24. Bcl
(Hvítur var kominn í tíma-
hrak og síðustu leikirnir bera
þess vott.)
24. . . h5! 25 f4 Rf6 26. Rh4
Dd7 27. Rf3 Kg7 28. Re5 Df5
(Með lúmskrj hótun, sem hvit
um yfirsést.)
29. Hg2? H4xR 30. DxD HxD
31. g4 hxg 32. hxg Hg5! og
hvítur gafst upp. Ef 33. Hl-gl
Hh'8í 34. Kg3 Hxgt og vinnur.
Jóhann Sigurjónsson
MELAVÖLLUR
1. leikur íslandsmótsins í knattspyrnu er í
dag kl. 16.00.
KR - ÍBA
SJÁIÐ SPENNANDI LEIK.
Aðalfundur
Sólumidstöðvar hraðfrystihúsanna
hefst að Hótel Esju, þriðjudaginn 25. maí 1971
kl. 10.00.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
Hverfafundur
frambjóðenda
Laugardagur 22. maí kl. 15.00: Laugarnes,
Langholt, Vogar, Heimar.
LAUGARÁSBÍÓ:
Ræðumenn. Jóhann .Hafstein, Geir Hallgrímsson,
Ellert B. Schram.
Fundarstjóri: Ólöf Benediktsdöttir, kennari.