Vísir


Vísir - 25.05.1971, Qupperneq 6

Vísir - 25.05.1971, Qupperneq 6
6 V i SIR. Þriðjudagur io. maí i971, Hreinsitæki verSa sett upp viS Snorralaugarnar Ýmsar nýjungar \ sundlaugum borgarinnar iM Eins og stendur hafa sund- laugaverðir Laugardalslaugarinn ar ekki aðra aðstöðu til varð- mannsstarfa en þá, að geta gengið um sundlaugarbakkana og skimað í kringum sig þaðan. Þeir geta svo sem brugðið sér bak við glerrúðu á einum stað, en hvergi hafa þeir nógu góða yfirsýn yfir sundlaugarnar. Úr því verður bætt nú í sumar. Þá verður reistur fyrir miðri stóru lauginni fimm metra hár varð- turn, sem á engan sinn Iíka, ekki einu sinni varðskýlið við Vestur bæjarlaugina kemst tii jafns við hann. Verður tekið tii við smíði turnsins um næstu mánaðamót. Aðrar ekki síður merkar fram- kvæmdir standa fyrir dyrum f Laugardalslauginni og raunar öll- um öðrum sundlaugum borgarinn- ar, sem hafa setlaugar eða með öðrum orðum heita polla. Þar á að setja sérstök hreinsitæki við setlaugarnar. Til þessa hefur verið sama hringrás á poilavatninu og lauga- vatninu, þannig aö sex sinnum á sólarhring er skipt um vatn. Það er feikinóg fvrir laugarnar, en í hinum litiu set’augum hefur vatn- inu hætt við aö óhreinkast úr hófi á undan laugunum, enda eru þar ætfð fleiri um hvern vatnsdreitil en í laugunum Þess ber líka að gæta, að um 10 stiga hitamismunur er á vatninu í laugunum og pollun- um. Nýju hreinsitækin, sem senn verður komið 'i gagnið munu vinna það verk, að skipta mun oftar um vatn í setlaugunum en hringrás stóru lauganna og þar að auki blanda sjálf klórinu í setlauga- vatnið. „Það Iiggja margar ástæður til þess, að fyrstu skokkbrautinni var valinn staður f Laugardalnum,“ sagði Stefán Kristjánsson íþrótta- fulltrúi í viðtali við Vísi í gær. „Laugardalurinn," sagði hann, „er jú fyrst og fremst xþróttavangur almennings. Þar hefur I'ika flestra skokkaranna orðið vart, njargir þeirra hafa lfka fengið að fækka klæðum í vallarskýlinu, höllinni eöa lauginni. Ástundunarsamastur hef- ur verið hópur kvenna, sem fengið hefur að klæðast æfingabúningum sínum í Laugarda'shöllinni og skokka síðan um Laugardalinn. Nú og svo var Kaskó stofnað f laug- unum“ Skokkbrautin, sem kemur f Laugardalnum verður lögð á milli sundlauganna og fþróttavallarins verða gerðar við brautina tvær eða þrjár stoppstöðvar, þar sem skokk- ararnir geta staldrað, viö og gert ýmsar æfingar. Ekki er í ráði að leggja fleiri skokkbrautir en þá f Laugardaln- um f sumar, aö sögn Stefáns, en njóti hún vinsælda ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að gera þær fleiri og kæmi sú næsta þá senni- lega við Vesturbæjarlaugina. - ÞJM ÞRJÚ ÞAU FYRSTU. Þessi þrjú iuku prófi sem leikarar frá Þjóðleikhússkólanum fyrir 20 árum. Þau voru fyrstu nemendurnir, sem útskrifaðir voru frá skólanum. Lengst til vinstri er Margrét Ólafsdóttir, eiginkona Steindórs Hjörleifssonar, þá Valdimar Lárusson og Gerður Hjörleifsdóttir. Tilkynning frá Landskjörstjóm um listabókstafi í kjör- dæmum. Yfirkjörstjóm Norðurlandskjördæmis vestra hefur tilkynnt, að þar hafi orðið sú breyting á framboðslistum, að F-listinn hafi verið dreg- inn til baka. Samkvæmt tilkynningum yfirkjörstjórna með þessari leiðréttingu verða eftirtaldir listar í kjöri við alþingiskosningamar 13. júní n.k. I öllum kjördæmum: A. — Listi Alþýðuflokksins B. — Listi Framsóknarflokksins D.— Listi Sjálfstæðisflokksins G.— Listi Alþýðúbandalagsins í öðrum kjördæmum en Norðurlandi vestra: F. — Listi Samtaka frjálslyndra og vinstri manna í þremur kjördæmum, Reykjavík, Reykjanes- kjördæmi og Suðurlandskjördæmi verður auk þess í kjöri — Listi Framboðsflokksins, sem merktur hefur verið bókstafnum O. Landskjörstjóm. Nýtt! Fairline eldhúsið Fairline eldhúsið er nýtt og það er staðlað. Ein- göngu notuð viðurkennd smíðaefni og álímt harð- plast í litaúrvali. KomifS með málið af eldhúsinu eða hústeikninguna og við skipuleggjum eldhús- ið og teiknum yður að kostnaðarlausu. Gerum fast verðtilboð. Greiðslu- skilmálar. Fairline eld- húsið er nýtt og það er ódýrt. Óðinstorg hf. Skólavörðustíg 16 Sími 14275 * Allt önnur Anna Anna Agnarsdóttir frá Borgar- nesi skrifar: „Að gefnu tilefni vil ég biðja » lesendur dagblaðsins Vísis að • athuga eftirfarandi: • Anna Agnarsdóttir sauma- • kona, sem svaraði spumingu Vís • is föstudaginn 21. maí — Finnst • yður Reykjavík hreinleg borg? 2 — er ekki Anna Agnarsdóttir ® saumakona frá Borgarnesi til • heimilis að Hjarðarhaga 38 • meö síma 22922.“ ; Fræðsluþættir Z í sjónvarpi • Gussi skrifar 2 „Sjónvarpið er til margra • hluta nytsamlegt. Frönsku- 2 kennslu er þar nýlokið, og hafði • ég bæði gagn og gaman af. Bið • ég ylckur að skila þakklæti til 2 sjónvarpsins og Vigdísar og Ger • ards, og vona ég að sjá þau • bæði að hausti ... en francais. 2 Vísir sagði nýlega frá nám- skeiði handa þeim, sem vilja leiðbeina erlendum ferðamönn- um, er hingað koma. Hvernig væri nú að flytja slíkt efni í sjónvarpinu? Margir þurfa að sinna erlendum gestum, og finna þá títt til fáfræði sinnar, en hafa ekki tækifæri til að fara á slík námskeið, þótt þeir vildu gjaman þiggja fróðleik og leiðbeiningar. Mér skflst, ao sumir bændur séu hvattir til að opna heimili sín fyrir erlend um ferðamönnum. Mundu þeir ekki taka slíkri hjálp fegins hendi? Ekki geta þeir farið frá búskapnum til að sitja á skóla- bekk. I hvert skipti, sem blöðin skýra frá námskeiðum Ferða- skrifstofunnar, langar m;g til að „vera með“. En ég hef alls enga aðstööu til þess, og þykist vita að svo sé um fleiri. En væm slíkir fræöslubættir f siónvarp- inu. gegndi allt öðru máli. Gæti nú Vigdís — sú sem áð- ur er nefnd og starfar einnig að ferðamálum — ekki verið tengiliðurinn hér og miðlað al- menningi af reynslu sinni, og fengið fróða menn í lið með sér til að segja frá landi og lýð — i sjónvarpinu?" HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15 Notaðir bílar Skoda 110 L árg. 1970 Skoda 100 s árg. 1970 Skoda 1000 MB 1969—68—67—66 Skoda Combi árg. 1967—66—65—64 Skoda 1202 árg. 1966—65—64 Skoda Oktavía árg. 1965—61 Volkswagen 1200 árg. 1968. Tékkneska bifreiðaumboðið Auðbrekku 44-46 Sérfræðingur Staða sérfræðings í geðsjúkdómum við geödeild Borg- arspítalans er laus til umsóknar. Æskilegt er að um- sækjandi hafi sérþekkingu á einhverju sérsviði. Geð- fræðingar og þá helzt í geölækningum unglinga (juvenile psychiatry) eða lífeðlisfræði (neurophy sio- logy) geðsjúkra. Upplýsingar varðandi stöðuna veitir yfirlæknir deildarinnar. Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavíkur við Reykjavíkurborg. Um- sóknir ásamt upplýsingum um nám og starfsferil send- ist Heilbrigöismálaráöi Reykjavíkurborgar fyrir 15. júlí n. k. Reykjavík 24. maí ’71 Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar, íbúð óskast leigð! 3ja he-bf'T-gja íbúð óskast leigð strax eða sem allra fyrst. r nrframgreiðsla ef óskað er, góðri umgengni og skilvlsri greiðslu heitið. Uppl. i sima 19016.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.