Vísir - 03.06.1971, Blaðsíða 6
6
V1SIR. Fimmtudagur 3. júní 1971,
Hannes Kr. Dav'iðsson arlfitekt:
SJÁ ÞEIR EKKI.
(iMatt. 13. 130
|
Hér fyrir helgina hitti ég á
íiörnum vegi einn af þeim arkitekt-
um, sem sitja í Skipulagsnefnd
Reykjavxkur. Ég innti hann eftir
því hvort skipulagsnefnd hefði um-
fjallað flutning styttanna fyrir
framan Stjórnarráðshúsið og kvað
hann já við. Sagði, að þetta hefði
verið samþykkt fyrir 5 árum, þ. e.
að segja breikkun götunnar, nú
og hitt gæfj auga leiö, að þá færð
ust stytturnar bara nær húsinu.
Tseknikratar og skipulag
Það er bágt ef allt viömót borg-
arinnar á að mótast af bílateljur-
um og tæknikrötum. Vondur er sá
aimenni biirokrat, en miklu hættu-
legri er þó tæknikratinn ef hann
fær að leika iausum hala og verð
ur allsráðandi.
Það virðist oft lögmál tækni-
krata, að haft þeir gert eina vit-
leysu, þá verður aö gera aðra.
Tæknikratinn hefur ekki efni á áð
viðurkenna, að hann geti gert villu,
„errare humanum est“, en slíkt
hendir ekki hinn tæknimenntaða
sérfræðing.
Mælikvarði tæknikratanna á
götubreiddir er bílafjöldi, þess
vegna geta þeir ekki horft á fyrri
breikkun Lækjargötu án þess að
halda henni áfram og áframhaldið
skal réttlætast með því aö tæla
einhverja umferð úr Skúlagötu inn
í Lækjargötu jafnvel þó tollstöðvar
brúin verði af einhverju, en koma
tímar koma ráö. Svo má heldur
ekki gleyma því að þessi umferð
skapar tæknikrötunum nýtt vanda
mál úti við Hringbraut, en vanda
mál býr tæknikratinn til til þess
að leysa þau.
Tæcinikratar, gróður og líf
í miðbænum
Hvaöa áhrif þessi bílaumferð hef
ur á lífið á Tjörninni og í kringum
hana skiptir tæknikratana ekki svo
miklu bara ef þeir geta sent til-
bera sinn, bílinn, þangað sem þeinj1
hentar. Staður eins og Hljómskála
garðurinn og samband fólks við '
hann og Tjörnina eru ekki vanda-
mál tæknikratanna, fuglar verpa
| ekki ’x bílum.
Blindar ákvarðanir
Því fylgir mikill vandi að hafa
vald. Það væri mikil blessun ef
þeir sem valdið hafa þekktu sfn
takmörk og leituðu sér hæfra ráðu
nauta í tíma, þ. e. áður en ógæfan
er oröin. I þessu tilfelli liggur ljóst
fyrir, að valdamenn eru ekki næm
ir fyrir samskiptum húss og stytta
og hafa ekki mjög skilið eöli þess
lága húss og þá skemmtilegu fhiut
un fjarlægðarinnar, sem átti sér
stað á þessum bletti. í þessu til-
feili held ég hefði verið gott fyrir
skipulagsnefnd að leita álits góöra
myndlistarmanna, já t. d. Ásmund
ar Sveinssonar og Sigurjóns Ól-
afssonar, en báðir hafa dálítið vit
á höggmyndum og jafnvel hefði
mátt leita til einstakra arkitekta,
sem ekki væru orðnir augnþreyttir
af bílatalningu.
Listaverkum misþyrmt
Skipulagsmenn verða að gerasér
ijóst, að öllu eru takmörk sett,
einnig því skiiningsleysi, sem þeir
geta leyft sér að umgangast hlut-
ina með, án þess aö leiði til ofarn
aðar. Tæknikratar verða að horf-
ast í augu við, að á þessum stað
verður ekki gert hvorttveggja, að
breikka götuna og halda styttun
um. Ha’di þeir breikkun götunnar
til streitu hljóta þeir að úthýsa á
þessum stað þeim heiðursmönnum
Krístjáni 'IX og Hannesi Hafstein,
en vel má vera að þaö megi fá
þeim dvalarstað annars staðar ’i
borginni.
En að fara þannig með 2 af
örfáum myndastyttum miðbæjar-
ins og eitt snotrasta húsiö, aö
valdi meiðslum, er eiginlega ekki
hægt að líða, jafnvel ekki tækni-
krötum.
Endurskoðun ákvarðana
Leyfi byggingayfirvalda til handa
hinum almenna borgara rennur út
eftir 1 ár hafi leyfishafi ekki haf-
izt handa um framkvæmdina og
skipulagsyfirvö'.d áskilja sér þá
rétt til að endurskoða fyrri á-
kvörðun, tii bóta. Væri nú ekki
við hæfi, að þau endurskoðuðu
þessa 5 ára gömlu ákvörðun sína,
áður en lengra er haldið. Jafnvel
þótt þau hafi ef til vill f huga
að bjóða arkitektum til samkeppni
um líkskreytinguna að giæpnum
frömdum. En sú hugmynd birtist í
einu dagblaðanna um daginn.
—------------------
LANDSHAPPDRÆTTI
SIÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Ekki allir gagnrýn-
endur mannanna
beztu börn
B. skrifar:
„Innilega var ég sammála
framkvæmdastjóra Saltstokk-
mótsins, þegar hann sagði í
sjónvarpsviðtalinu í fyirakvöld,
að við, þessir eldri, hefðum ekk
ert verið betri, þegar viö vorum
ung.
Margur, sem í dag á ekki
orð til að lýsa hneyksilun sinni
jafnöldrum sínum, — en mikið
varð ég fegin þegar hann birt-
ist aftur heima klukkan 9 um
kvöldi5.“
Húrra fyrir Saltvíkur
prógramminu
Stjáni skrifar:
„Ég mundi bara vilja fá
pláss fvrir þrjú orð í lesenda
dálkinum þínum: Húrra fyrir
Saltvíkur-hátíðinni!
Ég viðurkenni, að fylliríið
hafi verið óskaplegt, en pró-
grammið, það var fyrsta flokks.
Framkvæmdastarf rótara og
þeirra, sem áttu að bera ábyrgð
á því, að flutningur skemmti-
atriðanna gengi snuröulaust fyr
ir sig var raunar f lakara lagi,
en þaö sem ég met svo mikils
í sambandi við hátíðardagskrána
er það, hve mörgum tókst að
troða upp á senuna til að
skemmta.
Trúbrot eða aðrir fugiar, sem
vit hafa á málunum ættu sem
allra fyrst að standa fyrir
svona hljómleikum aftur og
helzt sem oftast, svo að maður
g
á atferli ungmennanna, hefur
verið furðufljótur að gleyma
sínum eigin æskubrekum.
Sumir þeirra, sem hæst hafa
í dag og eru hvað harðastir í
gagnrýninni á unga fólikiö, gátu
þvf ekki talizt til mannanna
beztu bama, þegar þeir voni á
þessu sama reki.“
Vantaði aga
Móðir skrifar:
,„Viö fórum upp í Saltvík, öll
fjöiskyldan, núna á laugardag-
inn, og get ég varla orða bund-
izt. Mér fannst það ægilegt að
fólk skuli senda böirnin ein
sfn liðs í svona slark eins og
þama var mjög almennt á ung-
lingum. Hvers vegna fara for-
eldrarnir ekki með börnunum á
svona staði? Treysta þeir al-
gjörlega forsjá opinberra „barn
fóstra", sem draga börnin af
stað með gvlliboðum. Mér finnst
þetta bera vott um furðulega
blindu á staðreyndir. Ég veit að
þetta hátíðahald í Saltvík' var
heiðarleg tilraun, en ég gat
ekki betur séð esn hún misheppn
aðist, þarna vantaði aðhald og
aga, nokkuð sem bömin eiga
fvrir bað fvrsta að koma með
sér heiman að. Sonur minn, 14
ára vildi ólmur verða eftir hjá
geti á einum stað heyrt hvar
skemmtikraftar okkar standa
hverju sinni. — Og fyrir alla
muni: bægið þá fyllibyttunum
frá áheyrendasvæðunum.
Víst er þeim
treystandi
Gunnlaugur Þórðarson skrifar:
„Undirritaður vil'l hér með
vekja athygii á óréttmætrj fyr-
irsögn í blaði yðar þar sem seg-
ir: UNGLINGUM EKKI TREYST
ANDI. Ég tel að þarna hafi
gerzt það, sem fullorðna fólkið
hefur fyrir unglingunum. Þarf
ekki annað en vitna til þjóð-
hátíðarinnar í Vestmannaeyjum
eða hestamannamótanna. —
Treysti ég blaðinu til að harma
þessa stóra yfirskrift. Ég veit
það frá fyrstu hendi að ölvun
hófst með komu fullorðna fólks
ins a staöinn.“
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
, KL13-15