Vísir - 03.06.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 03.06.1971, Blaðsíða 16
VISIR Fimmtudagíir 3. júní 1971. _______ Eru Strandamenn að búast á síld? Þrátt fyrir aö kosningar standi fyrir dyrum virðist bjart- sýnin ekki alveg útdauð með þjóðinni, enda þurfa menn að vera ákaflega svartsýnir og alvörugefnir til að hressast ekki vitund á vorin í sólskininu. Ljósmyndari blaðsins sá þennan bíl bruna gegnum bæinn í gær. Bíllinn er úr Strandasýslu, og eins og sjá má, hefur síldartunnum verið staflað á toppgrind- ina. Þrjátíu og sex tunnum, segir Ijósmyndarinn, og með reikningskúnstinni má leiða rök að því, að það sé rétt, enda þátt aðeins sjáist í tólf tunnur. Og nú spyr maður: „Eru Strandamenn að búast á síld?“ Valt við áreksfurinn Harður árekstur varð við vega mót Reykjanesbrautar og Sjávar götu í Innri-Njarðvík í gær og þótti með ólíkindum að ekki skyldi hljótast af meiriháttar slys. Bifreið var ekið eftir Sjávargötu og inn á Reykjanesbrautina í veg fyrri aðra bifreið, sem ekið var eítir Reykjanesbraut. Áreksturinn varð svo harður, að sú, sem ekið ■ar frá Sjávargötunni, valt. Hvorugan ökumanninn sakaði en túlka í annarri bifreiðinni skarst 'ítilsháttar í andliti. —GP átvinn&Éleysið í fyrra 1#3% Atvinnuleysið var helmingi ninna í fyrra en árið áður. Að neðaltali voru 1105 menn á at- innuieysisskrá, sem er 1,3% af aannaflanum samkvæmt reikning- m kjararannsðknarnefndar. Árið 1969 voru atvinnuleysingj- u' að meðaltali hins vegar 1952, ',em var 2,4% af heildarmanngfl- anum. Atvinnuleysið í fyrra var mest 31. janúar, 2608 menn eða 3,2%, og minnst 31. september, en þá voru á skránni 290 menn, sem var aðeins 0,4% af mannaflanum. — HH Spáir stóraukningu ferða- mannastraums á þessu ári „Aukið hótelrými þýðir aukinn ferðamanna- straum", segir Lúðvik Hjálmtýrsson „Fjölgun ferðamanna sem til íslands koma, hefur numið 15—20% ár lega; og ég spái því að hún fari fram úr þessum 20 prósentum í ár, þar sem ferðamannafjöld- inn eykst í réttu hlutfalli við hótelrými sem til er í landinu“, sagði Lúðvíg Hjálmtýsson, formaður Ferðamálaráðs, Vísi í morgun. Hótelrými í Reykjavík hefur aukizt mjög með tilkomu nýrr- ar álmu við Loftleiðahótelið og svo tilkomu Hótel Esju. Bæði þessj hótel stækkuðu um 100% V vor, Loftleiðahótelið úr 108 herbergjum (flest 2ja manna) í 218 herbergi og Esja úr 67 í 134. „Þannig tná segja, aö ástandið í hótelmálum sé gott orðið í Reykjavík,“ sagði Lúövík, „hér voru í fyrra 554 hótelherbergi, en eru nú oröin 732. Á öllu land inu voru 1. maí í ár 1766 hótel- herbergi. Á landinu eru nú alls 4052 hótelrúm yfir sumarið. Okkar höfuðverkur er auðvit að landsbyggðin, en þar hafa þó skólarnir, bætt mjög um, og ’i sumar kemur til nýtt sum arhótel, það er heimavist Hús- mæöraskólans á Laugarvatni, og svo nýju heimavistirnar við menntaskólann þar.“ Sagði Lúðvíg, að í fyrra hefðu komið til íslands alls 63.408 ferðamenn, og væru þá allir meðtaldir, einnig þeir sem komu með skemmtiferðaskipum. Af þessum fjölda komu 51.752 meö flugvélum og bjóst Lúðvíg viö, að þessi síðasta tala ætti eftir að hækka í 60.000 eða þar um. Vísir hafði tal af 3 hótel- mönnum i Reyk'tr-ík, og létu þeir allir naésta vel af sínum hag. HI'in Baldvinsdóttir, hótelstj. Esju var mjög ánægö með á- sóknina í ráðstefnusalj hótels- ins, „þessir ráðstefnusalir hafa ekkert verið auglýstir, enda fáir dagar síðan þeir voru tilbúnir. Ef svo fer sem horfir, þá þarf ég ekkert aö auglýsa,” sagði Hlin. I maí hefur nýtingin hjá Esju verið kringum 75% og er vel bókað í júní og ágúst — „en reynslan er yfirleitt sú að fleiri koma en þeir sem fyrir fram hafa pantað herbergi." Móttökustjóri á Löftleiðum, Emil GUðmundsson, tjáð; Vlsi að óhætt væri aö segja nýting uóa hjá Loftleiðum 95% í maí- mánuði, „en ævinlega afpanta einhverjir, þannig að fólk getur reiknaö meö, að ævinlega sé hægt að fá herbergi þótt full- bókað sé.‘‘ í vetur mun nýt- ing Loftleiða hafa verið um 60% og eftir þv) sem bókað er fram ý sumarið, ætti nýting að geta oröið 90% — eftir því sem móttökustjórinn sagði. Konráð Guðmundsson, hótel- stjóri Sögu sagði nýtinguna á rýmj Sögu hafa verið 60% fyrstu 4 mánuði ársins, „og var það ívið betra en í fyrra. Og sumarið lítur bærilega út. Annars er ekki vel gott að spá því að eftir er að sjá, hvernig ferðaskrifstofur standa við sín- ar pantanir," sagði Konráð. Á sögu eru 90 herbergi, og sagði Konráð að hann áliti við- skiptahorfur góðar, þrátt fyrir það að hótelrými í Reykjavík hefði aukizt svo mjög í vor. —GG Ruslið / borginni: Lögreglan hótar framtaks- litlum bjartsýnismönnum Einni tegund athafnamanna til- heyra þeir, sem kaupa sér gamlar bíltíkur með það fyrir augum að gera þær upp í tómstundum sínum og dytta að þeim og selja þær síðan til að hagnast drjúgan skild- ing á viðskiptunum — að minnsta kosti eru til sögur, sannar eöa lognar, af mönnum, sem hafa leik ið þennan leik. Algengara mun þó, að menn kaupi bílhræ fullir með góðan vilja og fjárgróðahugmyndir, en siðan verðj minna úr framkvæmdunum, og bíldruslurnar standi síðan lon og don öllum til leiðinda, jafnvel eig- andanum, sem stöðugt er þannig minntur á peningana, sem aldrei græddust og verkið, sem aldrei komst 1 framkvæmd. Lögreglustjórinn í Reykjavik hef ur nú skorið upp herör gegn fram- takslitlum bjartsýnismönnum af þessu tagi, því að meö auglýs- ingu hefur hann boðað, aö drasl, sem menn hafa skilið eftir á al- mannafæri, verði fjarlægt á næst- unni á kostnað og ábyrgð eigenda án frekari viðvörunar. Svo að nú er um tvo kosti að velja fyrir þá, sem lengi hafa ætl að sér að gera upp gamla bilinn annaðhvort að lát.a hendur standa fram úr ermum við viðgerðina ell- egar þá að koma draslinu á haug ana sem skjótast. Taki menn síð- ari kostinn komast þeir hjá ó- þægindum, og þótt þeir verði af gróðanum, sem þá dreymdi um, verða þeir þó altént reynslunni rikari. —ÞB Innbrot i ibúðir Brotizt var inn í íbúðir á tveimur stöðum í borginni í gærkvöldi Stolið var sambyggðu útvarps- og segulbandstæki úr íbúð 1 Garða- stræti, og úr kjallaraíbúð Gistiheim ilisins að Snorrabraut 52 var stolið ýmsum verömætum munum. - GP

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.