Vísir - 03.06.1971, Page 7
Ví S I R . Fimmtudagur 3. júní 1971.
7
cTMenningarmál
Þráinn Bertelsson skrifar um kvikmyndir:
Raffnarök
jck-k~k
Nótt hinna löngu hnífa.
(The Damned)
Stjórnandi: Luchino Vis-
conti
Handrit: L. Visconti, Nic-
ola Badalucco og
Enrico Medioli
Aðalleikendur: Dirk
Bogarde, Ingrid Thulin,
Hehnut Griem, Renaud
Verley, LFmberto Ors-
ini, Florinda Balkan,
Charlotte Rampling o.fl.
Austurbæjarbíó, enskt
UA, islenzkur texti.
ötterdammerung“ vildi
Visconti láta þessa mynd
sína heita, en það útleggst
„Ragnarök". Svoleiðis titil skil-
ur ekki nokkur maður, sögðu
framleiðendurnir, og myndin
var látin heita „The Damned"
(Hinir fordæmdu) og á íslandi
er hún nú sýnd undir hinu
margþvælda nafni „Nótt hinna
löngu hn'ifa“.
Raunar skiptir ekki máli,
hvað svona mynd heitir, nenria
kannski að hinn lágkúrulegi
titill verði til að narra einhverja
til að sjá myndina, sem ekki
kunna að meta né geta metið
myndir af þessum gæðaflokki
— frábærar myndir. Ekki
fannst manni aö minnsta kosti
laust við það fyrsta kvöldið,
sem myndip var sýnd, að ein-
hverjir unglingar létu í ljósi
sljóleika sinn og skilningsleysi I
með þunglyndislegum kýrstun-
um og jafnvel bauli og frammí-
köllum.
Samt þarf ekki mikið mann-
vit til að sjá, hvað Visconti er
að fara í þessarj mynd sinni,
en það er kannski annað mál,
hvort menn hafa áhuga á því,
menn eiga það meira að segja
til að daufheyrast viö sannleik-
anum.
S.A.-menn úr sveitunum, sem mestan þátt áttu í að koma Hitler til valda, skemmta sér á
hóteli við Wiesse, án þess að gruna, að foringinn hefur snúið við þeim bakinu, og nótt
hinna Iöngu hnífa er að renna upp.
Luchino Visconti. Myndin er tekin er hann vann að kvik-
myndun sögunnar „Dauðinn í Feneyjum", en sú mynd
hlaut góðar undirtektir á nýafstaðinni kvikmyndahátíð í
Cannes.
Ein var góð, önn-
ur vond, þriðja
ljót og leiðinleg...
Einn var góöur, annar
illur, þriðji grimmur
(The Good, Bad and the
Ugly)
Stjómandi: Sergio Leone
Aðalhlutverk: Clint East-
wood, Eli Wallach,
Lee Van Cleef
Eínu sinni leit út fyrir, að
Sergio Leone hefði hæfileika til
að gera góðar kvikmyndir. Að
minnsta kosti tókst. honum að
gera nýstárlega skemmtimynd
hér einu sinni, og hún hét auð-
vitað „Fyrir hnefafyllj af doli-
urum“. Raunar var sú mynd
ekki annað en nákvæm stæling
á kvikmynd eftir Kurosawa, en
vel gerð stæling ei að síður.
Næst kom „Fyrir fáeina doll-
ara í viðbót", sem eins og nafn-
ið bendir til var aðeins gerð til
að græða fáeina dollara ) viðbót,
sem eins og fyrri myndin sýndi
aðeins, að Leone hefði líkast til
getað gert þolanlegar myndir, ef
hann langaðj ekki svo óskap-
lega til að græða fáeina dollara
í viðbót.
Loks kom myndin, sem nú er
sýnd í Tónabíói. Fánýtið sjálft
uppmálað, dapurleg endurtekn-
ing á því andleysi, sem áður er
komið, nema hvað sadismi, ó-
mennska og mannleg ónáttúra
kemur ennþá skýrar fram en
áður.
Ekkert réttlætir þessa hrak-
legu upptalningu á þeim sví-
virðilegheitum, sem Leone
skemmtir sér við að bregða upp
fyrir áhofendum sínum. Hvergi
er ljós punktur.
Svona rusl væri betur látið
ósýnt.
Og svo pru menn að fjarg-
viðrast út af sænsku klámi.
Þaö er út í hött að ætla að
reyna aö lýsa þessari mynd
með því aö tíunda söguþráðinn,
þótt hann út af fyrir sig kunni
að vera athyglisverður. Sömu-
leiðis er það tilgangslaust að
ætla sér aö kveða upp einhvern
Salómonsdóm um ágæti mynd-
arinnar, þvi að orð eips og frá-
bær, stórkostleg, ógleymanleg
eru aðeins upphrópanir, sem
láta í 'ljós hrifningu áhörfand5
ans, en segja ekkert um mynd-
ina.
IJagnarök" gerist rétt um
valdatöku Hitlers, og að-
alpersónurnar eru meðlimir
auðugrar fjölskyldu, sem á
vopnaverksmiöju, og svo maður
nokkur, sem hefur unnið sig
upp 'i að verða einn af stjórn-
endum verksmiðjunnar, og verð-
ur siðar fjölskyldumeðlimur.
Þetta eru umbrotatímar.
Sumir úr fjölskyldunni vilja
snúast á sveif með hinum nýju
valdhöfum vegna sannfæringar
sinnar; aðrir til þess eins að
maka eigin krók; sumir snúast
eindregið móti helstefnunni; og
enn aðrir láta aðeins reka á
reiðanum undir áhrifavaldi
þeirra, sem ákveðnari eru.
Valdagræðgi, geðbilun, spill-
ing og úrkynjun virðast vera
þau orð, sem Visconti tekur
helzt mið af í þessu listaverki
sínu, og sannarlega mistekst
honum ekki að túlka merkingu
þessara orða.
Frá upphafi til enda hefur
myndin áhorfandann gersamlega
á valdi sínu, nema kannski þann
áhorfanda, sem hefur meiri á-
huga á tómatsósu en kvikmynda
list. Visconti bregzt hvergi boga
listin. Ótrúlega vel tekst honum
að blása lífi í myndina og gera
hana sanna, þrátt fyrir atburði,
sem oft eru í meira lagi ótrú-
legir. En hvað gerðist ekki í
Þriðja r'ikinu á þessum tíma?
Er ekki öll saga þess með ólik-
indum?
Það er ótrúlegt, aö nokkur
maður, sem hefur áhuga á góð-
um kvikmyndum eða góðri list,
láti þessa mynd framhjá sér
fara, og þeir sem hvorki hafa á-
huga á góðum kvikmyndum né
góðri list ættu heldur ekkj að
sleppa þessu tækifæri tii að sjá,
hvernig einn mesti listamaður
okkar tima setur sannleikann
fram — þeir hafa ennþá síður
efni á því en hinir fyrrnefndu.
Það er erfitt fyrir þann, sem
einkum hefur æfingu í að skrifa
um vondar kvikmyndir, að
skrifa um meistaraverk eins og
,,Ragnarök‘‘ eftir Visconti. En
það er ánægjulegt, þegar kvik-
myndahús sannar tilverurétt
sinn meö því að sýna slikar
myndir annað slagið.
Ferðaklúbbur
Vegna fjölda áskorana ferðavina minna boöa ég hér
með til stofnfundar ferðaklúbbs fimmtudaginn 3. júní
1971 í Tjarnarbúð (uppi) kl. 8.30.
Að loknum stofnfundarstörfum sýni ég ferðamyndir
eftir þvi sem tími er til. Allir sem áhuga hafa á
ferðamálum eru velkomnir.
Þorleifur Guömundsson, Austurstræti 14
símar 16223 og 12469.
Nauðungoruppboð
sem auglýst var í 70, 71. og 73. tbl. Lögbirtingablaös
1970 á hluta í Hjaltabakka 6, talinni eign Ingibjargar
Michelsen fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands-
banka íslands og Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eign-
inni sjálfri mánudag 7. júní 1971, kl. 15.00
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Nuuðunguruppboð
sem auglýst var í 78., 79. og 81 tbl. Lögbirtingablaðs
1970 á hluta í Drápuhlíð 42, þingl. eign Jóns Ásgeirs-
sonar fer fram efteir kröfu Útvegsbanka Islands á
eigninni sjálfri, mánudag 7. júní 1971 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík
Nuuðungaruppboð
sem auglýst var í 50., 52. og 54. tbl. Lögbirtingablaðs
1969 á hluta í Hólmgarði 36, talinni eign Kristjáns
Magnússonar fer fram eftir kröfu Tryggingastofn-
unar ríkisins og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eign-
inni sjálfri, mánudag 7. júní 1971, kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.