Vísir - 25.06.1971, Side 5
eOMLU KEPPINAUTARNIR KR OG
AKRANES SITJA NÚA BOTNINUM
Nýja Kópavogsliðið í 1.
deild, Breiðablik, stökk
up í fjórða sæti í 1. deild,
þegar það sigraði KR á
Melavellinum í gærkvöidi
með 1—0, en skildi um leið
gömlu keppinautana og
tvö beztu lið íslands tvo
síðustu áratugina, KR og
Akranes, eftir á botninum
í 1. deild — þau hafa bæði
aðeins hlotið tvö stig eft-
ir fjórar fyrstu umferðirn-
ar í keppninni. Hlutskipti
þeirra nú er að reyna að
verjast falli — í stað þess
að keppa að íslandsmeist-
aratitlinum eins og oft áð-
ur.
Það var ekki rismikil knatt-
spyrna sem sást á Melavelli í gær-
kvöldi — síðari háifleikurinn áreið
anlega þaö lakasta. sem sézt hefur
í íslandsmótinu hingaö til, enda
sannast átakanlegt, aö sjá leikmenn
berjast á hörðum og þuirum mal-
arvellinum vitandi af Laugardals-
vellinum betri en nokkru sinni fyrr
nokkra km í burtu.
Norðan strekkingur var, þegar
— Breiðablik vann KR i gærkv'óldi 1-0 á Melavellinum
ur Kópavogs, og sá, sem skoraði
sigurmarkið gegn KR.
Barizt um knöttinn í vítateig KR. Landsliðsmaður Kópavogs, Guðmundur Þórðarson (nr. 9) komst
lítið áleiðis gegn þessum mikla varnarvegg KR. Ljósm BB»
leikurinn fór fram^og stóð beint á
syöra markið, Breiðablik lék und-
an vindinum í fyrri hálfleik og var
miklu meira í sókn gegn vængbrotnu
liði KR, sem að meirihluta var
skipað leikmönnum úr 2. flokki
félagsins. Þekktustu leikmenn liðs-
ins voru ekki meö eins og annars
staðar er skrifað um á síðunni.
Leikmenn Breiðabliks gáfu sem
sagt tóninn lengi vel í leiknum —
en sá tónn var hvorki fagur né
skær — mest þóf á miðjunni og
lítiö um vel uppbyggðar sóknar-
lotur. Mörkin komust varla í hættu
— þar til allt í einu á 32. mín.
að mikið var um að vera innan
markteigs KR.
Magnús Guðmundsson, binn
ágæti markvörður KR, stóð bá
heldur betur í eidlínunni. Knött-
urinn barst inn i vítateiginn og
Magnús sló knötiinn frá. Breiöa-
bliksmenn náða honum strax og
einn þeirra átti hörkuskot á
markið, sem Magnús varði giæsi
lega. En hann var kominit upp
að marki KR á svipstundu aftur
— gefið var fyrir og Magnús,
sem varla var búinn að stað-
' setja sig á rvý hijóp fram, reyndi
i að komast að knettinuin, en
tókst illa og bezti maður Breiða-
bliks Haraldur Erlendsson náði
honum á markteigslínunni.
Hann sýndi mikla rósemi í æs-
andi stöðu — lék á varnarleik-
mann KR og fyrir markið. Síð-
an sendi hann knöttinn í mark
með hörkuskoti. 1—0 og þetta
reyndist sigurmark Breiðabliks
í ieiknum.
KR-ingar áttu fáar sóknarlotur
gegn norðangolunm' og það var ekki
nema Sigurþór Jakobsson, sem eitt
hvað lét að sér kveða í framlín-
unni. Á 3’3. min. lék hann mjög
skemmtilega á tvo vamarleikmenn
Breiðabliks og inn í vítateig. Fast
jarðskot háns, sieikti mark Breiða-
Dliks, en að utanverðu.
Um síðari hálfleikinn er bezt að
hafa sem fæst orð. Knattspyrna
sást varla þar va^ spymt hátt
og langt og oftast mil’i mótherja.
Knattspyrna eins og við viljum hafa
hana sást ekki. KR-ingar sóttu
miklu meira en á’-angur var eng-
inn og mark Köpavogs komst varla
i hættu - nema á síðustu sekúndu
leiksins, begar hinn ágæti mark-
vörður liðsins, Ólafur Hákonarson,
kom fingrum á knöttinn á síðasta
augnabiiki cg Ivfti honum yfir þver
islá.rÞegar 20 mín. voru eftir varð
bezti maður KR-liðsins Sigurþór
Jakobsson að yfirgefa leikvanginn
og kom Baldvin Baldvinsson í hans
stað — en tókst lítiö að sýna á
þeim mínútum.
Lið KR á krossgötum \
O :
Þrir af þekktustu leikm'ónnum libsins hófu ekki leik i gær
Það vákti mikla athygli í
gærkvöldi, þdgar leikur Breiða-
bliks og K.R. hófst á Melavell-
inum, aö þrír af þekktustu leik-
mönnum KR — Jón Sigurðsson,
fyrirliði í allt vor, Baldvin
Baldvinsson og Þóröur Jónsson
voru ekki í liðinu. Hver er á-
stæðan? spurðu áhorfendur
hvem annan
ViS eftirgrennslan kom í ljös,
að Þórður Jónsson var bundinn
við vinnu norður á Akureyri og
gat ekki leikiö af þeim sökum,
en hins vegar höfðu þeir Jön
Sigurðsson og Baldvin Bald-
vinsson — þó Baldvin kæmi
inn á sem varamaður, þegar
tuttugu minútur voru eftir —
verið settir úr liðinu vegna þess,
að þeir hafa mætt illa á æfingar
að undanförnu. Ekki gott til
þess að vita, þegar KR þarfnast
allra sinna beztu manna.
KR á mjög efnilegan 2. aldurs-
flokk og þeir drengir stunda æf-
ingar mjög vel. Sex þeirra léku
með KR-liðinu í gærkvöldj og
ef félaginu tekst að veriast falli
í sumar þarf það áreiðanlega
ekki að kvíða framtíðinni. En
liðið er á krossgötum sem
stendur — þessir ungu piltar
hafa enn ekki þá leikreynslu,
sem nauðsynleg er í 1. deild, og
á nieðan þurfa hinir eldrj að
vera burðarásar þess. En á því
hefur orðiö slæmur þverbrestur.
Breiðablik hefur nú hlotið fjögur
stig í fjórum leikjum, en fyrir
keppnina voru margir, sem spáðu,
aö liðið mundi varla hljóta stig.
Kópavogsmenn hafa gert grín að
þeim. Liðið leikur ekki glæsilega
knattspyrnu — en hefur nokkrum
ágætum leikmönnum á að skipa
eins og Haraldi Erlendssyni —
Magnúsi Steinþórssyni, eldfjörug-
um bakverði, Þór H'annessyni,
drjúgum framverði og Hreiðari
Breiðfjörð, sem er ^neggsti maður
framlínunnar. Hins vegar sýndi Guð
mundur Þórðarson, miðherji og
kunnasti leikmaður liðsins, sem
leikið hefur með iandsliðinu, iítið
í þessum leik og komst ekkert á-
leiðis gegn Birni Árnasyni, mið-
verði KR. En lið Breiðabliks er mik
ið baráttulið og þar er einna fremst
ur í flokki Guðmundur H. Jónsson,
hinn litli miðvörður, sem aldrei
gefur eftir.
Um KR-liðiö þarf ekki að fara
mörgum orðum — það er lið í mót-
un og með marga efnilega leikmenn,
sem enn hafa litla sem enga
reynslu. M'agnús, markvörður,
Björn og Sigurþór voru beztir í
þessum leik oo ,hinn ungi Árni
Steinsson sýnir stoSugt betri leiki.
Prýðilegur dóníari' var í þessum
leik, Hafnfirðingurinn Ragnar
Magnússon, sem ég hef ekki áður
séð dæma leik í 1. deild, en hefur
greinilega til þess ágæta hæfileika.
-hsím
Hinn ágæti
af höfði Trausta
Hallsteinssonar.