Vísir


Vísir - 25.06.1971, Qupperneq 16

Vísir - 25.06.1971, Qupperneq 16
Hinn langi armur laganna þversum yfir dymar til að varna því, ef einhverjum bráðlátum lægi á að líta á töl umar sínar. Blandnar tilfinningar á skattsiofunni i morgun Rétt eftir klukkan níu var opnað, fólkið þrengdi sér enn meira aö dyrunum, og þeir fyrstu flýttu sér inn. — Lögregluþjónn stóð við dyrnar og hélt hendinni í dyrastafinn eins og til að varna inngöngu, ef einhverjum bráðlátum í hópnum lægi mikið á. Jii stundum virðist skatturinn vera eftirsóknarverður — alla vega tölurnar yfir þá upp- hæð, sem þarf að greiöa ríki og borg þetta árið. Það var stór hópur, sem beið eftir að fá að líta á tölumar yfir útsvar og skatt í Iðnaðarmannafélagshús- inu í Vonarstræti í morgun. Spenningurinn breyttist í ann að hugarástand, þegar tólurnar eru komnar á biaðiö, sem afbent er — óánægja, vonbrigði, á- nægja yfir, að upphæðin skuli þó ekkj vera hærri. Hins vegar ber fólkið ekki tilfinningarnar utan á sér og sjást lítil svip- brigði á því — þó eru furðu margir fremur léttir í spori, þegar þeir ganga út um hliðar- dyrnar — því skatturinn véröur ekki umflúinn. Þeir kunningjarnir Guðbrand- ur Elifasson og Jakob Vilhjálms son eru hressir í tali þarna inni hjá skatttölunum: „Já, þarna sérðu“ segir Jakob, þega*- þeir bera saman tölurnar ,,mig lang- aði bara til þess að líta á hvern- ig þettá ýrði“, og hann er hress •í bragöi yfír að hafa haft á réttu að standa, og segir við blaðamanninn: „iHannibal talar viö þá“. Guðbrandur segist hafa skotizt ti'l að ná í skattatölurnar í smáhléi hjá Eimskip, „þetta er ebki meira en maður bjóst við“ segir hann yfiir hækkuninni hjá sér fcá iþwf í fyrra. Það var held- ur dauflegna hljóðið í ungri stúlku, sem var meðal þeirra fyrstu að komast inn til að líta á gjöld sín. „Ég vissi þetta alveg, ég hefði svo sem getað sparað mér sporin og sofið dá- lítið lengur — en kærastinn minn hann fær nú taugaáfell". Og viðbrögðin verða mismun- andi viö gjðldunum, sem hinir áköfustu gá að í skýrslunni í skrifstofunni f Vonarstræti, og svo þeim sem eru skráö í blöðin, sem pösturinn ber heim til borg- arbúa næstn daga. — SB sýnir nýju sút- unarverksmiðjuna Guðbrandur og Jakob bera saman bækurnar fremst á myndinni en þama er fyrsti hópurinn, sem hleypt var inn í skrifstofuna í Vonarstræti í morgun til að líta á tölur yfir útgjöld til borgar og ríkis á árinu. — Nýja 4500 fermetra verksmiðjan komin / full afk’óst Fréttamönnum af Reykjavíkur- blöðum, var í dag boðið að skoða hina nýju loðsútunarverksmiðju SÍS á Akureyri. Verksmiðjan hefur nú tekið til starfa af fullum krafti, en bygging verksmiðjuhússins hófst í júní 1969 og í fyrra í maíbyrjun, hófst starf- semi verksmiðjunnar að nokkru, leyti. Loðsútunarverksmiðjan stendur í i verksmiðjuhverfi Sambandsins á Gleráreyrum og sútar bessi verk- smiðja mokkaskinn, skinn í loð- kápur og annað þess háttar. Var verksmiðjuhúsið byggt með það fyrir augum, að möguleikar, væru fyrir hendi að stækka húsið um 50%. Hús það sem þegar hefur veriðl reist, er 3880 fermetrar á grunni, en ef allt gólfrými er talið, telst það 4500 fermetrar. Hver loðkápa sem verksmiðjan framleiðir mun kosta kringum 7000 krónur í framleiðslu, og mun þannig óhætt að reikna með útsölu verðj hverrar loðkápu kringum 16—17 þúsund. Lítiö hefur sézt af framleiðslu loðsútunarverksmiðj- unnar hér innanlands, þar sem 90% af framleiðslunni hafa veriö flutt út, en kannski breytist það eitthvað núna, þegar verksmiðjan hefur tekið til starfa af fullum krafti. Fyrsta árið var ekki hægt að afkasta eins miklu og nú, og þar fyrir utan var heldur ekki hægt að fullgera framleiðsluvörur verk- smiðjunnar hér heima. — GG Tvær stúlkur kærð- ar fyrir árás Tvær súlkur um tvítugt voru kærðar í nótt fyrir árás og voru þær handsamaðar og hafðar í fangageymslunni í haldi í nótt. Leigubílstjóri kærði þær, en þær höfðu verið farþegar í bifreið hans, þar til hann amaðist við því, að þær helltu áfengi niður í aftursæti bíls- ins. Kom þá til orðahnipp- inga, sem enduðu með því, að stúlkurnar urðu að fara út úr bílnum. Önnur stúlkan danglað; hand- tösku sinni í höfuðið á leigub'il- stjóranum, og særði hann í and- litið. Sár hans reyndist þó ekki alvarlegt. En hann kærði verknaðinn til lögreglunnar sem leitaði kvenn- anna og fann þær. Urðu þær ekkj blíðar við og þótti þá ekki annað ráðlegt en að hneppa þær í varðhald. / — GP FIMM HÆSTU GJALD- ENDUR Á AKUREYRI einstaklingar og fyrirtæki Skattskráin var lögð fram á Ak- ureyri í gær. Útsvörin voru alls 125.625.300,00 kr., heildarupphæð aðstöðugjalda 30.171.100,00 kr. og tekjuskattur 60.463.844,00. Hæstu gjaldendur af einstakl- ingum á Akureyri eru: Oddur Karl Thorarensen Jýfsali 490.500,00 í út- svar og aðstöðugjald og 188.826,00 í tekjuskatt Snorri Kristjánsson bakar; 370.800,00 í útsvar og að- Skatthæstu Kópavogsbúar 1 Kópavogi var ekki hægt að fá uppgefnar tölur um tekju- og eignaútsvar, en hæstu tekjuskatt- greiðendur í Kópavogi eru: 1. Krístín Jónsdóttir, Hlíðarvegi 46 443.582.00. 2. Karl Jónasson, Meigerði 29 343.583.00. 3. Ketill Axelsson, Mánabraut 27 287.080.00. 4. Kjartan Jóhannsson, Þinghóls- braut 27 255.010.00 5. Guðmundur Benediktsson, Hrauntungu 50 246.529.00. 6. Páll Helga- son, Þinghólsbraut 54 228.531.00. 7. Marinó Pétursson, Álftröð 3 213.505.00. 8, Þorgeir Jónss., Sunnu braut 29 199.680.00 9. ívar Guð- mundss., Nýbýlavegi 30a 192.644.00 10. Magnús Norðdahl, Hoitagerði 58 1889.35.00. Fyrirtæki: 1. Málning hf. 1.066.- 277.00. 2. Byggingavöruverzl Kóp. sf. 1.036.744.-. 3. Braúö hf' 217.- 655. — , 4. Rörsteynan hf. 187.496.—. 5. Hámar sf. 118.937.—. stöðugjald og 288.716,00 í tekju- skatt, Valdimar Baldvinsson heild- sali meö 308.600,00 f útsvar og aðstöðugjald og 82.600,00 í tekju- skátt, Baldvin Þorsteinsson skip- stjóri á Súlunni 274.300,00 í útsvar og aöstööugjald og 163.200,00 1 tekjuskatt, Sigurður Ólafsson lækn- ir 271.600,00 í útsvar og 266.573,00 í tekjuiskatt. 5 hæstu ifyrirtæki eru: Kaupfélag Eyfirðinga með 10.491.100,00 i út- svar og aðstööugjald og 2.167.783.- 00 í tekj.uskatt, Verksmiðjur SlS 4.287,000,00 í aðstöðugjald, Út- gerðarfélag Akureyrar með 1.551,- 100,00 í aðstöðugjald, Slippstöðin 1.393.100,00 í aðstöðugjald, Bygg- ingavöruverzlun Tómasar Bjöms- sonar hf. 941.700,00 £ útsvar og aðstöðugjald og 395.293,00 £ tekjuskatt. -SB Hæstu Hafnfirðingar í Hafnarfirði var 127.700.00 kr. jafnað niður á 2920 einstajd- inga og 86 fyrirtæki. Aðstöðugjaid greiddu 344 einstaklirfgar og 131 fyrirtæki, samtals 13.335.300.00 kr. Hafparfjörður: tekjuskattur, tekjuútsvar og eignaútsvar: 1. Hörður A. Guömundsson, Hringbraut 46 1.052.730.00 2. Jónas Bjarnason, Kirkjuvegi 4 939.816.00 3. Sævar Gunnlaugsson, Hringbraut 32 694.758.00 4. Halldór Halldórsson, Lindarhvammi 8 586.216.00 5. Einar Ingimundarson, Brekkugötu 13 549.254.00 6. Jósef Ólafsson, Kyího'.ti 102 476.749.00 7. Grímur Jónsson, Ölduslóð 13 457.177.00 8. Guðmundur Lárusson, Hringbraut 19 426.898.00 9. Jóhannes Jönsson, Ölduslóð 15 413.190.00 10. Andri Heiðberg, Arnarhrauni 16 377.383.00 Fyrirtæki: 1. Raftækjaverksmiðjan hf. 1.547.309.00 2. íshús Hafnarfjarðar hf. 1.488.186.00 3. Knútur og Steingrímur hf. 1.176.063.00 5. Venus hf. 830.945.00 4. Lýsi og mjöl hf. 866.987.00

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.