Vísir - 06.07.1971, Blaðsíða 6
6
VÍSIR . Þriðjudagur 6. júlí 1971.
Já, það var heldur kalt .bað þetta, sem litla' stúlkan á myndinni fékk
{ skólagörðum Kópavogs einn daginn. Þar hafa hinir ungu nemendur
undanfamar vikur heldur betur þurft að taka til hendinnl, — dag
eftlr dag hefur þurft að vökva plönturnar vegna langvarandi þurrka.
Þessar fáu nætur, scm rignt hefur, hafa verið vinsælar hjá unga garð-
yrkjufólkinu, sem vakir yfir velferð plantnanna af einstakri kostgæfni
og bíður spennt eftir að sjá, hvernig útkoma sumarsins verður.
—^íroSmurbrauðstofan I
BJÖRIMINIM
Njálsgata 49 Sími 15105 |
ÁVALLT I SÉRFLOKKl
HF. OFNASMIÐJAN
Einholti 10. — Sími 21220.
Ódýrari
en aórir!
Shodh
IBCAK
AUÐBREKKU 44-46.
| SiMl 42600.
0 Enn um Keflavíkur-
sjónvarpið
L. J. hringdi:
Það sýnir bezt, hversu vin
sælt Kefl'avíkursjónvarpið er, að
þeir sem vilja banna það núna,
pössuðu sig á því að minnast
ekki á slíkt me&an ekki var bú-
ið að kjósa. Nú er allt orðið vit-
laust út af því. Það er nú meira,
hvað menn eru öruggir um sig
eftir kosningar.
% Sumarfrí — sjón-
varpsfrL
Nú er hann enn einu sinni
runninn upp sá yndislegi mán-
uður, júlímánuður, þegar þjóðin
fær algjört leyfi frá sjónvarp-
inu. Mikil blessun. En hann er
ekki fyrr runninn upp en öfga-
mennimir eru komnir f hár sam-
an út af Keflavíkursjónvarpinu,
sem er að því leytinu verra en
það íslenzka að útsendingartími
þess er mun lengri. Margt ann-
að hafa menn haft við banda-
riska sjónvarpið að athuga:
, „mengun hugarfarsins", „her-
nám hugarins“ o.s.frv., sem að
sjálfsögðu eru sjónarmið út af
fyrir sig, en þó varla jafnstór
hættuleg og menn vilja vera
láta. Hins vegar er það rétt, að
nokkuð hjákátlegt er, að erlent
hermanna- og áróðurssjónvarp
skuli fá aö flæða yfir landslýð-
inn meðan hann hefur ekki um
fleira að velja.
Sterkasta röksemdin gegn
Kanasjónvarpinu er hins vegar
sú. að því minna sjónvarpsefni
sem er I loftinu því betra fyrir
landsmenn. Við getum öll verið
þakklát hinu íslenzka sjónvarpi
fyrir hvað það hefur afrekað að
vera fádæma leiöinlegt og lélegt,
svo að flestir eiga auðveldan
leik við að ýta á takkann eftir
fréttir. Fyrir flesta væri þá
betra að þurfa ekki að leika
„karakter“ til aö skrúfa ekki
frá Kananum á eftir.
Sjónvarpsandstæðingur.
9 Hvað heitir styttan
— og eftir hverrr?
Hvað er þetta? Hvaða maður
er þetta? Hver geröi þetta? —
Þetta spurningasuð hljómaði fyr
ir eyrum mínum á sunnudags-
morguninn, þegar ég tók mig til
í góða veðrinu og hélt ásamt
bömunum i einn af hinum fall-
egu skrúðgörðum Reykjavíkur-
borgar og var að skoða ýmis
ágæt listaverk, sem þar standa
öllum til mestu ánægju. En því
miöur. Ég gat ekki svaraö þess
um spumingum barnanna. Ég
vissi ekki gjörla hverjir höfund-
ar verkanna voru, þó má á sum-
um þeirra finna höfundamafn,
en hvað verkin heita eð'a eiga að
túlka um þaö er hvergi staíkrók
aö finna.
Mér datt í hug í þessu sam-
bandi hvort borgaryfirvöldunum
hafi ekki dottið í hug að gera
einhverja bragarbót á þessu. —
Ég sá þama að það voru ekki
einungis börnin, sem vildu fá
fróðleik heldur og ferðamenn
frá útlöndum, sem þama voru
að glugga í verkin og leituðu
skýringa, sem hvergi fundust.
—JP
% Hver vann f happ-
drættinu?
Kona skrifan
„Hvernig var þetta meö happ
drættið, sem staðið var að til á-
góða fyrir byggingu barnaheim-
ilis aö Tjaldanesi?
Ég keypti i því miða á 300 kr.
árið 1969, og á þeim miða stend
ur að dráttur hafi átt að fara
fram 23. des. það ár.
Vmningar voru auglýstir 3ja
herb. fbúð. flugferð til Miami
og önnur flugferð til Mæjorku.
Það hefur aldrei verið dregið
í þessu happdrætti mér vitan-
lega. Á miðanum er gefið upp
sfmanúmerið 33009 og er ég
hringdi { það, þá svaraði einhver
kona, sem kvaðst löngu uppgef
in á þessu happdrætti, en benti
mér á að hringja í Friðfinn Ólafs
son, forstjóra...“
HRINGID í
SfMA 1-16-60
KL13-15
.
• ' ,:V :
Trésmiðjan Víðir
auglýsir
BORÐSTOFUHÚSGÖGN sem allir geta eignazt
Greiðsluskilmálar: 2.000 kr. útborgun og 1.500 kr.
á mánuði.
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt.
Verzlið í Víði
Laugavegi 166 — S'imi 22229