Vísir - 06.07.1971, Síða 13

Vísir - 06.07.1971, Síða 13
13 V ISIR . Þriðjudagur 6. júlí 1971. a u Bftferð trj Akureyrar og ttl baka: Kostar bíleiganda 2300 kr. ea þá er fastakostnaðurinn ekki reiknaður með það kostar bíleiganda 2.300 kr. að aka til Akureyrar og til baka með smáakstri um bæinn. Þessa tölu fékk Fjölskyldusíðan út í viðræðum við Guðlaug Bjö/gvinsson framkvæmdastjóra FÍ.B. en hann er nýkominn heim úr ferðalagi með íjölskyld una ti'l Akureyrar. „M&r reiknaðist til að þetta væru þúsund kíiómetrar“ sagði Guðiaugur. „Það eru 448 kíló- metrar hvora leiö og akstur um bæinn. Ef við reynum að fara milli veginn og áætlum að bíllinn eyði 10 lítrum af bensíni á hundrað kílómetra, bensínlítr- inn er 16 kr., þá fara 1600 krón ur í 1000 km akstur. Eftir hverja þúsund kílómetra þarf að smyrja bílinn, í það fara 300 kr. Hjólbaröaslit reiknum við á 400 krónur“. í þessu reikningsdæmi um það hvað það kostar, að ferðast á eigin bíl eru ekki teknar með afskriftir eða annað sem tilheyr ir föstum kostnaði bílsins, held- ur aðeins það, sem bileigandinn þarf að borga beint úr vasanum eftir og meðan á ferðalaginu stendur. í^uðlaugur var spuröur að því, hvað hann ráðlegöi fólki að hafa með séf í ferðalagið við- komandi bílnum. „Það má benda fölki á að fá sér plastpoka, sem hægt er að hafa innan í plastgrind og hægt að geyma svefnpokana í og ann an viðleguútbúnað, en reyndar stórskemmdi ég lakkið á bfln- um mínum þar sem þess konar plastpoki náöi að liggja utan í lakkinu og komst að bleyta, er eyðilagði lakkið. En það er einn- ig hægt að fá plastdúk, sem hægt er að binda niður og teygj ur til að krækja yfir toppgrind ina. En 3—4 manna fjölskylda kemur viðlegubúnaöi ekki fyrir í farangursrýminu. Þá bendi ég ökumönnum á að fá sór eitthvað af varahlutum t.d. aukakveikju- lok, platínur, kerti, kveikjuham- ar og viftureim. Þetta myndi ég eindregið ráðleggja ökumannin- um aö hafa með sér. Cvo eru það rúöubrotin, sem eru svo aigeng. Þaö er nauð synlegt fyrir ökumanninn að hafa uppi á þeim bfl, sem olli brotinu, ?á nafn hans og bílnúm er, það er einnig nauðsynlegt að hafa í bilnum hjá sér einhvern óskyldan, sem ekki telst t«l fjöl skyldunnar, sem vitni, að ifðrum kosti fæst skaðinn ekki bættur úr tryggingum nema bíllinn sé sérstaklega tryggður fyrir rúðu- brotum t.d. með kaskótryggingu. Þegar rúðubrot koma fyrir er nauðsynlegt að setja plast fyrir rúöurnar. — Ve'gaþjónustubílar hafa plast til þess að stinga í rúöur til bráðabirgða, sem hefur verið útbúið sérstaklega fyrir F.Í.B. Vegaþjónustan lemur brot in úr og setur plastið yfir. Það er til mjög einfalt ráð til þess að koma í veg fyrir rúðubrot, en það er að bílstjór- ar dragi úr feröinni, þegar þeir mæta bílum. Rúðubrotin verða vegna þess, að menn standa á bensíngjöfinni þegar þeir mæt- ■ - ...........■ ■ ■ ..:■■■"-■' ;■■■■■’. ast og það er svo mikill snún- ingur á afturhjólunum að þau þeyta möl upp úr veginum. Þá er nauðsyn'Iegt að hafa Ijósin á, þegar ekið er í rykmekki". Guðlaugur varar bílstjóra ein- dregið viö því að aka með brotna rúðu. Gusturinn, sem kemur inn um gluggann er Iúmskur og getur verið mjög hættulegur heilsunni. Og í raun mim þaft vera skyn- samlegast fyirir bílstjóra aö hafa plasthlíf fyrir brotinn glugga með í bílnum, þegar h'ald ið er af stað f ferðalagið, það sparar óþarfa töf og jafnvel að en verra hijótist af, ef bílstjór inn gerist svo óvarkár aö aka meö brotna bíltúöu. —SB Guðlaugur nýkominn úr Akur eyrartúmum — bensínkostn- aðurinn nam 1600 krónum. ■ er orðin 360 síðna litprentuð bók í Mliegri möppu, sem inniheldur allt sem viðkemur konunni og heimilinu. VÍSIR í VIKULOKIN er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun til ným. áskrifenda. (nokkur tölublöð eru þegar uppgenginí) fylgir aðeins til fastra áskrifenda. Vönduð mappa getur fylgt á kostnaðarverði. VÍSIR í VIKULOKIN VÍSIR í VSXULOKIN

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.