Vísir - 28.07.1971, Qupperneq 5
1TÍSIR . Miðvikudagur 28. júlí 1971.
Keflvíkingar
til
— vandamál, sem verður að leysa, kom
fram / gær / sambandi við Laugardalsvöllinn
— Eins og málin standa
nú eru litlar líkur á því,
að hið fræga lið Totten-
ham leiki hér á landi
gegn Keflavík í Evrópu-
keppninni, sagði Haf-
steinn Guðmundsson,
formaður íþróttabanda-
lags Keflavíkur, þegar
Íþróttasíðan náði tali af
honum rétt eftir mið-
nætti í nótt, en Haf-
steinn var þá nýkominn
af stjórnarfundi banda-
lagsins.
— Viö sendum fþróttabanda-
lagi Reykjavíkur fyrir nokkru
bréf og óskuðum eftir þvi að
fá Laugardalsvöllinn leigðan
hinn 15. ^eptember fyrir Evr-
ópuleikinn, en fengum í gær
svarbréf frá ÍBR, þar sem okkur
var tilkynnt, að völlurinn væri
ekk; til reiðu fyrir annan Evr-
ópuleik í vikunni 13. —19 sept-
ember ef Fram kemst áfram i
•Evrópukeppni bikarhafa, sem
félagið tekur þátt í.
Jafnframt benti stjórn ÍBR
okkur á að reyna að fá leikinn
við Tottenham hér heima hinn
Tottenham erlendis?
22. september þar sem Totten-
ham væri þá ekki í keppni. Viö
hringdum strax út ,í gær og
ræddum við forráðamenn Tott-
enham en þá kom í ljós, að lið-
ið leikur þann dag gegn Italska
liðinu Bologna í árlegri keppni
enskra og ítalskra liða og þar
sem Tottenham sigraði í deilda-
bikarnum enska tekur það þátt
í keppninni
ÍBK þarf að vera búið að til-
kynna leikdag og leikstað til
Evrópusambandsins þann 31.
júlí — eða eftir þrjá daga —
og eins og málin standa nú sjá-
um við ekki fram á annað en
að semja við Tottenham um að
leika báða leikina í Lundúnum.
Ef við verðum ekki búnir að
tilkynna leikdag fyrir 31. júli
mun Evrópusambandið sjálft á-
kveða leikdag og leikstað.
Það var rætt um það á stjórn-
arfundinum í gærkvöldi, hélt
Hafsteinn áfram, að hafa leik-
inn í Kefiavík, en greinilegt að
það er útilokað. Aðeins l’itið brot
þess áhorfendaifjöida, sem ’íiéf-
ur áhuga á að sjá leikinn, gaéti
komizt fyrir á áhorfendaséasð-
inu í Keflavík og þar mundi
allt fara í eina endaleysu og
yrði misheppnað fyrir áhorfend-
ur og leikmenn. Ef við getum
ekki fengið leikinn á Laugar-
dalsvellinum einhvern tima í
vikunni 13.—19. september verð
um við að leika úti.
Þetta sagði Hafsteinn Guð-
mundsson meðal annars í nótt,
en íþröttasíðan fær ekki betur
séð en þessi neitun ÍBR á af-
notum af vellinum sé vægast
sagt mjög hæpin — og gætir
þar mikillar þröngsýni, að leyfa
Keflvíkingum ekki að reyna að
semja um leikinn við Tottenham
mánudaginn 13. sept. eða þriðju
daginn 14. eða þá jafnvel
fimmtudaginn 16 sept. Að þv’i
ska! nú vikið.
1. Fram mun leika báða
leiki sína í undankeppni
Evrópukeppnj bikarhafa á
Möltu og fara þeir sennilega
fram 28. ágúst og 1. sept-
ember. Komist Fram ekki á-
fram hefur liöið ekkert að
gera við Laugardalsvöllinn
hinn 15. september og það
verður að segjast eins og er,
að mun minni líkur eru á
því en hinu, aö Fram verði
sigursælt í þessum leikjum
á Möltu. Erlend lið hafa
sjaldan náð þar árangri, og
fyrst Real Madrid og Manch.
Utd. hafa ekkj getað sigrað
þar, eru varla miklar líkur
á því að Fram takist bað.
2. Nú, ef svo ólíklegt tekst til,
að Fram sigrar á Möltu og
kemst í 1. umferð keppn-
innar á það fyrir höndum
leiki við Steaua frá Búkarest
og ekki mundi það lið draga
að marga áhorfendur hér á
landi. Og hvaða tryggingu
hefur ÍBR fyrir því, að Fram
velji ekki sama kost og gegn
Möltu-liðinu. að leika báða
leikina við Búkarest-liðið i
Rúmeníu? — Það væri kald-
hæðni örlaganna ef ÍBK yrði
neitað um Laugardalsvöllinn
og svo/ef Fram kemst áfram
léki það báða leikina erlendis.
3. Og ef Fram sigrar á Möltu
er það þá víst — og hefur
ÍBR kynnt sér það mái nið-
ur í kjöiinn — að Fram eigi
fyrri leikinn gegn Steaua
á heimavelli hinn 15. sept-
ember?
Það skal að vísu viðurkennt,
að ÍBR hefur vissar skyldur
gagnvart Reykjavíkurliðunum,
en hefur ÍBR ekki einnig siö-
ferðilegar skyldur gagnvart
reykvískum áhorfendum, sem
borga milljónir króna í aðgangs-
eyri á knattspyrnuleiki á Laug-
ardalsvellinum á hverju sumri?
Finnst stjórn ÍBR rétt að ræna
þá þeirri ánægju að fá að sjá
eitt frægasta knattspyrnulið
heims í keppni á jafnhæpnum
forsendum og neitun a afnot-
um af Laugardalsvelli fyrir
Keflvíkinga hinn 15. sept.
byggist á?
Hér hefur verið bent á ein- .
faldar staðreyndir, og ég trúi
því ekki að óreyndu, að ÍBR
hliðri ekki til í þessu máli og
leyfi Kerflvl'kingum afnot af
Laugardalsvellinum til dæmis
13. september. Ef svo ólíklega
vildj til, að Fram léki
hér heima hinn 15. september
gegn Steaua efast ég um, að
það mundi draga mikið úr að-
sókn þó Tottenham hefði leikíð
tveim dögum áður. Stjórn ÍBR
veit áreiðanlega, að það er
margt svipað um knattspyrnu
og til dæmis harðfisk. Ef maður
byrjar á að éta harðfisk er erf-
itt að hætta meöan eitthvað er
til. Það er eins með knattspyrn-
una. Ef menn byrja að fara á
leiki, þá halda þeir því oftast
áfram. Þannig gæt; Tottenham-
leikur 13. sept. aðeins aukið
aösókn að.leik Fram 15. sept.
—: sem eins ög bezt er að viður-
kenna að iitlar líkur eru á að
verði nokkur.
Það er ekk; oft, sem íslenzk-
um áhorfendum gefst kostur á
að sjá eitt bezta félagslið heims
— en til þess er nú tækifæri
vegna óvenjulegrar heppni
Keflwíkinga Af þeim liðum,
sem til islands hafa komið er
aðeins Benfica. sem hefur sama
aðdráttarafl og Tottenham, og
man ég þá vei eftir liðum eins
og Arsenal. Liverpool, Everton
og Ferensvaros. Hvaða ís3. á-
hugamaður hefur ekki hug á því,
að sjá Mullery Peters, Chivers,
Coates — fjóra meöal frægustu
leikmanna enska landsliðsins,
Jennings og Kinnear, I’rlandi,
Alan Gilzeah, Skotlandi Mike
England. Wales og Cyril
Knowles, Englandi? — Níu
■landsliðsraenn býöur Tottenham
upp á: Það geta liðið áratugir,
þar til okkur gefst annað eins
tækifæri. Og að siðustu: Á að
ræna íslenzka áhorfendur þeirri
ánægju? — Nei. það eru vin-
samleg tilmæli til ÍBR að kippa
þessu máli 'i liðinn. Til þess er
tækifæri, en krefst aðgerða
strax. — hsím.
ÍSLANDSMET í SUNDI -
ANNAÐ JAFNAÐ í GÆR
Hinn ungi Akurnesingur,
Guðjón Guðmundsson,
setti mjög gott íslandsmet
í 100 m bringusundi á sund
Valur gegn
landsliðinu
Afmælisleikur - í tiiefni af 60
ára afmæli Vals fyrr á þessu ári
— verður háður á Laugardalsvell-
inum annað kvöld og leikur meist-
araflokkur Vals þá við landslið,
sem Hafsteinn Guðmundsson mun
velja i dag.
Eins og kunnugt er verður lands-
ieikur við England eftir viku á
Laugardalsvellinum — næsta mið-
vikudag — og ætti þessi leikur
annað kvöld því að vera góð asf-
ing fyrir landsliðsmenn okkar.
móti, sem haldið var í
Sundlaug Hafnarfjarðar í
gærkvöldi. Hann synti
vegalengdina — og sigraði
— á 1:10.4 sek. og bætti
met Leiknis Jónssonar,
sem var 1:10.6 mín. og var
eitt bezta íslenzka sund-
metið.
Keppnin í sundinu var mjög
skemmtileg. í öðru sæti varð Hilde-
brandt, Þýzkalandi, á 1:11.1 mín.
Guðmundur Gíslason sá fjölhæfi
kappi, varð þriðji á 1:12.9 mín.
og Leiknir varð fjórði á 1:13.2 mín.
Á mótinu náði Guðmundur Gísla-
son mjög góðum árangri í 100 m
flugsundi og jafnaði íslandsmet sitt
á vegalengdinni 1:01.6 mín. Hann
sigraði einnig i 100 m skriðsundi
á ágætum tíma 57.4 sek., en á
bezt í 25 m laug 56.8 sek. Annar
í því sundi varð Robert Teschner,
Þýzkalandi, á 59.5 sek.
Allir þýzku sundmennirnir, sem
kepptu á sundmeistaramótinu, voru
meðal keppenda í gærkvöldi og
þar sigraði hin fræga sundkona,
Heike Nagel í 100 m bringusundi
á 1:21.7 m’in. Ingibjörg Haröar-
dóttir var fyrst í 100 m flugsundi
á 1:18.8 min. og Dagmar Lippert
í 100 m baksundi kvenna á 1:20.4
mín. Þar varð Ingibjörg Ólafsdóttir
frá Hornafirði i öðru sætj á 1:22.2
mín. Og í 100 m baksundi karla
sigraðj Claus Schmidt á 1:05.1 mín.
íslenzka sundfólkið lagði ekki
mikla áherzlu á þetta sundmót.
Nú ganga landsliðsæfingarnar fyrir
öllu og því var æft á mánudags-
kvöld og eins í gærmorgun — eins
og ekkert mót væri framundan.
Góður árangur náðist þó v’iöa eins
og tímar Guðjóns og: Guömundar
bera með sér. Þess má geta, aö
keppt var í 25 m laug, en íslands-
met eru bæði skráð í 25 m laug
(innanhússmet) og i 50 m laug.
Þessi mynd var tekin eftir 200 m bringusund á meistaramótinu,
en þar sigraöi Leiknir Jónsson. — Til vínstri er Guöjón Guð-
mundsson, sem setti ágætt íslandsmet í gærkvöldi. Ljósm. BB.