Vísir - 06.08.1971, Qupperneq 1
LÉLEGRI EN
LANDPÓST ARNIR!
Á öld þotunnar stendur íslenzka
póststjómin enn í sömu spor-
um varðandi dreifingu á pósti
hér innanlands, — okkur hefur
jafnvel hrakað frá tíð 'andpóst
anna. I júK sl. gerö; Vísir at-
hugun á því hvað daglegur póst
ur er íengi að berast milli
tveggja staða hér innanlands.
Útkoman var hryggileg fyrir
Póst og síma. — SJÁ LEIÐARA
VÍSIS I DAG — BLS. S.
Þr'ir 'islenzkir skátar á ofviðrissvæðinu i Japan:
VORU FLUTTIR 1 SKJÓL
1 NÁLÆG BÚDDAMUSTERI
Þátttakendur í Jam-
boreemótinu í Japan
mun ekki hafa sakað í öf
viðrinu þar samkvæmt
erlendum fréttum í morg
un. Ofviðrið er eíttnveri
hið versta, sem orðið hef
ur í Japan. Óttazt er, að
60 hafi farizt. Þátttak-
endur í 13. alþjóðamóti
skáta, Jamboree, hafa
verið fluttir brott frá
tialdsvæðinu og eru þeir
nú í Búddamusterum,
skóíum og herbúðum í
grenndinni.
Þrír íslendingar sækja mótið,
Eggert ísberg, Haukur Haralds-
son og Eggert Lárusson. Þeir
eru þar á eigin vegum, þar sem
Banda'.ag íslenzkra skáta gat
ekki borið kostnaö af þátttöku
í móti, þegar svo langt þurfti að
fara.
Á óveðurssvæöinu höfðu í
morgun fundizt 27 lík, og 33ja
var saknað og óttazt. að þeir
hefðu farizt í skriðuföllum og
flóðum.
Óveðrið náði allt til Kóreu. í
Suður-Kóreu haía tuttugu farizt.
Óveðrið olli þar skriöuföllum.
Um tvö þúsund manns hafa
misst heimili sín í Suður-Kóreu
á óveðurssvæðinu.
Bandalag íslenzkra skáta hafði
í morgun ekki fengið nein skeyti
um hag íslenzku skátanna.
Á mótinu munu vera um 16
þúsund skátar frá ýmsum lönd-
um heims. Mótið var haldið við
rætur hins kunna eldfjal’.s
Fujiama. — HH
Straumsvikurdómurinn:
Dómurinn okkur mjög í óhag
— en aðilar verjast eindregið allra frétta
Flugu í sælunu í
Herjólfsdul
Það var allt í sælunni hjá þessum
tveim, þegar ljósmyndari Vísis
smeUti af þeim mynd klukkan hálf-
ellefu-I morgun. Þau voru þá á leið
inni úpp í Flugfélagsvél sem flutti
bau til þjóðhátíðarinnar í Eyjum, en
þangað flytur Fí um 600 manns í
dag og nokkra til viðbótar á morg-
un. — Hvort þau þessi hefðu farið
á þjóðhátið í Eyjum? „Já ég árið
1967 en hún hefur aldrei komið til
Eyja. Við ætlum ,að búa í tjaldi
í Herjólfsdal um helgina“, sagði pilt
urinn og var að svo mæltu horfinn
með vinkonuna upp í flugvélina.
—ÞJM
--------------------------<?>
,Jrúi ekki oð
dýrunum hafi
fækkað svo
• •• ✓/
mjog
— segir Egill Gunnarsson
6 Egilsstöðum i Fljótsdal
„Það má búast við, að menn
verði óánægðir og komi með
gagnrýni á talninguna“, sagði
Egill Gunnarsson bóndi á Egils
stöðum í Fljótsdal í viðtali við
Vísi í morgun, en hann er eft-
irlitsmaður með hreindýrum.
Niðurstöður hreindýratalningar-
innar haifa verið gerðar kunnar og
kom þar fram, að hreindýrum hefði
fækkað um 675 frá síðasta ári og
að' menntamálaráðuneytið muni
ekki heimila hreindýraveiðar í ár.
Egill taldi, að ekki gæti verið
um svo mikla fáekkun dýranna að
ræða og að of áliðið hafi verið orð
ið, þegar hreindýratalningin fór
fram 21.—23. fyrra mánaðar þann-
ig að erfitt hafi verið að sjá hrein-
dýrin végna litar á feldinum. Þó
taldi hann, aö talning gæti einnig
orðið erfiðari fyrir þá sök, að hrein
dýrip hafi dreift sér meira og jafn
vel/að þau hafi lent í verri högum
vej’ að þau haf lent í verri högum
og kunni það að hafa haft áhrif á
fjölda þeirra.
Hann sagðj að bændur þar aust-
ur frá stunduðu mestmegnis hrein-
dýraveiðar og séu ekki ánægðir með
útkomu talningarinnar. — SB
Niðurstaða gerðardóms í máli
Hochtief á hendur Hafnarfjarð-
arkaupstað vegna framkvæmd-
anna i Straumsvíkurhöfn liggur
nú fyrir.
Eftir því sem Vísir hefur frétt af
ínnihatdi þeirra, mun það hafa ver
ið mat gerðardómsins að verktak-
inn eigi rétt til frekari greiðslna —
og það verulega stórra fjárhæða.
Eins og kunnugt er gerði þýzki
verktakinn Hochtief kröfu til 300
milljón króna greiðslu úr hendi
Hafnarfjarðarhafnar (eða Vita- og
hafnamálaskrifstofunnar fyrir hönd
kaupstaðarins) — til viðbótar þeim
greiöslum, sem þegar hafa veriö
inntar af hendi til uppbótar á ó-.
fyrirsjáanlegum kostnaði við fram
kvæmdirnar.
Niðurstöður gerðardómsins eru
nýkomnar í hendur aðilanna hér
heima, og fréttamanni Vísis var
skýrt svo frá, að meðan aðilar væru
ekki búnir aö hittast til þess að
ræða niðurstöðurnar og kynna sér
þær ítarlega, yrðu þær ekki gerðar
kunnar. —GP
Hershöfð-
ingjar „jafn-
vægisins"
Föstudagsgrein Þorsteins Thor-
arensens í blaðinu í dag fjallar
um einhver ægilegustu fjölda-
morg sögunnar og manninn að
baki þeirra Jaja Kan, forseta
Pakistan.
Sjá bls. 8
Margir hafa
misst flug-
hæfniskír-
teinin
Hvernig er háttað eftiriiti með
flugi og flugmönnum? Lfklega
veit almenningur fátt um þau
efni. í viðtali í Vísi f dag er
rætt við Sigurð Jónsson for-
stöðumann loftferðaeftirlitsins
um þessi mál. — „Skírteinin
hafa verið tekin af þó nokkuð
mörgum fyrir gáleysislegt flug“,
segir Sigurður. „Ekki eru sendar
kærur til yfirvalda vegna þess,
heldur afhenda menn skírteinin
I góðu. Glannalegt flug held ég
hafi minnkað með árunum.“
Sjá bls. 9
Páfinn í
stríði við
stuttbuxurnar
Vatíkanið er í stöðugu stríði
við bem tovenleggi og læri. Stutt
buxurnar og pínupilsin eru páf
anum og hans möinnum þymir í
augum. Réðist páfi harkalega að
klæðnaði þessum (eöa tolæð-
leysi) í ræðu, sem hann flutti ný-
lega. Fyrir ungar íslenzkar
stúlkur, sem ætía að heimsækja
Róm og þar með Vatíkanið á
næstunni, er ráðlegt að lesa sér
betur til um þessi efni.
Sjá bls. 2