Vísir - 06.08.1971, Síða 13

Vísir - 06.08.1971, Síða 13
Myndskreyting á danspalli er með ýmsu móti. Þar er á kómískan hátt komið inn á ýmis heiztu deilumálu síðustu daga, svo sem eins og hundahald og brennivínsmál, sem hafa lengi verið mikil hitamál í Eyjum. Þar er ýmist kosið um þaö hvort „ríkið“ skuli opnað eða hvort loka beri þvl. ÞJOÐHATIÐ UNDIR KÍNVERSKUM ÁHRIFUM Vestmannaeyingar eru nú sem óðast að flytja inn í Herjólfsdal, reisa þar tjöld og flytja þangað vistir til hátíðahalds. Þjóðhátíð in í Eyjum verður að þessu sinni öllu íburðarmeiri en endranær, þar sem jafnframt verður minnzt 50 ára afmælis íþrótta- félagsins Týs. Félágið var stofn að 1. maí 1921. Herjólfsdalur minnir jafnan dálítið á Tívoff, þegar hann er kominn i þjóðhátíðarbúning. — Tjörnin í dalnum er ljósum skreytt. Danspöllum hefur ver ið slegið upp með alls kyns skreytingum og pírumpári. Og í dalnum hefur meira að segja risið kínverskt hof. Hliðið inn á hátt'ðasvæðið minnir á hhöið á Garði hihs himneska friðar. —■ Auk þessara kínverskú ‘ahrfFa, sem hátfðasvæðið hefur orðið fyrir má sjá þar merki geim- ferðaaldarinnar í einbvers lags spútnikskreytingum Guðjón Ól- afsson skrifstofumaður og fjöl- listamaður í Eyjum hefur ann- azt skreytingar í dalnum með aðstoð annarra innfæddra kúnstnera. Uppi á Fjósakietti.gnæfir.svQ heljarmikili bélkösttir, sem lýsa mun,'úpþ daliiin i 'ágúströkkrinu á föstudagskvöld, þegar kveikt verður í honum. Stórt og mikið hof hefur risið af grunni í Herjóifsdal og mikl ar ljósaskreytingar hafa verið settar upp í dalnum. Búast má við að mikill fjöldi fólks sæki þjóðhátíð ofan af landi eins og endranær, þótt verzlunarmannahelgin sé nýaf- staðin með öllum sinum ferða- lögum og skemmtimótum. — Eyjaskeggjar munu að sjálf- sögðu sækja hátíðína eins og endranær hver sem vettlingi get ur valdið utan þeir sem flytja upp á land þessa helgj undan öllu tilstandinu og verða sér úti um ró og næði uppi í sveit. —-JH i‘ * * ***»*^************* A*A****a* • aaaaaaaaaaaaaaaaa a* AAáAdyfcrfyi Ai VÍSIR í VIKULOKIN er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun til ným áskrifenda. (nokkur tölublöð eru þegar uppgengin) er orðin 388 síðna litprentuð bók í fallegri möppu, sem inniheldur allt sem viðkemur konunni og heimilinu. VÍSIR í VIKULOKIN VtSIR ÍVIKULOKIN ** _________; VÍSIR í VIKULOKIN fylgir aðeins til fastra áskrifenda. Vönduð mappa getur fylgt á kostnaðarverði.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.