Vísir - 06.08.1971, Page 16

Vísir - 06.08.1971, Page 16
ISIR Föstúdagur 6. ágúst 1971. Nýi skut- togarinn mánuð i vélarbilun — Hólmatindur hefur aflað 1600 lesta frá þvi hann kom til landsins Nýi skuttogarinn, Hólmatindur frá Eskifirði, hefur tafizt alls nær hálfan mánuð frá veiðum vegna vélarbi'.unar. Hefur af þeim sökum dofnað mjög yfir öllu atvinnulffi á Eskifirði. Togarinn hefur verið að véiðum síðan í febrúar i vetur og ér afli hans orðinn 1600 lestir. í sumar bilaði svo spilvél skipsins og tók viku að gera við vélina, en skiþið var ekki fyrr komið á sjó áftur. en vélin bilaði enn Varð þá að fá nýja vé! í skipið og hefur hað því legið síðan 16. júlí í Tevkjavíkurhöfn. Búizt er við að vélin verði komin á sinn stað um helgina og Hólmatindur geti aftur !:omizt á veiðar og hleypt nýju lífi í atvinnu á Eskifirði. Systurskip Hóimatinds, Barði frá Neskaupstað heíur lika orðið fyrir ‘ömu bilunum, en ekki eins a’.var- !égum. Þessi skip voru sem kunn- ugt er keypt frá Frakklandi í vetur eg hafa verið gerð út eystra með 'lóðum árangri. Eru þetta fyrstu og ?inu verulegu gallarnir sem fram koma, en spilvélar skipanna virðast hafa verið o? lit’.ar. — JH Dýrabein og merki um vegghleðslu fundust í gær 1 — Erfitt að ákveða aldur beinanna og gerð þeirra — Uppgröfturinn / Uppsalagrunni heldur áfram fram i miðjan mánuðinn „Við fundum í gær far eða rák eftir trjábút eða fjöl, er líklega hefur ver ið partur af veggjar- hleðslu“, sagði Þorkell Grímsson, fornleifafræð ingur er Vísir hitti hann í Uppsalagrunninum í Aðalstræti í morgun. Sagði Þorkeli að ekki væri gott að segja ákveðið til um, hv ;r b"r sá er nú er grafinn upp hafi staðið — fornleifafræðing- arnir græfu könnunarskurði í ýmsar áttir og fyndu þannig hvernig bærinn hafi staðið — ef um bæ er að ræða. Óvéfengjanlega hefur fólk bú- ið á þessum slóðum um eða fyr ir landnámsöld. hið fyrsta sem benti ákveðið til þess voru nagl ar þeir er fundust fyrir um hálfum mánuði þar í grunninum, voru þeir 2 talsins og senni- lega fyrstu naglarnir sem notað ir hafa verið á íslandi — að því er Schönbeck fornleifa- fræðingur hélt fram við Vísi. Þá fundust f gær leifar af dýrabeinum. Vont er að ákvarða aldur slíkra leifa, og tekur lang- an t'ima, en þessi bein, sem fund izt hafa. voru flutt til rannsókn ar og er niðurstöðu beðið. Greftrinum í Aðalstræti verður haldið áfram fram í miðj an þennan mánuð og svo haldið áf-ram næsta sumar. — GG Viðarkol, sem næsta lítið er eft ir af fundust í gær í Uppsala- grunninum. Þorkell Grímsson, fomleifafræðingur borgar þarna í skurði þar sem kolin fundust, og rákir í skurðveggnum benda til aö þarna hafi verið trjábútur eða planki, hluti af veggjar- hleðslu. Þorkell er lengst til vinstri á myndinni. Veiddu síld fyrir 45 milljónir í síðustu viku Síldaryertíðin.í Noröursjó fer nú óðum að styttast, þar sem veiði- bann tekur gildi nú 20 ágúst og munu þá 50 íslenzk skip, sem tundað hafa veiði þar suður frá í sumar snúa heim. Veiðibanniö stendur til septemberloka. Ágæt veiði hefur verið í Norðursjó að ■■ndanfömu og verð haldizt stöðugt. { síðustu viku fengu íslenzku skip- in 3060 lestir, og meðalverð fyrir est var nærri 15 kr. fyrir kílóið. "leildarverðmæti aflans f vikunni varð 45,7 milljónir. 50 íslenzk fiskiskip eru við síld- veiðar i Norðursjó og skipverjar á þeim munu alls vera nærri 700. Margar sjómannskonur, sem eiga menn sína að veiðum þarna hafa brugðið sér til Danmerkur í sumar og hitt menn sína í 'andlegum í Skagen, þar sem skipin hafa oft viðkomu. Hafa nokkrar skipshafn- ir og útgerðarfélög tekið á leigu hús þar í bæ til þess að konurnar geti haft samastað, meðan þær bíða eftir körlunum. — JH Mjög góð laxveiði fyrir norðan — áberandi hvað Islendingar veiða meira en erlendir menn Sameiginlegt sjónvarp fyrir Norðurlöndin? Laxveiði gengur víðast hvar á landinu til muna betur en í fyrra ef hún skal metin í aflatölum, eins og t.d. karfaveiðar. Á-r á Norðurlandi hafa langflesta'r skilað mun fleiri löxum í sumar en í fyrra, en stöku á er þó heldur lakari en í fvrra og hélt Einar Hann esson hjá Veiðimálastofnuninni, að það stafaði af þv-í aö útlendingar væru með þær ár á leigu, „og þeir taka laxveiðina öörum tökum en íslendingar. Yfirleitt eru útlend- ingar, sem hér eru í laxi auðugir menn sem eru að þessu einvörð- ungu fyrir útivistina, þurfa ekki að hugsa um að veiða fyrir veiði- leyfinu". sagði Einar, er Visir spja'l aði við hann í morgun. Kringum mánáðamótin júlí— ágúst voru um 700 laxar komnir á land á Blöndu-svæðinu, þ. e. Blöndu sjálfri og Svartá, en á sama tíma i fyrra voru þeir aðeins um 400 Árnar í Húnavatnssýslu eru enda hærri yfirleitt, svo sem Laxá í Ásum meö 700 laxa, Miðfjarðará með 45S (234 í fyrra). Víðidalsá er lægri nú en á sama tíma i fyrra, enda veiða þar aða’.-- lega útlendingar að sögn Einars Hannessonar, „en það getur vel verið að Viðidalsáin rétti við hvað aflatölur snertir", sagði Einar, „þeg ar íslendingar fara aftur að veiða þar“. — GG Fjórir fulltrúar í Norðurlanda ráði hafa borið fram tillögur um, að ráðið beiti sér fyrir því við ríkisstjórnir Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, Finn- lands og íslands, að sett verði á stofn sérstakt sjónvarp fyr ir Norðurlöndin sameiginlega til viðbótar eigin sjónvarpi þjóðanna. Tillagan hefur verið lögð fyr- ir danska rfkisútvarpið. I svari sinu vísar ríkisútvarpið til nið- urstöðu útvarpsráðs. þar sem litlir möguleikar eru taldir á að koma á fót sameiginlegu sjón- varpi fyrir Norðurlönd, eftir að bæði Svíar og Finnar hafa byrj- að sendingar tveggja dagskráa og TV-2, „sjónvarp-2“. er sent á þeim rásum, sem voru lausar og hefði mátt nota til sameigin- legs sjónvarps fyrir löndin. - H'H UNGLINGATÍZKAN SÝND í POPP-TJALDI — Stærsta tjald landsins sett upp i Laugardalnum um helgina Tvö tjöld verða notuð sem sýn- ingarskálar á Alþjóðlegu vörusýn- ingunnj í Laugardalnum. Byrjað verður að reisa annað tjaldið, það stærra á morgun. en það er 1100 fermetrar að stærð og eflaust stærsta tjald, sem „tjaldað“ hefur verið á islandi. Verður það vestan megin við Laugardalshöllina. Hitt tjaldið er hringlaga „popp“tjald og er rúmlega 300 fermetrar að stærð. Þar verga sýnd föt og sportvörur fyrir yngri kynslóðina. Undirbúningur að vörusýning- unni er nú í fullum gangi, en hún verður opnuð 26. ágúst. Sýningar- deildirnar verða um 200 talsins en framleiðendur 900, flestir erlendir. Hinn 17. ágúst byrja sýnendur að ganga frá sýningardeildum, en þá verður ytra borð deildanna koinið upp. — SB

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.