Vísir - 10.08.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 10.08.1971, Blaðsíða 1
Hert á Útlánaaukning bankanna meiri en til stóð Útlánaaukning bankanna hef- ur verið nokkru meiri en stefnt hafði verið að, það sem liðið er af árinu. Að því var stefnt, að útlán skyldu aðeins aukast um sem næst tólf af hundraði í ár, en aukningin fram til 1. júlí nam rúmum sextán af hundraði. Xítlán. viðskiptabanka og spari- sjóða jukust um 2.372 milljónir fram til 1. júl'í. Heildarlán námu í árslok 14.428 milljónum króna, svo aö hér er um sem næst 16,4% aukningu aö ræða. í fyrra fór aukningin fram úr stefnumiðinu, og var hún þá um 18 af hundraði, en stefnt hafði ver- Okkar eigið korn í dag 700 tonnum af korni landað i nýja korn- turninn i dag Við byrjum að mala okk 17 í dag. Halldór E. Sig- ar Korn sjálfir klukkan urðsson, fjármálaráð- Sigurður Gunnarsson, eini starfsmaður Kornhlöðunnar við stjórn- borð hennar. Tæknin sér fyrir því, að starf Sigurðar verður næsta rólegt, nema tvisvar á dag verður hann að hlaupa upp og niður hin 280 þrep, sem eru milli efsta og neðsta gólfs turnsins. herra mun þá ýta á ræs- inn og setja alla vélasam stæðuna í gang. Landað verður þá 700 tonnum af korni úr Brú- arfossi, sem nýkominn er frá Bandaríkjunum. Vísir brá sér I morgun í skoð unarferð í Kornblöðuna og átti spjall við Sigurð Gunnars- son, þann er einn mun starfa í Kornhlöðunn| í framtíðinni. Sagði Sigurður okkur, að korn hlaöan tæki 5.300 tonn af maís korni alils, þannig að fvrstu 700 tonnin sem Brúarfoss kemur meö verða ekki til annars en að setja vélar í gang á — „og svo kemur víst ekkert skip aft ur fyrr en i' byrjun septem- ber,“ sagði Sigurður og virtist vonsvikinn, „þegar vélarnar verða orðnar tilkeyrðar, þá verð um við ekkj nema í 7 klukku- tíma að landa þessum 700 tonn um — þ e. 100 tonn á klukku tfmann, en núna meðan þær eru nýjar, mun löndun taka eitthvað lengri tíma, kannski 10—12 tíma.“ Það eru 3 fyrirtæki sem eiga Kornhilööuna til jafns, þ. e. SÍS, Fóðurblandan hf. og Mjólk ursamsalan. Sagði Hjörleifur Jónsson hjá Fóðurblöndunni, að Kornhlaðan kostaði fullgerð meö öl'lum tækjum 58—60 milljónir króna ,,En það borgar sig upp fljót lega,“ sagði Hjörleifur, „það skiptir öllu í sambandi við flutningskostnað hvort það er sekkjað eða malað. Við höfum reyndar flutt inn ósekkjað korn upp á síðkastið, og það er 60— 70% ódýrara að flytja inn ó- sekkjaö korn.“ Vélarnar sem Kornhlaðan hef ur fengið munu færar um að stýra korni úr skipum í mis- munandi geyma — allt að 1200 tonnum samtals þannig að korn hlöðuna má stækka mikið frá núverandi stærð án þess að auka þurfi tækjakostnaðinn — er og fyrirhugað að byggja við hlöðuna þar á bakkanum við Sundahöfn. — GG Að lifa í núinu Aö léta hverjum degi nægja sína þjáningu er af mörgum vís- um mönnum taliö það æskilega fyrir geðheilsuna. Omar Khayám mælti þannig með því að lifa í núinu, en láta hvorki dauðan gærdag né ófæddan morgundag angra sig. En gildir þetta um þjóðfélög jaifnt sem einstakl- inga? Sjá bk. 8 Enginn bað um byrluna Svo furðulegt sern það er þá bað enginn um hina ágætu þyrlu Landhelgisgæzlunnar og SVFÍá dögunum þegar útlendingur einn lá sárþjáður uppi í óbyggð- um heldur var honum dröslað landveginn á sjúkrahús. Pétur Sigurösson, forstjóri Landhelgis gæzlunnar hafði samband við þáttinn og svaraði með því fyrir spurn frá lesanda um þetta efni. Margt fleira er í lesendabréfum. ið að því að halda henni í 16 af hundraðir" Gera má ráð fyrir, að útlán viöskiptabanka og sparisjóða muni einnig í ár veröa nokkru njeiri en stefnt er að. Þess ber þó að gæta, að árstíðasveiflur eru töluverðar í útlánum og júnímánuður .jafnan þungur á vogarskálinni. Aukningin hingað til er því ef til vill meiri en hún mundi verða að óbreyttu á öl'lu árinu. Þó er talið að nú verði áherzla lögð á að draga talsvert úr aukningunni það sem eftir er árs. Sú stefna að halda útlánum í skefjum miðar að því að halda verð- bólgunni niðri og innflutningi. - HH 9 blanda Svissneskur kaupmaöur. sem keypti rússneska sil'furnámu fyr ir tvo sekki af hveiti, var afi Yul Brynner, leikarans dáða. Brynner segist vera furðu- leg blanda, bandarískur leikari, svissneskur ri'kisborgari, og á bæði japanska og mongólska ættingja. — Og svo á hann heima í Normandj í Frakklandi. Þegar Davíð sigraði risann! H Fögnuður áhorfenda og Ieik- manna var ekki svo Btiil 1 gær- kvöldi á Melavelli, þegar Breiða blik úr Kópavogi, botnliðið f 1. deildinni, lagði aö velli „ris- ann“ í deildinni toppliðið Fram. Breiðablik vann með 2:1 og var það sízt of mikill sigur. Þessi viðureign Davíðs og Golíats var sem forðum og Davíð litli fór með sigur af hólmi. \ . ■ ■ -<• sjá ibrótfir bls 4 og 5 ■

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.