Vísir - 21.08.1971, Blaðsíða 3
V 1 S I R . Laugardagur 21. ágúst 1971,
3
Bítlamir á
hljómleikum
— Paul stofnar hljómsveit — „Þú ert aðeins
fallegt andlit.", syngur John um Paul
Það þótti að vonum tíðindum sæta er Paul McCartney
gerði það heyrum kunnugt, að hann væri búinn að stofna
nýja hljómsveit. Ennþá meiri tíðindum þótti það þó sæta,
að hann hygðist koma fram á hljómieikum með hljóm-
sveit sína í haust. Eða með öðrum orðum: Strax og lagaleg
vandamál Pauls í sambandi við hina Bítlana hefðu verið
leyst. — Paul hefur nefnilega ekki látið sjá sig á hljóm-
leikpalli síðan Beatles komu fram opinberlega fram í síðasta
sinn, en það var á árinu 1966.
>ví var það, að öll pop-heims
byggðin greip andann á lofti
er það spurðist, að „nýir Beatl-
es“ færu loksins að stíga fram
í sviðsljósin. Og Paul gat enn
einu sinni brosað kampakátur.
Honum hefur alltaf veitzt auð-
velt að gera rétta hluti á réttum
tíma. Það má jú heita vel af
sér vikið hjá honum, að koma
fram með nýja hljómsveit á
meðan ætla mætti, að hinir Bitl
amir. væru rétt byrjaðir að átta
sig á sundrtmg hljómsveitarinn
ar.
Paul varð þó ekki kápan úr
þvtf klæðinu, að koma fyrstur
Bftllanna fram á hljónfleikum
eftir að Beatles hættu. George
og Ringo — hæglátu Bítlarnir
— trrðu honum fyrri til og á
meðan æskan hér á Fróni naut
verzlunarmannahelgarinnar —
fkrgu þeir tvímenningar vestur
um haf og komu fram á útihljóm
leJkum í New York. Þeim til
aðstoðar vom þeir Leon Russel'l
og Rlaus Voorman, fyrmm liðs
maður f Manfred Mann.
Að hljómleikunum afstöðnum
sneri Ringo þegar í stað til
Spánar, þar sem hann hefur um
nokkurt skeið verið önnum kaf-
inn við að leika ribbalda fyrir
framan kvikmyndavél. Sú mynd
á að bera nafnið ,,Blindman“ og
hennj lýkur á því, að Ringo laét
ur lífið með byssukúlu annars
ribbalda í brjóstinu. — Þetta
er sko kúrekamynd.
George Harrison hefur heldur
ekki haft hægt um sig frá því
Ringó lætur lífið með byssu-
kúlu amerísks ribbalda í
brjóstinu — í kvikmynd.
George Harrison and Friends
nefndi hann hljómsveitina ...
um mánaðamótin. Ferðina tii
Bandaríkjanna hefur hann not-
að til að komast 'í kynni við
hljómsv. Band og svo slóst hann
í hljómleikaför um" Bandarlkin
með fjörulöllunum The Beach
Boys.
Hljómleikar Georgs og Ringós
vörpuðu óneitanlega nokkrum
skugga á hljómsveitarstofnun
Paul, en hann heldur þó ótrauð
ur áfram að æfa upp nýju hljóm
sveitina, en nafn hefur hann
ekki valið henni enn.
Paul hefur hugsað sér að fara
með hlutverk sólógítarleikarans
í hljómsveitinni, en í Beatles
Nú síðast komu þau Lennon
og Yoko fram á hljómleikum
með Frank Zappa.
kroppaði hann f bassa, sem kunn
ugt er. Lindu, konunni sinni skip
ar hann sess við píanóið, en hún
er lagviss með ágætum. Hetfur
meira að segja samið nokkurn
hluta þeirra laga, sem bóndi
hennar hefur flutt á hljómplöt-
um undanfarið.
Aðrir liðsmenn McCartney-
hljómsveitarinnar eru einnig
brezkir og amerískir. Trommu-
leikarann í hljómsveitina varö
Paul sér t.d. úti um í Ameríku er
hann vann að hljómplötu sinni
RAM. Söngvarinn, gítarleikarinn
og lagasmiðurinn Denny Laine,
sem einnig er í hljómsveitinni —
er hins vegar brezkur. Á sfnum
tíma var hann einn af stofnend
um Moody Biues.
Loks má geta þess, að John
Lennon er um þessar mundir að
leggja síðustu hönd á næstu LP
plötu sína. Á þeirri plötu syng
ur hann svo sem við var að bú
ast nokkur lagakorn um hana
Yoko sfha, en það sem er virki-
lega f frásöigur færandi er það,
að hann fjaliar einnig um Paul
McCartney í einum textanna og
þar gefur að heyra laglfnu, se
hljóðar svo: „You were just a
prettv face, and your sounds are
like Muzak to my ears.“ —ÞJM
Paul McCartney nægir ekki,
að hafa sótt konu sína til
Ameríku. Þangað sækir hann
einnig liðsmenn í nýju hljóm
sveitina sína.
Ritstjóri Stefán Guðjohnsen
Spilið í dag kom fyrir í leik milli
Precision Club-sveitarinnar (Gar-
ozzo — Belladonna — Truscott —
I’ayden) við sveit úrvalsliðs S-
Afríku. Staðan var n-s á hættu
og austur gaf.
♦ G
♦ K-10-7
♦ A-7-6-4
4» A-D-l 0-9-2
♦ D-9-6-5-3 4 K-7-2
V A-8-3 * G-5-2
♦ enginn ♦ 9-5-3-2
4 G-8-6-5-4 4 K-7-3
♦ A-10-8-4
♦ D-9-6-4
♦ K-D-G-10-8
♦ ekkert
Þar sem Garozzo og Belladonna
sátu n-s gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
P 14 14 24
34 44 P 4V
P 44 P 4G
P 54. P 6*
P 64 Allir pass.
Gæfan fylgir djörfum og Ga-
rozzo fékk út hjartaásinn frá vestri.
Þetta var mikil hjálp og gerði
raunverulega útslagið. Næst kom
spaði, tekinn á ásinn og síðan var
spaði trompaður í blindum. Sagn
hafi trompaði sfðan tvo spaða f við
bót, fór inn á hendina með því að
trompa lauf og tók trompin af
austri. Hann fékk síðan tvo síð-
ustu slagina á hjartakóng og laufa
ás. Slétt unnið. Hefði vestur spil
að út spaða í upphafi, þá valt
spilið á hjartafferðinni og raunveru
lega var hrein ágizkun hvemig
ætti að spila hann.
Hjartafferðin var einnig örlaga-
rík á hinu borðinu, en þar varð
lokasamningurinn þrjú grönd. Vest
ur spilaði út spaða og sagnhafi
drap á kóng austurs með ásnum.
Aðein átta slagir voru ömggir og
sagnhafi reyndi að fá þann n'funda
með því að svína hiartaníu. Þaö
mishermnaðist og nú kom spaða
sjö Sagnhafi lét áttuna, vestur ní-
ur.a og sfðan kom lauf. Sagnhafi
reyndi svíninguna, en hún mis-
heppnaðist og enn kom spaði. Þrir
niður á hættunni.
Eðlilegra virðist að svína hjart-
anu í gegnum vestur til þess að
fá ekki gegnumspil gegnum spað
ann og sú leið hefði leitt til sig-
urs.
skakLTUVB
Skákþing Norðurlanda var
haldið hérlendis f fyrsta sinn
1950, og varð Baldur Möller
þá skákmeistari Norðurlanda, en
það var í fyrsta skiptj sem ís-
lendingur hlaut þá nafnbót. —
1961 vann Ingi R. Jóhannsson
titilinn hér f Reykjavík og 1964
vann Freysteinn Þorbergsson
hann einnig.
1961 voru Islendingar mjög
sigursælir sigmðu V öllum flokk
um og áttu þrjá efstu menn f
landsiiðsflokki.
Að þessu sinni er það þátt-
taka stórmeistarans Friðriks Ó1
afssonar sem hvað mesta athygli
vekur. Hann hefur ekki teflt
á Norðurlandamótj síðan 1955,
en þá varð hann f efsta sæti
ásamt Bent Larsen. Tefldu þeir
síðan einvígi um titilinn sem
Larsen vann eins og frægt er
orðið.
Af erlendum keppendum er
Sejr Holm, Danmörku álitinn
hvað öflugastur Það var því
góð byrjun hjá Birni Þorsteins
syni að vinna hann í 1. umferð.
Hvítt: Björn Þorsteinsson
Svart: Sejr Holm
Frönsk vöm
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5
4. Rgf3 Rc6 5 exd exd 6. Bb5
De7t 7. Be2 cxd 8. 0-0
(Nú er komin upp sama staða
og hjá. Keres: Capab’anca,
AVRO-skákmótinu 1938. Þar lék
Capa 8. . . Dc7 en fékk verri
stöðu eftir 9. Rb3 Bd6 10. Rbxd
a6 11. b3 Rge7 12. Bb2 0-0 13.
RxR bxR 14. c4 Hér velur
Daninn annað framhald.)
8. . . Dd8 9 Rb3 Bd6 10.
Rbxd Rge7 11. Hel
(Betri áætlun er 11. b3 0-0
12. Bb2 og menn hvlts em
mjög virkir. Eins og skákin tefl
ist. jafnár svartur fljótlega tafl
iö.)
11 . 0-0 12. Bd3 RxR 13.
RxR Rc6 14. Rf5 BxR 15.
BxB Be5 16 Bd3 Dd6 17. g3
Had8 18 Hbl
(Eftir 18. c3 gæti svartur leik
ið d4 við hentugt tækifæri.)
18. . Df6 19. Kg2 g6?
(Björn var kominn í nokkurt
tímahrak og andstæðingurinn
sem átti nægan tíma smitast af
hraðanum 19 . . Hfe8 var
sjá'fsagður leikur.)
20. Bh6 Hfe8 21. f4t Bxd
22 3g5-
(Vinnur skiptamun og þar
með skákina.)
22 . Dc3 23. BxH HxB 24.
He3 Da3 25. De2 Hd7.
(Ekki 5 . . Dxa? 26. c3 og
vinnur mann.)
26. Bf5 He7! 27. HxH RxH
28. Bd3 Kf8
(Hótunin var 29, HxB DxH
30. DxR.)
29. c4! Bf6 30. Hxb d4 31.
Hb8t Kg7 32. Hb3 Da4 33. g4
g5 34. h4! h6 35. fxg hxg 36.
h5 HRc6 37. Hb5 Rb4 38. Bbl
Da3 39. Df2 d3? 40. h6t og
svartur gafst upp.
Jóhann Sigurjónsson
BJORIMININI
Njálsgata 49 Sími 15105