Vísir - 21.08.1971, Blaðsíða 8
V í S I R . Laugardagur 21. ágúst 1971.
Otgefandi: Reykjaprenr nf.
Pramkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri: Jðnas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. ióhannessoD
Auglýsingastjóri: Skúli G. .Tóhannesson
Augiysingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgreiðsla- Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstjórn: Laugavegl 178. Simi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 195.00 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 12.00 eintakið
Prentsmiöis Visis — Rdds hf.
Óbeinn hagur og vandi
IJndanfarna daga hefur stundum verið rætt um ferða-
mál í leiðurum Vísis og þá aðallega um hinar beinu
tekjur, sem við höfum og getum haft af heimsókn-
um- erlendra ferðamanna. En hinar beinu tekjur segja
ekki alla söguna, því að við höfum líka ómetanlegan,
óbeinan hag af ferðamannastraumnum og raunar
einnig óbein vandamál.
Aukinn fjöldi erlendra ferðamanna veldur aukn-
um framkvæmdum í ferðaþjónustunni. Og hin bætta
aðstaða kemur auðvitað innlendum ferðamönnum að
gagni, jafnt sem erlendum. Hún auðveldar okkur að
ferðast með þægilegum hætti um eigið land. Veit-
ingastaðir og gistihús verða sífellt fleiri og betri,
Hreinlætisaðstaða og önnur aðstaða á ferðamanna-
stöðum fer batnandi. Sundstöðum er haldið opnum
meira en áður. Og þannig mætti lengi telja.
Ekki má gleyma samgöngunum. Ferðamanna-
straumurinn veldur því, að flugsamgöngur við út-
lönd og innanlands eru mun tíðari en ella væri. Þá eru
líkur á því, að vaxandi fjöldi erlendra ferðamanna
muni fyrr eða síðar leiða tii þess, að rekstur strand-
ferðaskipa í farþegaflutningum verði hagkvæmur. Og
ferðamennimir auka líka flota ferðabílanna. Enn-
fremur gefa ferðir með útlendinga aukið fé í vegasjóð,
vegna bensínskattanna, og aúkna umferð á vegunum,
en hvort tveggja þrýstir á, að varanlegri vegagerð
verði hraðað.
Atvinnuvegirnir hafa margvíslegt hagræði af ferða-
mönnum. Verzlanir og þjónustustarfsemi nýtast bet-
ur vegna aukinna viðskipta. Ýmis iðnaður, svo sem
gerð leirmuna, ullarvara og minjagripa, nær meiri
framleiðslu og þar af leiðandi aukinni hagkvæmni í
rekstri. Afurðir sjávarútvegs og landbúnaðar seljast
betur, sem einkum kemur landbúnaðinuiu i.Z gagni,
því að þær afurðir, sem ferðamennirnir neyta, munu
annar^ verC.: '• Mdar úr landi'fyrir mik’u minna en
framleiðsluverð.
En svo eru líka vandarnál á ferðinni. Verðlags-
stefna ríkisvaldsins hefur tilhneigingu til að falsa
verð. Það kemur greinilegast fram í niðurgreiðslum
iandbúnaðarafurða. Hinn gamalkunni skollaleikur
með vísitöluna veldur því, að ríkissjóður borgar gíf-
urlegar fúlgur með landbúnaðarvörum. Aðeins sá
hluti, sem erlendum ferðamönnum er gefinn á þennan
hátt, skiptir milljónum króna á hverju ári. Þeir kaupa
matinn langt undir kostnaðarverði, og ríkið borgar
mismuninn.
Þá veldur spennitreyja verðlagseftirlitsins því, að
verzlanir og þjónustufyrirtæki ná ekki sannvirði fyr-
ir þjónustu sína við erlenda ferðamenn. Þeir fá
hér vörur og þjónustu fyrir minni álagningu en í
heimalöndum þeirra. Þetta stuðlar auðvitað að því, að
starfsfólk og eigendur hafi lægri tekjur hér en í öðr-
um löndum. Þannig valda niðurgreiðslur og óheilbrigð
verðlagsstefna okkar töluverðu tjóni í viðskiptunum
v:5 cr’c:: :!r. frðamenn.
ekki hitta Sir Alec
— Alec Douglas Home lávarður er talinn nær
einvaldur um brezk utanrikismál
Það var óheppilegt, að
Einar Ágústsson utanrík
isráðherra skyldi fara á
mis við brezka utanríkis
ráðherrann, Sir Alec
Douglas Home. Alec er
talinn einráður um utan-
ríkismál Bretlands, —
nema hvað Heath for-
sætisráðherra skiptir sér
af afstöðunni til Efna-
hagsbandalagsins og
beitir sér á fáeinum öðr-
um sviðum. Það er hins
vegar sagt, að utanríkis-
ráðherrann, sé sá, er hef
ur máttinn og dýrðina
um önnur utanríkismál.
Hunza nú ekki brezka
fíölmiðla
Brezki utanrfkisráðherrann er
f leyfi um þessar mundir. Þetta
leyfi var ekki afráöið í seinustu
viku heldur fyrir alllöngu. Einari
Ágústssyni hefur þó fundizt, að
hann yrði að fara ferð sina nú
en ekki ) september. Sá hraði,
sem núverandi ríkisstjórn vill
hafa á útfærslu og uppsögn
landhelgissamninga viö Breta og
Vestur-Þjóðverja, knýr fslenzka
utanríkisráðherrann tii skjótrar
feröar.
Þótt viðræður utanríkisráð-
herrans við óæðri brezka ráða-
menn hafi ef til vill ekki verið
hið beztá sem kostur var á, þá
hefur hann ástundað )' Bretlands
ferðinni mjög „diplómatískar"
aöferðir. Nú hunza íslenzkir
ráöamenn ekki BBC og aðra fjöl-
miðla í þessu ríki, sem er okkar
aðalgagnaðili i landhelgismálum.
Utanríkisráðherra hefur þvert á
móti talað yfir brezkum blaða-
mönnum og með því náð, eins
og aö likum lætur, að koma á
framfæri íslenzkum málstað.
„Lífsspursmál fyrir ís-
land," segir Times.
Fyrir fáum vikum heyröist
ekki önnur rödd frá Stóra-Bret-
landi um landhelgismál Islend-
inga en hin stóryrta rödd tak-
markaðra fiskveiðihagsmuna á
Bretlandi. Það verður því að
teljast nokkur árangur, að leið
ari í hinu virtasta brezkra blaða
The Times skyldi byrja þannig:
„Það er skiljanlegtí að íslenzka
ríkisstjómin beri fiskveiðilög-
söguna mjög fyrir brjósti. Þetta
er viökvæmt mál fyrir fiskveiöi-
flota allra ríkja, eins og samn
ingaviðræður Bretlands við Efna
hagsbandalagið hafa sýnt. Fyrir
ísland er þetta lffsspursmál,
vegna þess hversu háð landið er
fiskveiðum. Meira en fjórir
fimmtu hlutar útflutnings Islend
inga og fimmtungur heildar-
framieiðslu þjóðarinnar eru frá
sjávarútvegi runnar. íbúarnir
lfta á hafið umhvefis landið sem
aöal-náttúruauðlind þess“.
„Ættu að getað samið
um grundvallar-
nauðsynina“.
Enginn bjóst við, að Times
mundi lýsa stuöningi við út-
færslu, íslenzkrar landheigi,
enda kemur í framhaldi framan-
greindra ummæla yfirlýsing um,
að „ekki sé unnt að réttlæta
einhliöa ákvörðun um útfærsiu
íslenzku fiskveiöilandhelginnar V
56 miiur ..“ Times segir, að
fyrirætianir íslendinga um ein-
hliða útfærslu séu að sjá'.fsögðu
í andstöðu við samninginn við
Breta frá 1961, en með þeim
samningi hafi iokið síðustu ill-
vígu deilunni milli ríkjanna.
Times segir síðan, „þetta ber að
harma, því að enginn vill endur-
tekningu hins svokallaða þorska
stríðs“ Það sé ekki aðeins hætt.
an á því, „að gengið verði á hlut
brezkra fiskiskipa“, heldur
miklu fremur, að einhliða út-
færsla sé brot á alþjóðlegum
samningum. Blaðið viðurkennir,
að grundval'arnauðsynin sem
Bretar og íslendingar ættu að
Sumarleyfi Sir Alec var á-
kveðið fyrir löngu.
geta komizt aö samkomulagi
um, sé verndun fiskistofna í haf-
inu umhverfis ísland.
Stórillindalaus fundur
Um fund Einars Ágústssonar
og brezka ráðherrans Joseph
Godber var sagt eitthvað á þá
leið, að þeir hefðu skipzt á skoö
unum og íundurinn sem sé verið
stórillindalaus Einar Ágústsson
kom fram í útvarpi og sjónvarpi
og ræddi við blaðamenn, Af því
sem fram hefur komið verður
ekki annað séð, en koma utan-
(Jmsjón: Haukur Helgason
ríkisráðherra hafj vakið mikla
athygli og honum tekizt að
koma sjónarmiðum íslendinga
í landhelgismálum til skila, eftir
því sem föng eru með Bretann.
Út úr gini brezka ljónsins fór
utanríkisráðherra I gær til fund-
ar við vestur-þýzka utanrikis-
ráöherrann Walter Scheel.
Næstir Bretum eru Vestur-Þjóð-
verjar líklegastir til að beita sér
að marki gegn ákvörðunum
Islendinga
Markmið íslendinga eru
varðveizla mikilvæg-
ustu auðlindarinnar.
Um aðferðir við útfærslu
landhelgi var deilt hér á landi
fyrir seinustu alþingiskosningar,
eins og ekki þarf að rekja. Um
takmarkið var ekki deilt. Rök
Einars Ágústssonar í London
og Bonn eru að því leyti rök ís-
lenzku þjóðarinnar Ofveiði er-
lendra veiðiskipa hefur höggvið
nærri fiskstofninum og með því
stofnaö 1 hættu lífsafkomu ís-
lenzku þjóöarinnar. I þeim mál-
um ber að komast eins langt
og unnt er til -þess marks að
varðveita þessa auðlind Islands.
Það er matsatriði þeirra, sem
hafa umboð til stjórnar á ís-
landi, hvaða aðferðum beita
skuli til að ná því marki, til
dæmis að hve miklu leyti viö
komumst einir upp með aðgerðir
og hve mikils samningar og kynn
ing málstaðarins skuli metið.
Um þetta sýnist sitt hverjum,
en núverandi ríkisstjóm hefur
umboð til stjórnar máianna og
aðrir hafa umboð og skylduti!
að leiðbeina og gagnrýna, þvl að
þaö er niðurstaðan, sem öllu
skiptir
Vestur-þýzki utanrikisráðherrann, Walter Scheei.