Vísir - 21.08.1971, Síða 16
jvrtugcurcKtgui z»i. A£U9l ljíx.
Japanskir
sportmenn
Sumum erlendum sportveiði
mönnum, sem hingað koma, er
víst nokkuð sama hvort þeir
veiða mikið eða lítið, ef þeir
aðeins fá að horfa niöur í hyl
ina og sjá framan í laxinn. Þess
ir japönsku laxveiðimenn, sem
voru að veiðum i þeirri frægu
Laxá í Kjós í fyrradag, virtust
að minnsta kosti hafa meiri á-
huga á að sjá laxinn stökkva
upp fossinn, heldur en krækja
önglinum i hann. Þeir settust
með stangir sínar á stein og
skemmtu sér a'.veg konunglega.
En slík skemmtun mun raunar
nokkuð dýr, þar sem dagurinn
f Laxá kostar 5.600 kr. fyrir
hverja stöng. — Ljósm. Birgir.
—JH
Vilja hjélreiðabraut í stað
einbýlishúsah verfis
íbúar í Árbæjarhverfi
vilja fá hjólreiðabraut
við Rofatíæ þar sem
skipulagsnefnd hefur
þegar veitt leyfi fyrir 12
íbúðarhúsum. Var til-
laga um hjólreiðabraut-
ina lögð fram á fundi í
gær þar sem voru mætt
ir fulltrúar Framfarafé-
lags Árbæjarhverfis,
skipulagsnefndar . og
borgarráðs m.a.
Vísir talaði í gær við Sigur
jón Ara Sigurjónsson formann
framfarafélagsins, sem sagði, að
árið 1969 hefi skipulag við Rofa
bæ verið ákveðið. og þar áætl-
uð tvöföld gata eftir hverfinu.
„Með tilkomu nýja þjóðvegar-
ins yfir Bæjarháls var þessu
breytt, og ákveðið að setja
þarna 12 hús, sem voru veitt
einum byggingaraðila.
Það, sem við höfum á móti
þessum framkvæmdum er m.
a. þetta: Það er verið að endur
skipuleggja hverfi, sem búið er
að ganga frá, og með því geng
ið að þeim, sem fengu úthlutað
endaíbúðum í hverfinu Ráðgert
er að setja nýju húsin á mjóa
ræmu meðfram götunni í stað
^kgreinarinnar, sem þar átti að
vera, og þrengir það mjög aíð
götunni, sem mikil umferð er
þegar um. Húsin, sem eiga að
koma þarna eru öll eins, yerk
smiðjuframleidd, og að okkar
áliti ljót. Þaö er yfirlýst stefna
borgarinnar að hatnia gegn bíla
umferð m. a. með J>v*i að fá
fólk til þess að nota almenn-
igsvagna. í borginni er hvergi
gert ráð fyrir hjólreiðabraut,
sem geti unnið að þessari stefnu
borgarinnar, því stungum við
upp á hjólreiðabraut á þessum
stað.“ — SB
Öþefur. flugnasveimur og rottur
— sorphaugar hafa myndazt fyrir
neðan Sólarlagsbraut
„Ég horfi á það með hryll-
ingi að haugarnir eru að fær-
i ast nær húsunum hjá mér“,
segir Hannes Einar Halldórs
son Bjargi III, Seltjarnarnesi
sem er rétt á mörkum Sei-
,,Sorphaugarnir“ fyrir neðan Sólarlagsbraut eru aðalleikvöllur
barnanna í nágrenninu — fiskverkunarhús í 30 metra fjarlægö —
flugusveimur og rottur í og yfir.
tjarnarness og Reykjavíkur-
borgar. „Haugamir fyrir neð
an fegurstu götu borgarinnar,
Sólarlagsbraut hafa smám
saman verið að vaxa og auk-
ast og eru nú komnir ískyggi
lega nærri.“
Það leggur af þeim óþefinn,
flugnasveimur er yfir þeim og
í næsta nágrenni, rottur valsa
þarna um, og þetta er aðalleik-
völiur barnanna 1 nágrenninu. í
30 metra fjarlægð frá haugun-
um er saltfiskverkunarstöð. Ég
hef margsinnis reynt að fá úr-
bót á ástandinu en án árangurs.
Einu sinni kallaði ég lögregiuna
á staðinn, en hún treysti sér
ekki til að fara þarna um, óþef-
urinn var svo hryllilegur af
þessu.
Það eru aðallega flugurnar,
sem hafa þjáð mig í sumar og
svo óþefurinn. Þarna fyrir neðan
Sólariagsbrautina átti aö vera
uppfylling með mold. Rusl hef-
ur verið meira um, en annað
siagið koma ýtur og ýta yfir. Ég
hef staðið i því að benda mönn-
um góðfúslega á það, að það sé
útilokað að henda rusli þarna,
það eigi ekki erindi á þennan
stað, en ún árangurs, fólk fylg-
ir almennt eftir borginni. Með-
an þessi ósómi á sér stað ganga
ekki slagorð eins og „Hugsum
áður en við hendum" og „Hreint
land, fagurt iand“. Ég hef heyrt
fó'.k segja, að þetta sé búið að
vera svona þarna sl. þrjú ár. Það
er allavega búið að vera svona
síðan í fyrravetur, þegar ég
flutti út á Seltjarnarnesið. Ég
er sennilega einn af fáum. sem
hlakka til vetrarins. Þá snjóar
kannski yfir draslið Það, sem
hefur ýtt mér af stað, er m. a.
það, aö ég er hræddur vegna
barnanna þarna. Þetta er helzti
leikvöllur barnanna úti á Sel-
tjarnarnesi og bílstjórar eru ekki
nándar nærri nógu gætnir. Á
þessu svæði hef ég líka rekizt á
byssusting, sem einhver. sem
ekki er með réttu ráði, hefur
skilið eftir."
Vísir hafði samband við
Hreinsunardeild borgarinnar i
gær og, spuröi, hverju þetta
sætti. Árni Ámason hjá Hreins-
unardeildinni sagðist vera nýbú-
inn að fá upphringingu frá borg-
ar'.ækni, og ætti að vera búið
að koma fyllingunni f lag fyrir
helgi. „Bærinn hefur verið að
fylla þarna upp með uppgreftri,
mold og grjóti, en mér ,gr ekki
kunnugt um að þangað hafi ver-
ið flutt sorp. Okkur ski'.st, að
einstakiingar hafi verið þar að
verki." —SB
Mörg ríki
telja út-
færsluna
ekki brot
Hans G. Andersen
hélt uppi vörnum
á Genfarfundinum
„Vitnað hefur verið tll yfirlýstr-
ar stefnu íslenzku ríkisstjórnarinn-
ar ..að færa fiskveiðilögsögu Is-
lands út fyrir 1. september 1972.
Það hefur verið sagt, að slíkar að-
gerðir séu ekki í samræmi við al-
þjóðalög og mundu ekki stuðla að
alþjóðasamvinnu á þessu sviði. —
Sendinefnd mín telur, að ummæli
ýmissa sendinefnda hér og hin
mikilsverða skýrsla Matvæla- og
landbúnaðarstofnunarinnar um
þjóðarétt sýni greinilega, að fjöl-
mörg riki líti ekki á stefnu okkar S.
þessum efnum sem brot á alþjóða-
lögum.“
Þetta sagði Hans G. Andersen
þjóðréttarfræðingur á Genfarfund-
inum, í svari sínu við gagnrýni
Breta og Sovétmanna á fyrirætlun-
um islenzku ríkisstjórnarinnar i
landhelgismálinu. Hans G. Ander-
sen sagði, að útfærsla íslendinga
byggöist á nauösyninni á að vemda
lífshagsmuni þjóðarinnar. — Hann
rakti sögu landhelgismálsins og
sagði, að aðstæður væru svipaðar
nú og þær voru árið 1958, þegar
fært var út 1 12 mílur fyrir alþjóða
ráðstefnu. Þá hafi ekki verið beðið
eftir alþjóðaráðstefnu, sem halda
átti árið 1960, enda ekki verið
trygging fyrir þvi, að hún leysti
vandann. — íslenzka ríkisstjórnin
teldi. að gera yrði ráðstafanir nú
þegar til að vernda hagsmuni þjóð-
arinnar. Vænta mætti mjög vaxandi
veiða erlendra flota, búnum full-
komnustu tækni. Hann sagði, að ís-
lenzka sendinefndin' væri fullviss
um stuðning meirihluta sendinefnd-
anna, þegar á reyndi. —HH