Vísir - 10.09.1971, Blaðsíða 6

Vísir - 10.09.1971, Blaðsíða 6
6 Jónas Guðmundsson stýrimaður: MEÐ DÚMM DÚMM KÚLUR 1 SÁLINNI Ciguröur Þórarinsson, jarðfræS ^ ingur taldi myndlistina standa meS riestum blóma allra listgreina á íslandi, þetta sagði hann þegar hann opnaði kjallar- ann í Norræna húsinu undir list. Það er líklega nokkuð til í þessu og þó kattalágujafningur sé á- líka algeingur og brauð og vín á borði listgyöjunnar, er ekki því aö leyna, að vakning er mikil í myndlistinni núna og því ekki að ófyrirsynju að so eldfimt hjarta og í brjóstinu á honum Steingrími Sigurðssyni verði eld- inum að bráð, standi í Ijósum logum. Steingrímur byrjaði aö mála upp úr þurru. Var áður bara einhversskonar kúnstner, vit- stola af gleði og þjáníngu á vfxl og með dúmm dúmm kúlur I sálinni alla daga út af kúnst- inni, sona almennt. Sona maður hlaut að geta orðið hvað sem var, — líka myndlistarmaður. Það er dálitið erfitt að skil- greina málningu Steingrlms, sona fyrir sjómenn f það minnsta. Kannske er hann sama í málningunnj og Jósefina frá Nauthóli er f hinu dulaifull'a? Fyrst og fremst manneskja, en segir samt óorðna hluti og flett- ir onaf leyndarmálum. Það kann því aö gæta nokkurrar vantrúar á heila gillið, á hrókerínguna ■} miklu, að menn geti þrátt fyrir . .] allt orðið kúnstinni að liði með því einu að komast yfir máln- ingu. Líkast til hefur Steingrím- ur alltaf verið málari sona innst innj og málaö heilmikið í sál- inni uppúr blóði og þjáníngu og það er kannski þessvegna sem tíminn er so naumur og so hratt riðið og nú stendur hann enn meðal vor eftir stóra sýningu í New York og so aðra á Akur- eyri, en þángað kemur hann með sýningar einsoft og stóriborinn frá Jarðborunum ríkisins og stormur og amsúgur og andagift fer um kyrrláta bæinn, sem nú er orðinn hálfgildis japan eftir að hafa I mannsaldra haldið uppi danskri siðmenningu og öllu því skásta í mannlíf; og menn- ingu vesturlanda. Steingrimur getur því ekki lengur þótzt vera eitthvað annað en málarj og þessvegna getur hann haldið áfram að selja baunkum mál- verk, þegar aðrir verða að láta sér nægja víxla, haldið áfram að keppa um viðurkenníngu, ef það er þá á annað borð hægt að verðlauna myndlist eða kúnst Casa Nova Casa nóva er merkileg búla. Sona stendur allt á haus á fs- landi. Þetta gallerí, sem er nán- ast rekið af óvitum; hefur líklega gert meira fyrir myndlistina en sjálft stjórnarráðið. Seinna. þeg_- ar menn eldast,' fletjast auga- steinamir út og líka sálin og listin verður að hafa ofanaf fyrir sér sjálf og leita fyrir sér aö nýjum óvitum með opin augu og opið hjarta. Hérna sýnir Stein grímur í hópi jafningja, þvl hann kemst ekki á máfastells- aldurinn, né á hin andlegu eftir- laun, er einkenna miðaldra fólk á íslandi. Þegar menn leggja ekki neitt á sig nema hægt sé að éta það. Þessvegna sker hann sig úr hinum eldri og minnir á ítalskan götusala, fremur en virðulegan íslenzkan listmálara, sem selur baunkum og stórlöx- um myndir og hann gengur ljúf- lega um salinn með vinum sínum sem virðast flestir annaðhvort vera kúnstnerar, eða hreinir gangsterar og myndirnar hugsa upphátt á veggjunum. Málverkin eru 50. Fimmtí alsystkin, mest landslagsmyndir og abstraktssjónir. Skemmtileg- astar finnast sjómönnum þó lík- lega myndir frá Snæfellsnesi, en Steingrímur lá undir jökli I sum- ar, I Hellnaplássi og víðar. Skin- andi fallegar myndir. en hann sýnir djöfulli vond málver.k líka, sosum eins og málverk af Akur eyri sem minnir á uppþvott i kínversku eldhúsi og andlits- myndir sem minna á vissan ræf- iídóm sem er seldur einfeldníng um og drukknum sjómönnum I staðinn fyrir listaverk. Svona geiga skotin hjá þeim, sem ekki eru I æfingu, eru snöggsoðnir. Þar er tilviljunin ýmist hola I höggi, eða kúlan týnd. Það er komið rökkur og ljósiö bunar út úr kassanóvu. Gangster ar með sólgleraúgu og gangster- ar með bamsandlit skima I voveifleg portin við bókhlöðu- stíginn, einsog þeir eigi von á kúlnadembu og so hraða þeir sér út í bílana sína sem þeir hafa lagt hér og þar og myrkrið. hefur rennt niður, meðan þeir dokuðu við hjá kúnstnemum mikla, sem nú selur baunkum og stórlöxum málverkin sin. Líka þeir hafa gaman af þessum óskiljanlega listamanni, sem heillar með persónu sinni og málníngu. Jónas Guðmundsson, stýrimaðuf Blaðburðarbörn óskast Njörvasund — Skipasund — Lækir I — Lækir II Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsl- una. Dagblaðið Vísir Hópferðir Margar staérðii hópferöabíla alltaf til leigu. BSÍ Umferðarmiöstöðmni. Slmi 22300 VISIR . Föstudagur 10. september 1971. Eru tölvurnar mannlegri en mennirnir sjálfir? S.S. skrifar: „Tölvunum var um kennt 'i frétt I Vís; um manninn, sem fékk hótunarbréf frá Gjald- heimtunni vegna nokkur hundr- uð króna skuldar, sem „heimtu frekjan" ta'ldi sig eiga hjá mann- inum, en hann hafði borgað. Er þetta nú nógu „lógískt?“ — Ég held að það geti varla verið að tölvurnar eigi nokkra sök á. Þetta er kerfið. sem stofnunin sjá’f hefur valið sér, — og ekki bara þessi stofnun heldur fjöl margar aðrar Símum, hreinum öryggistækjum, er umsvifalaust Jokað vegna smáskulda, ráðizt er að rafmagninu, jafnvel meðan fólk er I fríum o.s.frv. Þvá' mið- ur virðist mér aö það séu MENN IRNIR sem eru hættir að geta hugsað, en frekar von til að hitta fyrir mannlega TÖLVU, sem gætj skiliö að það er ekki á- stæða til stóraðgerða út af ein- um litlum 420 krónum." Hrakspár um Ástralíufara Öm Ásmundsson hringdi og sagði: „Það er engu líkara en þeim, sem héðan hverfa til . þess að leita gæfunnar annars staðar, sé óskað a'lls hins versta og menn geti ekki unnt þeim neins brautargengis. Þannig virðast flestir leggjast á eitt um að segja hrakfara- sögur af þeim, sem fóm til Ástra'íu, eins og sjá mátti t d. H frétt I Tfmanum núna í vik- unni. Og þagað er vandlega yfir því hvort einhverjum hafi vegn að vel. En svo vill til að við þekkj- um nokkra þeirra, sem fóru til Ástralíu, vitum að það fara af þessu misiafnar sögur. Og ég meina mis'afnar að því levti. að það eru ekki eineöngu hrakfarir. — Tvo menn þekki ég þar suður frá. annar rafvirki og hinn smiður, og báðum vegna betur en begar beir voru hér heima. Svo bað blióta að vera til dæmi um velgengni manna sem fara héðan.“ Ótækt oð líða atbrota- mönnum allt Æ.P símar: Það var minnzt á það hér \ dálkinum í gær að við ættum að taka upp strangara eftirlit með út'endingum. sem hér koma, og var Þar bent á hætt una á smiti, sem þeir geta flutt með sér. Þetta er rétt. En það var annað sem ég ætlaði að minnast á, — þessa Islenzku dóna, sem vaða uppi að þvá er virðist átölulítið og ráðast aö fólki með svívirðingum og láta jafnvei hendur skipta, eins og sagt var frá I mánudagsblaði Vísis. Svona nokkuð má ekki láta átölulaust. Gestir okkar veröa að fá að vera í friði með an þeir gista land okkar Ætli útlendingar aftur á móti aö gista hér um nokkurn tlma og eiga samskipti við íslendinga. verðum við að viðhafa fyllstu varúðarráðstafanir. Gamii götuslóðinn hjá Skáfa- heimilinu stórhættu- legur Einn á Egilsgötu skrifar: „Það verður að vara menn við hættunni, sem fy'gir því að fara um gamla götuslóðann fyrir neð an Domus Medica, meðfram Snorrabrautinni. Þessum slóða hefur ekkert ver ið haldið við. enda orðinn nær ófær I mvrkri (engin götulýs- ing þar heldur), en samt sé ég marga álpast til aö stytta sér leið þar. Þó er mesta mi'di, að ekki hef ur orðið ennþá slys, þegar bíl- ar koma af slóðanum og ætla út á Egilsgötuna. Það verður aö fara yfir gangstétt en beggía megin við innkevrsluna þar er 1 bílum lagt í þéttri röð. Menn sjá þvl hvorki til hægri eöa vinstri þegar þeir fara út á göt una, og renna a'veg blint I sjó- inn með það. hvort þeir sleppa við bilaumferð eftir Egilsgöt- unni. Yfirvöld þyrftu þarna annaö hvort að loka innkeyrslunni — eöa mála gular gangstéttarbrún irnar til beggja hliða." HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.